Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991
Viðskipti ________________________________________________________________x>v
Rækjuverksmiðjumar á ísafirði:
Ætla að láta reikna út
hagkvæmni sameiningar
- ýmsar leiðir verða skoðaðar, segir Kristján Jónasson, stjómarformaður Bakka hf.
„Það stendur til að Byggðastofnun
reikni það út hvort hagkvæmt sé að
sameina þessar fjórar rækjuverk-
smiðjur sem eru hér á ísaflrði og
hvort hagkvæmara sé að reka þær
sem eina einingu eða fjórar eins og
nú er. Þá verður jafnframt reiknað
út hvort hagkvæmt sé að sameina
einhverja ákveðna þætti sem snerta
allar verksmiöjumar. Þar má nefna
þætti eins og löndun, útskipun og
sameiginleg innkaup á rækju, svo
Atvinnuleysi á síðasta ári:
Rúmlega
hálf milljón
atvinnu-
leysisdaga
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Skráðir atvinnuleysisdagar á
landinu öllu á síðasta ári námu sam-
tals 586 þúsund, og hafa aldrei verið
fleiri síðan skráning atvinnuleysis-
daga hófst hér á landi árið 1975.
Mest var atvinnuleysið á Norður-
landi eystra og á Austurlandi, en það
nam 3,3% af mannafla. Minnst var
það hinsvegar á Vestfjörðum eða
0,4%.
Atvinnuleysisdagar á landinu öllu
í desembermánuði s.l. voru 47 þús-
und talsins. Þeim hafði flölgað frá
mánuðinum á undan um 13 þúsund
eða um 38%. Fjöldi skráðra atvinnu-
leysisdaga í desember jafngilti því
að 2.200 manns hefðu að jafnaði verið
skráðir án atvinnu en það svarar til
1,7% af áætluðum mannafla á vinnu-
markaði.
dæmi séu tekin,“ sagði Kristján Jón-
asson, stjórnarformaður rækjuverk-
smiðjunnar Bakka hf. á ísafirði, í
samtali við DV í gær.
Hann sagði þetta ekki endilega til-
komið vegna þess að afkoman í
rækjuvinnslunni væri slæm um
þessar mundir vegna verðfalls á
rækju. Það hefði verið talað um þetta
fyrst fyrir 4 árum meðan rækjuverð-
ið var hvað hæst.
„En á miðju ári í fyrra fórum við
að ræða það í alvöru hvort hag-
kvæmt væri að reka þessar flórar
rækjuverksmiðjur sem eina einingu.
Einnig að staða hverrar verksmiðju
yrði skoðuð ef þetta yrði athugað.
Það varð ekkert úr þessu þá en í
nóvember var þetta vakið upp aftur.
Byggðastofnun var beðin um að
vinna verkið fyrir okkur og átti að
miða afkomuna við 9 mánaða upp-
gjör og að verkinu yrði lokið fyrir
áramót. Af ýmsum ástæðum dróst
að hafist væri handa. Þá var ákveðið
að Byggðastofnun hæfist ekki handa
fyrr en ársuppgjörið lægi fyrir. Og
nú er verið að bíða eftir ársuppgjöri
allra. Þegar það liggur fyrir mun
Byggðastofnun reikna út hvort hag-
kvæmt sé fyrir verksmiðjurnar að
sameinast að einhverju eða öllu
leyti,“ sagði Kristján.
Hann sagði að út úr þessum út-
:
.
" íÍJ
V :
■'■'■■■
Flugfélag Norðurlands:
Er búið að vera okkur mjög dýrt
- segir Sigurður Aðalsteinsson um sífelldar tafir á komu nýju vélarinnar
Nýja vélin er af gerðinni Metro Fairchild og tekur um 20 farþega.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þessi vandræði með vélina hafa
verið okkur dýr. Vinna við þessa bil-
un kostar sitt og það er einnig dýrt
fyrir okkur að hafa ekki vélina í
rekstri," segir Sigurður, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lands um sífelldar seinkanir á komu
nýju vélarinnar sem félagið hefur
keypt frá Bandaríkjunum.
Véhn, sem er af gerðinni Metro
Fairchild og tekur um 20 farþega,
átti upphaflega að koma til landsins
um miðjan desembermánuö, en þá
átti að vera búið að setja í hana ýmis
öryggistæki sem ekki voru fyrir
hendi. Þessum breytingum lauk ekki
á tilskildum tíma, en þegar þeim
loksins lauk kom í ljós að sjálfstýring
sem sett hafði verið í véhna virkaði
ekki sem skyldi. Þá var gripið til
þess ráðs að fljúga vélinni til Flórída
þar sem fyrirtækið sem framleiðir
sjálfstýringuna er til staðar og þar
er véhn enn.
Sérfræðingar þar munu hinsvegar
vera búnir að komast að því hvað
var að sjálfstýringunni og sagðist
■Sigurður Aðalsteinsson vonast tiF
þess aö nú færi biöin aö styttast, og
vélin kæmi vonandi til landsins um
næstu helgi.
Flugfélag Norðurlands hyggst nota
þessa vél á lengri flugleiðum félags-
ins eins og t.d. á leiðinni Húsavík-
Reykjavík en félagið hóf áætlunar-
flug á þeirri leið um síðustu mánaða-
mót og hefur til þessa notast við
Twin Otter vél við það flug. Nýja
véUn er hinsvegar mun betur fallin
til flugs á lengri leiðum eins og frá
Norðurlandi til Suðurlands, hún
flýgur mun hærra og flugtírninn er
um helmingi styttri þar sem nýja
vélin verður t.d. ekki nema um 35
mínútur að fljúga frá Akureyri til
Reykjavíkur.
reikningum Byggðastofnunar gæti
komið að sameining eins eða fleiri
rekstrarþátta væri það hagkvæmast
eða jafnvel alger sameining. Það yrði
bara að koma í ljós.
-S.dór
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóósbækurób. Sparireikningar 4,5-5 Lb
3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp
6mán.uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sp
Sértékkareikningar Innlán verðtryggð 4,5-5 Lb
Sparireikningar
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Allirnema ib
15-25mán. 6-6,5 Ib.Sp
Innlán meðsérkjörum Innlángengistryggð 5,25-5,75 Bb
Bandaríkjadalir 5,7-6 Lb.lb
Sterlingspund 12.5 Allir
Vestur-þýsk mörk 7.75-8 ib
Danskarkrónur 8,5-9 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,25-15.75 Lb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 18.75-19 Bb
. Skuldabréf Útlán til framleiðslu 7,75-8,25 Lb
isl. krónur 14,75-15.5 Lb
SDR 10-10,5 Lb
Bandaríkjadalir 8,8-9 Sp
Sterlingspund 15,5-15,7 Lb.lb
Vestur-þýsk mörk Húsnæðislán 10,75-10,9 4,5 Lb.lb.Bb
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. jan. 91 14
Verðtr. jan. 91 VÍSITÖLUR 8.2 '
Lánskjaravísitala mars 3009 stig
Lánskjaravisitalafeb. 3003 stig
Byggingavisitala mars. 566 stig
Byggingavisitala mars 177,1 stig
Framfærsluvisitala feb. 149,5 stig
Húsaleiguvísitala 3% hækkun . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,374
Einingabréf 2 2,905
Einingabréf 3 3,527
Skammtímabréf 1,801
Kjarabréf 5,289
Markbréf 2,818
Tekjubréf 2,059
Skyndibréf 1,577
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,580
Sjóðsbréf 2 1,832
Sjóðsbréf 3 1,791
Sjóðsbréf 4 1,548
Sjóðsbréf 5 1,079
Vaxtarbréf 1,8185
Valbréf 1,7046
islandsbréf 1,117
Fjórðungsbréf 1,069
Þingbréf 1,115
Öndvegisbréf 1,106
Sýslubréf 1,124
Reiðubréf 1,094
Heimsbréf 1,026
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100
nafnv.: KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,80 7,14
Eimskip 5,72 6,00
Flugleiðir 2,43 2,57
Hampiðjan 1.76 1,84
Hlutabréfasjóðurinn 1,77 1,85
Eignfél. Iðnaðarb. 1,96 2,05
Eignfél. Alþýðub. 1,40 1.47
Skagstrendingur hf. 4,20 4,45
islandsbanki hf. 1.47 1,54
Eignfél. Verslb. 1,36 1,43
Olíufélagið hf. 6,00 6,30
Grandi hf. 2,30 2,40
Tollvörugeymslan hf. 1.10 1,15
Skeljungur hf. 6,40 6,70
Ármannsfell hf. 2,35 2,45
Fjárfestingarfélagið 1,28 1,35
Útgerðarfélag Ak. 3,62 3,80
Olis 2,18 2,28
Hlutabréfasjóður VÍB 0,96 1,CJ
Almenni hlutabréfasj. 1.01 1,05
Auðlindarbréf 0,96 1,01
islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn,
lb = Islandsbanki Lb= Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.