Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Blaðsíða 28
36
Grænt Alþingi •
umhverfismál
Á Alþingi sitja 63 þingmenn sem
fara með löggjafarvaldiö í okkar
250000 manna samfélagi. Vald AI-
þingis er mikið í þessu litla sam-
félagi, sérstaklega þegar haft er í
huga að það fer með fjárveitinga-
valdið að auki. Því er ekki von á
öðru en að ýmsir vilji hafa áhrif á
hvernig málum er háttað þar hvort
sem um er að ræða efnahaginn eða
fólkið í landinu. Efnahagurinn er
oftast talinn skilyrði þess að hér
geti haldist byggð og hefur það því
oft verið talið nægjanlegt að huga
einungis að hvoru tveggja.
Nýr þáttur í allri ákvarðanatöku
hefur verið að ryðja sér til rúms.
Eru það umhverfismál og hlutur
umhverfisins í okkar tilveru og þá
gildir einu hvort veriö er að tala
um ákvarðanatöku á Alþingi eða í
daglegu lífi hjá einstaklingnum. Án
tilvistar lífvænlegrar jaröar þá
verður engin tilvist einstaklinga og
þar af leiðandi engin tilvist Al-
þingis.
Því hefur myndast Grænt fram-
boð sem býður fram lista til kom-
andi alþingiskosninga, lista sem
hefur græna hugmyndafræði að
leiðarljósi, þ.e. að við verðum að
líta á öll mál sem heild þar sem
þriðji þátturinn þ.e. umhverfið
verður tekið með í reikninginn.
Fulltrúar umhverfisins
Á þingi sitja fulltrúar A-flokk-
anna, Kvennalistans, flokkur allra
stétta o.s.frv. Ekki einn einasti full-
trúi gefur sig út fyrir að setja um-
hverfismál á oddinn. Því er brýn
nauðsyn á að inn á þing fari sannur
málsvari umhverfisins sem setur
mál þess á oddinn óháður öðrum
þáttum.
Þetta er mikilvægt og snertir
þetta alla þrjá áðurnefnda þætti.
Þetta snertir tilveru okkar vegna
þess að menguð og eitruð vatnsból,
mengað andrúmsloft og illa skipu-
lagt umhverfi er manninum hættu-
-legt.
Góður efnahagur á íslandi bygg-
ist í dag á sölu á hreinni og ómeng-
aðri ímynd landsins, sem það er
þó alls ekki. Kemur ímyndin til
góða við sölu á fiskafurðum og þeg-
ar við markaðssetjum landið fyrir
ferðamenn.
Umhverfismálin snerta ekki bara
okkur íslendinga heldur allt vist-
kerfið og þar með allan heiminn
sem er að sögn færustu sérfræð-
inga að hraka mjög ef reiknað er
með því að hér þrífist líf sem nær-
ist á súrefni. í raun má segja að i
dag ríki gífurleg skekkja í hugum
fólks sem setur sig í algera drottn-
unaraðstööu gagnvart náttúrunni.
Við erum ekki herrar jarðarinnar
heldur hluti hennar og þetta þarf
að leiðrétta.
Er ísland ómengað?
Svarið er einfaldlega nei! Fjörur
viö landið eru þær menguðustu í
Evrópu samkvæmt ársgömlum
mælingum og hafa t.d. sænskir fjöl-
miðlar velt sér upp úr þessu nýver-
ið. Mengun vegna brennslu olíu og
bensíns er hlutfallslega mjög há
Jarðarfarir
Rebekka Guðmundsdóttir, Leifsgötu
10, sem lést 26. mars, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 5. apríl kl. 13.30.
Þórdís Símonardóttir, Suðurkoti,
Vatnsleysuströnd, verður jarðsung-
in frá Kálfatjarnarkirkju laugardag-
inn 6. apríl kl. 13.30.
Guðmunda Magnea Pálsdóttir,
Skólagötu 8, ísafirði, sem lést 27.
mars í Sjúkrahúsi ísafjarðar, verður
jarðsungin frá Hólskirkju í Bolung-
arvík laugardaginn 6. apríl kl. 11 f.h.
Ásmundur J. Ásmundsson, Ásholti
2, Reykjavík, lést 28. mars sl. Útförin
Kjallarinn
Óskar D. Ólafsson
í 1. sæti á lista
Græns framboðs til Alþingis
Fjorur landsins eru þær meng-
uðustu í Evrópu samkvæmt árs-
gömlum mælingum, segir m.a. í
greininni.
hér á landi þrátt fyrir að við búum
einna best hvað varðar umhverfis-
væna orku. Sorphirða á íslandi er
langt á eftir því sem tíðkast í ná-
grannaríkjunum þar sem öll heim-
ili eiga möguleika á því að flokka
sorp sem er svo endurunnið í full-
komnum endurvinnslustöðvum.
Hérlendis er sorpið urðað eða
brennt! Ózonlagið okkar sem er
orðið götótt sýnir skýr merki þynn-
ingar yfir Norðurlandi, í höfunum
fyrir norðan og sunnan ísland
liggja kjarnorkuvopn og kjarn-
orkukafbátar. Kjarnorkuendur-
vinnslur eru skammt undan fiski-
fer fram frá Dómkirkjunni föstudag-
inn 5. apríl kl. 15.
Hörður Svavarsson jarðfræðingur,
Bæjartúni 5, Kópavogi, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju á morg-
un, föstudaginn 5. apríl, kl. 15.
Ragnar Vilhjálmsson (Russell E.
Woods), Faxabraut 36b, Keflavík, er
andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 29.
mars sl., verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 6.
apríl kl. 16.
Helgi Guðlaugsson sjómaður, áöur
Jófríðarstaðavegi 7, sem lést á Hrafn-
istu 26. mars sl., verður jarðsunginn
frá Hafnarfj arðarkirkj u föstudaginn
5. apríl kl. 15.
Ólafur Frímann Sigurðsson lést 28.
mars. Hann fæddist á Bræðraparti á
miðum okkar og er óhætt að full-
yrða að ef geislavirkni færi að hafa
áhrif á fiskistofnana okkar þá má
reikna með algeru hruni í fisksölu.
Einnig er hér vandamál varðandi
uppfok og stór landsvæði eru tekin
til virkjunarframkvæmda vegna
stóriðju.
í stuttu máli sagt: Við verðum,
hvernig sem litið er á málið, að
sinna umhverfinu okkar ef við ætl-
um að lifa af því og leiðrétta þá
skekkju sem við lifum í.
Hvað þarf að gera?
Þessa skekkju má leiðrétta hvað
sem öllum heimsendaspám líður
og þarf að breyta ýmsu hér. Hefur
Grænt framboð lagt fram eftirtalda
þætti til úrlausnar:
- Hér þarf að rísa endurvinnslu-
stöð sem endurvinnur flokkað sorp
frá heimilum og öðrum.
- Vikið verði alfarið frá öllum
hugmyndum um stóriðju sem er
alger mótsögn við hreina og ó-
mengaða ímynd landsins.
- Styðja verður mun betur viö
bakið á ferðamannaþjónustunni og
er þar helst að nefna skipulag í
óbyggðum og varðveislu umhverf-
is.
- Stórminnka þarf mengun af völd-
um bifreiða með aukinni notkun
almenningsvagna og nýrra val-
kosta í orkugjöfum og samgöngu-
tækjum. Má í þessu tilviki nefna
vetni og rafmagnslestir sem dæmi.
- Mótmæla þarf skipulega, á al-
þjóðavettvangi, notkun kjarnorku
í og við höfin, svo og hvar sem er
í heiminum.
- Koma inn í skólaskylduna vist-
fræði, á öllu kennslustigum, með
séráherslu á umhverfisverndun.
Okkar mál!
_ í nánast skóglausu landi eins og
íslandi þá koma hlutir eins og end-
urvinnsla á pappír okkur við alveg
eins og hreinleiki vatnsbólanna.
Við erum hiuti af stórri heild og
það er Alþingi líka. Fyrirsögn
greinarinnar undirstrikar það sem
Grænt framboð stefnir að. Þ.e. við
stefnum að þvi að gera Alþingi
grænt þar sem umhverfismál verða
tekin með í öllum þeim ákvörðun-
um sem teknar eru þar, okkur öll-
um í hag. Eða hvað finnst þér? Ef
þér finnst það sama og okkur þá
verður þitt atkvæði til Græns fram-
boðs skýr skilaboð um að Alþingi
taki umhverfismál alvarlega.
Óskar D. Ólafsson
Akranesi 23. mars 1903, sonur hjón-
anna Guðrúnar Þórðardóttur og Sig-
urðar Jóhannessonar. Ólafur lauk
prófi frá Verslunarskólanum 1925.
Hann starfaði sem skrifstofumaður á
Akranesi hjá Bjarna Ólafssyni og co.
frá 1925 til 1930. Kaupmaður 1930-40.
Var síðan bókari hjá fyrirtæki Þórð-
ar Ásmundssonar og síðar Síldar- og
fiskimjölsverksmiðju Akraness. Eft-
irlifandi eiginkona Ólafs er Ólína
Ása Þórðardóttir. Þau hjónin eignuð-
ust sjö böm. Útför Ólafs verður gerð
frá Akraneskirkju í dag kl. 14.
Bjarni Sveinsson múrarameistari
lést 22. mars. Hann fæddist í Hafnar-
firöi þann 25. maí 1915. Hann var
sonur hjónanna Guðlaugar Bjarna-
dóttur og Sveins Jónssonar. Bjarni
„Sorphirða á Islandi er langt á eftir því
sem tíðkast í nágrannaríkjunum þar
sem öll heimili eiga möguleika á því
að flokka sorp sem er svo endurunnið
í fullkomnum endurvinnslustöðvum. ‘ ‘
hóf ungur nám í múraraiðn hjá Ing-
ólfi Stefánssyni og vanna alla tíð að
iðn sinni. Hann giftist Þórdísi Matt-
híasdóttur og eignuðust þau sex
börn. Þau slitu samvistum. Útför
Bjarna verður gerð frá Hafnarfiarð-
arkirkju í dag kl. 15.
Ráðstefnur
Afslöppun - uppbygging -
endurnýjun
NÝ-UNG stendur fyrir ráðstefnu í Borg-
arnesi dagana 12-14. apríl nk. undir yfir-
skriftinni: Afslöppun - uppbygging - end-
urnýjun. Markmiöið er að ráðstefnugest-
ir slappi af, uppbyggist og endumýist í
Jesú Kristi. Sérstakir gestir og fyrirlesar-
ar verða sr. Jónas Gíslason, Árnfríður
Arnmundsdóttir og sr. Magnús Björns-
son. Á dagskrá em uppbyggjandi fyrir-
lestrar, samfélagsetlandi hópstarf, bæna-
stundir, hátíðlegt kvölverðarboð og góö-
ur matur. Ráöstefnan er ætluð öllu fé-
lagsfólki í KFUM og K, óháð því hvort
viðkomandi hefur tekið þátt í starfi NÝ-
Ungar eða ekki. Verð er kr. 7000 á mann
og innifalið í því er gisting i tvær nætur
í tveggja manna herbergi, fullt fæði og
ferðir fram og til baka. Böm 6 ára og
yngri fá ókeypis en fyrir eldri börn kost-
ar kr. 3000.
Námskeið
Námskeið í ofurminni
verða haldin á Hótel Lind, Rauðarárstíg
18, næstu vikur. Leiðbeinandi er Guð-
mundur Rúnar Ásmundsson, búsettur í
Bandaríkjunum en staddur hér á landi
um stundarsakir. Á námskeiðunum er
kennd ótrúleg tækni við aö bæta minnið.
Þessi tækni nýtist sérstaklega vel við allt
nám, svo sem tungumálanám, stærð-
fræði og fleira. Einnig viö aö muna allt
sem lesið er. Hvert námskeið tekur um
16 klst. og skiptist yfir á tvo daga. Hægt
er að semja um námskeið fyrir starfs-
mannafélög og aöra hópá. Innritun í sím-
um 626275 og 11275.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Margrét Thoroddsen verður til viðtals í
dag frá kl. 13-17 í Risinu. Félagsvist verð-
ur einnig í Risinu í dag kl. 14. Dansleikur
kl. 20.30. Ráðgerö er Luxemborgarferð 23.
apríl nk. Upplýsingar á skrifstofu félags-
ins.
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991.
Styrkveitingartil námsefnis-
gerðar
á framhaldsskólastigi
Lokið er úthlutun styrkja til námsefnis-
gerðar á framhaldsskólastigi fyrir árið
1991. Fjárveiting á fjárlögum þessa árs
er samtals 4.750.000 kr. og var úthlutaö
til 35 einstaklinga. Tilgangurinn með
þessari styrkveitingu er að stuðla að auk-
inni námsefnisgerð á framhaldsskólastigi
og draga þannig úr þeim skorti sem er á
kennsluefni í hinum ýmsu námsgrein-
um, bæði bóklegum og verklegum. Alls
bárust 84 umsóknir en samtals var sótt
um nálægt 30.000.000 kr.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Ný þriggja kvölda spilakeppni hefst að
Auðbrekku 25 fóstudagskvöldið 5. apríl
kl. 20.30. Dans á eftir að venju.
Fundir
JC Reykjavík
stendur fyrir opnum borgarafundi í Há-
skólabíói í samvinnu við Stöð tvö í dag,
fimmtudaginn 4. april, frá kl. 17-19.
Ræðumenn verða frá 6 flokkum: Al-
þýðubandalag: Svavar Gestsson, Al-
þýðuflokkur: Jón Baldvin Hannibalsson,
Borgaraflokkur - Frjálslyndir: Guðrún
Jónsdóttir, Framsóknarflokkur: Stein-
grímur Hermannsson, Kvennalisti:
Kristín Ástgeirsdóttir, Sjálfstæðisflokk-
ur: Friðrik Sophusson. Umræðustjóri:
Páll Magnússon sjónvarpsstjóri, Stöð 2.
Fundurinn er öllum opinn. Ræðumenn
ílytja stutta framsöguræðu, panelum-
ræður og fyrirspurnir úr sal.
Tapað fundið
Köttur í óskilum
Þessi köttur fannst fyrir nokkru nálægt
miðbænum. Hann er alveg ómerktur en
með far eftir hálsól. Upplýsingar í síma
73461.
Leikhús
iLíIlíIi J S llMLill Íulr.lLI
[Tii'ilirip ffjial Kl iiTíPí^j
f..5Í:SÍ!!.jLJ!ÍjLwJriÍ
Leikfélag Akureyrar
Söngleikurinn
KYSSTU
MIG,
KATA!
eftir Samuel og
Bellu Spewack
Tónlist og söngtextar eftir Cole Porter
Þýðing: Böðvar Guðmundsson
Leikstjórn: Þórunn Sigurðardóttir
Leikmynd og búningar: Una Collins
Tónlistarstjórn: Jakob Frímann
Magnússon
Dansar: Nanette Nelms
Lýsing: Ingvar Björnsson
Föstud. 5. apríl kl. 20.30. Uppselt.
Laugard. 6. apríl kl. 20.30. Uppselt.
Sunnud. 7. aprll kl. 20.30. Uppselt.
Aðgöngumiðasala: 96-2 40 73.
Miðasalan er opin alla virka daga nema
mánudaga kl. 14-18 og sýningardaqa
kl. 14-20.30.
MUNIÐ PAKKAFERÐIR
FLUGLEIÐA
FACOFACQ
FACOFACD
FACCFACO
LISTINN Á HVERJUM
MÁNUDEQI
TDHll
ISLENSKA OPERAN
___11111 OAMLA BlÓ INGÓLFSSTRÆTl
íslenska óperan
RIGOLETTO
eftir Giuseppe Verdi
Næstu sýningar
11. apríl. Næstsiðasta sýning.
13. apríl. Síðasta sýning.
Miðasalan er opin virka daga
frá kl. 16-18 og sýningardaga
til kl. 20.00
Sími 11475.
Greiðslukortaþjónusta
VISA - EURO - SAMKORT
HUGLEIKUR
sýnir að
Brautarholti 8
ofleikinn
Sagan um Svein
sáluga Sveinsson
í Spjör og sam-
sveitunga hans
8. sýn. fimmtud. 4. april kl. 20.30.
Uppselt.
9. sýn. laugard. 6. april kl. 20.30.
10. sýn. mánud. 8. apríl kl. 20.30.
Aðeins þessar 10 sýningar.
Miðasala i sima 623047 eftir
kl. 18 sýningardaga.
Athugið breyttan sýningar-
stað.
1 STÓRKOSTLEG ISKRIFUR
nv