Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Síða 11
II
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991.
Meiming
Fróðleg ferðasaga
Hér fyrr á árum, áöur en íslending-
ar tóku að leggjast í ferðalög að
nokkru ráði og Kaupmannahöfn
var nafli alheimsins, þótti fengur
að öllum ferðasögum landans ef
hann fór eitthvað lengra en til Dan-
merkur. Margar slíkar ferðasögur
eru frægar. Nú eru íslendingar
orðnir ferðaglaðir og fjöldi þeirra
ferðast um heiminn þveran og
endilangan. Ekki þykir lengur tíð-
indum sæta þótt skrifuö sé feröa-
saga. Og þó.
Undanfari
Persaflóastríðsins
Því verður ekki á móti mælt að
það er fengur í feröasögu Jóhönnu
Kristjónsdóttur, Flugleiðin til
Bagdad, sem kom út fyrir skömmu.
Af ýmsum ástæðum hafa íslend-
ingar hvað minnst ferðast um þann
heimshluta sem Jóhanna íjallar
um í bók sinni. Hún hefur haldið
upp á þetta landssvæði, ferðast
þangað oft á liðnum árum og þekk-
ir því orðið æði vel til í Austurlönd-
um nær.
í bókinni Elugleiðin til Bagdad
segir hún frá kynnum sínum af
Qölmörgu fólki í löndunum við Fló-
ann og víðar í arabaheiminum. í
bókinni skýrir Jóhanna ýmislegt
varðandi undanfara innrásarinnar
í Kúvæt og Persaflóastríðsins sem
fylgdi í kjölfarið. Hún segist gjarn-
an velja þá leið, til að aíla sér réttra
upplýsinga um ástand mála, að
ræða við almenning í þessum lönd-
um. Hún fer á markaðinn og ræðir
við fólk. Hún spyr leigubifreiða-
stjóra spjörunum úr og síðan ræðir
hún við þá embættismenn sem eru
í kallfæri hverju sinni. Þetta er án
efa langskynsamlegasta leiðin til
að fá sem réttasta mynd af gangi
mála.
Fróðlegur kafli um Bagdad
Besti kafli bókarinnar þykir mér
frásögnin af heimsókn hennar til
Bagdad á síðastliðnu hausti. Lýsing
hennar á ástandinu þar er bæði
Bókmenntir
Sigurdór Sigurdórsson
fróðleg og skemmtilega skrifuð.
Það er greinilegt af lestri bókarinn-
ar aö Jóhönnu er hlýtt til fólksins
í Austurlöndum nær. Hún hefur
gert mikið til að skilja hugarheim
og menningu þessa. Og svó virðist
sem henni hafl tekist þaö, annars
hefði hún aldrei getað aflað sér
jafngóðra sambanda þar eystra og
raun ber vitni.
Leióinlegt Mogga-grobb
Hún segir frá kynnum sínum og
kunningsskap við einn af valda-
mestu mönnum í írak, ritstjórann
og skáldiö Hamid Saeed. Hann er
ritstjóri stærsta dagblaðs íraks,
Byltingarinnar.
Þegar óskir bárust í gegnum
sænska sendiráðið í írak um að
láta Gísla Sigurðsson lausan fékk ■
Jóhanna skeyti um aö hún hefði
fengið vegabréfsáritun til íraks.
Það var að sjálfsögðu í gegnum rit-
stjórann, Hamid Saeed. Jóhanna
var eina manneskjan sem hann
þekkti á íslandi og Hussein íraks-
forseti vildi að sendimaður kæmi
frá öllum þeim löndum sem áttu
gísla í írak á þessum tíma. Því var
sent eftir Jóhönnu.
Þaö er því heldur leiðinlegt að
blanda þessu eitthvað saman við
Mogga-grobb eins og Jóhanna gerir
á bls. 172. Hún var að vonum hissa
þegar hún fékk skeyti um að hún
hefði fengið vegabréfsáritun til ír-
aks sem hún hafði ekki beðið um.
Þá lætur hún vinnufélaga sinn
segja: „Veistu hvað ég held?“ sagði
hann. „Þeir ætla að leyfa Gísla að
fara ef þú kemur. Þeir átta sig á
að Morgunblaðið er á við mörg
ráðuneyti annars staðar.“
Skrítin þula að tarna. Með fullri
virðingu fyrir Mogganum leyfl ég
mér að efast um að nokkur maður
í írak, nema ritstjórinn, kunningi
Jóhönnu, hafi hugmynd um að
þetta annars ágæta blað sé til. En
hann vissi hvar hún var og lét
senda skeytið til hennar. Enda var
hún eina manneskjan á íslandi sem
hann þekkti. Svona leiðinda
Mogga-grobb kemur fyrir á öðrum
stað í bókinni og .er lýti á annars
fróðlegri og skemmtilegri ferða-
sögu.
í kapphlaupi við stríðið
Ég þykist þess fullviss að ef Jó-
hanna hefði haft lengri tíma til að
skrifa þessa bók hefði hún orðið
enn fróðlegri og skemmtilegri. Jó-
hanna hefur greinilega verið í mik-
illi tímaþröng viö að koma bókinni
út áður en Persaflóastríðinu lauk.
Það tókst næstum því.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Flugleiðin til Bagdad
208 bls.
Almenna bókafélagið 1991
Jóhanna Kristjónsdóttir.
Brennsluofnar
fyrir postulín, keramik
o.fl. Verð frá kr.
47.600 stgr.
Listasmidjnn
Norðurbraut41, Hafnarf.
símar 91 -652105 og
91-53170
V
©
160 WATTA
HLJOMTÆKJA
SAMSTÆÐA
Geislaspilari
Fjarstýring
Stafrænt útvarp
Tvöfalt kassettutæki
Plötuspilari
Tónjafnari
2 djúpbassa hátalarar
VÖNDUÐ VERSLUN
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
SERTILBOÐ 39.950.- sigr.
(ÁN GEISLASPILARA 26.495,- stgr.)
Afborgunarskilmálar
HUGSAÐU UM BÆTIEFNIN
— en gleymdu ehhi undirstööunni!
osfóri, ýmsum B-vítamínum og gefur auk þess zink, magníum, kalíum, A-vítamín og fleiri efni sem eru líkamanum nauðsynleg. ^^mjólkurdagsnefnd