Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991.
9
Utlönd
Vinningstölur laugardaginn
23. febr. 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA. UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
"1. 5af 5 2 1.481.993
2. 4,"íl# 10 51.536
3. 4af 5 201 4.422
4. 3af 5 5.602 370
írakar þykja nú vera að reyna að bjarga andlitinu með því að biðja Sovétmenn um að koma i kring vopnahléi á
vettvangi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Teikning Lurie.
Saddam í sambandi við Gorbatsjov:
Kveðst reiðubúinn
að hörfa frá Kúvæt
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
6.440.908 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Saddam Hussein íraksforseti hefur
greint Mikhail Gorbatsjov Sovétfor-
seta frá því að hann sé reiðubúinn
að draga hermenn sína til baka frá
Kúvæt þegar í stað. Sendiherra Sov-
étríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum
greindi frá þessu á lokuðum fundi
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í
nótt.
í skilaboðunum til Gorbatsjovs
stendur að írösku hermennirnir séu
þegar lagðir af stað heim og fer Sadd-
am fram á að beiðni hans um vopna-
hlé verði kcjmið á framfæri við Ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna, að
því er sovéski sendiherrann sagði.
Samkvæmt Tass-fréttastofunni sov-
ésku segir í skilaboðunum að írakar
hafi ákveðið í draga allt herlið sitt
til baka frá Kúvæt í samræmi við
ályktun Öryggisráðsins númer 660.
Heimildarmaður innan Öryggis-
ráðs sagði í gær að Sovétmenn hefðu
í hyggju að leggja fram tillögu um
vopnahlé í Persaflóastríðinu ef írak-
ar tilkynntu formlega að þeir ætluðu
að hörfa frá Kúvæt. Öryggisráðið
kom saman til fundar seint í gær-
kvöldi að beiðni Sovétmanna eftir að
tilkynnt hafði verið í útvarpinu í
Bagdad að íraskir hermenn yrðu
kaOaðir heim frá Kúvæt.
Fyrr um daginn höfðu fuUtrúar í,
Öryggisráðinu rætt nýja tillögu Sov-(.
étmanna sem í voru skilyrði svipuð
þeim sem bandamenn settu í síðustu
viku. Það var haft eftir sendiherra
Sovétríkjanna að hann teldi að yfir-
völd í Bagdad gætu sætt sig við þá
tillögu. Reuter
George Bush fékk í gær upphringingu frá Gorbatsjov Sovétforseta sem bað
um að vopnahléi yrði komið á i Persaflóastríðinu. Símamynd Reuter
Gorbatsjov biður Bush
að gefa írökum grið
Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti
hefur beðið yfirvöld í Bandaríkjun-
um um að fresta landbardögum í
Kúvæt og írak til að reyna enn mögu-
leika á að fmna friösamlega lausn á
Persaflóadeilunni.
Þá er sagt að Gorbatsjov sitji nú
undir vaxandi þrýstingi heima fyrir
um að hætta að styðja aðgerðir fjöl-
þjóðaliðsins gegn Irökum. Þrýsting-
urinn kemur frá harðlínumönnum
sem telja að Bandaríkjamenn nái
yfirburðastöðu í Mið-Austurlöndum
með fullnaðarsigri á írökum.
Gorbatsjov hringdi í George Bush
Bandaríkjaforseta í gær og bað hann
að „endurskoða síðustu ákvöröun"
að því er Gennadi Janajev, varafor-
seti Sovétríkjanna, segir.
Landhernaðurinn í Irak og Kúvæt
hefur sætt mikilli gagnrýni í sovésk-
um fjölmiðlum, einkum þeim sem
eru íhaldssamir og fylgja harðlínu-
mönnum að málum. Varaforsetinn
sagði að Sovétmenn gætu ekki enda-
laust setið aðgerðalausir hjá þegar
stórfelldur hernaður færi fram við
suðurlandamæri ríkisins.
„Það veldur okkur miklum von-
brigðum að þjóðir heims skuli hafa
misst af tækifærinu til að flnna póli-
tíska lausna á deilunni," sagði vara-
forsetinn og átti þá við aö úrslitatil-
raunir Sovétmanna um að leysa deil-
una fóru út um þúfur.
Reuter
Sparið allt að 60%
3
Kmiw
Ef þú ætlar að gera góð kaup á
gólfdúk, teppum eða mottum þá
ERTÆKIFÆRIÐNÚNA
Hellingur af stökum teppum og
mottum - hrúga af teppabútum.
fermetrar
af teppum
2.500
fermetrar
af gólfdúk
i
BYGGINGARMARKAÐUR VESTURBÆJAR
Teppadeild - Hringbraut 120 - Sími 28605