Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991.
5
Aflabrögð
lélegalltfrá
áramótum
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Aflabrögð togara Útgerðarfé-
lags Akureyringa hf. hafa verið
léleg allt frá áraraótum, og má að
verulegu leyti rekja ástæðu þess
til óhagstæðs tíðarfars.
Aflinn tvo fyrstu mánuði ársins
verður að sögn Einars Óskars-
sonar hjá ÚA svipaður og tvo
fyrstu mánuði sl. árs, en þá nam
samanlagður afli þessa mánuði
rúmlega 1800 tonnum. Hinsvegar
rættist mjög úr eftir það, og aflinn
tvöfaldaðist í mars og apríl.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
gerir út 7 togara, fimm sem eru
á ísfiskveíðum og tvo sem vinna
og frysta aflann um borð. Öllum
afla ísfisktogaranna er landað á
Akureyri til vinnslu, og greiðir
félagið sjómönnum 30% heima-
löndunarálag.
Minnstasem-
entssala i 20 ár
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Nýliðið ár var hið lélegasta
undanfarin 20 ár hjá Sements-
verksmiðju ríkisins hvað varðaði
sementssölu. Sala á sementi dróst
saman um 7000 tonn frá árinu
áður, úr 117.500 tonnum í 110.500
tonn.
Gylfi Þórðarson, framkvæmda-
stjóri verksmiðjunnar, sagði i
samtali við DV að aðalástæðan
fyrir minni sölu væri almennur
samdráttur í byggingariðnaði.
Fréttir
Oddsskarð:
Stórbætt aðstaða
f yrir skíðafólk
Skíðalyfturnar tvær eru nú 1300
metrar á lengd.
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: .
Unnendur skíðaíþróttarinnar á
Austurlandi hafa verið svekktir það
sem af er vetri vegna þess snjóleysis
sem gætt hefur hér eins og víðast
annars staðar á landinu. Veturinn
hefur verið í mildara lagi og snjór
með minnsta móti enda langvarandi
suðlægar áttir með tilheyrandi hlý-
indum, þannig að elstu menn muna
vart annað eins.
Austfirðingar hafa verið að blóta
þorrann í blíðskaparveðri og hita
þótt dagatahð segi að nú sé hávetur.
Skíðafólk kemst hins vegar ekki á
skíðin sín. Illt er til þess að vita þar
sem Skíðamiðstöðin í Oddsdal hefur
aldrei verið glæsilegri en einmitt nú.
Sl. sumar var kostað um 16 milljón-
um króna í lengingu á lyftu og bygg-
ingu nýrrar lyftu.
Að sögn Stefáns Pálmasonar, for-
manns stjórnar Skíðamiðstöðvar-
innar, var gamla lyftan lengd um 100
metra og er nú 700 metrar. Síðan var
ný lyfta byggð í framhaldi af þeirri
gömlu, í átt að Goðatindi, og er hún
500 metrar. Alls eru því þessar 3 lyft-
ur 1.300 metrar á lengd og jókst flutn-
ingsgetan við þessar kostnaðarsömu
Skíðamiðstööin í Oddsdal.
brey tingar frá því í fy rra úr 450 í 1.280
manns á klst. Faflhæðin úr 180 metr-
um í 330 metra.
Stefán sagði að til viðbótar þessu
væri byrjendalyfta norðan við veg-
inn, sem væri 400 metra löng og flytti
hún 600 manns á klst. Þá er á svæð-
inu glæsileg þjónustumiðstöð, þar
sem hægt er að fá mat og drykk
handa skíðamönnum og ferðafólki
auk gistingar. Lokið var við fram-
kvæmdirnar í byrjun nóvember sl.
Svæðið var opnað 12. janúar og þá
var aðsókn góð, en síðan fór snjórinn
DV-myndirEmil
hraðminnkandi þannig að loka varð
lyftunum.
Austfirðingar hafa vel kunnað að
meta útiveruna og skíðaiðkunina
þegar gefið hefur og sagði Stefán í
því sambandi að 10 þúsund manns
hafi sótt svæðið sl. vetur en þá var
snjórinn að mestu eftir jól.
Þrjú sveitarfélög eiga Skíðamiðstöð
Austurlands, Oddskarði, það er Nes-
kaupstaður 50%, Eskiijörður 30% og
Reyöarfjörður 20%. Eignaraðilar
hafa lagt til lyfturnar og aðrar eignir
og tæki, en reksturinn hefur að öðru
leyti staðið undir sér.
Jersey - Ermarsundseyjan
skammt undan strönd
Frakklands, Bretagneskaga.
* Veðursæl, fyrsta flokks gistingar, hótel, gistiheimili, ibúð-
ir, góður matur, góðar baðstrendur og alltaf eitthvað að
gerast.
* Litið þjóðfélag með sjálfsstjórn að öllu leyti.
* Yfir ein milljón ferðamanna kemur þar árlega.
* Við tryggjum þér þotuflug i áætlunarflugi Flug-
leiða og British Airways, sama daginn. Hægt að
stansa í London á heimleið.
* Verð á hótelum frá kr. 1500,- á dag.
* Flug um kr. 37.000,- fram og til baka.
* Fyrsta flokks sumarleyfi -
upplagt að taka börnin með.
* Fáið ykkur bæklinga og verðlista.
Sjá Stöð 1,
föstudaga.
Lærið frönsku í Frakklandi:
í Frakklandi bjóðum við upp á frönsku-
nám fyrir útlendinga sem hafa fengist
eitthvað við frönskunám áður, þ.e. eru
ekki algjörir byrjendur. Eru þetta árs-
skólar og hver og einn getur stundað
nám sitt hversu lengi sem hann vill.
Próf eru tekin að námi loknu. Skóli þessi
er í Hyéres sem er smábær á Miðjarðar-
hafsströnd Frakklands, skammt frá Tou-
lon. Við fljúgum til Parísar með
Flugleiðum og síðan til Toulon, en þang-
að er náð í nemendur. Hægt er einnig
að fljúga til Lúxemborgar og taka þaðan
lest til Hyéres en þá þarf að skipta i
París. Einnig kemur til greina að fljúga
til London og þaðan til Toulon. Gist er
á einkaheimilum og eru allar upplýsing-
ar á íslensku til reiðu ásamt verðlistum
og bæklingum. -
Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar, / j;endum
Gnoðarvogi 44 - sími 68-62-55 / og verðlista.