Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Page 11
FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1991
11
Sviðsljós
SPARNEYTINN OG ÓDÝR í REKSTRI
• Framdrif/sídrif (4x4)
• Beinskiptur/sjálfskiptur
• Eyðsla frá 4 I. á 100 km.
Til afgreiðslu strax.
Verð frá 642.000,- kr.
$ SUZUKI
—-~»aw ' 11 ■
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 ■ SlMI 685100
Lið Útflutningsráðs og SPRON sem
fara utan og taka þátt i keppni i
stjórnun fyrirtækja. Einnig eru á
myndinni félagar úr stjórn SBT á
íslandi. F.v. Gunnar Rafn Birgisson,
Ingjaldur Hannibalsson og Hermann
Ottósson hjá Útflutningsráði, Ingólf-
ur Arnarson hjá SPRON, Karl Jó-
hannesson og Bragi R. Jónsson i
stjórn SBT, Ólafur Haraldsson og
Þórir Haraldsson hjá SPRON,
Samúel Guðmundsson í stjórn SBT
og að lokum Benedikt Geirsson hjá
SPRON. Á myndina vantar Jóhann
Þór Jónsson í stjórn SBT.
Keppt í
rekstri
fyrirtækja
Fyrirhugað er að halda Samnorr-
æna stjórnunarkeppni (Scandina-
vian Business Tournament - SBT) í
Helsinki nú í aprílmánuði og munu
þá tvö lið keppa fyrir hönd Islands.
Það eru þau tvö lið sem urðu í fyrsta
og öðru sæti í svipaðri keppni hér
heima, lið Útflutningsráðs íslands og
lið Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis.
Hvert Norðurlandanna sendir
þannig tvö lið í keppnina sem felst i
því að keppendur stjórna ýmynduðu
fyrirtæki í ákveðinn tíma og það lið
vinnur sem skilar fyrirtækinu mest-
um gróða í lokin. Finnar unnu síðast
og munu því reyna að verja titil sinn
í ár.
íslendingar tóku fyrst þátt í keppn-
inni árið 1987 þegar AIESEC, alþjóð-
legt félag viðskipta- og hagfræðnema,
tók að sér að skipuleggja keppnina
og eru því félög háskólanema á öllum
Norðurlöndunum orðin aðilar.
Við óskarsverðlaunaafhendinguna í
Los Angeles á mánudagskvöldið var
lagið „Sooner or Later“ eftir Step-
hen Sondheim valið besta frum-
samda lagið. Lagið er úr kvikmynd-
inni Dick Tracy og það var engin
önnur en Madonna sem söng það í
myndinni. Eftir að Ijóst var að lagið
hafði hlotið óskarinn lét hún sig þvi
ekki muna um að flytja það aftur.
r ff/ÍLASER PCtölva
fyrir lærdóm, leik og störf
* Intel 8086/10MHz örgjörvi * 640 KB minni
* 3,5" drif 720 KB * Stýrikerfi MS-Dos 4,01
* VGA skjákort * PC Tools V. 6.0
* Prentkapall, stýripinnatengi, hlið- og
raðtengi o.fl.
Aukahlutir:
40 MB harður diskur
kr 28.225
VGN litskjár
kr. 31.680
aukadrif 5 !4"
kr. 8.900
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780
J