Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991.
Fréttir
Nefndarálit um starfsemina á Keflavíkurflugvelii:
Af greiðsla á fragtf lugi
verði gef in f rjáls
Nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar,
skipuð fulltrúum forsætisráðuneyt-
is, samgönguráðuneytis og utanrík-
isráðuneytis, hefur lagt til að af-
greiðsla vegna vöruflutninga verði
gefin frjáls. Undanfarin ár hafa Flug-
leiðir alfarið séð um alla afgreiðslu
á flugvellinum á grundvelli þjón-
ustusamnings við íslenska ríkið.
Fram kemur í áliti nefndarinnar
að nú sé tímabært að taka upp við-
ræöur við Flugleiðir um að fleirum
verði heimiluð afgreiðsla á vörum.
Hins vegar er mælt gegn því að breyt-
ing verði gerð á afgreiðslu vegna
fólksflutninga.
Að sögn Steingríms J. Sigfússonar
samgönguráðherra, byggir þessi nið-
urstaða nefndarinnar á því að um sé
að ræöa nánast óskylda starfsemi i
vöruflugi og fragtflugi. Hann segir
að vegna þróunar í flugmálum á síð-
ustu árum hafi vöruflutningar
greinst í auknum mæli frá farþega-
fluginu. Því sé ekki ástæða til að láta
einhvem einn aðila sitja að þessu
enda sé ástæða til aö ætla að ýmsir
minni aðilar geti sinnt þessari þjón-
ustu fyrir fragtflugið.
Steingrímur segir brýnt að rekstur
flugstöðvarinnar og þess hluta flug-
vallarsvæðisins sem tilheyri al-
mennu flugi sé sett undir samgöngu-
ráðuneytið eins og aðrar samgöngur
hér á landi. Hann segir það galla á
nefndarálitinu að ekki sé lagt til að
þessi rekstur verði tekin úr höndum
utanríkisráðuneytisins.
„Auðvitað ætti öll borgaraleg flug-
starfsemi á Keflavíkurflugvelli að
Stefán Valgeirsson:
„Hefði viljað
listann öðruvísi"
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég er búinn að sitja á Alþingi í 24
ár og vera aldursforseti þingsins í
átta ár og mér finnst nóg komið,“
segir Stefán Valgeirsson alþingis-
maður sem mun skipa 12. sætið á
framboðslista Heimastjórnarsam-
takanna í Norðurlandskjördæmi
eystra.
Þar með er ljóst að Stefán hefur
ákveðið að hætta þingmennsku og
hann segist vera sáttur við þá
ákvörðun.
„Mér er hins vegar engin launung
á því að ég hefði kosið að hafa listann
allt öðruvísi fyrir norðan en ég ræði
það ekki frekar," sagði Stefán.
Benedikt Sigurðarson skólastjóri
mun skipa fyrsta sæti Heimastjórn-
arsamtakanna á Norðurlandi eystra
og Bjami Guðleifsson ráðunautur
verður í 2. sæti.
Græntframboð:
Listinn í
Reykjavík
Framboðslisti Græns framboðs í
Reykjavík fyrir alþingiskosningarn-
ar hefur verið ákveöinn. Efstu sæti
listans skipa:
1. Óskar Dýrmundsson, 2. Sigrún
María Kristinsdóttir, 3. Jón Tfyggvi
Sveinsson, 4. Hjördís B. Birgisdóttir,
5. Stefán Bjargmundsson, 6. Jón G.
Davíðsson, 7. Sigríður Elín Júlíus-
dóttir, 8. Guðmundur Þórarinsson og
9. Ásgeir Sigurðsson.
-hlh
heyra undir samgönguráðuneytið
eitt. Þannig gætum við eflt starfsem-
ina á svæðinu verulega. Af og til
hafa þessar hugmyndir verið viðrað-
ar, til dæmis í frægu frumvarpi til
laga um breytta verkaskiptingu
ráðuneytanna, en það rísa alltaf upp
einhver öfl á bakvið tjöldin sem
kippa í spottana. ítrekað hefur þetta
mál gufað upp vegna þessa,“ segir
Steingrímur.
-kaa
Davíá Oddsson
áAknanesi
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
efnir til almenns stjórnmálafundar á Akranesi
föstudaginn 5. apríl n.k. Fundurinn verður í
Bíóhöllinni og hefst kl. 20:30.
Auk Davíðs flytja Sturla Böðvarsson og
Elínbjörg Magnúsdóttir stutt ávörp.
Fundarstjóri verður Cuðjón Guðmundsson.
Allir velkomnir.
Sturla
FRELSI OG
MANNÚÐ
Guðjón
xT»>