Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991.
Útönd
Hvergi hvikað frá fyrri hemaðaráætlunum þrátt fyrir yfirlýsingar Saddams:
Bandamenn ætla að
króa af herlið íraka
- á þriðja tug þúsunda íraskra hermanna teknir höndum og margir á flótta
Háttsettir embættismenn í varnar-
málaráðuneyti Bandaríkjanna segja
að hernaðaráætlun þeirra miðist við
að hernema suðausturhluta íraks og
halda því landsvæði þegar kemur að
viðræðum um friö þegar írakar hafa
lagt niður alla mótspyrnu í Kúvæt.
Embættismennirnir vilja ekki tala
opinberlega en bandaríska stórblað-
ið Washington Post telur upplýsing-
ar þeirra áreiöanlega/. Embættis-
mennirnir sögðu að ætlunin væri að
ná í stóra skák af írak og nota hana
sem skiptimynt þegar farið væri að
ræða um frið að átökum loknum.
Þá er þaö markmið herstjórnar
Bandaríkjamanna að koma í veg fyr-
ir að Saddam Hussein geti haldist
Bandamenn segjast hafa tekið yfir
20 þúsund iraka höndum og eiga
nú í erfiðleikum með að koma
striðsföngunum af vígstöðvunum.
Simamynd Reuter
áfram við völd í skjóli sérsveita
sinna. Gangi hernaðaráætlunin upp
króast sérsveitirnar af inni á
hernámssvæði bandamanna.
Þrátt fyrir þessa hernaðaráætlun
er það ekki ætlun bandamanna að
hernema landsvæði í írak til lang-
frama heldur er ætlunin að tryggja
yfirburðastöðu hersveita þeirra á
svæðinu.
írakar reyndu í gærkvöldi að snúa
atburðarásinni sér í vil með því að
bjóðast til að fara með her sinni frá
Kúvæt og fara að ályktum Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóöanna um skil-
yrðislausa brottfór frá landinu. Þeir
sögðu þó ætla að halda áfram að berj-
as_t ef á þá yrði ráðist.
í Bandaríkjunum var þessari yfir-
lýsingu tekið fálega enda einungis
um óljósar útvarpsfréttir að ræða.
Síðar í nótt hafnaöi Bush Banda-
ríkjaforeti tilmælum íraka enda
byggðust þau á sömu forsendum og
fyrri áætlanir þeirra um flutning
herliðsins frá Kúvæt. Þar á meðal er
að írakar ætla að koma herliði sínu
í sömu stöðu og það var fyrir innrás-
ina í Kúvæt og þeir ætla ekki að fara
að öðrum ályktunum Öryggisráðsins
en þeirri að fara frá Kúvæt.
Hernaðurin í írak og Kúvæt heldur
því áfram af fullum krafti. Banda-
menn krefjast þess að írakar skilji
hergögn sín eftir. í morgun sögðu
yfirmenn liðs bandamanna að engin
merki sæjust enn um að írakar væru
að draga lið sitt frá Kúvæt.
Þó hafa verið óljósar fréttir um
liösflutninga þeirra. Flugmenn
bandamanna sögðust hafa séð til
liðsafla sem stefndi í norður í átt frá
Kúvæt. Bandamenn segja að um
óverulegt lið sé að ræða og allt eins
geti verið að írakar séu að reyna að
endurskipuleggja vörn sína.
í nótt áttu hersveitir Breta og
Bandaríkjamanna í bardögum við
skriðdrekasveitir íraka á tveimur
stöðum á átakasvæðinu. í báðum til-
vikum fóru írakar halloka að sögn
bandamanna og misstu töluvert af
hergögnum. Ekki fékkst gefið upp
hvar þessar orrustur voru háðar.
Bnadamenn segja aö fjöldi stríðs-
fanga úr liði íraka valdi þeim erf-
iðleikum. Fleiri hermenn hafa gefist
upp en gert var ráð fyrir og hafa
bandamenn átt í erfiðleikum viö að
koma föngunum í búðir í Saudi-
Arabíu. Bandamenn segja að stríðs-
fangarnir séu nú orönir á þriðja tug
þúsunda og fari enn fjölgandi.
Reuter
Hugsanlegt að fjórðungur
Kúvæta liggi í valnum
Eftir heimildum frá bandaríska
hernum er talið mögulegt að allt
að fjórði hve Kúvæti hafi fallið
eöa særst þann tíma sem írkar
hafa hersetið landið. Þá á eftir að
bætast við sá tollur sem sjúk-
dómar eiga eftir að taka ef ekki
tekst að koma neyðarhjálp til
helstu borga í bráö.
Þessar upplýsingar hefur
bandaríska blaðið Los Angeles
Times úr gögnum sem kynnt hafa
verið bandarískum hermönnum
til að undirbúa þá fyrir komuna
til Kúvætborgar. Herinn gerir ráð
fyrir að hjálparstofnanir verði að
leggja allt sem þær eiga af mörk-
um til að bjarga um 800 þúsund
mönnum frá neyð í Kúvæt þegar
stríðinu lýkur.
Þá er gert ráð fyrir að enn fleiri
óbreyttir borgara eigi eftir að
falla ákveði herlið íraka að verj-
ast í Kúvætborg. Þá verða íbú-
arnir fyrir barðinu á hernaðará-
tökunum og mannfall gæti orðið
mikið. Þá vill yfirstjórn hersins
ekki útiloka að hryðjuverk fylgi
í kjölfar þess að írakar hrekist frá
landinu.
Þegar írakar gerðu innrás í
Kúvæt 2. ágúst í sumar bjuggu
þar um 1,8 milljónir manna. Frá
þ-ví innrásin var gerð er taliö að
allt að ein milljón manna haíi flú-
ið landið eða verið fluttir til íraks.
Reuter Mikil eyðilegging fylgir hernaðinum í Kúvæt og er óttast að (jöldi óbreyttra
borgara liggi þegar í valnum. Símamynd Reuter
Persaflóastríðið:
Atburðarásin
25. febrúar
9.44 - Útvarpið i Bagdad segir
íraska heriim hafa náð aftur á
sitt vald stöðvum frá banda-
mönnum._
10.27 - ísraelsmenn aflétta út-
göngubanni á flestum stöðum á
herteknu svæðunum.
13.22 - Bandamenn gera loftá-
rásir á skriðdreka úrvalssveita
Saddams Hussein íraksforseta
sem eru á leið suöur til móts við
her bandamanna.
15.23 - Bandarískur herforingi
segir fjóra bandaríska hermenn
haía látið lífið og tuttugu og eínn
særstí og umhverfis Kúvæt. Enn-
fremur segir hann bandamenn
hafa eyðilagt tvö hundruð og sjö-
tíu skríðdreka íraka.
16.11 - Bush Bandaríkjaforseti
segir stórsóknina ganga sam-
kvæmt áætlun.
18.14 - Yfirmaöur bandaríska
flotans við Persaflóa spáir sigri
bandamanna innan fárra daga.
18.31 - írakar segja hermenn
sína taka þátt í hörðum bardög-
um á landamærunum og að þeir
hafl valdið bandamönnum miklu
tjóni.
19.08 - Bandarískir hermenn
sagðir hafa látiö iifið þegar ír-
askri Scud-eldflaug var skotið að
herstöð bandamanna við Kho-
barborg í austurhluta Saudi-
Arabíu.
19.54 - Bandamenn sagðir hafa
gert loftárás á Bagdad að minnsta
kosti níu sinnum yfir daginn.
20.52 - Tilkynnt er að það geti
tekið marga mánuði að slökkva
elda í yfir fimm hundruð olíulind-
um í Kúvæt.
22.54 - Útvarpið i Bagdad hefur
það eftir íröskum embættismanni
að íraskir hermenn veröi kallaðir
heim frá Kúvæt.
23.59 - Hvíta húsið í Washing-
ton tilkynnir að írakar hafi ekki
haft samband við Bandaríkja-
menn og að hernaði gegn írak
verði haldið áfram.
26. febrúar
00.01 - Breskir embættismenn
segja að þeir hafi engar sannanir
fyrir því að írakar séu aö hörfa.
00.09 - 01.12 - Bandamenn gera
loftárásir á íraska skriðdreka í
Kúvæt.
1.37 - Yfirvöld í Bahrain segja
að eldflaug frá írak hafi verið
skotin niður.
2.27 - Greint frá uppgjöf fleiri
íraskra hermanna.
3.36 - Bandarísk yfirvöld kreQ-
ast þess að Saddam Hussein hlíti
öllum ákvæðum ályktana Örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna.
3.40 - Útlagastjórn Kúvæts sak-
ar írösku stjórnina um brögð og
lygar. Ekki sé hægt að treysta
yfirlýsingunni um að írakar séu
að hörfa frá Kúvæt.
4.15 - í fyrstu morgunfréttum í
útvarpinu í Bagdad er ekki gi'eint
frá fyrirskipun íraskra yfirvalda
til hermanna sinna um að fara frá
Kúvæt.
4.29 - Bush Bandaríkjaforseti
skorar á Saddam Hussein að sam-
þykkja allar kröfur bandamanna
og skipa hermönnum sínum að
leggja niður vopn.
4.30 - Sovétríkin íhuga beiðni
Saddams um að koma í kring
vopnahléi á vettvangi Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóöanna ef ír-
akar tilkynna formlega um brott-
hvarf.
5.00 - Talsmaður Bandaríkja-
hers segir tuttugu og sjö banda-
ríska hermenn hafa látið lífiö og
níutíu og átta særst i eldflauga-
árásinni á herstöðina í Saudi-
Arabíu.
6.00 - Sendiherra Sovétríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum
segir Saddam hafa verið í sam-
bandi við Gorbatsjov ogtjáð hon-
um að hann væri reiðubúinn að
hörfa tafarlaust frá Kúvæt.
8.30 - Saddam Hussein segir í
útvarpsávarpi í Bagdad að írösku
hermennirnir muni allir fara frá
Kúvæt í dag.