Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Side 25
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991.
33
Meiming
Sigurbjöm Aðalsteinsson kvikniyndagerðamiaður:
Fyrir mér er stuttmynd einn
atburður sem allt hangir á
Kvikmyndagerð á íslandi er ávallt
fréttaefni. Engin listgrein er jafnfrek
á peninga og kvikmyndir, enda er
það frétt í sjálfu sér að alvörukvik-
myndagerð skuli þróast í fámenninu
hér á landi. íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn hafa haft stóra drauma
um leiknar kvikmyndir í fullri lengd,
drauma sem margir hverjir hafa
ræst eingöngu vegna þess að allt var
lagt undir. í dag ríkir meira raunsæi
í gerð kvikmynda en gerði fyrir
nokkrum árum. Það fer enginn út í
gerð kvikmyndar nema búið sé að
tryggja fjármagnið.
Við íslendingar hugsum stórt og
því er það svo að gerð stuttmynda
hefur sama sem ekkert þróast hér á
landi. Flestir kvikmyndagerðar-
menn hafa gert eina stuttmynd, þá
oft sem hluta af lokaverkefni. Aðeins
einn kvikmyndgerðarmaður hefur
eingöngu snúið sér að gerð stutt-
mynda. Er það Sigurbjörn Aðal-
steinsson.
Sigurbjörn hefur gert þrjár stutt-
myndir og sú síðasta þeirra, Hundur,
hundur, hefur farið víða og verið
valin til sýningar á stuttmyndahátíð-
um, meðal annars á hinni virtu hátíð
Clermont-Terrant í Frakklandi, þar
sem hún var valin í keppni sjötíu
mynda af tólf hundruð.
Nýlega fékk svo Sigurbjörn úthlut-
að tveimur milljónum frá Kvik-
myndasjóði íslands til gerðar stutt-
myndarinnar Ókunn dufl sem hann
mun hefja tökur á í sumar. Er um
að ræða leikna kvikmynd sem verð-
ur tuttugu og fimm mínútna löng. í
spjalli við DV var Sigurbjörn fyrst
spurður um kvikmyndahátíðina í
Frakklandi:
„Það verður að segjast eins og er
að ég var dálítið montinn þegar ég
sat innan um 1400 áhorfendur í troð-
fullum bíósal á níu-sýningu þar sem
mín mynd var ein af fimm sem sýnd-
ar voru í einum pakka og ekki síður
var ég ánægður þegar ég sá þær kvik-
myndir sem hún var að keppa við
sem margar hverjar voru rándýrar
í allri gerð.
Það sem kom mér mest á óvart á
kvikmyndahátíðinni var að það
skyldu koma fjörutíu þúsund manns
til að skoða stuttmyndir sem er fyrir-
bæri sem varla þekkist hér á landi.“
Hundur, hundur er aðeins rúmar
íjórar mínútur að lengd og sá tími
sem fór í gerð hennar var vika. Hún
var kvikmynduð á aðeins tveimur
dögum. Fyrri dagurinn fór í tökur
með hundinum og seinni dagurinn
með fólkinu.
Hurtdur, hundur á
margar kvikmyndahátíðir
- Hvernig stóð á því að Hundur,
hundur var valin til sýninga á stutt-
myndahátíðinni í Frakklandi?
„Ég sendi hana til sýningar á litla
kvikmyndahátíð í Grimstad í Noregi,
Nordisk Panorama. Þar gerðust hlut-
irnir, þarna voru menn frá Frakk-
landi sem leist mjög vel á myndina
og sögðust hafa áhuga á að fá að
hana til sýningar. Þegar heim var
komið hringdu þeir svo í mig og til-
kynntu mér að hún yrði ein af sjötíu
sem sýndar yrðu í Clermont-Terrant.
Ég gerði mér strax grein fyrir að
hún myndi aldrei hljóta verðlaun en
að fá myndina inn á þessa kvik-
myndahátíð var stór áfangi. Þaðan'
fór Hundur, hundur á kvikmyndahá-
tíð í Tampere í Finnlandi þar sem
hún var valin ein af áttatíu úr hópi
þrettán hundruð stuttmynda til
keppni á hátíðinni. Hundur, hundur
er ein tíu mynda sem voru valdar til
keppni á báðum þessum stuttmynda-
hátíðum.
Myndin var síðan'sýnd á undan
Pappírs-Pésa í Noregi á Nordisk Film
Festival og á þessu ári verður hún
væntanlega sýnd á Spáni, í Kanada,
Svíþjóð og írlandi. Sú hátíð, sem ég
er spenntastur fyrir, er kvikmynda-
hátíð sem myndin fer á í Hamborg
og kallast No Budget, þar eru ein-
göngur sýndar myndir sem ekkert
hafa kostað í framleiðslu."
- Hver er þín skilgreining á stutt-
mynd?
Fyrir mér er stuttmynd einn at-
burður. Þú hengir allt á þennan eina
atburð og þessi atburður gerist yfir-
leitt í lokin. Mér finnst ég ekki þurfa
að útskýra neinn hlut í Hundur,
hundur. Það hinn sjokkerandi at-
burður í lokin sem útskýrir allt sem
að framan er greint frá.“
- Þér var fyrir stuttu úthlutað tveim-
ur milljónum úr Kvikmyndasjóði ís-
lands til gerðar stuttmyndarinnar
Ókunn dufl. Hvernig mynd verður
það?
„Þetta er leikin gamanmynd um
mann sem finnur tundurdufl en veit
ekki að það er tundurdufl sem hann
er með í höndunum. Það eru tvö aðal-
hlutverk í myndinni, maðurinn með
tundurduflið og annar sem er að
reyna að flæma hann burtu af jörð-
inni sem hann býr á.
Ég fékk helming þeirra peninga
sem myndin kostar frá Kvikmynda-
sjóði sem var hæsta prósentuhlutfall
til einnar kvikmyndar við síðustu
úthlutun og þessa dagana er ég að
reyna að fjármagna afganginn og ég
er alveg handviss um að það tekst
með hjálp góðra manna.“
- Verður Ökunn dufl sýnd í kvik-
myndahúsum eða mun hún fara
beint í sjónvarp?
„Hún endar vissulega í sjónvarp-
Úr Hundur, hundur, stuttmynd ettir Sigurbjörn Aðalsteinsson.
Mynd Guðmundur Örn Arnarsson
Sigurbjörn Aðalsteinsson kvikmyndagerðarmaður. Til hliðar við Sigurbjörn er eina blómið sem hann hefur keypt
og kallar hann það Hortensíu frænku. DV-mynd GVA
inu, en ég er ákveðinn í að hún verði
sýnd í kvikmyndahúsi fyrst. Ég lít á
það sem skyldu mína að sýna mynd-
ina í bíói þar sem ég fékk úthlutað
úr Kvikmyndasjóði, enda verður
myndin tekin á 35 mm fllmu. Það er
erfitt að fara með svona myndir í
bíó, en fyrir öllu er að sýna hana
nokkrum sinnum þótt ég viti að að-
sókn verður kannski ekki mikil.“
---------------------------r
MARKAÐSSETNING
ÍSLANDS ERLENDIS
- Hver er samkeppnisstaöa íslands
á hinum ýmsu mörkuðum erlendis?
Auglýsingagerð
góð æfing
- Nú lifir þú ekki af stuttmyndagerð,
eitthvað annað ertu að fást við.
„Rétt er það. Ég vinn við alls konar
auglýsingagerð. Það er mjög góður
skóli að starfa við auglýsingagerð
eða hvers konar kynningar- og áróð-
ursmyndagerð. Ekkert er eins gott
fyrir kvikmyndagerðarmann og að
vinna við fag sitt og þá við það sem
býðst hverju sinni. Maður fær enga
æfingu við það að skoða kvikmyndir
eða rýna í bækur og allt byggist á
að verða betri fagmaður í því fagi
sem maður starfar við.“
- Nú ertu búinn að skila af þér rúm-
lega fjögurra mínútna kvikmynd og
ert að fara gera tuttugu og fimm
mínútna kvikmynd, er kvikmynd í
fullri lengd næst á dagskrá?
„Nei. í haust kem ég til með að
gera flmmtán mínútna kvikmynd
fyrir sjónvarpið og er það eftir eigin
handriti sem ég sendi inn í sam-
keppni sem Sjónvarpið stóð fyrir og
vann mitt handrit þá samkeppni.
Kvikmyndin mun heita Camera obs-
curra.
Ég tel það vera hættulegt fyrir
kvikmyndagerðarmann að ganga
með í maganum mynd í fullri lengd.
Auðvitaö er ég uppfullur af hug-
myndum og vil orða það svo að ég
hafi jafnmargar hugmyndir og þær
stjörnur sem ég sé út um gluggann
á nóttunni, en að ganga með eina
hugmynd í mörg ár og þrjóskast við,
er eins og að eigna sér eina stjörnuna
og segja að hún sé fallegri en allar
aðrar. Ef ég geri kvikmynd í fullri
lengd þá skeður það snöggt einhvern
tímann, en eins og er er ekkert slíkt
á dagskrá." -HK
- Er ísland markaðshæft sem
ferðamannaland?
- Framtíðarsýn og nýjungar í
útflutningi frá íslandi.
er umræðuefnið á
MORGUNVERÐARFUNDI
Félags viðskipta- og hagfræðinga
fimmtudaginn 4. april
kl. 8.00-9.30 á Holiday Inn.
Erindi flytur og svarar fyrirspurnum:
Ólafur Stephensen,
markaðsráðgjafi og starfsmaður markaðs- og útbreiðslu-
nefndar forsætisráðherra.
Félagar og aðrir áhugamenn um
markaðsmál og útflutning frá
íslandi, fjölmennið.
Opinn fundur, gestir velkomnir.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA