Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Síða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
Iþróttir_____________________
Öruggt hjá
FH-ingum
- Eyjamenn fengu skell í Kaplakrika
Mjóikurbikarinn
ÍK~Valur 1-2 (1-0)
1-0 Úlfar (4.), 1-1 Ágúst (68.), 1-2
Sævar (80.).
Lið ÍK: Ragnar Bogi, Gunnar,
Halldór, Ólafur Már, Helgi, Stefán
(Steinar 89.), Úlfar (Rúnar 70.),
Reynir, Þröstur, Ómar, Hörður
Már.
Lið Vals: Bjarni, Snævar, Gunn-
laugur, Magni, Einar Páll, Sævar,
Ágúst, Steinar, Þórður ( Antony
Kari 69), Jón Grétar, Baldur
(Gunnar Már 89.).
Gul spjöld: Ómar (ÍK), Úlfar (ÍK),
Eínar Páll (Val).
Rauð spjöld: Engin.
D.ómari: Egill Már Markússon
og dæmdi ágætlega.
Áhorfendur: 209.
Skilyrði: Ágætur grasvöllur,
hægur andvari og 16 stíga hiti.
Fram-Víðjr 1-2 (0—1)
0-1 Grétar (10.), 1-1 Rfkharður
(70.), 1-2 Sigurður (78.).
Lið Fram: Birkir, Jón, Kristján,
Pétur O., Viðar, Kristinn R., Ás-
geir, Steinar, Baldur (Anton 83.),
Jón Erling ( Pétur M. 83.), Ríkharð-
ur.
Lið Víðis: Gísii, Kiemens, Bjöm,
Sigurður, Ólafur, Daníel, Guðjón,
Sævar, Hlynur, Steinar, Grétar
(Karl 83.)
Gul spjöld: Sævar (Víðí), Grétar
(Víöi). .
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Ólafur Ragnarsson, og
var mjög góður.
Áhorfendur: 600.
Skilyröi: Fínasta veður og góöur
grasvöllur.
Leiftur-Þróttur N. 0-0 (0-0)
(5-3 - vitaspyrnukeppni)
1-0 Aðalsteinn, 1-1 Sófus, 2-1 Sig-
urbjöm, 3-1 Gunnlaugur, 3-2,
Kristján, 4-2 Matthías, 4-3 Ey-
steinn, 5-3 Þorlákur.
Lið Leifturs: Rósberg, Friörik,
Gunnlaugur, Aðalsteinn, Sigur-
björn, Matthias, Guðjón (Bergur
80.), Friðgeir (Róbert 27.), Þorlák-
ur, Stefán, Steingrímur.
Liö Þróttar: ívar, Bjarni, Hörður,
Guömundur, Eysteinn, Kristján,
Sigurjón, Þráinn, Sófus, Örn,
Kristinn.
Guðl spjöld: Eysteinn (Leiftri),
Öm (Leiftri).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Bragi Bergmann og
dæmdi vel.
Áhorfendur: 150.
Skilyrði: Norðaustan vindur á
annað markiö sem gerði mjög erf-
itt fyrir og ágætur grasvöllur.
FH-ÍBV 4-1 (3-0)
1-0 Hörður (12.), 2-0 Hallsteinn
(14.), 3-0 Dervic (32.), 4-0 Pálmi
(65.), 4-1 Jón Bragi (73.).
_ Lið FH: Stefán, Ólafur J„ Bjöm,
Ólafur K„ Halsteinn, Guðmundur
Valur (Auðunn 79.), Þórhallur,
Dervic, Pálmi (Kristján 74.), Andri,
Hörður.
Lið ÍBV: Adólf, Friðrik, Heimir,
ELÍas, Lúðvík, Sigurður, Martin,
Hlynur, Bergur (Jón Bragi 57.),
Nökkvi (Huginn 61.), Amljótur,
Leifur Geir.
Gul spjöld: Dervic (FH), Leifur
Geir (ÍBV).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Sæmundur Víglunds-
son og dæmdi þokkalega.
Áhorfendur: Um 400.
Skilyrði: Um 16 stiga hiti, hægur
andvari og góður grasvöliur.
Bubka með
heimsmet
Sovétmaðurinn Sergei Bubka
sló heimsmetiö í stangarstökki á
móti á ítalíu í gærkvöldi. Bubka
stökk 6,09 metra og sló þar með
eigið heimsmet.
-RR
Höttur sigraöi Leikni, 5-2, í 4.
deild í gærkvöldi. Mörk Hattar
gerðu Jónatan Vilhjálmsson 2,
Höröur Guðmundsson, Eysteínn
Hauksson og Kári Hrafnkelsson
en Jóhann Jóhannsson og Helgi
Ingason mörk Leiknis.
-MJ
„Þetta var okkar besti leikur í
langan tíma og ég hef trú á að hlut-
irnir séu að koma hjá okkur. Hugarf-
arið hefur batnað og liðsandinn er
virkilega góður. Við ætlum okkur að
fara aíla leiö í bikarnum og ég hef trú
á að það takist," sagöi Hallsteinn
Arnarson, besti leikmaður FH-inga í
gærkvöldi en Hafnarfjaröaliðið
tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum með
öruggum sigri á Vestmannaeyingum,
4-1, í Kaplakrika.
FH-ingar voru mun sterkari aðil-
inn og léku mjög vel en Eyjamenn
voru óvenju daprir. FH-ingar gerðu
út um leikinn á fyrsta hálftímanum
með þremur mörkum. Það var eins
og gestimir væru ekki komnir í land
eftir flugferðina frá Eyjum því þeir
voru hreinlega ekki með í leiknum
framan af. Á 12. mínútu náðu FH-
ingar forystunni þegar Hörður
Magnússon skoraði af markteig og
aðeins tveimur mínútum síðar bætti
Hallsteinn öðru markinu við eftir
glæsilega sókn. Hafnfirðingar héldu
áfram að sækja og Júgóslavinn Izud-
in Dervic skoraði þriðja markið með
glæsilegu skoti frá vítateigshorni á
32. mínútu.
Staðan 3-0 í leikhléi og síðari hálf-
leikur var nánast formsatriði. Eyja-
3. deildar lið Leifturs komst afram
í Mjólkurbikarnum í gærkvöldi með
því að sigra Þrótt frá Neskaupstað,
5-3, eftir vítaspymukeppni á Ólafs-
flrði. Markalaust var eftir venjuleg-
an leiktíma og framlengingu. Leift-
Ekkert verður af því að Jens Erik
Rassmussen, færeyski landsliðsmað-
urinn í knattspyrnu, leiki með Fylki
í 2. deildinni í sumar. Rassmussen
varð löglegur með Árbæjarliðinu 24.
júní og var væntanlegur til landsins
tveimur dögum síðar en hefur ekki
sést.
Að sögn Bergsveins Ólafssonar hjá
Fylki telja menn þar á bæ nú fullvíst
að sá færeyski láti ekki sjá sig. „Hann
var búinn að koma og æfa með okkur
og lofaði mjög góðu enda sprækur
og marksækinn framheiji- Síðan fór
hann út 4. júní til að fara með fær-
menn komust ekkert áleiðis gegn
FH-ingum sem fengu tvö dauðafæri
áður en Pálmi Jónsson skoraði með
skalla um miðjan síðari hálfleik eftir
góðan undirbúning Hallsteins. Pálmi
hefði getað verið búinn að skora
þrennu áður í leiknum en misnotaði
mjög góð marktækifæri. Eyjamenn
náðu að klóra í bakkann þegar Jón
Bragi Arnarsson skoraði með faUegu
skoti frá vítateig sem hafnaði efst í
marknetinu. Undir lokin fengu Eyja-
menn tvö góð færi sem ekki nýttust
en það skipti ekki sköpum því sigur
FH-inga var í öruggri höfn.
„Það er ekki spurning að betra lið-
ið vann en við lékum ekki vel,“ sagði
Sigurlás Þorleifsson, þjálfari Eyja-
manna, eftir leikinn.
FH-ingar léku líklega sinn besta
leik í sumar. Hallsteinn átti frábæran
leik og var yfirburðamaður á miðj-
unni. Andri Marteinsson og Ólafur
Jóhannesson áttu báðir mjög góðan
leik og í heildina var liðið mjög
sterkt.
Eyjamenn voru slakir og léku
þarna sinn annan tapleik á fjórum
dögum. Elías Friðriksson og Hlynur
Stefánsson voru einna skástir í liðinu
í þessum leik.
ursmenn skoruðu úr öllum 5 víta-
spyrnum sínum en Þráinn Haralds-
son, Þrótti, misnotaði spyrnu sína og
það reyndist Norðfirðingum dýr-
keypt.
Leikurinn einkenndist af miklu
roki á annað markið en Leifturs-
menn voru betri aðilinn í heildina.
eyska landsliðinu á Eyjaleikana, en
svo virðist sem menn þar hafi tabð
hann á að fara ekki til íslands. Við •
erum með alla löglega pappíra í
höndunum um félagaskipti hans, þó
við höfum heyrt að Færeyingar telji
þau ólögleg, og við viljum fá greiddan
þann kostnaö sem við lögðum út í
vegna hans, sem var um 300 þúsund
krónur, auk þess sem ég lánaði hon-
um persónulega til að hann kæmist
meö færeyska landshðinu til Norð-
ur-írlands í vor,“ sagði Bergsveinn.
-VS
-RR
• Andri Marteinsson í baráttu við Eyjamann í gærkvöldi. DV-mynd GS
Leiftursmenn áfram
- eftir sigur á Þrótti 1 vítaspymukeppni
Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði:
Rassmussen ekki með
- Færeyingurinn kemur ekki til Fylkis
• Sævar Jónsson, Valsmaður, á hér í höggi við leikmann ÍK í bikarleiknum i gærkv
eru komnir í 8-iiða úrsiit.
Bikarmeistarar Vals lentu í vand
„Þurftum
fyrirhlut
- sagði Ingi Björn Albertsson eftir
„Ég er ánægður með að vera kominn
áfram en við þurftum virkilega að hafa
fyrir hlutunum. Við tókum okkur saman
í andlitinu eftir fyrri hálíleikinn því við
vissum að annars færi illa,“ sagði Ingi
Björn Albertsson, þjálfari bikarmeistara
Vals, við DV eftir bikarleikinn við 3. deild-
ar lið ÍK í gærkvöldi.
Leikmenn ÍK kom ákveðnir í leikinn og
voru staðráðnir í að selja sig dýrt. Eftir
aðeins fjórar mínútur lá knötturinn í net-
inu hjá landsliösmarkverðinum og Vals-
menn vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið.
Úlfar Óttarsson fékk knöttinn við miðlínu
og hafði énga samherja til að gefa á og
ákvað því að gera hlutina sjálfur. Hann
einfaldlega labbaði í gegnum Valsvörnina
og skaut góðum jarðarbolta í hornið hjá
Bjarna Sigurðssyni sem fékk ekki rönd
við reist. Bjarni verður ekki sakaður um
markið en Valsvörnin var grunsamlega
sofandi í þetta skiptið.
Nokkru seinna fékk Þórður Bogason
gullið tækifæri til að jafna metin fyrir
Valsmenn en skot hans fyrir opnu marki
fór framhjá þegar auðveldara virtist að
skora. Ómar Jóhannsson átti gott skot úr
aukaspymu fyrir ÍK sem Bjarni varði vel
en þar með eru talin upp færi fyrri hálf-
leiks. Sævar Jónsson átti reyndar þrumu-
skot undir lok hálíleiksins en það endaði
út fyrir hliðarlínuna í innkasti! ÍK-menn
stóðu sig mjög vel í fyrri hálfleik og voru
miklu baráttuglaðari en Valsmenn voru
eins og höfuðlaus her og greinilega slegnir
við að fá á sig markið.
Eitthvað hefur Ingi Bjöm lesið yfir
hausamótunum á sínum mönnum í leik-
hléi því Valsmenn vora nánast óþekkjan-
legir í seinni hálfleiknum. Strax í upphafi
átti Magni Blöndal þrumuskot sem Ragn-
ar Bogi Petersen varði á undraverðan
hátt í horn og upp úr hornspyrnunni átti
Gunnlaugur Einarsson gott skot en Ragn-
ar Bogi var aftur vel á verði. Þórður Boga-
son fékk einnig gott færi skömmu síðar
þegar hann komst einn innfyrir en Ragnar
Bogi sá við honum.
Á 68. mínútu kom síðan vendipunktur
leiksins. Hörður Már Magnússon átti þá
fast skot á Valsmarkið sem Bjarni varði
vel og bikarmeistararnir náðu skyndisókn
sem endaði með jöfriunarmarkinu. Baldur
Bragason fékk knöttinn innfyrir ÍK-vörn-
ina og lék á Ragnar Boga og sendi á Ág-
úst Gylfason sem hafði nægan tíma til að
koma boltanum í netið. Við þetta var allur
kraftur úr Kópavogshðinu og Valsmenn
tóku öll völd á vellinum.
Sigurmarkið kom þó ekki fyrr en á 80.
mínútu og var Sævar Jónsson þar að
verki. Steinar Adolfsson braust þá upp að
endamörkum hægra megin og sendi beint
á kollinn á Sævar sem skallaöi boltann í
netið af stuttu færi. Undir lokin fengu
Valsmenn ágæt færi til að bæta við mörk-
um. Baldur Bragason og Ágúst Gylfason
áttu báðir góð skot sem Ragnar Bogi varð
vel.
Sigur Valsmanna var sanngjarn þrátt
fyrir að leikmenn liðsins lékju bókstaflega
illa í fyrri hálfleik. Liðið átti miklu fleiri