Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991.
23
Menning
Suðræn sveif la
Föstudagskvöldið 23.2. lék argent-
ínski píanóleikarinn Hernan Lug-
ano í Púlsinum ásamt hljómsveit
sinni. Á efnisskránni voru níu
frumsamin verk eftir Lugano, sem
voru n.k. bræðingar úr nútíma-
djassi og tónlist víðs vegar úr Róm-
önsku Ameríku. Stundum kom
þessi blanda mjög vel út en stund-
um var eins og skiptingar milli
módalstíls og sölsu væru eilítið
þvingaðar. Hugsanlega á hljóm-
sveitin eftir aö spila sig betur sam-
an en ísland er fyrsti viðkomustað-
ur í Evrópuferð hennar.
Tónleikarnir hófust á verki sem
hljómaði ekki rétt vel í fyrstu, en
virtist orðið miklu betra er það var
endurtekið sem annað aukalag eft-
ir annað uppklapp en áheyrendur
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
virtust helst ekki vilja sleppa Arg-
entínumönnunum af sviðinu í lok-
in.
Argentína og Brasilía eru ekki
nágrannaríki eingöngu í land-
fræðilegum skilningi heldur líka
tónlistarlegum. Samba er líka leik-
in í Argentínu og í BrasOíu hefur
þróast viss tegund af tónlist sem
minnir meira á tangó en sömbu,
og þarlendir kalla stundum í gamni
„grátmúsík", enda er dálítið
þyngra yfir argentínsku músík-
Smáauglýsingar - Sími 27022
[teleFAXbúðinI
Arfax 1000 hágæðamyndsenditæki,
fax/ljósritunarvél/sími/símsvari. Allt í
sama tækinu, 10 síðna sjálfvirk send-
ing, sjálfvirkt endurval, skammval,
með 100 númera minni, villu- og bil-
anagreining, ljósritun með minnkun
og stækkun o.m.fl. Telefaxbúðin,
Hambraborg 1, Kóp., símar 91-642485,
91-642375 og fax 642375, einnig á
kvöldin.
jGifia
KRINGLUNNI 689666
LAUGAVEGI 19 t» 17480
Útsala! Allt að 70% afsláttur. Allar
nýju, æðislegu frönsku vörurnar.
Tækifæri sem aldrei aftur býðst.
SKIÐATILBOÐ
Blizzard Firebird skiði, 180-200 cm,
Look bindingar með skíðastoppurum,
verð aðeins kr. 11.800.
Ath. takmarkað magn. Póstsendum.
S. 91-82922. Útilíf, Glæsibæ.
Vagnar - kerrur
Jeppakerrur. Getum útvegað frá USA
1/4 tonn original jeppakerrur M.416,
verð kr. 79.800 + vsk. Pantið tíman-
lega. Markaðsþjónustan, sími
91-26984.
Bílar til sölu
Volvo 740 GL ’87, ekinn 55.000, dráttar-
krókur, spoilerar allan hringinn,
sportfeígur og ýmsir aðrir aukahlutir,
súpereintak, skipti ath. á ódýari. Uppl.
í símum 92-68553 og 92-68350.
Dusar baðkarshurðir í miklu úrvali,
verð frá kr. 12.900. A & B, Skeifunni
11, sími 91-681570.
Subaru '89, specila edition, ekinn 38
þús. Verð 1.200.000, skipti á nýlegum
smábíl. Uppl. í síma 91-625170 eftir kl.
17.
Til sölu Scout 1980 disil (ath., origi-
nal). Nýuppgerð Nissan turbo dísilvél
og gírkassi, dekk 31". Allur mjög góð-
ur7 Uppl. í síma 93-41193. Jóhannes.
Til sölu Nissan pickup, árg. ’90, ekinn
16 þús. Góður bíll. Uppl. í símum
92-68553 og 92-68350.
■ STÓRK0STLEG
ASKRIFTAR
Ertþúmeð?
inni; hún er meira í moll, en sú
brasilíska yfirleitt meira í dúr, ef
svo má segja. Það kom því ekki á
óvart að lag í bossa-nova takti væri
með angurværum moll- og „hálf-
dim“-hljómum, þótt það rifi sig upp
í hraða sömbu rétt fyrir sóló hljóm-
sveitarstjórans, en hinn fingrafimi
Lugano virtist kunna einna best
við sig á hálsbrjótandi hraða.
Eftir því sem leið á tónleikana
virtist hljómsvéitin ná upp meira
dampi, og sölsur og sömbur
streymdu fram í bland við þyngri
pælingar. Eitt aðalglansnúmerið,
sem endurtekið var sem fyrra upp-
klappslag, var t.a.m. mjög hröð
samba sem breyttist í dæmigerðan
salsa-rytma þegar á leið en hægði
svo á yfir í rólegt cha-eha-cha áður
en snúið var við sömu leið til baka.
Tónhst Luganos og félaga er heit
og skemmtileg og minnir að sumu
Argentinski píanóleikarinn Hernan Lugano.
leyti á latín-djass Kúbverjans
Paquitos D’Rivera og hans manna,
en kannski enn meira á Gato Barbi-
eri, sem reyndar er líka frá Argent-
ínu. Það fer heldur ekki hjá því að
manni detti líka í hug píanósnill-
ingurinn frá Santa Domingo, Mic-
hel Camilo, þegar hlustað er á Lug-
ano, og er það vel, en samanburður
yrði líklega þeim síðarnefnda í
óhag, enn sem komið er a.m.k.,
þrátt fyrir mikla yfirferð og tækni,
en kannski dálitla ónákvæmni
öðru hvoru. Aðrir hljómsveitar-
menn stóðu vel fyrir sínu. Ekki
veit ég nöfn þeirra en hljóðfæra-
skipan auk píanós var sópransax,
bassi, trommur og gitarleikari sem
var aldeilis fínn.
Ég þakka svo þeim sem stóðu að
hingaðkomu sveitarinnar, þetta
var sannarlega óvæntur og vel þeg-
inn glaðningur.
„Félagi“ Svavar
Nú fer að líða að kosningum. Og
ekki er ráð nema í tíma sé tekiö.
Almenningur segir að það sé sami
rassinn undir þeim öllum. En það
er ekki nema hálfur sannleikur og
naumast það. Fullyrðingin stafar
m.a. af tilhneigingu til að sýnast
hlutlægur og sömuleiðis'af dóm-
greindarskorti. „Rassarnir" á þeim
eru um margt líkir en hausarnir
eru ekki alls kostar eins. Síðan kýs
fólkið af gömlum og rótgrónum
vana („að ljúga sjálfan sig dauð-
an“).
Hvernig á þá að kjósa?
Steingrímur er ágætur og vill
vel. En enginn heilvita maður kýs
angurgapann Finn. Finnur finnst
ekki á hinu pólitíska korti. Finnist
hann er heitið fundarlaunum.
Konurnar? Þær voru ansi heitar
um tíma. Þær hafa hugsjón. Hafa
barist fyrir nokkrum góðum mál-
um. En þær eru í pólitískri sóttkví.
Eru á þingi til að taka helst ekki
þátt í stjómmálum - hvað þá ríkis-
stjóm. Þær halda sér hugsjónalega
hreinum meyjum með því aö taka
ekki þátt í samkrulli. Það gengur
bara ekki - því miður. Eru ekkert
að óhreinka sig á eldhúsverkunum.
Pólitískt séð eru þær „afturbatap-
íkur“.
Jú - þú átt kollgátuna. Það er
útilokunaraðferðinni sem beitt er.
Hún hefir oft gefist vel.
Jón Baldvin? Ekki var fæðingar-
staðurinn slorlegur. Alþýðuhúsið á
Ísaílröi. Víst kann hann að telja -
en bara á fingrunum. Hvernig færi
fyrir honum ef hann hefði hönd í
fatla? Gæti hann þá hugsað? Naum-
ast. í hreinskilni sagt: Hann ætti
að taka sér tíma í almennri rök-
fræði áður en hann opnar túlann
næst. Hæg eru heimatökin. Stóri
bróðir gæti mætavel kennt honum.
Víst hefir hann hatt. Ekki spillir
hann. En augun era á ská og skjön.
Ekki er það gott. Svo kyssir hann
varaformanninn Júdasar-kossi -
svona opinberlega.
Hvað er þá eiginlega að?
Tveir Jónar
Jón Baldvin hélt kosningafundi
um land allt héma áður en hann
komst sjálfur að. Hann hélt líka
amerískan popp-kosningafund í
höfuðborginni. Þá var uppi áonum
typpið. En hvursu lengi? En hvern-
ig gekk að moka út úr framsóknar-
fjósinu? Er flórinn þurr?
Hann auglýsi í útvarp (heyrði
það með eigin eyrum):
Hver á ísland? Jón Baldvin á
Höfn í Homafirði.
Hver á ísland í dag? Hafa orðið
eigendaskipti?
Jón Baldvin er ekki ánægður með
eignarhald á íslandi. Hann vill
bæta úr. En hvernig? Jú - hann
vill að vísu ekki selja landið. En
Kjallarinn
Skúli Magnússon
yogakennari
„Almenningi er þannig varið - því mið-
ur - að hann er nokkrum taktslögum
á eftir þróun mála. íslendingurinn fer
að tygja sig til brottferðar þegar rútan
er þegar komin upp 1 Mosfellsbæ.“
hann vill gera betur: Hann vill gefa
landiö. Hverjum? Efnahagsbanda-
laginu eða hvað skal það heita á
morgun eða hinn. Og fyrir ekki
neitt. Hvers vegna? Viö skulum nú
hafa uppi puttana og reyna að telja
- a la Jón Baldvin. Það þarf ekki
nema einn putta. Til þess það verði
ekki stríð í Evrópu. Ég heyrði hann
sjálfur segja það. Hvað segir stóri
bróðir um svona rökfræði?
Jón Baldvin títtnefndur og annar
Jón (þjóöhagi) voru kúarektorar á
sama bænum í Djúpinu. Nú eru
þeir sölumenn í sömu ríkisstjóm -
gefendur ætlaði ég að segja. Jón
hinn vill selja undir álver og meng-
un. Jón - kúarektor nr. eitt - vill
gefa fyrir hvað? Hattinn? Eiginn
frama eða hvað? Allt í einu lagi.
Ekkert að vera að tvínóna við það.
Bara að skella sér út í það. Þá verð-
ur kannski loks mokaður fram-
sóknarflórinn.
Jóni Baldvin var oft tíðrætt um
„félaga” Svavar. En hvers „félagi“
er Jón Baldvin sjálfur? Félagi Re-
agans og Bush og þeirra sem á eft-
ir þeim munu koma. Hann stóð
með ísraelsmönnum og Bandaríkj-
unum þegar þeir fyrrnefndu vora
að murka lífið úr smábörnum. Það
verður aldrei fyrirgefið. Hvaða af-
rek sem Jón Baldvin kann að vinna
í framtíðinni og jafnvel þótt hann
moki út úr nokkrum framsóknar-
fjósum skal hann aldrei fá syndaaf-
lausn.
En hvers „félagi“ er Svavar? Ekki
Stalíns. Ekki Gorba. Hvers? Ein-
faldlega sinnar eigin þjóðar. Vel-
viljaður maður sem gerir margt vel
og annað miður - eins og gerist og
gengur.
Einn kostur eftir
Með útilokunaraöferðinni er að-
eins einn kostur eftir: Svavar
Gestsson. En það er afleitt sam-
komulagið í Alþýöubandalaginu.
Það er staðreynd. Fyrirbæri að
nafni Ólafur Ragnar Grímsson ber
að vísu í sífellu lokkabjörtum koll-
inum við harða klöpp. En hversu
lengi?
Þeir flýja Alþýðubandalagið í
hrönnum. En hverjir? Jú - tæki-
færisinnar og asnar. En hvursu
lengi?
Alþýðubandalagið hefir ekki ver-
ið kommúniskur flokkur svo ára-
tugum skiptir. Og ekki hallur undir
Rússann. Hefir tekið eigin afstöðu.
Það er síður en svo neinn hnekkir
fyrir Ab. þótt kommúnisminn hafi
hrunið í Austur-Evrópu. Síður en
svo. Þvert á móti. Ab. er and-
kommúniskari en Sjálfstæðisflokk-
urinn - ef eitthvað er. Hvers vegna?
Jú - einfaldlega vegna þess að
brennt barn forðast eldinn - hitt
síður.
Ólafur Ragnar veröur úti í kuld-
anum eftir næstu kosningar í
flokknum. Annars líöur flokkurinn
undir lok. Og það væri miður.
Flokkurinn er eina pólitíska aflið í
landinu (ásamt Kvennalistanum)
sem heldur í þjóðleg menningar-
gildi.
Valið verður því auðvelt.
Almenningi er þannig varið - því
miður, að hann er nokkrum takt-
slögum á eftir þróun mála. íslend-
ingurinn fer aö tygja sig til brott-
ferðar þegar rútan er þegar komin
upp í Mosfellsbæ. Látið mig þekkja
mína heimamenn. Hann tekur því
mið af aðstæðum sem voru fyrir
hendi þegar „amma var ung“ -
ekki deginum í dag - hvað þá morg-
undeginum. En þaö er um seinan.
Innganga í eitthvert Evrópu-
samlag, hverju nafni sem nefnist,
mun ga-anga, ganga (með vestf.
framburði), að íslenskri þjóðmenn-
ingu endanlega dauðri.
Þess vegna hljóta skynsamir
menn að kjósa Svavar Gestsson.
Skúli Magnússon
C-