Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991.
Iþróttir
Sport-
stúfar
Fjölmargir leikir fóru
fram í bandarísku
NBA-deildinni í körfu-
knattleik í fyrrinótt og
urðu urslit eftirfarandi:
Charlotte - Detroit.. 78-83
New Jersey-Boston.... 77-94
76ers - Milwaukee....104-121
Washington - Cleveland...101-82
Minnesota-Portland....93-104
SA Spurs - LA Lakers.115-122
Dallas - Denver.......133-126
Chicago - Orlando...106-102
Phoenix - Utah......131-117
Sacramento - Miami....96-90
Barkley meiddist
illa á hné
Ein skærasta stjarna liðs Phila-
delphia 76ers, Charles Barkley,
meiddist illa á hné í leik 76ers
gegn Cleveland á sunnudaginn
og svo gæti farið að hann léki
ekki meira með á þessu keppnis-
tímabili. Barkley þykir litríkur í
meira lagi og lætur oft skapið
hlaupa með sig í gönur. í leík fyr-
ir nokkru hrækti hann á einn
stuðningsmann aðkomuhðsins
og var fyrír vikíð sektaður um
600 þúsund krónur og hlaut eins
leiks bann.
Jodan skorar mest
í NBA-deildinni
Snillingurinn Michael Jordan hjá
Chicago er stigahæsti leikmaður-
inn i NBA-deildinni. Jordan skor-
ar að jafnaði tæplega 31 stig í leik.
í öðru sæti er Karl Maleone hjá
Utah Jazz með 28,8 stig að meðal-
tali og í þríðja sæti er Charles
Barkley hjá 76ers með 28,4 stig.
Keflavík og Njarðvík
mætast í kvöld
Keflavík og Njarðvík leika i kvöld
annan leik sinn i úrslitaleik um
Íslandsmeistaratitilínn í köríu-
knattleik. Leikurinn fer fram í
iþróttahúsinu í Keilavík og víst
er aö heimamenn ætla örugglega
að hefna fyrir útreiðina sem þeir
fengu gegn Njarövíkingum í
fyrsta leik liðanna sem Njarðvík-
ingar unnu með 37 stiga mun.
Sigri Njarðvíkingar i leiknum í
kvöld geta þeir tryggt sér titilinn
þegar liðin mætast í þriðja sínn á
laugardaginn.
Tommamótið hætt og
Shell-mótið tekur við
Knattspyrnufélagiö Týr í Vest-
mannaeyjum, sem hefur undan-
farin 7 ár haldið Tommamótið í
knattspymu fyrir 6. aldursflokk,
hefur náð samningum við Skelj-
ung h/f um að fyrirtækið verði
styrktaraðili mótsins næstu árin
og því kallast mótið Shell-mótiö
framvegis. Fyrsta Shell-mót
Knattspyrnufélagsins Týs verður
dagana 26. júní til 1. júlí í sumar.
Þau liö sem óska eftir að taka
þátt í mótinu sendi skriflegar til-
kynningar um þátttöku fyrir 20.
apríl til Knattspymufélagsins
Týs, box 395,902 Vestamannaeyj-
um, eða á fax 98-12751. Fram þarf
að koma nafn félags, þjálfara auk
áætlaðs fjölda þátttakenda. Einn-
ig nafn, heimili og símanúmer
þess aðila sem getur gefið nánari
uppiýsingar.
Helgi iþróttamaður
Skagafjarðar 1990
Öm Þórarmsson, DV, Fljótum:
Helgi Sigurðsson á Stóru-Okr-
um í Skagafirði var kjörinn
íþróttamaður Skagaíjarðar áríð
1990. Kjörinu var lýst á ársþingi
UMSS fyrir skömmu og þar voru
Helga afhentar viðurkenningar
sem þessari útnefningu fylgja.
Helgi náði mjög góöum árangri i
langstökki og þrístökki á síðasta
ári og tvimælalaust vel að þessari
útnefningu kominn. í öðru sæti
varð Sverrir Sverrisson knatt-
spymu- og körfuknattleiksmaöur
og i þriðja sæti Gunnlaugur
Skúlason frjálsíþróttamaður.
Arsenal á hraðf erð
Leikmenn Arsenal sýndu sannkallaða meistaratakta í gærkvöldi er
Arsenal sigraði Aston Villa, 5-0, á Highbury. Þar með hefur Arsenal íimm
stiga forskot á Liverpool er bæði liðin hafa leikið 31 leik í 1. deildinni og
sjö umferðum er ólokið i deildakeppninni. Arsenal er nú efst í 1. deild
með 68 stig en Liverpool er í öðru sæti með 63 stig.
Hinn ungi Kevin Campbell skoraði eina markið i fyrri hálfleik en í
þeim síðari fóru hlutirnir að gerast. Paul Davis skoraði á 55. mínútu,
Alan Smith bætti þriðja markinu við á 61. mínútu því fjórða tveimur
mínútum síðar og flmmta markið skoraði Kevin Campbell á 84. mínútu.
Nigel Spink, markvörður Aston Villa, varð að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla á 77. mínútu og fór David Platt í markið. í 2. deild sigraði Mill-
wall lið Wolves 2-1 og Brighton tapaði heima gegn Port Vale, 1-2. -SK
Skíðalandsmótið
hófst í morgun
52. Skíðamót íslands hófst á ísafirði í morgun með keppni í stórsvigi
karla og kvenna, 5 kílómetra göngu kvenna, 10 km göngu pilta, 17-19
ára, og 15 kílómetra göngu karla. Á morgun verður keppt í svigi karla
og kvenna og í boðgöngu karla og kvenna.
Skráðir keppendur á landsmótinu eru 73 og koma þeir frá Ólafsfirði,
Akureyri, ísafirði, Reykjavík og Dalvík en Siglfirðingar eru ekki með að
þessu sinni og er það í fyrsta skipti sem það gerist. Mótinu lýkur á sunnu-
dag. DV mun greina ítarlega frá landsmótinu í máli og myndum í íþrótta-
kálfiblaðinsámánudag. -GH
Strembið hjá Héðni
- meiddur en leikur samt meö Diisseldorf
Héðinn Gilsson, handboltamaður hjá Dusseldorf, á við meiðsli að stríða
í hásin og hefur ekkert getað æft með liðinu að undanförnu. Héðinn lék
ekki síðustu tvo leiki liðsins og taldi sig vera á batavegi en um helgina
tóku meiðslin sig upp að nýju.
Dusseldorf leikur tvo leiki gegn Huttenberg um eitt laust sæti í úrvals-
deildinni og fer fyrri leikurinn fram á heimavelli Huttenberg á laugardag-
inn. Héðinn sagöi í samtali við DV að hann myndi spila leikinn en hann
tæki sér frí frá æfmgum fram að leik. Síðari leikurinn gegn Húttenberg
fer svo fram um aðra helgi og sagði Héðinn að sami háttur yrði á, hann
myndi einungis spila en ekkert æfa. Eftir þessa leiki reiknar Héðinn meö
að þurfa hvíla sig frá handknattleiknum vegna meiðslanna í 4-6 vikur. -GH
Tveir sigrar Vals
gegn þýskum liðum
Þau eru mörg íslensku knattspyrnuliðin sem lagt hafa land undir fót á
liðnum vikum og greinilegt að knattspyrnumenn eru staðráðnir í að
mæta sterkir til leiks í næsta mánuði.
Valsmenn eru nýkomnir úr æfmga og keppnisferð til Þýskalands. Þar
lék Valur gegn tveimur þýskum liðum og sigruðu Valsmenn í báðum leikj-
unum. í fyrri leiknum vann Valur lið úr neðri deildunum 2-0 og það
voru þeir Ágúst Gylfason og Jón Grétar Jónsson sem skoruðu mörkin.
Loks lék Valur gegn varaliði Hannover, sem reyndar var styrkt með
nokkrum leikmönnum aðalliðsins. Valur vann 3-1'og þeir sem skoruðu
voru Jón Grétar Jónsson, Ágúst Gylfason og Davíð Sigurðsson. -SK
Knattspymuúrslit 1 Evrópu í gærkvöldi:
Montpellier datt út
Bikarmeisturunum frönsku í knattspyrnu, Montpellier, mistókst í
gær-kvöldi aö komast í 16-liða úrslit bikarkeppninnar er liðið lék á heima-
velli sínum gegn 2. deildarliðinu Niort og tapaði 0-1.
Annað 1. deildarlið mátti þola tap í gærkvöldi. Tours sigraði þá Toulo-
use 1-0. Marseille vann 2. deildarliðið Dijon á útivelli 0-3 og Lille tapaði
heima gegn Mónakó 1-3. • Úrslit í þýsku knattspyrnunni í gærkvöldi:
Wattenscheid-St.Pauli 2-2, Frankfurt-Gladbach 5-1 og Hamburg-Köln
1-1. • Sampdoria vann lyíjalaust liö Napolí 2-1 í undanúrslitum bikar-
keppninnar á Ítalíu í gærkvöldi, 2-0 og samanlagt 2-1. • Motherwell og
Celtic geröu markalaust jafntefli í undanúrslitum skosku bikarkeppninn-
ar í gærkvöldi og leika að nýju 9. apríl. - -SK
ÍBR KRR
Gervigrasvöllur
Reykjavíkurmót
meistaraflokkur
VÍKINGUR-LEIKNIR
í dag 4. apríl
kl. 20.00
• Friðrik Rúnarsson, hinn ungi þjálfari Njarðvíkinga, sést hér gefa sínum mönnu
og Njarðvíkingar unnu með 37 stiga mun. Hvað gera Friðrik og hans menn í Keflavík
Baráttan um íslanc
„Margi
eigac
- ÍBKogNjarðvlkn
Keflvikingar og Njarðvíkingar mætast
öðru sinni í Keflavík í kvöld í baráttu
liðanna um íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik. Mörgum kom á óvart 37
stiga stórsigur Njarðvíkinga í fyrrakvöld
í Njarðvík og verður fróðlegt að sjá hvort
Keflvíkingar ná ekki að bíta betur frá
sér í kvöld á heimavelli sínum. Það lið
verður íslandsmeistari sem vinnur þrjá
leiki.
„Við erum búnir aö gleyma leiknum í
Njarðvík og þeir hlutir sem þar gerðust
geta varla gerst aftur. Ég hef enga trú á
því. Munurinn á liðunum er ekki 37 stig,
svo mikið er víst,“ sagði Falur Harðar-
son, leikmaður ÍBK, í samtali við DV í
gærkvöldi. Og hann bætti við: „Ég held
að við höfum aldrei hitt eins illa og í
fyrsta leiknum. Viö höfum undirbúið
okkur vel fyrir leik númer tvö og mæt-
um ákveðnir til leiks. Núna erum við á
heimavelli og ég á ekki von á öðru en
að stuðningsmenn okkar troðfylli
Öruggt hgá Ungverjum
Ungverjar unnu nokkuð öruggan sigur gegn Kýpurbúum á heimavelli þeirrr
síðarnefndu í gærkvöldi og var leikurinn liður í undankeppni Evrópukeppninn
ar í knattspymu, þriðja riöli. Lokatölur urðu 2-0 og skoruðu þeir Jozsef Szalm:
(15, mín.) og Jozsef Kiprich (40. min.) mörkin.
Ungverjar eru efstir í riðlinum með 6 stig eftir 4 leiki en ítalir koma næstir me<
4 stig eftir 3 leiki. Sovétmenn eru með 3 stig eftir 2 leiki í 3. sæti.
• 12. riöli léku Svisslendingar og Rúmenar og lauk leiknum með markalausr
jafntefli. Skotar eru efstir i riölinum með 6 stig eftir 4 leiki en Svisslendingai
koma næstir með 5 stig eftir 4 leiki. Rúmenar eru í 3. sæti með 5 stig eftir 5 leiki.
• Austurríki vann San Marino undir 21 árs á EM í gærkvöldi, 3-0.
/Á'iv: • • ■ :,i ••• i , F' ', • / • ' ÚJKÍ
• Falur Harðarson, ÍBK. Mikið mun
mæða á honum i kvöld.
• Gunnar Þorvarðarson hallast að
sigri Njarðvíkinga samanlagt, 3-1.