Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991.
Utlönd
Plataði þrjátíu sænska lækna
Þijátíu sænskir læknar og tannlæknar voru plataðir til að greiða gjöld
á ráðstefnu um holufyllingar sem þeim var sagt að halda ætti í Guate-
mala. Ráðstefnan hefur hins vegar aldrei verið á dagskrá og verður ekki
haldin.
Það var Þjóðverji búsettur í Svíþjóð sem fékk hugmyndina um að boða
til ráðstefnunnar. Hann sendi boðsbréf til læknanna og tilgreindi hvað
þeir þyrftu að greiða í ráðstefnugjöld. Þjóðverjinn er nú flúinn ur landi
með um 600 þúsund sænskar krónur en það svarar til um sex milljóna
íslenskra króna, Sænska lögreglan reyndi að hafa hendur í hári svikar-
ans en hann slapp.
Carlos Menem Argentinuforseti er óvenju þrútinn í andliti þessa dag-
ana. Deilt er um hvað valdi bólgunni. Simamynd Reuter
Argentínuforseti bólginn i andliti
Flóttamenn frá írak i búðum sem komið hefur verið upp í Tyrklandi. Hundruð þúsunda flóttamanna bíða við landa-
mæri Tyrklands í von um að geta leitað skjóls þar. Tyrknesk yfirvöld segjast ekki geta tekið við svo miklum fjölda
en yfirmaður flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna hefur beðið um aðstoð Tyrkja við að reyna að koma í veg
fyrir þjóðarmorð á Kúrdum. Simamynd Reuter
Afvopnun íraka kom of seint:
Það á ekki af Carlos Menem, forseta Argentinu, að ganga. Hann þarf
að beijast viö vonlausan efnahag landsins, hjónaband í nístum og nú
hafa menn veitt því athygli hvað hann er þrútinn í andliti. Útlit forsetans
hefur vakið upp spurningar í argentínskum fjölmiðlum um hvað að hon-
um gangi.
í opinberri yfirlýsingu segir að vespa hafi stungið Menem í andlitið og
því hafi hann þrútnað svo mjög. Aðrir telja sig hafa heimildir fyrir þvi
að hann hafi farið í umfangsmikla andslitslyftingu og þaö valdi bólg-
unni. Meném hefur alla tíð verið annálaður kvennamaður og er nú á
höttunum eftir nýrri konu til að setjast i stól forsetafrúar. Konu sina rak
forsetinn að heíman í síðasta mánuði eftir 25 ára stormasama sambúð.
Krónurnar urðu að 100 milljónum
Maður nokkur frá Philadelphiu í Bandarikjunum datt heldur betur í
lukkupottinn þegar hann keypti ómerkilegt málverk á flóamarkaði í
heimaborg sinni. Fyrir myndina greiddi hann fjóra dali eða um 250 krón-
ur. Þegar heim kom tók hann myndina úr rammanum og þá kom i Ijós
samanbrotið blað milli myndar og baks. Blaðið reyndist vera eitt sára-
fárr'a frumeintaka af sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna. Sumir sér-
fræðingar segja að fyrir yfirlýsinguna fáist í það minnsta 50 milijónir
íslenskra króna á uppboði. Aðrir segja að 100 millj ónir séu nær réttu lagi.
Samkvæmiskjóll úr hráu kjöti
Kjötkjólilnn i listasafninu í Öttawa hefur vakið mikla athygii og mikió
umtal. Gagnrýnendur segja að nær hefðl verið að gefa kjötið til bág-
Staddra. Simamynd Reuter
Stjómmálamenn og stjórnendur hjálparstofnana í Kanada eru æfir af
reiði vegna sýningar á samkvæmiskjól úr hráu kjöti í Þjóðlistasafhi lands-
ins í Ottawa. Kjóllinn er gerður úr 23 kílóum af söltuðu nautakjöti og það
er listakonan Jana Sterbak sem ber ábyrgð á verkinu. Þeir sem hneyksl-
ast hafa á kjólnum segja að það sé sóun á opinberu fé aö standa fyrir
sýningu á slíkum grip og fáránlegt að hengja kjöt á herðatré þegar íjöldi
jarðarbúa býr viö sult og seyru. Listamaðurinn segir hins vegar að kjóll-
inn eigi að sýna fáránleikann og sóunina í vestrænni menningu. Reuter
Fengu fyrst að
berja á Kúrdum
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti í gær harða skilmála fyrir
varanlegu vopnahléi við íraka. Þeir
munu koma í veg fyrir að írakar
geti ógnað nágrönnum sínum en
koma þó of seint fyrir þær milljónir
Kúrda sem eru nú á flótta undan
stjórnarhernum í írak.
í skilmálunum er gert ráð fyrir að
írakar eyðileggi undir alþjóðlegu eft-
irliti öll gereyðingarvopn sín. Að því
loknu fái þeir aðgang að mörkuðum
fyrir framleiðslu sína en verða að
láta hluta af tekjum af olíusölu renna
í sjóð sem standa á undir stríösskaða-
bótum.
írösk yfirvöld hafa lýst því yfir að
uppreisnin í norðurhluta landsins
hafi verið bæld niður og skæruliðum
stökkt á flótta. Hundruö þúsunda
kúrdískra fjölskyldna hafa flúið upp
í snæviþakin fiöll af ótta við hermd-
arverk íraskra stjórnarhermanna.
Þeim er í fersku minni efnavopnaár-
ásin á Halabja 1988 þegar fimm þús-
und manns létu lífið. Eru flótta-
mennirnir án matar og'húsaskjóls.
Vestrænar stjórnir, sem neituðu
uppreisnarmönnum um hemaðarað-
stoð, ífiuga nú hvernig koma megi
flóttamönnunum til hjálpar.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna segir hættu vera á þjóðar-
morði og hefur farið þess á leit við
tyrknesk yfirvöld að þau leyfi flótta-
mönnum að leita skjóls í Tyrklandi,
að minnsta kosti tímabundið. Tvö
hundruð þúsund flóttamenn eru nú
í fiöliunum nálægt landamærum
Tyrklands. Yfirvöld þar hafa lýst því
yfir að þau geti ekki tekið viö svo
miklum fiölda. Að sögn bresks frétta-
manns, sem var í för með kúrdískum
flóttamönnum, skutu tyrkneskir
hermenn yfir höfuð flóttamanna til
að fæla þá frá landamærunum.
Fréttamaðurinn kvaðst hafa séð
fótalausum manni ekið í hjólastól,
konu komna að barnsfæðingu leita
skjóls í klettum, grátandi dreng, ber-
fættan í snjónum og aldraðar konur
í náttklæðunum. Talsmaður Kúrda
sagði tuttugu börn hafa dáið úr kulda
á þriðjudagskvöld.
Irönsk fréttastofa hefur greint frá
því að þúsundir flóttamanna hafi
komið til írans undanfarna daga.
Hefðu þeir greint frá því að að
minnsta kosti tvö hundruð og fimm-
tíu þúsund manns til viöbótar væru
á ferð í snæviþöktu fiallendinu á leið
til írans, bæði akandi ogfótgangandi.
Reuter
Námuverkamenn í Sovétríkjunum:
Hafna tvöföldun launa
- Jeltsin fyrir áfalli
Sovésk yfirvöld hafa samþykkt aö
tvöfalda laun kolanámuverkamanna
innan árs með þvi skilyrði að fram-
leiðslan verði aukin. Róttækir námu-
menn, sem krefiast víðtækra póli-
tískra breytinga og 150 prósenta
launahækkunar, hafna samkomu-
laginu. Ekki var því ljóst í gærkvöldi
hvort samkomulagið, sem náðist eft-
ir tveggja daga viðræður fulltrúa
námumanna við Gorbatsjov Sovét-
forseta og aðra leiðtoga, yrði til þess
að þrjú hundruð þúsund verkfails-
menn sneru aftur til vinnu. Sovéskir
ráöamenn hafa varað við því að hrun
blasi við i stáliðnaðinum snúi námu-
menn ekki skjótt aftur til vinnu.
Aukinn fiöldi námumanna á tveim-
ur stærstu námusvæðunum, Kuz-
bass í Síberíu og Donbass í Úkraínu,
hefur krafist afsagnar Gorbatsjovs,
upplausnar þingsins og myndunar
samsteypustj órnar.
Tillaga Boris Jeltsins, forseta rúss-
neska þingsins, um beinar kosningar
til forsetaembættis Rússlands í maí-
lok eða júnibyrjun, var felld á full-
trúaþingi landsins í gær. Er litið á
það sem alvarlegt áfall fyrir Jeltsin.
I þjóðaratkvæðagreiðslu í síðastiiðn-
um mánuði fékk hugmyndin stuðn-
í þjóðaratkvæðagreiðslu i síðastliðnum mánuði fékk hugmynd Boris Jelts-
ins um beinar forsetakosningar í Rússlandi stuðning meirihluta kjósenda.
Rússneska fulltrúaþingið felldi hins vegar i gær tillögu þess efnis.
Teikning Luríe.
ing mikiis meirihluta kjósenda. setningu laga um aukiö fram-
Fuiltrúaþingið samþykkti hins kvæmdavald forsetans.
vegar ályktun um aö unnið yrði að . Reuter