Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Page 24
32
FiSÍÍiT'Í/dÁGUIÍí21. KíA^RS 199Í!1
Memiing
Skúli Sverrisson bassaleikari:
Leikur í Full Circle
og í eigin hljómsveit
Skúli Sverrisson er hér ásamt tveimur félögum sinum í Full Circle, Karli Lundberg og Philip Hamilton.
í kvöld og annað kvöld mun hljóm-
sveitin Full Circle halda tónleika í
Púlsinum á vegum Jazzvakningar.
Full Circle er hljómsveit ungra og
-tnetnaðarfullra tónlistarmanna sem
vakið hefur mikla athygli allt frá því
fyrsta plata hennar kom út 1988.
Koma hljómsveitarinnar er mikill
viðburður í djasslifi höfuðborgarinn-
ar og ekki spillir fyrir að einn með-
limur hennar er íslenskur í húð og
hár. Skúli Sverrisson heitir hann og
vakti strax á unga aldri mikla at-
hygli en hann byrjaði aö leika á bassa
tíu ára gamall.
Eftir að hafa gert stuttan stans í
popphljómsveitinni Pax Vobis fór
hann í nám í FÍH-skólanum og lék
einnig með tríói Guðmundar Ingólfs-
sonar. Þaðan lá leið hans til Boston
þar sem hann hóf nám í Berklee
College of Music. Hann lauk námi
þar með miklum glæsibrag, fékk
meðal annars verðlaun sem besti
bassanemandi skólans. Meðan á
námi hans stóð lék hann með gítar-
leikaranum Christian Rover og unnu
þeir til fyrstu verðlauna á tónlistahá-
tíð í Fíladelfíu.
Vel menntaðir og
þrautþjálfaðir
Þeir sem leika með Skúla í Full
Circle eru engir aukvisar í tónlistar-
heiminum, allir þrautþjálfaðir og vei
menntaöir tónlistarmenn. Fyrstan
ber að telja Karl Lundberg sem er
fæddur í Bandaríkjunum en hann er,
eins og nafnið bendir til, af skandin-
avískum ættum. Lundberg semur öll
lög sveitarinnar og leikur á hijóm-
borð. Hann hefur unnið til margra
verðlauna fyrir tónsmíðar sínar en
auk þess að semja lög Full Circle
hefur hann samið stærri verk og tón-
list fyrir kvikmyndir og ballett.
Anders Bostrom er flautuleikari og
hljómborðsleikari. Hann er sænskur
og var, eins og Skúli, við nám í
Berklee College í Boston. Eftir að
hafa útskrifast þaðan lék hann með
Gary Burton og fleiri þekktum djass-
mönnum. Hann hefur verið heiðrað-
ur af Down Beat (1985) og National
American Music Award (1987).
Philip Hamilton er aðalsöngvari
Full Circle en leikur einnig á áslátt-
arhljóðfæri. Hann hefur, auk þess að
syngja í Full Circle, sungið og leikið
með mörgum öðrum hljómsveitum.
Má þar nefna Afro-fúsíon-hljómsveit
Lofty Amao (þess sama og stofnaði
Osibisa á sínum tíma) og Duke Ell-
ington-hljómsveitinni. Auk þess að
vera meðlimur í Full Circle kemur
hann fram í hinu mikla tónlistapró-
grammi Donalds Fagens, New York
Rock and Soul Review, ásamt Phoepe
Snow, Michael McDonald, Patty
Austin og Bob Scaggs.
Trommuleikarinn Dan Rieser gekk
til liðs við Full Circle 1989. Hann fór
einnig með miklum glans í gegnum
Berklee College eins og Skúli og fékk
mörg verðlaun. Hann hefur meðal
annars leikið með Clark 'Terry og
Louis Belson.
Plata með eigin
hljómsveit væntanleg
DV náði að spjalla aðeins viö Skúla
Sverrisson í gegnum síma en hann
býr í New York. Rætt var við hann
rétt áður en hann hélt til íslands.
Skúli var fyrst spurður hvort sú tón-
list, sem Full Circle léki, væri það
sem honum fyndist mest spennandi:
„Mér finnst margt spennandi í tón-
list, meðal annars tónlist Full Circle.
Ég fæst að vísu við annað meðfram
þátttöku minni í Full Circle. Ég er
til dæmis með eigin hljómsveit og er
að fara út í það að gera plötu með
því bandi. Þar er hljóðfæraskipanin
öðruvísi eða bassi, trommur, gítar
og söngur. Ég hef einnig verið að
vinna að plötum með ýmsum öðrum
hér í New York, meðal annars flink-
um náunga sem heitir Peter Sherer.“
Ný plata Full Circle er Secret Stor-
ies: hvernig tónlist er á henni?
„Platan er að hlúta til tekin upp í
Brasilíu og ber þess merki, enda
brasilískir gestaleikarar á plötunni,
án þess þó að hægt sé að segja að
tónlistin sé suður-amerísk. í heild er
Secret Stories fjölbreytt blanda af
djassi, rokki, brasilískum og afrísk-
um rytma.“
- Hljómsveitin kemur hingað beint
frá Bandaríkjunum og þið farið
áfram til Evrópu?
„í þetta skiptið spilum við ein-
DV-mynd BG
göngu á Noröurlöndum. Við þurfum
að vera komnir aftur til Bandaríkj-
anna í apríl þar sem fyrirhugað er
tónleikaferðalag, einkum á austur-
ströndinni og eitthvað í Los Angeles,
til að fylgja Secret Stories eftir.
Framhald fer svo að sjálfsögðu eftir
hvernig viðtökur platan fær. Hún er
svo til nýkomin á markaðinn þannig
að viðbrögð hafa sama og engin verið
enn sem komið er en við héldum tón-
leika í New York í síðustu viku og
þar lékum við efni af nýju plötunni
sem greinilega féll áhorfendum vel í
geð.“
- Tónlistin í Púlsinum í kvöld og
annað kvöld?
„Hún verður aðallega af Secret
Stories en einnig verða leikin lög af
fyrri plötunum tveimur."
Óhætt er að fullyrða að það verður
mikil gæðatónlist sem flutt verður í
Púlsinum. Fimmmenningarnir er
allir stórgóðir tónlistarmenn og eftir
að hafa heyrt í Skúla Sverrissyni á
Secret Stories er óhætt að fullyrða
að þar er á ferðinni mikill snillingur
ásitthljóðfæri. -HK
Lars Huldén.
Finnskskáld
lesa úreigin
bókmenntum
í kvöld verður dagskrá með
flnnskum rithöfundum í Nor-
ræna húsinu. Lars Huldén, Kjell
Westö og Tapio Koivukari lesa
úr skáldverkum sínum og Njörð-
ur P. Njarðvík les þýðingu sína á
smásögunni Jag ság drottning
Sylvia gráta eftir Lars Huldén.
Lars Huldén hefur skrifað ijóð og
skáldsögur, samið revíur og sjón-
varpsleikrit, óperutexta og hátíð-
arljóð. Þá hefur hann þýtt mörg
sígild verk heimsbókmeimtanna.
Fyrsta bók Kjells Westö, Tango
Orange, kom út 1986. Hann hlaut
almenna viðurkenningu fyrir
smásagnasafnið Utsla och andra
noveller sem kom út 1989. Tapio
Koivukari er guðfræðingur að
mennt en starfar nú sem kennari
viö grunnskólann á ísafirði.
Hann hefur skrifað tvær skáld-
sögur, Saariston samurait og Oð-
innin Korppí. Dagskráin hefst kl.
! 20.30.
Páskatónleikar
Sinfóníunnarí
Langholtskirkju
Þrjú verk verða á páskatónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar íslands
í Langholtskirkju í kvöld. Verkin
eru Hljómsveitarsvita nr. 3 eftir
Bach, Fiðlukonsert nr. 1 í G dúr
eftir Mozart og Síðustu orð frels-
ara vors á krossinum eftir Haydn.
Hljómeyki mun syngja. Ein-
söngvarar eru Marta Halldórs-
dóttir, sópran, Sigríður Jónsdótt-
ir, mezzosópran, Þorgeir J. Andr-
ésson, tenór, og Magnús Bald-
vinsson, bassi. Einsöngvararnir
eru flestir við nám erlendis. í
ílautukonsertinum verður ein-
leikari Áshildur Haraldsdóttir.
Hljómsveitarstjóri er Páll P. Páls-
son.
Frumflutningur á Baldr eftir Jón Leifs:
Risatónverk sem byggt er á Eddukvæðum,
seinni heimsstyrjöMinni og Heklugosi
Paul Zukofsky er hér ða stjórnar Sinfóníuhljómsveit æskunnar og kór á
æfingu á Baldri. DV-rnynd: GVA.
Á pálmasunnudag mun Sinfóniu-
hljómsveit æskunnar frumflytja
Baldr, annað af stærstu tónverkum
sem Jón Leifs samdi (Edduórator-
íurnar eru sambærilegar að stærð).
Það er snillingurinn Paul Zukofsky
sem mun stjórna hljómsveitinni en í
henni í þetta skiptið verða niutíu og
þrír hljóðfæraleikarar. Þá verður
kórinn, sem tekur þátt í flutningn-
um, einnig mjög stór. í heild eru það
hátt á annað hundrað manns sem
taka þátt í þessum viðamikla flutn-
ingi sem með sanni má segja að sé
heimsviðburður. Eftir helgi verður
svo tónverkið, sem tekur um það bil
eina og hálfa klukkustund í flutn-
ingi, hljóðritað með útgáfu á geisla-
diski í huga.
Paul Zukofsky sagði á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var í tilefni tón-
leikanna, að fyrir um það bil fjórum
árum hefði hann fengið þá hugmynd
að hægt væri að flytja þetta viðam-
ikla tónverk en alvöruvinna við það
hófst fyrir einu og hálfu ári.
Þótt Baldr sé til á nótum frá höf-
undinum þá var mikið verk eftir.við
allar raddsetningar og unnu þrjár
manneskjur í átta mánuöi að því að
gera verkið flutningshæft.
Hefur aldrei verið
flutt áður
í formála Jóns Leifs að Baldri seg-
ir: „Baldr er byggður á hugmynd sem
höfundurinn var að þróa í huganum
síðustu tuttugu árin, innblásinn af
Eddukvæðum. Atburðir seinni
heimsstyrjaldarinnar og Heklugos
1947 lögðu tfl hugmyndir í endanlegt
leikrænt form verksins."
Baldr er ópera án orða og fjallar
um baráttu góðs og iljs eins og hún
birtist í sögunni af Baldri, kristi-
legustu persónu fornnorrænu goða-
fræðinnar. Zukofsky segir um verk-
ið: „Aö mínu áliti er hægt aö halda
því fram að Baldr sé eitt hið óvenju-
legasta og vissulega eitt af bestu og
mest hrærandi verkum Jóns. Það er
ekki eitt þessara indælu, stuttu,
myndrænu „tækifærisverka“ sem
hann samdi síðar. í Baldri eru tón-
listarleg og leiklistarleg öfl sameinuð
í þeim tilgangi að kynna umheimin-
um ísland, sem stóð Jóni nærri og
hvatti hann til að leggja vinnu í þessa
hugmynd sem þó var svo ólíkleg til
að verða að veruleika."
Einstak framlag
Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar
Um hvers vegna Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar tekur þátt í verkefni
af þessu tagi segir Zukofsky: „Eitt
svar er að verkiö var til, enginn ann-
ar var að vinna það, svo við gátum
allt eins gert það. Einnig mætti segja
að Sinfóníuhljómsveit æskunnar
væri með flutningi sinum að leggja
af mörkum einstakt framlag. Sú stað-
reynd að tónlistin í Baldri er mjög
góð og hefur aldrei heyrst á íslandi
gæti enn fremur svarað þessari
spurningu. Það er mikilvægt að ung-
um íslenskum tónlistarnemum og
almennum áheyrendum sé kynnt ís-
lensk tónlist. Einnig er nauðsynlegt
að þátttakendur heiðri, kunni að
meta, virði og láti sér jafnvel þykja
vænt um tónlist eigin lands. Aðalá-
stæða þess að ég valdi þetta verk til
ílutnings er hins vegar mikilvægi
þess að þátttakendur kynnist manni
sem vann ótrauður að hugmynd
þrátt fyrir litlar líkur á því að hún
yröi að veruleika."
Sem fyrr segir verður Baldr flutt á
sunnudaginn og eru tónleikarnir í
Háskólabíói. Auk hljómsveitar og
kórs kemur fram einn einsöngvari,
Ólafur Kjartan Sigurðarson, og sögu-
maður sem er Jóhann Sigurðarson
leikari.
............................ -HK