Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991.
25
Iþróttir
m góö ráð í fyrsta leiknum gegn Keflvikingum í fyrrakvöld. Ráð Friðriks dugðu vel
í kvöld? DV-mynd GS
Takmarkið nálgast hjá undramanninum Mark Spitz:
Af hverju,
Mark Spitz?
S„Af hverju, Mark? Ég
hef heyrt þessa spurn-
ingu áftur og aftur á
þeim átján mánuðum
sem liðnir eru síðan að ég tók
ákvörðunina um að stinga mér
aftur af alvöru í sundlaugina og
freista þess að komast á ólympíu-
leikana í Barcelona 1992. Það
langar marga að vita hvers vegna
í ósköpunum 41 árs gamall mað-
ur, sem unnið hefur svo til allt
sem hægt er að vinna í sundinu,
sem ekki hefur synt fyrir alvöru
í tvo áratugi, sem á yndislega fjöl-
skyldu, er svo æstur í að leggja á
sig gífurlegt erflði sem fylgir því
að komast á toppinn á ný?“
Þetta segir bandaríski sund-
kappinn Mark Spitz meðal ann-
ars í grein sem hann ritaði í dag-
blað á dögunum. Spitz varð
heimsfrægur árið 1972 er hann
vann sjö gullverðlaun á ólympíu-
leikunum í Miinchen. Afrek sem
seint eða aldrei verður endurtek-
ið. Það vakti verðskuldaða at-
hygli er Spitz, sem er 41 árs, ákv-
að að hefja æfingar af fullum
krafti á fimmtugsaldri og setja
stefnuna á næstu ólympíuleika.
unum síðan að ég keppti á OL í
Munchen 1972. Mig langar ekki
til að verða besti sundmaður
heimsins á mínum aldri. Mig
langar hins vegar til þess að
verða eins góður í 100 metra flug-
sundinu og ég var í Mtinchen
1972. Ég ber engan kvíðboga fyrir
útkomunni hjá mér. Ég var tilbú-
inn að taka áhættu þegar ég var
yngri og ég er það enn,“ segir
þessi ótrúlegi íþróttamaður. Og
hann bætir því við að það sé und-
irstöðuatriði hvað sig snerti að
hann hafl, frá því hann keppti á
OL 1972, ætíð æft reglulega og
haldið sér í mjög góðri líkamlegri
æflngu.
Spitz hefur verið að
ná frábærum tímum
Sú stund nálgast að Mark Spitz
verði að sýna styrk sinn en úr-
tökumótið bandaríska fyrir
ólympíuleikana í Barcelona á
næsta ári fer fram í júní. Sjálfsagt
munu menn ekki trúa því fyrr en
þeir sjá það að Mark takist að
komast til Barcelona. Staðreynd-
in er hins vegar sú að Spitz hefur
verið að ná hreint frábærum tím-
um í flugsundinu á undanförnum
vikum og greinilegt á öllu að
Matt Biondi og félagar mega svo
sannarlega vara sig.
Var dreginn örmagna
upp úr sundlauginni
Það hefur ekki gengið þrauta-
laust fyrir sig hjá Mark Spitz að
ganga í gegnum það erfiða æf-
ingatímabil sem senn er að baki.
í upphafi, er hann æfði með
bandarísku landsliðsfólki, varð
Spitz nær dauða en lífi eftir fyrstu
æfmgarnar og það kom fyrir aö
félagar hans þurftu hreinlega aö
draga hann örmagna upp úr
sundlauginni. í dag er öldin önn-
ur og Spitz er aftur í fremstu röð
í heimalandi sínu og ef til vill í
heiminum.
• Mark Spitz mun keppa við
Tom Jager 13. apríl og Matt
Biondi þan'n 27. apríl. Sigurvegar-
inn í fyrra einvíginu fær 1,2 millj-
ónir króna í sinn hlut og í því
síðara er vinningsupphæðin 2,1
milljón króna.
-SK
Isbikarinn í körfu heldur áfram í kvöld:
ir svitadropar
»ftir að falla“
lætast öðru sinni 1 Keflavík í kvöld kl. 20
íþróttahúsið í Keflavík og hvetji okkur
til sigurs. Þetta er alls ekki búið og það
eiga margir svitadropar eftir að falla
enn, því get ég lofað þér.“
Hallast að því þessa stundina
að Njarðvík vinni 3-1
Gunnar Þorvarðarson, þjálfari Grind-
víkinga, er öllum hnútum kunnugur hjá
ÍBK og Njarðvík. Hann sagði eftirfarandi
um leikinn í kvöld í samtali við DV: „Úr-
slitin í fyrsta leiknum komu mér mjög
á óvárt og þetta er leikur sem Keflvíking-
ar vilja gleyma sem fyrst og slíkur leikur
kemur ekki aftur í bráð. Núna telja flest-
ir að Njarðvíkingar verði meistarar en
þetta er ekki búið og það getur allt gerst.
Þó hallast ég að sigri Njarðvíkinga sam-
anlagt, 3-1.“
- A hvað myndir þú leggja áherslu í
leiknum í kvöld værir þú þjálfari ÍBK?
„Hlutur númer eitt er að hleypa Njarð-
víkingum ekki langt frá sér í byrjun en
slíkt hefur viljað henda Keflvíkinga oft
í síðustu leikjum. Þá verða þeir að reyna
að stöðva Rondey Robinson en það er
hægara sagt en gert. Rondey er hreint
ótrúlega góður leikmaður. Staðsetning-
ar hans eru frábærar, hann er líkamlega
mjög sterkur og um leið eins og fimleika-
maður er hann smeygir sér framhjá
andstæðingum sínum."
- Sama spurning værir þú þjálfari
Njarðvíkinga?
„Fyrst og fremst að halda uppi fullri
keyrslu alveg frá byrjun. Síðan myndi
ég leggja mikla áherslu á að koma knett-
inum eins oft og hægt er inn á Rondey
Robinson. Hann skapar mikinn usla í
vörn andstæðinganna og með stöðugum
sendingum á hann opnast líka vel fyrir
skyttur Njarðvíkinga, til að mynda Teit,
Friðrik, ísak og Kristinn," sagði Gunnar
Þorvarðarson.
-SK
i
m
II
i
r
I
2. deild kvenna
Ármann - Keflavík.........18-18
Haukar - Grindavík........10-11
Keflavík......18 14 3 1 391-265 31
KR............17 14 2 1 403-297 30
Ármann........17 7 3 7 339-287 17
Haukar........19 6 2 11 318-338 14
ÍR............17 3 2 12 292-365 8
Grindavík.....18 2 1 15 244^25 6
ÍR sigraði ÍS í 1. deild kvenna í
gærkvöldi 59-58. Linda Stefáns-
dóttir skoraði 18 stig fyrir ÍR en
Vigdís Þórisdóttir 16 fyrir ÍS. ÍS
heföi tryggt sér titilinn með sigri.
ÍBK og Haukar leika á laugardag.
Haukastúlkur verða meistarar
með sigri en vinni ÍBK verður ÍS
meistari.
-SK/GS
Leiðin að sannleikanum er
að mæta þeim í lauginni
Spitz segir ennfremur: „Fólk hef-
ur verið að velta því fyrir sér
hvernig ég komi til með að standa
mig í keppni við bestu sundmenn
Bandaríkjanna í flugsundinu
þegar kemur að úrtökumótinu
fyrir ólympíuleikana í Barcelona.
Menn eins og Matt Biondi og Tom
Jager. Ég hef líka verið að velta
þessu fyrir mér og komist að
þeirri niðurstöðu að eina leiðin
til að komast að sannleikanum
um getu mína er að mæta þeim í
sundlauginni. Og það mun ég
gera síðar í þessum mánuði.“
„Stefni ekki á sjö
gullverðlaun í Barcelona"
Um markmið sín segir Spitz: „Ég
stefni ekki að því að vinna sjö
gullverðlaun aftur á ólympíuleik-
um. Ég stefni einungis að því að
gera góða hluti í 100 metra flug-
sundi. Það er staðreynd að tímar
hafa breyst minnst í 100 metra
flugsundinu af öllum sundgrein-
• Mark Spitz vann sjö gullverðlaun á ólympiuleikunum i Múnchen i Vestur-Þýskalandi árið 1972. Það var
einstakt atrek sem seint verður endurtekið. Nú stefnir Spitz að því að komast i bandaríska liðið sem keppir
á ólympíuleikunum í Barcelona á næsta ári. Margir eru á þvi að það muni takast þrátt fyrir að Spitz sé 41 árs.