Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991. / 11 Utlönd Þjóðhetjaífangelsi Dórastóll í ísrael hefur dæmt eina af þjóðhetjum landsins á síöustu mánuðum í 20 ára fangelsi fyrir síendurtekin bankarán. Maðurinn gat sér frægðarorð á síðasta ári fyrir að ræna 22 banka og komast upp með þaö þar til í síðustu tilrauninni. Maðurinn heítir Ronne Leibovitz og fór allra sinna ferða á rauðu mótorhjóli. Hann varð frægur fyrir að geysast um á hjólinu, stökkva inn í banka og stinga lögregluna af á flóttanum. Leibovitz rændi aldrei miklu í einu og hann gat bent á það sér til máls- bóta að aldreí gerði hami nokkrum manni miska á glæpaferli sínum. Talið er að hann hafi í allt stolið um 150 þúsund doUurum en það svarar til um 45 milljóna íslenskra króna. Leibovitz þurfti þó ekki sérstaklega á peningunum að halda því hann var af efnuðu fólki kominn. Hann var handtekinn í október á síðasta ári og viðurkenndi glæpi sína. Almenningur í ísrael stóð með Leibovitz og henti gaman að lögreglunni í tilraunum hennar til að hafa hendur í hári ræningjans. Dómstóllinn ákvað að dæma hann til þyngstu refsingar til að koma í veg fyrir að aðr- ir lékju sama leikinn eftir. Fjölskylda mannsins ætlar að áfrýja dóminum. Dagblað í ísrael útnefndi Leibovitz íþróttamann ársins á síðasta ári fyrir fæmi sína á mótorhjóli. Todor Zhivkoz er orðinn 79 ára gamall en bar sig samt vel þegar hann kom til réttarhaldanna í Sófíu. Simamynd Reuter Hermenn skutu á óbreytta borgara Albanía: Starfsmönnum stjórnarandstöðuflokka hafa borist hótanir eftir að Ramiz Alia, forseti Albaníu, varð við kröfum námsmanna um meira lýðræði. Simamynd Reuter Skriðdrekar umkringdu stjórnar- byggingar í Tirana, höfuðborg Alba- níu, í gærmorgun en þeir hurfu er líða tók á daginn. Þó mátti sjá her- menn á götum úti. Mikil spenna var sögð ríkja í borginni þó allt væri ró- legt. I gær greindi talsmaður Lýðræðis- flokksins frá því aö óbreyttur borg- ari hefði verið skotinn til bana og annar særst alvarlega á sunnudags- kvöld eftir að hermenn hefðu farið með þá inn á hliðargötu til að kanna skilríki þeirra. Samkvæmt opin- berum fréttum létu fjórir lífið í átök- um á föstudaginn milli liðsforingja og harðlínumanna kringum herskól- ann í Tirana. Harðlínumenn vildu endurreisa risastóra styttu af Enver Hoxha, fyrrum leiðtoga landsins, sem felld var af stalli í síðustu viku. í yfirlýsingu yfirvalda sagði að þrjátíu manns hefðu verið hand- teknir í kjölfar óeirðanna við her- skólann en talsmaður Lýðræðis- flokksins, Genc Polo, sagði að á milli sextíu og sjötíu manns hefðu verið handteknir. Hann kvað þá fáu er- lendu fréttamenn sem eru í Tirana hafa verið beðna um að yfirgefa landið eftir að yfirvöld tjáðu þeim að ekki væri lengur hægt að tryggja öryggi þeirra. Polo sagði jafnframt aö starfsmönnum Lýðræðisflokksins og fjölskyldum þeirra hefðu borist nafnlausar hótanir. Hann kvaðst telja harðlínumenn hafa kynt undir óeirðunum til að auðvelda yfirvöldum að bæla niður stjórnarandstööuhreyfmguna. Hann efaðist um að hægt yrði að halda fyr- irhugaðar fjölflokkakosningar 31. mars næstkomandi ef ástandiö breyttist ekki. Reuter Sexmenmngamir frá Birmingham: Todor Zhivkov, fyrrum leiðtogi húlgarskra kommúnista og einvaldur í landinu um árabil, kom fyrir rétt í gær sakaöur um fjárdrátt. Hann er fyrsti leiðtogi kommúnisti i Austur-Evrópu sem verður að svara fyrir dómi til saka fyrír gerðir sínar á valdastóli. Zhivkov var hrakinn frá völdum í lok ársins 1989 eftir að hafa verið við völd í Búlgaríu í 35 ár, Hann á yfir höföi sér dóm fyrir að hafa flutt úr landi háar fjárhæðir úr opínberum sjóðum og keypt fyrir þýfið ýmsan munað á Vesturlöndum handa sér og sínum mánustu. Manníjöldi safnaðist saman fyrir utan hús hæstaréttar Búlgaríu í Sófíu þegar Zhivkov kom til réttarins. Mannfjöldinn hrópaði að honum ókvæð- isorð og kallaði hann morðingja. Zhivkov virtist samt hress i bragði og ekki var að sjá sem honum væri brugðið þrátt fyrir að hann sé nær áttræð- ur og að sögn sjúkur maður. Hann var áberandi vel klæddur og virtist ekki láta á sig fá að vera skipað á sakamannabekk. Ben Bella stydur Saddam Ben Bella sést hér í mótmælagöngu með hópi námsmanna í Algeirs- borg. Þeir voru að mótmæla afskiptum Bandaríkjamanna af málefnum araba. Símamynd Reuter Ahmed Ben Bella, fyrrum leiðtogi Alsírs, er einn ákafasti stuðnings- maður Saddams Hussein í löndum araba. Hann hefur farið til fundar við Saddam i Bagdad og reynt að verða honum að liði á alþjóðavettvangi. Ben Bella er þó valdalaus því honum hefur ekki tekist að fylkja Alsíring- um að baki sér þrátt fyrir glæsta fór til heimalandíns á síðasta ári. Ben Bella haföi þá verið aldarfjórðung í útlegð. Hann er ein helsta frelsis- hetja lands síns eftir að hafa leitt þjóöina til sigurs gegn Frökkum í ný- lendustríði þeirra á sjötta og sjöunda áratug aldarinnar Reuter í stjórnmálin á ný þráttfyrir hótanir Skemmtigarðseigandinn Bert Karlsson, sem fyrir rúmri viku sagði af sér formennsku í nýja óánægjuflokknum í Svíþjóð vegna hótana, er nú kominn í stjórnmálín á ný. Hann ætlar að verða aðstoðarformaður Nýs lýðræðis, það er nýja óánægjuflokksins, en við formennskunni hefur tek- ið greifinn Ian Wachtmeister. Karlsson kvaðst hafa fengið svo margar stuöningsyfirlýsingar að sér hefði fundist það rangt að draga sig í hlé. Hann taldi ekki að vikubrott- hvarf hans hefði skaöað íloklúnn og þykist viss um aö hljóta allt að tlu prósent fylgi í kosningunum í haust. tt Hafa setið inni saklausir í 16 ár Saksóknari í Bretlandi hefur boðað að dómar yfir sex írum, sem dæmdir voru í fangelsi fyrir 16 árum, verði felldir úr gildi. Mennimir voru grun- aðir um að hafa staðið fyrir sprengju- tilræði í Birmingham haustið 1974. Þeir voru þá taldir hryðjuverkamenn á snærum írska lýðveldishersins og dæmdir fyrir verknaðinn. í tilræðinu lét 21 maður lífið og 162 særðust. Sexmenningarnir hafa alltaf haldið fram sakleysi sínu og ættingjar þeirra hafa í öll þessi ár barist fyrir að fá þá sýknaða. Saksóknari hefur nú komist aö þeirri niðurstöðu að sönnunargögn gegn þeim séu í meira lagi-ótraust og að lögreglan hafi beitt þá oíbeldi til að fá fram játningar. Dómnum yfir mönnunum hefur verið áfrýjað tvívegis og var mál þeirra tekið upp að nýju þegar sann- að þótti að lögreglan hefði beitt ólög- legum aðferðum við rannsóknina og falsað sönnunargögn. Stjórn írlands Jazov, varnarmálaráðherra Sovétrikjanna, við upphaf fundar Varsjárbanda- lagsins i Búdapest í gær þar sem undirritað var samkomulag um að leggja bandalagið niður í marslok. simamynd Reuter Varsjárbandalagiö: Hernaðarsamstarfi hætt Utanríkis- og varnarmálaráðherr- ar Varsjárbandalagsins undirrituðu í gær í Búdapest samkomulag um að hætta allri hernaöarlegri samvinnu og leggja bandalagið niður þann 31. mars næstkomandi. Varsjárbanda- lagið var myndað árið 1955. Fulltrúar aðildarríkja Varsjár- bandalagsins, Sovétríkjanna, Pól- lands, Rúmeníu, Ungverjalands, Búlgaríu og Tékkóslóvakíu, sam- þykktu einnig að hittast aftur þann 1. júlí til að ræða endalok pólitísks samstarfs rikjanna. Tilkynnt var í Búdapest í gær að frestað yrði fundi forsætisráðherra Comecon, Efnahagsbandalags Aust- ur-Evrópuríkja, sem halda átti á morgun. Á þeim fundi átti að leysa formlega upp bandalagið og setja á laggirnar nýtt og sveigjanlegra. Yfir- völd í Moskvu tilkynntu hins vegar í gærmorgun að þau vildu meiri tíma til undirbúnings. Ágreiningur hefur ríkt um það meðal aðildarríkja Comecon hvernig bandalag eigi að koma í staðinn. Reuter hefur hvatt til að mál mannanna verði tekið upp að nýju og niðurstöðu saksóknara var fagnað á írlandi þeg- ar hún var kunngjörð. Búist er við að mennirnir verði látnir lausir á næstu vikum. í Bretv landi er jafnan talað um þá sem sex- menningana frá Birmingham og hef- ur mál þeirra vakið mikla athygli. Reuter eS\t og betri bl/asa/a„__ /bílasala garðars) BORGARTÚN11 — 105 REYKJAVlK SlMAR 19615 & 18085 MMC Pajero turbo dísil, grár, ek. 105.000. Verð 950.000. Suzuki Swift '88, siifurgrár, ek. 27. ús. V. 470.000. Ch. 530.000. Wagoneer LTD 1985, dökkblár, ek. 79 þús. V. 1.390.000. Vantar bíla á staðinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.