Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Blaðsíða 32
r
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritsftjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991.
Flugmannadeilan:
Dómsátt í
Félagsdómi
Málið, sem vinnuveitendur höfö-
uðu gegn flugmönnum í Félagsdómi
vegna ólöglega boðaðrar vinnustöðv-
unar og afskiptum þeirra af samn-
inganefnd vinnuveitenda, var fellt
niður í gær og dómsátt gerð.
Þórarinn V. Þórarinsson, formaður
samninganefndar vinnuveitenda,
segir að það hafi verið sjálfgefið að
gera dómsátt.
„Þegar flugmenn voru í verki bún-
ir að fallast á okkar meginkröfugerð
og eðlilegar viðræður voru hafnar
voru forsendur fyrir kröfugerðinni
fallnar. Flugmenn voru tilbúnir að
staðfesta þaö með formlegri dómsátt.
Þessi aðstaða kemur því aldrei upp
aftur. Það var markmið okkar að
losna við hana núna og um alla fram-
tíð,“ segir Þórarinn.
í gær héldu samningaviðræður
áfram hjá sáttasemjara „í góðu and-
rúmslofti". Enn er rætt um vinnutil-
högun og vinnuhagræðingu flug-
manna samkvæmt tillögum vinnu-
veitenda. Annar fundur hefur verið
boðaður eftir hádegi í dag. -ns
Ung systkin:
og slösuðust
Fengu blóm
við brottför
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri:
Það eru ekki bara sjómenn hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa sem hafa
átt í launadeilu að undanfórnu. Skip-
verjar á togaranum Björgúlfi á Dal-
vík neituðu að taka endurráðningu
er skip þeirra kom úr slipp. Það er
Útgerðarfélag Dalvíkinga sem gerir
Björgúlf út, og einnig togarann
Björgvin. Skipveijar á Björgvini hafa
ekki tekið þátt í deilunni. Þegar skip-
ið fór til veiða í gærdag mætti hópur
sjómanna á bryggjuna til að kveðja
þá og óska þeim góðrar ferðar. Voru
þar komnir skipverjar af Björgúlfl
og einnig sjómenn frá Akureyri sem
færðu Björgvinsmönnum blóm við
brottfórina.
LOKI
Lífið er lotterí!
Samningar sjómanna og ÚA í burðarliðnum?
Gattaðir a yf irlys
ingum forstjórans
segjasjomenn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við vorum nýbúnir að fá tilboð
Útgerðarfélagsins í gærkvöldi þeg-
ar það var haft eftir Gunnari Ragn-
ars, forstjóra Útgerðarfélagsins, í
sjónvarpinu að samningar hefðu
tekist. Víð erum alveg gáttaðir á
þessari yfirlýsingagleði forstjór-
ans, enda haga menn sér ekki
svona í samningum og það þarf tvo
til að semja,“ segir Davíð Haralds-
son, talsmaður sjómanna hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa, vegna
frétta í sjónvarpi í gærkvöldi um
að samningar í deilu ÚA og sjó-
manna hefðu tekist.
Sendinefnd sjómanna fór á fund
forstjóra ÚA kl. 15 í gær með tilboð
til útgerðarinnar og kom af þeim
fundi um kvöldmatarleytið með
gagntilboð frá útgerðinni. í því er
gert ráð fyrir algjörri breytingu á
launaútreikningi sjómanna þess
efnis að fyrir 85% af afla ísfisktog-
ara ÚA verði greitt landssam-
bandsverð en fyrir 15% aflans það
verð sem greitt sé á fiskmörkuðum
á Faxaflóasvæðinu hverju sinni.
Heimalöndunarálag sem ÚA hefur
greitt er samkvæmt þessu úr sög-
unni.
Sjómenn á Akureyri sátu í nótt
yfir útreikningum á þessu tilboði
og er ætlunin að leggja þaö fyrir
fund sjómanna sem haldinn verður
eftir hádegi í dag. Þeir sjómenn,
sem DV ræddi við í gærkvöldi,
vildu ekkert um það segja hvort
þetta tilboð ÚA yrði samþykkt
óbreytt, það gæti farið á hvom veg-
ínn sem væri. Einn þeirra taldí að
svo gæti farið að sjómenn gerðu
útgerðinni gagntilboð og verði það
niðurstaða fundar sjómanna eftif
hádegið má telja fullvíst að togar-
arnir láti ekki úr höfn í dag og deil-
an gæti þá dregist á langinn.
Systkin voru flutt á slysadeild
Borgarspítalans síðdegis í gær eftir
að þau féllu af hestbaki í Glaöheim-
um í hverfi Gusts í Kópavogi. Hestur
systkinanna fældist og féllu börnin
við það af baki. Þau voru flutt í
sjúkrabíl á slysadeild. Eftir því sem
DV kemst næst eru meiðsl barnanna,
sem eru 9 og 12 ára, ekki tahn alvar-
leg. -ÓTT
Akureyri:
Ungur piltur viðurkenndi „slysaskot“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ungur piltur á Akureyri hefur við-
urkennt hjá rannsóknarlögreglunni
á Akureyri að hafa verið valdur að
skotinu sem fór inn um glugga á elli-
heimilinu Hlíð þar í bænum um helg-
ina.
Pilturinn mun hafa tekið riffil föð-
ur síns í leyfisleysi og ber hann að
skotið hafl hlaupið úr rifflinum fyrir
slysni. Eins og fram kom í DV fór
skotið inn um glugga á herbergi vist-
manns á elliheimilinu. Vistmaður-
inn var í herbergi sínu ásamt tveim-
ur gestum sínum og sakaöi engan
þeirra.
Veðrið á morgun:
Stinnings-
kaldi og
allhvasst
A morgun verður norðan- og
norðaustanátt, stinningskaldi og
allhvasst. Snjókoma eða éljaveð-
ur um norðan- og austanvert
landiö. Víðast þurrt sunnan-
lands. Áfram veröur kalt í veðri.
DAS-húsið:
Þegar sunnlenskir hestamenn skreppa í bæinn vekur það jafnan athygli. Fyrirhugaðar eru sýningar sunnlenskra
hestamanna í Reiðhöllinni um næstu helgi og því kom Magnús bóndi, sonur hans pabba síns, að eigin sögn,
ásamt þarfasta þjóninum í bæinn til að kynna sér aðstæður DV-mynd E.J.
Hætti að endur-1
nýjaogmissti
afþeimstóra I
Aðalvinningurinn í happdrætti
DAS, einbýlishús að andvirði 17
milljónir króna að Reykjabyggð 18 í
Mosfellsbæ, var dreginn út í gær.
Vinningurinn kom á miða sem hætt
var að endurnýja í fimmta flokki eða
í október síðastliðnum. Það má því
með sanni segja að fyrrum eigandi
miðans hafl misst af þeim stóra um
það bil sem hann var að landa hon-
um.
Að sögn Sigurðar Ágústs Sigurðs-
sonar framkvæmdastjóra DAS verð-
ur húsið að öllum líkindum selt á
almennum markaði og hagnaðurinn
af sölunni látinn renna í byggingar-
sjóði Hrafnistanna í Reykjavík og
Hafnarfirði. -J.Mar
Flutningar fyrir herinn:
Rainbow navi-
Mál bandaríska skipafélagsins Ra-
inbow navigation gegn flutninga-
deild bandaríska sjóhersins í Norfolk
vegna framkvæmdar útboða í flutn-
ingum fyrir Varnarliðið var ekki tek-
ið fyrir í hæstarétti Bandaríkjanna í
byrjun mars og er málinu þar með
lokið. Undirréttur dæmdi flutninga-
deild hersins í vil fyrr í vetur.
Útboð vegna flutninga fyrir herinn
á Miðnesheiði fóru fram 1987 og fékk
Eimskip þá 65 prósent flutninganna
og Rainbow navigation 35 prósent.
Bandaríska skipafélagið fór í mál við
flutningadeild hersins þar sem fyrir-
tækið taldi Eimskip hafa verið hygl-
að. Útboð vegna flutninganna geta
núfariðframhvenærsemer. -hlh
Oiíuleki á Flateyri
Leki kom að olíuleiðslu á Flateyri
eftir að olíuskipið Kyndilí hafði losað
hráolíu þar í gær. Leiðslan liggur frá
höfninni upp að tanki.
Að sögn hafnarvarðar var komist
fyrir lekann mjög fljótlega eftir að
uppgötvaðist að eitthvað var að.
Hann sagði við DV í morgun að ekki
hefði mikið magn olíu farið í sjóinn
- samt sem áöur væru Flateyringar
illa búnir til að bregðast við slíkum
óhöppum. -ÓTT
t
í
Litlastúlkan látin
Litla stúlkan sem varð fyrir bifreið
á þjóðveginum á Kjalarnesi á þriðju-
dag lést á Borgarspítalanum síðdégis
í gær. Stúlkan, sem var fjögurra ára,
hét Tinna Ýr Friðriksdóttir og bjó
að Vallá á Kjalarnesi.
-ÓTT
SVAG/yf
<5
N
%
DSMÐJAN
y
O
Q_
U.
Q
—y
*
61J
&
XV'
^3/nvA
O/ITLO,