Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991.
íþróttir
Stúfarfrá
Englandi
Gutvnar Sveinbjömss., DV, Englandx:
Chelsea heldur áfram
aö leita að miöveröi í
Skotlandi. Fyrr í vetur
reyndi Lundúnafélag-
iö að kaupa Paul Elliot frá Celtic
en ekkert varð ur því og nú hefur
Bobby Cambell snúið sér að Dave
McPherson, leikmanni Hearts.
Chelsea er tilbúið aö borga um
það bil 800 þúsund pund og þeir
peningar ættu að koma sér vel
fyrir Edinborgarliðið sem á i
nokkrum fjárhagskröggum um
þessar mundir. Southampton
reyndi fyrr í vetur að kaupa
McPherson en þá var sett upp ein
milljón punda sem suðurstrand-
arliðinu þótti of mikiö.
LawrieMadden
erfarinn
frá Leicester City
Lawrie Madden, varn-
arleikmaður Shefíield
Wednesday, er farinn
frá Leicester City eftir
tæplega mánaðarlánstíma. Leic-
ester vildi hafa Madden áfram í
mánuð til viðbótar en leikmaður-
inn sagöi þvert nei við þeírri bón.
Örlítið meira um gang mála á
Filbert Street. Forráðamenn
Leicester hafa borið til baka allar
sögusagnir um að þeir væru á
höttunum eftir Archie GemmiU,
þjálfara Nottingham Forest, til
að taka við starfi framkvæmda-
stjóra. Eins og kunnugt er var
David Pleat látínn taka pokann
sinn fyrir nokkrum vikum en
enginn hefur verið ráöinn i stað-
inn enn sem komið er.
Howells á sjúkra-
húsvegna
andlitsmeiðsla?
David Howells, leik-
maður Tottenham,
hefur veriö lagður inn
á sjúkrahús og mun
gangast undir aðgerð vegna and-
litsmeiðsla sem hann er talinn
hafa fengið á knæpu einni í síð-
ustu viku. Fréttir herma að How-
ells og Paul Stewart hafi setið við
drykkju á fyrmefndri knæpu og
lentu í útistööum við dyravörð-
inn sem lét sig engu skipta þótt
þar færa frægir fótboltakappar.
Viöskiptum þeirra lauk með ein-
hverjum pústrum sem Howells
hefur greinilega farið verst út úr.
Leikmennirnir voru hvorugir
með gegn Portsmouth um helgina
en þegar Terry Venables var
spurður um allt saman sagði
hann aðeíns að „atvik“ hefði átt
sér stað en Howells hefði lagst inn
á sjúkrahús vegna ökklameiðsla.
Palace vill
kaupa
Rodney Wallace
Crystal Palace hefur nú bæst í
hóp þeirra liöa sem hafa augastað
á Rodney Wallace hjá Southamp-
ton. Steve Coppell telur óhjá-
kvæmilegt að styrkja hópinn svo
að hægt sé að veita Liverpool og
Arsenal einhverja keppni um
meistaratitilinn. Samningur
Wallace við Southampton rennur
út í sumar en Coppell vill fá leik-
manninn mun fyrr. Þess má geta
að Wallace er ekki ókunnugur í -
suðurhluta Lundúnaborgar,
enda er hann fæddur í næsta
nágrenni viö The Den sem er
heimkynni MilIwaU.
Port Vale
kaupir óþekktan
Hollending
2. deildar liö Port Vale hefur
keypt hollenskan framherja að
nafni Robin van der Laan. Port
Vale snaraði frara 80 þúsund
pundum fyrir leikmanninn sem
enginn hafði heyrt um áður.
Enn bæfir
Ragga sig
- synti vel í Bandaríkjunum um helgina
fæst þó ekki staðfestur þar sem hann
var tekinn í spretti hennar í 4x100 m
fjórsundi.
Alls kepptu sundmenn frá átta há-
skólum á mótinu sem fram fór í
Kentucky. Flórídaháskóli vann
keppnina en margir af bestu sund-
mönnum Bandaríkjanna stunda þar
nám.
Ragnheiður bætti engu að síður
staðfestan tíma sinn í 100 jarda
bringusundsgreininni. Hún varð þar
í 2. sæti og synti á 1:02,61 mínútu.
Bætti besta árangur sinn á vega-
lengdinni um 90/100 úr sekúndu.
Þá sigraði Ragnheiður í 200 jarda
bringusundinu á tímanum 2:16,92
mínútum sem er mjög góður tími.
Með sigri sínum varð hún fyrsta
stúlkan frá Alabamaháskóla til þess
að vinna sigur í þessari grein í 8 ár.
Ragnheiður keppti einnig í 200
jarda fjórsundi og náði þar mjög góð-
um tíma. Synti á 2:06,30 mínútum.
Sá tími er þremur sekúndum betri
en er hún synti fyrir skömmu í
keppni Alabama og Louisiana há-
skólanna.
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Ragnheiður Runólfsdóttir náði um
helgina besta tíma sínum til þessa í
100 jarda bringusundi. Hún synti þá
vegalengdina á 1:01,9 mín. er hún
keppti fyrir Alabamaháskóla á
meistarámóti Suðurríkjaskólanna
um helgina. Þessi tími Ragnheiðar
• Ragnheiður Runólfsdóttir.
Bnar Páll æfir
með Helsingör IF
- dvelur hjá hðinu til 10. mars
Einar Páll Tómasson, knattspyrnu-
maður úr Val, hélt utan í gær og mun
Körfubolti
Tveir leikir fóra fram í 1. deild
kvenna í körfuknattleik í gær-
kvöldi. KR tapaði fyrir Haukum
á heimavelli, 37-45, og ÍS tapaði
einnig heima fyrir ÍBK,. 49-61.
Staðan í deildinni er nú þessi:
ÍS..........12 10 2 638-511 20
Haukar.......12 9 3 641-476 18
Keflavík.....12 8 4 794-559 16
ÍR..........11 6 5 564-509 12
KR..........11 2 9 462-575 4
Grindavík...l2 0 12 367-826 0
æfa með danska 1. deildar liöinu
Helsingör IF fram til 10. mars. For-
ráðamenn liðsins vildu fá Einar Pál
á þessum tíma og tók hann þátt í
fyrstu æfingu liðsins í gærkvöldi. í
kvöld leikur hann æfingaleik með
liðinu gegn B 1903.
■ „Ég er spenntur að sjá hvaö kemur
út úr þessu dæmi en það eru mikil
viöbrigði að koma af gervigrasinu
heima í grasið hér úti og ég er svolít-
ið þreyttur eftir fyrstu æfinguna. Ég
mun leika nokkra æfingaleiki meðan
ég verð hér úti og það er aldrei að
vita hvað gerist," sagði Einar Páll í
samtali við DV í gærkvöldi.
Keppnistímabilið í Danmörku byrj-
ar 16. mars næstkomandi.
-JKS/GH
í myrkri gildir
að sjást.
NOtaÖU gf UMFERÐAR
endurskinsmerki! WRÁÐ
Firmakeppni Skallagríms og
Hótel Borgarness í knattspyrnu
fer fram 8. og 9. mars nk.
Keppninni lýkur á laugardeginum og er þátttakend-
um bent á gistingu og stórdansleik á Hótel Borgar-
nesi um kvöldið.
Þátttökugjald er 8.000 á lið.
Upplýsingar og skráning í síma 93-71703 Þórður
og 93-71465 Þorsteinn.
Ath. Skráningu lýkur sunnudaginn 3. mars.
• Einar Einarsson hefur leikið vel í Austurríki í vetur og er lið hans komið
í úrslitakeppnina um meistaratitilinn.
Framtíð Einars í
Austumki óráðin
- hð hans féll úr EM um helgina
Austurríska félagið Vogel-Pumpen
Stockerau, liðið sem Einar Einarsson
leikur með, er úr leik í Evrópukeppni
bikarhafa eftir að það tapaði fyrir
ungverska liðinu Veszprem, 36-26, í
síðari ieik liðanna í 8 liða úrslitum
Evrópukeppninnar í Ungverjalandi
um helgýia. Vogel-Pumpen vann
fyrri leikinn í Austurríki, 27-26, og
tapaði því samanlagt, 53-62.
„Úrslitin í leiknum réðust í fyrri
hálfleik en þá höfðu þeir náð 10
marka forskoti, 18-8. Við náðum
ágætiskafla í siðari hálfleik og
minnkuðum muninn niður í 6 mörk
en nær kdíhumst við ekki. Ung-
verska liðið lék nánast á einni hæð
fyrir ofan okkur, enda margir leik-
menn liðsins um og yfir 2 metrar á
hæð. Við getum þó verið sáttir með
frammistöðu okkar í Evrópukeppn-
inni en þetta er það lengsta sem aust-
urrískt lið hefur náð,“ sagði Einar
Einarsson í samtali við DV. Einar
skoraði 3 mörk í leiknum.
Vogel-Pumpen tryggði sér í síðustu
viku sæti í úrslitum um austurríska
meistaratitilinn. Félagið hafnaði í 4.
sæti í deildinói en 6 efstu liðin leika
tvöfalda umferö um meistaratignina.
Þá eru Einar og félagar komnir í 8
liða úrslit í bikarkeppninni og um
næstu helgi leikur lið gegn Linz sem
er í efsta sæti í deildakeppninni.
Einar sagði í samtali við DV að
ekkert væri farið að ræða framtíð
hans hjá félaginu, enda nokkuð eftir
af keppnistímabilinu. Einar samdi til
eins árs við austurríska liðið og er
ánægður með dvöl sína.
-GH
Bandaríski körfuboltinn:
Portland stendur
best allra liða
- beið þó lægri hlut fyrir Indiana
Liö Portland Trailblazers er með
besta vinningshlutfall allra liða í
NBA-deildinni í körfuknattleik eftir
leiki helgarinnar. Portland varð þó
aö láta í minni pokann fyrir Indiana
í fyrrinótt en mesta spennan var í
leik meistara Detroit og LA Lakers.
Lakers hafði sigur í framlengdum
leik og er í öðru sæti í Kyrrahafs-
riðli á eftir Portland. Úrslit leikja í
fyrrinótt urðu sem hér segir:
Indiana-Boston...........115-102
Detroit-LALakers..........96-102
Minnesota-Houston.........91-100
Miami-New York............92-108
Orlando-Sacramento........120-90
LA Clippers-Denver.......129-112
Portland-SA Spurs.........88-95
Seattle-Utah Jazz.........91-103
• Staðan í riðlum NBA-deildarinnar
eftir þessi leiki er eftirfarandi:
Atlantshafsriðill
Boston................40 14 74,1%
76ers.................29 24 54,7%
New York..............24 31 43,6%
Washington............22 33 40,0%
NewJersey.............17 37 31,5%
Miami.................16 38 29,6%
Miðriðill
Chicago 39 14 73,6%
Detroit 37 19 66,1%
Milwaukee 34 21 61,8%
Atlanta 30 24 55,6%
Indiana 25 28 47,2%
Cleveland 19 36 34J>%
Charlotte 16 37 30,2%
Miðvesturriðill
SASpurs 34 17 66,7%
UtahJazz 35 18 66,0%
Houston 31 23 57,4%
Dallas 20 32 38,5%
Minnesota 17 36 32,1%
Orlando 17 36 32,1%
Denver 15 38 28,3%
Kyrrahafsriðill
Portland ... 44 11 80,0%
LA Lakers 40 14 74,1%
Phoenix 35 18 66,0%
Golden State 29 24 54,7%
Seattle 25 28 47,2%
LAClippers ....18 35 34,0%
Sacramento 15 37 28,8%
-GH