Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Page 4
I.AUGARDÁGUR 7. SEPTEMBER4991. Fréttir i>v Tekjuskerðing heimilanna vel á þriðja milljarð vegna þjónustugjalda ríkisstjómarinnar: Heilbrigðisgjöld gef i tvo milljarða í tekjuauka Ráðstöfunartekjur heimilanna munu skerðast um vel á þriðja millj- arð eða um eitt prósentustig vegna aukinna þjónustugjalda hjá ríkinu. Þá mun verðlag hækka um tæplega eitt prósent. Ejármálaráðherra hefur verið falið af stjómarflokkunum að útfæra þær hugmyndir sem komið hafa fram og leitt geta til tekjuauka hjá ríkissjóði. Samkvæmt heimildum DV felast þær fyrst og fremst í því að auka tekjur stofnana ríkisins með því að auka kostnaðarþátttöku þeirra sem þjón- ustunnar njóta. Þær snúa fyrst og fremst að almenningi en lítið sem ekkert að fyrirtækjunum í landinu. Ekki er lengur gert ráð fyrir að færa skólagjöld sem sértekjur á fjár- lögum næsta árs en engu að siöur munu þau leiða til allt að 150 milljóna skerðingar á framlögum til skólanna. Lækkun niðurgreiðslna á landbún- aðarvörum mun leiða til 100 milljón króna kostnaðarauka hjá almenn- ingi. Hækkun á gjöldum tengdum dómsmálaráöuneytinu, svo sem þinglýsingum og veðbókarvottorð- um, mun skila ríkissjóði minnst 100 milljónum. Þá er gert ráð fyrir að Póstur og sími skili allt að 400 millj- ónum í auknar tekjur vegna hækk- ana og spamaðarráðstafana hjá stofnunni. Tveir milijarðar úr heilbrigðisgeiranum Innan heilbrigðiskerfisins gerir ríkisstjórnin ráð fyrir að auka megi tekjur ríkissjóðs mest eða um tvo milljarða. Þar af mun 500 króna gjaldtaka á heilsugæslustöðvum skila ríkissjóði hátt í 400 milljónum. Allt að 500 milljónum á að ná með gjöldum á öldrunarstofnunum ríkis- ins sem sveitarfélög greiði. Á annað -hundrað milljónum er áætlað að ná með 67 prósent hækkun á göngu- deildargjaldi. Gjaldið myndi þá hækka úr 900 krónum í 1500. Sama hækkun er einnig ráðgerð varðandi sérfræðingagjöld. Þá er hugmyndin aö auka tekjur ríkissjóðs innan heilbrigöiskerfisins um minnst 300 milljónir með aukinni þátttöku barna og ellilífeyrisþega í tannlæknakostnaði og aðrar hundr- að milljónir með leigu á hjálpartækj- um og öðrum sjúkrahúskostnaði. Upphaflega var einnig gert ráð fyrir að tekjutenging lífeyris og fæöingar- orlofs myndi f^era ríkissjóði hátt í 700 milljónir í tekjur en vegna andstöðu félagsmálaráðherra er nú einungis gert ráö fyrir um 400 milljónum vegna þessa. Óljóst er enn hversu miklum tekjum ríkið nær með auk- inni þátttöku almennings í lyfja- kostnaði. Á sviði félagsmála er ekki gert ráð fyrir miklum tekjuauka vegna auk- inna þjónustugjalda. Þó er gert ráð fyrir að sérstakt ábyrgöargjald á launum muni skila ríkissjóði minnst 250 milljónum í tekjur. Samtals gerir ríkisstjórnin ráð fyr- ir að innheimta eitthvað á fjórða milljarð með auknum þjónustugjöld- um. Á móti kemur hins vegar niður- felling á jöfnunargjaldi vegna inn- fluttra vara um næstu áramót. Að óbreyttu hefðu þau skilað ríkissjóði hátt í milljarði í tekjur. -kaa Það var Ijótt um aö litast á bænum Vatnsholti í Villingaholtshreppi eftir eldinn sem geisaði þar í gærmorgun og frá var sagt I DV í gær. öll útihús, fjós, hlaða, mjólkurhús og súrheysturn, brunnu til kaldra kola. Hross voru úti en 6-7 þúsund heybaggar urðu eldinum að bráð. Bóndinn, Páll Árnason, horfði á ósköpin og gat litið að gert. Hann vildi þakka slökkviliðinu á Selfossi fyrir erfitt slökkvistarf, það hefði gert það sem það gat og vel það. Enn er óvist um eldsupptök. DV-mynd Kristján Einarsson Leyfílegt að veiða síld: Takmarkanir á magni í bræðslu af numdar „Það lítur alveg þokkalega út með síldveiðarnar í ár. Hlutfall stórrar síldar virðist vera hærra en í meðal- ári. Hins vegar væri mjög óvenjulegt að hún væri komin í veiðanlegt ástand svo snemma hausts. Það er ekki fyrr en í október að síldin fer að mynda þokklegar torfur. En það geta náttúrlega verið undantekning- ar á því,“ segir Jakob Jakobsson, for- stjóri Hafrannsóknastofnunar. Frá og með síðustu mánaöamótum var leyfilegí að veiða síld og er kvót- inn 110 þúsund tonn. Síldarvertíðin hefur verið lengd frá síðasta ári en þá hófst hún í október og henni lauk um áramót. Nú verður hins vegar leyfilegt að veiða síldina til 1. mars. Á síðustu vertíð veiddust um 90 þúsund tonn af síld. Þar af fóru 40 þúsund í bræðslu, 30 þúsund tonn í frystingu og 20 þúsund tonn voru sölutuð. „Við funduðum með hagsmunaað- ilum í fyrradag um síldveiöarnar á þessari vertíð. Það var rólegur fund- ur. Vertíðin hefur veriö lengd og til- gangurinn með því er að menn geti farið út í ýmiss konar sérvinnslu. Það er verið að athuga með að vinna síldina hægar og vinna hana í ýms- um fituflokkum. Sölumálin voru einnig til umræðu en allar forsendur á sölu á unninni síld eru breyttar eftir að Rússlands- markaðurinn hrundi og því vilja menn leita leiöa til að nýta síldina á nýjan hátt til vinnslu," segir Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu. „Það hafa verið takmarkanir á því hve mikið mætti bræða af síld og þær hafa nú verið afnumdar. Menn vita ekkert hvernig sala á síld til Rússlands þróast, því er veriö að reyna að selja síld tíl Póllands. Það er hins vegar ekki búið að ganga frá sölu á nema örlitlu magni af síld í ár. Það er búist viö aö það fari svipað hlutfall af síld í bræðslu, söltun og frystingu og í fyrra. Þó vona menn að það verði fryst heldur meira af síld en á síðustu vertíð því það eru einhverjar væntingar um sölu á frystri síld til Japans í ár,“ sagði Jón B. Jónasson. „Hafrannsóknastofnun hefur ekki kannað síldarstofninn síð- an í febrúar og það verður ekki far- inn rannsóknarleiðangur fyrr en í nóvember. En ég reikna með að það komi fljótlega fréttir frá sjómönnum hvar hafi orðiö vart viö síld. Það fréttist til dæmis nýlega af síld í ísa- fjarðardjúpi og áður hafði stofnunin haft spurnir af henni í Húnaflóa," segir Jakob. -J.Mar Sumarauki veöurguða: Miðsumarblíða á Austfjörðum - hitinn á Dalatanga mældist 23 stig 21 stigs hiti mældist á Reyðarfirði og Egilsstööum í gærdag og á Fagur- hólsmýri og Vopnafirði náði hitinn 20 gráðum. Þetta góða veður náði frá norðaustanverðu landinu og alla leið að suðausturhorninu. Á Höfn í Homafirði var svipaöur hiti og nán- ast logn, sem þykja tíðindi á þeim bæ. Fólk var að vonum í sólskins- skapi á þessum stöðum öllum. Veðurfræðingur sagöi DV að loftiö, sem kæmi að landinu, væri jafnheitt frá sjó og upp í 3000 metra hæð. Há- lendiö hleypti kaldara loftinu ekki áfrám og því fengju Austfirðingar glampandi sólskin. Búist er við svipúðu veðri yfir helg- ina en eftir helgi er smávon til að glaðni yfir suðvesturhorninu, þó ekki með eins háum hita. Merkilegustu töluna sagði veður- fræðingurinn vera 23 stiga hita sem mældist á Dalatanga aðfaranótt mið- vikudags. -hlh Nýr rektor háskólans er á móti skólagjöldum Nýr háskólarektor, Sveinbjörn Björnsson, tók formlega við af Sig- mundi Guðbjarnasyni síðastliðinn fimmtudag, að viðstöddu fjölmenni. í ávarpi hins nýja rektors kom m.a. fram að hann telur ekki ráðlegt að lögð verði skólagjöld á nemendur Háskólans til að mæta skertum rekstrarfjárveitingum til skólans. „Reynsla af slíkum gjöldum er að þau fara hækkandi með tímanum og geta orðið veruleg hindrum fyrir efnaminni stúdenta og bammargar ijölskyldur," sagði Sveinbjörn. í ávarpinu kom ennfremur fram aö hinn nýi rektor telur að bæta þurfi launakjör háskólamanna og aðstöðu til náms, að styrkja þurfi stöðu Happdrættis Háskólans og auka miðlun þekkingar til almenn- ings. -ingo Kumho-rallið hófst við Perluna á Öskjuhlið seinnipartinn i gaer. Meðal þátt- takenda eru nokkrir þekktir erlendir rallkappar. Þeirra frægastur mun vera Finninn Saku Vierimaaasem hér sést ásamt aðstoðarmanni sinum, Hasse Kallström. DV-mynd Hanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.