Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Side 11
l.AUGARDAGUR 7. SR!>TRMRER 1991. 11 Vísnaþáttur Hvað er skáld? Stephan G. svarar Mislengi og skært ljómar frægð- arsól afreksmanna samtímans. En þegar þeir eru allir líður oftast furðu skammur tími, uns fokið hefur í sporin. Aðeins örsjaldan eru nöfn þeirra nefnd. Aðrir nýir eru komnir í sviðsljósið. Þetta á ekki síst við stjórnmálamennina og skáldin. Einstaka sinnum er þó varpað fræðimannsglætu á ein- staka menn. Síöan sækir aftur í sama farið. Hvem skyldi nú t.d. muna um það að fá að koma í svona vísnaþætti, þótt haganlega hafi ótvírætt komið fyrir sig orði í ein- földustu og yflrlætislausustu gerð skáldskapar, ferhendri vísu? Fátæki alþýðupilturinn, Stefán Guömundsson, sem fylgdi foreldr- um sínum til Vesturheims árið 1873 og gerðist þar landnemi átti ekki afturkvæmt til ættjarðarinnar, nema einu sinni í stuttri heimsókn árið 1917. Hann var fæddur Skagfirðingur 1853 og dó í íslendingabyggðum í Kanada 1927. Þá eitt af höfuðskáld- um íslands. Hann ritaði, sem kunn- ugt er, nafn sitt svo sem betur hent- aði á erlenda vísu: Stephan G. Step- hansson. Til hans hef ég leitað oft áður. Mun halda mig við fyrstu visur hans að þessu sinni. Skagafjörður kvaddur Ég kveð þig, fríði Pjörður minn, og fjallahlíð með snjóinn sinn, og litla býlið við blásinn mel, sem börðin skýla. Farið vel. 1869 Sigvaldi Jónsson bama- kennari Hljómum fækkar héraðsljóða, handrit versna um Skagafjörð - sveitarskáldið fjölvits fróða fór í vörð hjá þögn og jörð. 1879 Egill Gottskálksson frá Skarðsá Þessi vísa mun vera ort snemma á ferh Stephans, en ekkert ártal er við hana. Þáttamaður veit ekki á honum deih. Bernsku minni í bókaleit bjargaði vit þitt fróða - frá þér erfði okkar sveit ævisögu góða. Giska má á að hér sé ekki um að ræða ævisögu, sem Egill hefur rit- að, heldur líf hans sem skáldið minnist í vísunni. 1875, þá eru aðeins tvö ár síðan Stephan hvarf frá íslandi: Tötrughypja Hypjuð, rifuð, rykkt og skæld, ræflakistla ber hún. Títupijónum negld og næld niður og saman er hún. Vísnaþáttur Hér er greinilega lýst fátæklegri mannkind, sem fyrir augu hefur borið í nýju heimkynnunum, orða- lagið er höfundi líkt, eins og það varö löngum. Næsta vísa er sótt til eigin hugrenninga, nýtt endurmat. Framþróun í æsku tók ég eins og barn alheimskunnar trúna. Með aldri varð ég efagjarn. Engu trúi ég núna. Amerísktorðtak hljóðar svo: „Hver fyrir sjálfan sig. Andskotinn á þann aftasta". Þessi vísa er ort 1876. Þá hefur hinn ungi sveitapiltur kynnst hugsunar- hætti, sem var honum framandi í fyrri heimkynnum, þar sem flestir voru fátækir og hjálparþurfi og sjálfsagt þótti að líkna náunga sín- um, ef unnt var. þarna var allt harðara og ómanneskjulegra. En að þessu leyti reyndist Stephan sjálfum sér og uppeldi heimahag- anna fornu trúr. Hann orti nú: Mér þó hrolls í hjartaþrá hreður olli kífsins, í fanta solh flýgst ég á í forarpollum lífsins. Þessi vísa er ort undir dýrara hætti en hinar fyrri og hugsunin þess vegna ekki jafnljós og áður. En hún er athyglisverð. Margs konar siðferðis og trúarlegum kenningum héldu landar hans og nýtir predikarar fram. Stephan hugsaði sitt. íslenskur menntamaður í Dan- mörku, sem tók sér ættarnafnið Repp, andmælti á sínum tíma þeim hugsunarhætti, sem hér er vikið að í vísu Stephans frá árinu 1884. Vertu aldrei vinnumaður varmennskunnar, þó hún bjóði gull og goðorö gamh Hreppur setti í boðorð. Pólitískjarðyrkja Pólitíska ekru yr embættanna plógur. Honum gefa bikkjur byr báðar, skjah og rógur. Þarna glápir þorri manns. Þegar svo er búið: Sannleik, frelsi, fjárhag lands í flag er öllu snúið. 1896 Vel gæti maður hugsað að þarna væri Stephan að yrkja um íslenska heimapólitík síns tíma. Vísur Stephans í þessum þætti eru ahar teknar úr fyrsta bindi ljóðasafns hans, Andvökur, sem Menningarsjóður gaf út í umsjá Þorkells Jóhannessonar prófessors á árunum 1955-56. Hér eru aðeins þær vísur, sem ortar eru undir okkar alþýölega hætti, sem okkar þáttur er helgaður, geng þá auðvit- að framhjá öllum hátíðlegri ljóðum skáldsins. Ekki farið lengra fram í tímann að þessu sinni en til alda- móta. Bæti hér við tilvitnun í aðeins eldra kvæði, sem heitir Uppörfun: Lát óskelfdur heimsku hof háðs í eldi brenna - miskunn veldu og manndáð lof meðan veldur penna. Hvað erskáld? Hvað sé skáld? Spyr þú að því. Þama er einkunn talin: Það er djúpur eldur í ösku þunnri falinn. í blæ, sem varla bærði rós, blossa kann og funa, kveikja hita, líf og ljós - líka kannske bruna. 1892 Jón úr Vör, Fannborg 7, Kópavogi Söngfólk - kór Við Laugarneskirkju starfar 35^10 manna kór (stjórn- andi er Ronald V. Turner) sem getur bætt við sig söng- fólki í vetur. Við leitum að 3-A tenórum, 3-4 bössum og 2-3 altrödd- um. Æskilegt að umsækjendur hafi grunnþekkingu í nótnalestri. Meðal verkefna vetrarins verða Requiem eftir Gabriel Fauré, mótettur eftir Palestrina Byrd og fleiri verk. Boðið verður upp á söngkennslu að kostn- aðarlausu í einkatíma eða smáhópum. Æfingar eru á miðvikudagskvöldum. Upplýsingar gefa Ron í síma 32518 (eða 679422) og Sigríður í síma 36842. LÖGREGLUSTÖÐ Á AKRANESI INNRÉTTING 1. ÁFANGI Tilboð óskast í innanhússfrágang lögreglustöðvar á Akranesi. Verkið nær til rifs og múrbrots innanhúss, lagnakerfa, glugga- og útihurðasmíði, nýrra útveggja, frágangs innanhúss, svo og ýmiss búnaðar. Grunnflötur stöðvarinnar er um 410 m2. Verktími er til 1. apríl 1992. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja- vík, til og með fimmtudeginum 19. september gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu IR, Borgartúni 7, þriðjudaginn 24. september 1991 kl. 11.00. II\II\1KAUPAST0FI\IUI\I RÍKISINS BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK INNANHÚSS- ARKITEKTÚR í frítíma yðar með bréfaskriftum Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl. Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ Nafn ......................... Heimilisfang .........y............. Akademisk Brevskole Jyllandsvej 15 • Postboks 234 2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark r INNKAUPAPARADIS FRA ÞYSKALANDI MADELEINE ICH MAG'S ICH TRAG'S T0P-SH0P QUELLE Tískulisti með óvenjulega glæsi- legum fatnaði fyrir konur. Ótrúlega fal- leg hönnun sem uppfyllir óskir um það allra besta. Pöntunarlína 91-50200 Gæðavörur frá Þýskalandi Allar vörurnar frá Quelle standast hina ströngu, þýsku gæðastaðla um efni og framleiðslu eða gera jafnvel betur. Ef þú þarft fallegan kvenfatnað í stórum númerum þá er þetta listinn. Fallegur fatn- aður i númerum til 54 fyrir kvenfólk á öllum aldri. Nýtisku fatnaður í númerum sem passa. Listinn fyrir unga fólkið. Skemmtilegur og frísklegur fatnað- ur. Klæðnaður fyrir öll möguleg tæki- færi. Þetta er listinn fyrir táninga sem vilja sérstakan fatn- að. inn kauP án allrar €luelle Þýskt táknar í^' STÆRSTA POSTVERSLUN EVROPU VERSLUN OG AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI. SÍMI 91-50200 Fjölskyldulistinn, 50.000 vörunúmer á 1300 bls. Ótrúlegt vöruúrval: fatnaður, heimilisvara, leik- föng, raftæki o.fl. ö.fl. Inneignarseðill, ísl. þýðingarlisti og falleg gjöf fylgir list- anum. Gæði og gott verðeinkenna þenn- an einstaka vörulista. Pöntunarlína 91-50200 Hægstætt verð. Quelle-verðið er mælikvarði á hagstæð innkaup.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.