Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Blaðsíða 28
36
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991.
Starfsmenn 1 Stálsmiðjunni:
Verkin tala
„Með þessari grein viljum við aðeins
benda öðrum Dagsbrúnarmönnum á
að vera vakandi. Það gerist bersýnilega
ekkert nema maður geri það sjálfur.“
Hinn 4. mars 1988 var undirritaður
samningur milli Vinnuveitenda-
sambands Íslands (VSÍ), Slippfé-
lagsins í Reykjavík og Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar. Um
var að ræða sérsamning um vinnu
verkamanna sem vinna í brautum
á athafnasvæði Slippfélagsins í
Reykjavík. í samningnum er bókun
þar sem segir: „Verkamönnum eru
tryggðar eftirfarandi lágmarks-
tímaskriftir. 40 stunda dagvinna, 5
stunda yfirvinna (80%).“
Samkomulag við starfsmenn
í lok sama árs sameinaðist Stál-
smiðjan þeim hluta Slippfélagsins,
er réð yfir dráttarbrautunum.
Sameiningin tók gildi 1. janúar
1989. Skömmu áður voru haldnir
fundir með starfsmönnum Slipp-
félagsins þar sem sameiningin var
kynnt.
Skúli Jónsson, núverandi for-
stjóri Stálsmiðjunnar og þáverandi
formaður stjórnar Slippfélagsins,
gaf þar yfirlýsingu um að „eftir
sameininguna haldi starfsmenn
öllum þeim réttindum sem þeir
þegar hafa“ og að „allar breytingar
verða gerðar með samkomulagi
beggja aðila". í árslok 1988 var öll-
um verkamönnum sem unnu í
brautum á athafnasvæði Slippfé-
lagsins sagt upp störfum og þeir
síðan endurráðnir af Stálsmiðjunni
I. janúar 1989.
Árið 1989 var yfirvinnan óbreytt.
í janúar 1990 sagði Stálsmiðjan upp
allri yfirvinnu og átti breytingin
að taka gildi 3 mánuðum síðar.
Viö töldum þessa uppsögn ógilda
^ vegna fyrrnefndrar bókunar og
yfirlýsingar forstjóra fyrirtækis-
ins. I kölfar þessara deilna var gert
samkomulag við starfsmenn í
brautum um að vísa málinu til Fé-
lagsdóms. Samkomulagið var und-
irritað 4. maí 1990 af forstjóra
Stálmsiðjunnar og trúnaðarmanni
okkar. Þar tryggir Stálsmiðjan
okkur 5 klst. yfirvinnu (laun) á
viku meðan málið er fyrir Félags-
dómi. Ekki er tekið fram hvenær
málinu skuh vísað til Félagsdóms.
Trúnaðarmaðurinn mætir á
skrifstofu Dagsbrúnar á hálfs mán-
aðar fresti til að ræða þetta mál og
framhald þess og fullvissar for-
maður Dagsbrúnar, Guðmundur
J. Guðmundsson, hann jafnan um
'■** að málið sé á leiðinni. í ágúst segir
Guðmundur trúnaðarmanninum
að hann hafi samið við VSÍ um að
YSÍ fari með málið í Félagsdóm.
Ástæðuna kveður Guðmundur
vera þá að lögfræöingur Dags-
brúnar hafi sagt honum að sér
fyndist eðlilegt aö VSI sækti máhð
því það sé það sem sem rengir
samninginn. Þá hættum við að hafa
áhyggjur af máhnu um stund.
Langþreyttir á ruglinu
Næst gerist það að Dagsbrún
berst bréf frá VSÍ undirritað 27.
desember síðastliðinn þar sem seg-
ir að hafi Dagsbrún ekki vísað
máhnu til Félagsdóms fyrir 1. fe-
brúar hti VSÍ svo á að samkomu-
lagið frá 4. maí 1990 sé úr ghdi fall-
ið og þar með bókunin margnefnda.
Við verkamennirnir í brautunum
fréttum af bréfinu fyrir tilviljun í
lok janúar. Ekki frá Dagsbrún,
verkalýðsfélaginu okkar. Þetta
gerðist á miðvikudegi, 30. janúar
’91, tveimur dögum áður en íostu-
dagurinn 1. febrúar rann upp. Sam-
stundis hélt trúnaðarmaðurinn til
fundar á skrifstofu Dagsbrúnar,
heldur brúnaþungur. Þar var hon-
um tjáð að fengist hefði frestur til
15. febrúar. Ekki þorðum við annað
en að kanna gang mála 14. febrúar.
Nú fullyrti Halldór Björnsson,
varaformaður Dagsbrúnar, að
„máliö væri farið í Félagsdóm og
aht væri í lagi.“ Trúnaðarmaður
hafði samband við forstjóra Stál-
smiðjunnar samdægurs og sagði
honum að málið væri komið í Fé-
lagsdóm. Forstjórinn trúði þessu
að sjálfsögðu og féllst á að tryggja
okkur 5 tíma yfirvinnu meðan ver-
ið væri að fjalla um málið. Mánu-
daginn 18. febrúar kallaði forstjór-
inn á trúnaðarmanninn og sagði
það rangt að máhð væri komið í
Félagsdóm. Enn hélt trúnaðarmað-
urinn, nú í fylgd þess fyrrverandi,
á skrifstofu Dagsbrúnar. Þar bár-
ust þau svör að þeir hefðu haldið
aö máhð hefði verið farið til Félags-
dóms! En sú var aldeilis ekki raun-
in.
Við vorum nú orðnir ansi lang-
þreyttir á ruglinu í verkalýðsfélag-
inu okkar og hvöttum forráðamenn
þess á fund með okkur í Slippnum.
Hahdór kom á miðvikudeginum
(20. febrúar) og voru máhn útskýrð
fyrir honum í ró og næði. Hann
ræddi við forstjóra Stálsmiðjunnar
þann sama dag og kom svo til fund-
ar við okkur á nýjan leik daginn
eftir. Þar flutti hann okkur tillögu
fórstjórans um að okkur yrði
tryggð þriggja og hálfs tíma yfir-
vinna á viku fram til 1. apríl og sjö
tíma eftir það út árið, gegn því að
bókunin væri látin niður falla.
Halldór hvatti okkur til að ganga
að þessari thlögu og þar með væri
„þetta vesen úr sögunni".
Ekki brjálaðir í yfirvinnu
Mánuði fyrr hafði Stálsmiðjan
einmitt lagt til við alla starfsmenn
sína að yfirvinna yrði dregin sam-
an í þrjá og hálfan tíma á viku fram
til 1. apríl, vegna samdráttar yfir
vetrarmánuðina. Við í brautunum
felldum þessa tillögu þá. Þegar
trúnaðarmaðurinn sagði formanni
Dagsbrúnar frá því taldi hann okk-
ur hafa brugðist rétt við. Rangt
hefði verið að samþykkja breytingu
á sérsamningnum frá því í mars
1988 okkur í óhag. Auk þess væri
málið auðunnið fyrir Félagsdómi!
Stóðu málin nú eins og ef ekkert
hefði skeð nema niðurskurður
samþykktur? Nei, verr! Áður var
ekkert talað um niðurfelhngu bók-
unarinnar. Halldór hvetur okkur
nú til að samþykkja niðurskuð og
feha auk þess bókunina niður og
þar með aha okkar réttarstöðu!
Hann er mikill rughngurinn.
Þap er rétt að taka fram að nú
erum við ekki bijálaðir í yfirvinnu.
Vinnudagurinn hjá okkur er allt
of langur. Við viljum geta lifað af
8 stunda vinnudegi. En það er önn-
ur spurning. Þegar khpin er af ein
og hálf stund í yfirvinnu á viku
missum viö um 4.000 krónur í laun
á mánuði.
Með þessari grein viljum viö að-
eins benda öðrum Dagsbrúnarfé-
lögum á að vera vakandi. Það ger-
ist bersýnilega ekkert nema maður
geri það sjálfur. Það er makalaust
að starfsmenn verkalýðsfélags
(stjóm er auðvitað ekkert annað
er starfsmenn okkar) skuh skrökva
að félagsmönnum. Ganga síðan
fram fyrir skjöldu í því að láta
verkamennina borga samdráttinn.
Og hvetja til þess að gildandi samn-
ingar gleymist bara.
Starfsmenn i brautum,
deild 4 í Stálsmiðjunni
Andlát
Magnús Sig. Kristinsson málara-
meistari, Amarhrauni 14, Hafnar-
firði, andaðist 14. mars.
Heba A. Ólafsson lést á heimih sínu,
Sigtúni 43, Patreksfirði, miðvikudag-
inn 13. mars.
Jarðarfarir
Útfor Sigurðar Kristjánssonar, sem
lést á dvalarheimih aldraðra í Borg-
amesi, 5. mars, verður gerð frá Borg-
arneskirkju laugardaginn 16. mars
kl. 14.
Jarðarfór Guðrúnar Guðmundsdótt-
ur, Galtafelh, Hrunamannahreppi,
fer fram frá Hrepphólakirkju laugar-
daginn 16. mars kl. 14.
Hólmfriður Guðjónsdóttir, Vallar-
götu 4, Vestmannaeyjum, andaðist í
’Sjúkrahúsi Vestmannaeyja að
morgni mánudagsins 11. mars. Jarð-
arfórin verður gerð frá Landakirkju
laugardaginn 16. márs kl. 14.
Ketill Vilhjálmsson, Meiri-Tungu,
verður jarðsettur frá Árbæjarkirkju
í Holtum laugardaginn 16. mars kl.
14.
.Anna Ástveig Bjarnadóttir lést 9.
mars. Hún fæddist 8. febrúar 1911 í
Mýrarhúsum í Gmndarfirði, dóttir
hjónanna Bjarna Tjörvasonar og
Ingibjargar Maríu Jónsdóttur. Eftir-
lifandi eiginmaður hennar er Karl
Sveinsson. Þau hjónin eignuðust
fimm böm og eru fjögur á lífi. Útfór
Önnu verður gerð frá Langholts-
kirkju í dag kl. 15.
Jóhann Lárusson lést 8. mars. Hann
fæddist á Akranesi 26. júlí 1937, son-
ur hjónanna Lárusar Þjóðbjörnsson-
ar og Margrétar Sigríðar Jóhannes-
dóttur. Jóhann lauk stúdentsprófi
frá MA 1958. Hann stundaði nám í
stærðfræði og sögu við heimspeki-
deild Háskóla Islands 1960-1963.
Hann lauk sveinsprófi í húsasmíði
1963 og fékk meistarbréf í iðnininni
1966. Síðustu árin starfaði hann sem
skattaendurskoðandi á Skattstofu
Vesturlandsumdæmis. Árið 1989
gerðist hann fulltrúi aðalbókara
Akraneskaupsstaðar. Eftirlifandi
eiginkona hans er Svanheiður Ólöf
Friðþjófsdóttir. Þau hjónin eignuðust
íjögur böm, og eru þijú á lífi. Útför
Jóhanns verður gerð frá Akranes-
kirkju í dag kl. 14.
Elínborg Jónsdóttir lést 8. mars. Hún
var fædd í Höll í Haukadal 19. sept-
ember 1916. Foreldrar hennar vom
hjónin Ástríður Eggertsdóttir og Jón
Guðmundsson. Eftirlifarandi eigin-
maður Elínborgar er Guðmundur
Einar Guðmundsson. Þau hjónin
eignuðust tvo drengi.
Tilkyiiningar
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag frá kl. 13-17.
Göngu-Hrólfar hittast á morgun, laugar-
dag, kl. 10.
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður nk. laugardag kl. 14 í
Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Fyrirlestrar
Þjóðernisdeilur og öryggis-
mál í Evrópu
í dag, 15. mars, mun dr. J.D. Sandole,
prófessor í lausn milliríkjadeilna
(conflict resoulution) og alþjóðasam-
skiptum við George Mason University í
Bandaríkjunum, flytja fyrirlestuv um
þjóðemisdeilur og öryggismál í Evrópu í
Odda, hugvísindahúsi Háskóla íslands, á
vegum Alþjóðamálastofnunar háskólans
og Menningarstofnunar Bandaríkjanna.
Mun dr. Sandole ræða um þjóðemisdeil-
ur þær sem sprottið hafa upp í Austur-
Evrópu og Sovétríkjunum, þau áhrif sem
þessar deilur kunna að hafa á samskipti
austurs og vesturs og hvemig unnt er að
bregðast við þeim á vettvangi Atlants-
hafsbandalagsins, Evrópubandalagsins
og Ráðstefnunnar um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu. Fyrirlesturinn hefst kl.
15.30 í stofu 101 í Odda og eru allir vel-
komnir.
Til hamii afmælið igju með 15. mars
85 ára 60 ára
Sofíía Gisladóttir, Víðilundi 24, Akureyri. Ingibjörg Sigurðardóttir, Huldulandi 6, ReyKjavík. Svavar Björnsson, Tjamarbóli 10, Seltjarnarnesi.
80 ára Heimir Þ. Gíslason, Hafnarbraut 26, Höfn í Homafirði. Svanhildur Kjartans, Aðalstræti 59, Patreksfirði.
Hailur Þorsteinsson, Ásgötu 16, Raufarhöfn.
50ára
75ára
Kristín Frímannsdóttir,
Sigrún Þorsteinsdóttir, Norðurbrún 5, Seyluhreppi. Hallgrímur Hansson, Haukagili, Áshreppi. Suöurgerði 2, Vestmannaeyjum. Marinó Ragnarsson, Langholti2, Þórshöfn. Sigurgeir Sigurjónsson, Hrauntúni 22, Vestmannaeyjum. Jóhann Gunnarsson, Fannafold 149, Reykjavík.
70 ára
40ára
Kristín Gissurardóttir,
Hjarðarhlíð 9, Egilsstöðum.
Ingólfur Bjarnason, Bollastöðum, Bólstaðarhh'ðar- hreppi. Símon Guðjónsson, Stigahlíð 30, Reykjavík. Kristján Guðlaugsson, Goðheimum 26, Reykjavík. Guðrún Kvaran, Sóleyjargötu 9, Reykjavik. Magnús Þorsteinsson, Vatnsnesi, Grímsnesi. Doan Van Duong, Skeljagranda 6, Reykjavík. Tjarnarbóli 6, Seltjarnarnesi. Ingvar Helgi Jakobsson, Állhólsvegi 40, Kópavogi. Benedikt Jóhannsson, Dalseli 13, Reykjavík. Þorsteinn Ólafsson, Faxabraut 3, Keflavík. Hulda Haraldsdóttir, Holtsbúð99, Garðabæ. Sigurður Björgvin Björnsson, Bakkahlíð 17, Akureyri. Birgir Óskarsson, Jöklafold 26, Reykjavík.
Leikhús
Leikfélag Akureyrar
Söngleikurinn
KYSSTU
MIG,
KATA!
eftir Samuel og
Bellu Spewack
Tónlist og söngtextar eftir Cole Porter
Þýðing: Böðvar Guðmundsson
Leikstjórn: Þórunn Sigurðardóttir
Leikmynd og búningar: Una Collins
Tónlistarstjórn: Jakob Frímann
Magnússon
Dansar: Nanette Nelms
LýsiTtg: Ingvar Björnsson
Leikendur, söngvarar, dansarar og
hljóðfæraleikarar: Ragnhildur Gísla-
dóttir, Helgi Björnsson, Vilborg
Halldórsdóttir, Valgeir Skagfjörð,
Björn Ingi Hilmarsson, Eggert Kaa-
ber, Jón St. Kristjánsson, Kristján
Pétur Sigurðsson, Jón Benónýs-
son, Þráinn Karlsson, Sunna Borg,
Gestur Einar Jónasson, Guörún
Gunnarsdóttir, Berglind Björk
Jónasdóttir, Ingibjörg Björnsdótt-
ir, Nanette Nelms, Astrós Gunn-
arsdóttir, Jóhann Arnarsson,
Úskar Einarsson, Birgir Karlsson,
Karl Petersen, Sveinn Sigurbjörns-
son, Þorsteinn Kjartansson og
Björn Jósepsson.
Frumsýning 15. mars kl. 20.30. Upp-
selt.
2. sýning 16. mars kl. 20.30. Uppselt.
3. sýning 17. mars kl. 20.30. Uppselt.
4. sýning föstud. 22. mars kl. 20.30.
5. sýning laugard. 23. mars kl. 20.30.
6. sýning sunnud. 24. mars kl. 20.30.
ÆTTARMÓTIÐ
Aukasýningar
35. sýning miðvikud. 27. mars kl. 20.30.
36. sýning fimmtud. 28. mars (skírdag)
kl. 15.00.
37. sýning fimmtud. 28. mars (skírdag)
kl. 20.30.
Aðgöngumiðasala: 96-2 40 73.
Miðasalan er opin alla virka daga nema
mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga
kl. 14-20.30.
MUNIÐ PAKKAFERÐIR
FLUGLEIÐA
tíiíílfil 31 3 fil
-ÍTl5 hi 5 Ls ULJUjBfl]
Leikfélag
Mosfellssveitar
ÞIÐ MUNIÐ HANN
JÖRUND
Vegna fjölda áskorana verður þetta frábæra
leikrit Jónasar Amasonar tekið upp aftur á
kránni Jockers and kings i Hlégarði.
Sunnud.17.marskl.21.
Föstud.22. marskl.21.
Laugard.23. marskl.21.
Laugard.30. marskl.21.
Miðapantanir og nánari uppl. i sima
666822 9-18 alla virka daga og síma
667788 sýningardaga frá 16-20.
Hiá
Mjólkurskógi
eftir Dylan Thomas
Leikstjóri Viðar Eggertsson
Sýnt í Tjamarbíói
Miðapantanir í síma 620458
eftir kl. 14
8. sýning föstud. 15.3. kl.
20.30.
9. sýning laugard. 16.3. kl.
20.30.
10. sýning þriðjud. 19.3. kl.
20.30. Síðasta sýning.