Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Síða 9
FIMMTUDAGUR 21.' MARS 1991.
Útlönd
Connor, sonur Erics Claptons og Lory del Santo, beid bana þegar hann
féll út um glugga á 53. hæð i háhýsi á Manhattan. Símamynd Reutsr
Fimm ára sorvur rokkstjörnunnar Erics Clapton féll út um glugga á ibúð
í háhýsi á Manhattan. Clapton býr á 53. hæð í húsinu sem alls er 60
hæðir. Lögreglan segir aö hreingemingarfólk hafi gleymt að loka glugga
rétt á meðan það brá sér út úr herberginu.
Sonurinn hét Connor. Hann var í íbúðinni með móður sinni, Lory Del
Santo, en Clapton var á hóteli í borginni. Clapton og Del Santo hafa búiö
saman frá árinu 1986 þegar hjónabandi hans og Patti Boyd lauk. Clapton
er af mörgum talinn einn af fremstu gítarleikurum rokksögunnar.
Enn barist á heimavígstöðvunum
„Því fer fjarri að stríðinu sé lokið. Það geisar enn hér í stórborgunum
þar sem fleiri menn falla á degi hvetjum en í Persafióastríðinu," er haft
eftir borgarráðsmanni í Detroit í Bandaríkjunum. Tilefnið var að einn
þeirra hermanna, sem fýrstir komu heim frá Persaflóanum, fannst myrt-
ur utan við borgina. Morðinginn eða morðingjarnir eru enn ófundnir
enda er algengt að morð i borginni upplýsist aldrei.
Hermaðurinn, sem þama féll, hét Anthony Riggs og var 22 ára gamall.
Hann tók bíl á leigu kvöldið fyrir morðið og ætlaði í útilegu með fjölskyld-
unni. í Persaflóastríðinu var Anthony einn þeirra sem sljómuðu Patriot-
gagnflaugum Bandaríkjamanna.
Fyrir nokkram dögum lýsti George Bush Bandaríkjaforseti því yfir að
hermennimir ættu skilið að koma heim til lands þar sem óhætt væri aö
ganga á götunum. í Detroit er ástandinu lýst þannig að þar sé hættulegra
aö vera á ferli að næturlagi en að berjasí viö lýðveldisverði Saddams
Hussein.
Fagnað með söng og eftirgjöf skulda
Lech Walesa, forseta Póllands, og
Danutu, konu hans, hefur verið
tekið meö kostum og kynjum í
Bandaríkjunum. George Bush
fagnaði starl'sbróður sínum við
komuna til landsins með fyrirheiti
um að gefa Pólverjum eftir 70% af
skuldum þeirra í Bandaríkjunum.
Bush sagöi að þetta værí framlag
Bandaríkjamanna til að styrkja
stoðir lýðræðis i Póllandi og koma
í veg fyrir að þjóðin yrði að liöa
vegna gífurlegra skulda.
Walesa þakkaði fyrir sig og sagði
að sér sýndist bandarískt þjóðfélag
til fyTirmyndar á alla lund. „Við
munum hafa Bandarikin sem fyrir-
mynd við uppbygginguna í Pól-
Iandi,“ sagði hann.
í gærkvöld að staðartíma var
Walesa og förunautum hans haldin
herleg veisla í Hvíta húsinu. Þar
skemmti m.a. pólskættaða söngkonan Karen Akers forsetanum til heið-
urs. Flutti hún lög úr söngleikjum bæði á pólsku og ensku.
Lech Walesa þakkar söngkonunni
Karen Akers fyrir iramlag hennar
I veislunni I Hvíta húsinu I gær-
kveldi. Simamynd Reuter
Fengu sovéskan kafbál í trollið
Sjómenn á litlum pólskum togbát urðu undrandi þegar trollið hjá þeim
flaut skyndilega upp þar sem þeir vora aö veiðum á Eystrasalti. Feng-
urinn reyndist vera um 90 metra langur sovéskur kafbátur. Við þessar
aðstæður hafa oft orðið alvarleg slys þegar kafbátar hafa dregið litla fiski-
báta í kaf. í þessu tilviki lá kafbáturínn hreyfingarlaus á hafsbotninum
og kom upp á yfirborðið um leiö og trollið festist í honum. Reuter
Eftirsóttur baksvipur
„Ég þori varla að lita framan í nokkurn mann. Þetta er hræðilegt,"
segir Warren Thompson, breski hermaðurinn úr Persaflóastríðinu sem
varð frægur í heimalandi sínu þegar mynd birtist af honum í sturtu.
Hann var þá i herbúðum sinum í eyðimörkinni í Saudi-Arabíu.
í fyrstu vissi hann ekkert um hvaða áhrif myndin hafði en því kynnt-
ist móðir hans heima í Bretlandi þeim mun betur. Mörgum stúlkum þar
þótti baksvipur mannsins óvenjufagur og þær báðu móðurina endilega
aö láta soninn hafa samband þegar hann kæmi heim.
Nú er Warren kominn heim og veit ekki hvað hann á af sér að gera
því hann er orðinn stjarna í heimabæ sínum vegna baksvipsíns.
Sonur Erics Claptons féll af 53. hæð
Michael Jackson hefur gert samning við Sony um útgáfu á plötum og kvikmyndum. Talið er að hann hafi ráðið sig
fyrir 50 til 60 miiljarða islenskra króna. Símamynd Reuter
Stórviðskipti 1 bandarískum skemmtanaiðnaði:
Olaf ur Jóhann
ræður Michael
Jackson til Sony
- samningurinn metinn á 50 til 60 milljarða íslenskra króna
Bandaríska útgáfufyrirtækiö Col-
umbia hefur gert samning við stór-
stirnið Michael Jackson um að
syngja inn á hljómplötur fyrir fyrir-
tækið næstu ár. Jackson á einnig að
leika í kvikmyndum og sjónvarps-
myndum. Columbia er í eigu jap-
önsku samsteypunnar Sony.
Ekki er gefið upp hvers virði samn-
ingurinn er en sérfræðingar segja
ótrúlegt að Jackson hafi kostað
minna en einn milljarð Bandaríkja-
dala. Það svarar til um 58 milljarða
íslenskra króna eöa ríflega hálfra
fjárlaga islenska ríkisins.
Ólafur Jóhann Ólafsson er einn af
aöstoðarforstjórum Sony sem stýrir
Columbia og hefur útgáfumál fyrir-
tækisins á sinni könnu. Reyndar fel-
ur samningurinn við Jackson í sér
að nokkrar deildir hjá Sony samein-
ast um að dreifa efninu með honum.
Þar á meöal er Sony Electroning
Publishing en þar er Ólafur fram-
kvæmdastjóri.
Michael Schulhof, forstjóri Sony í
Bandaríkjunum, kynnti samninginn
í gær. Hann sagöi aö allt efni með
Jackson yrði gefið út undir sérstöku
vörumerki.
Samningurinn kveður á um aö
Jackson gefi í það minnsta út sex
hljómplötur undir nýja merkinu. Á
síöasta áratug söng Jackson inn á
plötur sem seldust í meira en 65 millj-
ónum eintaka enda er hann einn vin-
sælasti dægurlagasöngvari allra
tíma.
Reuter
Bandaríkjamenn leita að mistökum í Persaflóadeilunni:
Vissum ekki hvað
Saddam er vitlaus
- segir Aprii Glaspie, fyrrum sendiherra í írak
April Glaspie, sendiherra Banda-
ríkjanna í írak fram að Persaflóa-
stríði, neitar að hún hafi gefið Sadd-
am Hussein það í skyn að Banda-
ríkjamenn létu kyrrt liggja þótt írak-
ar réöust inn í Kúvæt.
Allt frá því innrásin var gerð í
Kúvæt hefur Glaspie legið undir
ámæli fyrir að hafa ekki gert Saddam
það ljóst með skýrum orðum að
Bandaríkjamenn myndu svara meö
hervaldi ef írakar legðust í landvinn-
inga.
Glaspie átti fund með Saddam
skömmu fyrir innrásina og írakar
segja að hún hafi fullvissað leiðtog-
ann um að Bandaríkjamenn hefðu
„engan áhuga á landamæradeilum
íraka og Kúvæta“ eins og þaö var
orðað í skýrslu íraka frá fundinum.
Glaspie kom fyrir ransóknnar-
April Glaspie, fyrrum sendiherra
Bandaríkjanna i írak, hefur i fyrsta
sinn talað um hvað gerðist siðustu
dagana fyrir innrás íraka í Kúvæt.
Símamynd Reuter
nefnd öldungadeildar Bandaríkja-
þings í gær og gerði þar grein fyrir
máli sínu í fyrsta sinn eftir að átökin
við Persaflóa hófust. Þar þvertók
hún fyrir aö hafa gefiö Saddam á
nokkum hátt til kynna aö Banda-
ríkjamenn ætluðu að standa hjá í
deilum íraka og KúvætS.
„Ég sagði Saddam að við myndum
verja hagsmuni okkar í Mið-Austur-
löndum, styðja vini okkar þar og
veija sjáifstæði þeirra,“ sagði
Glaspie við yfirheyrslurnar.
Hún sagði að mistök Bandaríkja-
stjórnar heföu verið aö ímynda sér
ekki að Saddam væri svo vitlaus aö
hann teldi sig geta komist upp með
að ráöast inn í Kúævt. „Við eins og
allar aðrar þjóðir heims skildum
ekki hvernig Saddam hugsar. Það
voramistökin," sagðiGlaspie. Rcuter