Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991.
Skák
Skákþing f slands í Garðabæ:
Þrír efstir og jafnir
- og aukakeppni þarf um titilinn
Helgi Ólafsson varð að láta sér
lynda jafntefli við Sigurð Daða Sig-
fússon í síöustu umferð Skákþings
íslands í Garðabæ og þar með tókst
Karli Þorsteins og Margeiri Péturs-
syni að komast upp að hlið hans.
Þessir þrír deildu sigrinum á mót-
inu með 8 vinninga og þurfa að
heyja aukakeppni um titihnn
„skákmeistari Islands 1991“.
Lokaumferðin var afar spenn-
andi en einkum beindust augu
áhorfenda að skák Helga og Sigurð-
ar Daða. Helgi, sem fékk góða
stöðu, missté sig í drottningarlausu
miðtaili og varð að gefa skiptamun
til að afstýra hörmungum. Er hann
bauð jafntefh hefði Siguröur að
ósekju mátt tefla áfram en átti þó
eftir að yfirstíga mörg tæknileg
vandamál til að koma vinningi í
höfn.
Meðan þessu fór fram setti Mar-
geir Helga Ás á kné af öryggi og
sigur Karls á Snorra var aldrei í
hættu eftir að sá síðarnefndi varð
fyrir því óláni i miöri skák að brjóta
gleraugun sín.
Margeir og Karl mega vel við það
una að hafa komist upp að hhð
Helga sem tefldi manna best á mót-
inu. Frammistaða Karls var með
miklum ágætum. Hann tefldi
traustar en oft áður og tapaði ekki
skák - aðeins skorti hálfan vinning
á að hann næði áfanga að stór-
meistaratitli. Margeir „seiglaðist
áfram“ á sinn vanabundna hátt og
gríðarleg reynsla hans var drjúg á
lokasprettinum.
Þeir sem næstir komu, Jóhann
og undirritaður, urðu fyrir „slys-
um“ en í svona keppni má ekkert
út af bregða. Jóhann tapaði vinn-
ingsskák gegn Hahdóri og síðan
endatafh gegn Margeiri þar sem
jafnteflisleiðimar voru fjölmargar.
Á mér voru þau álög að tefla iha
gegn neðsta manni. Er ég mætti
Sigurði í þriðju síðustu umferð
hafði hann aðeins náð þremur jafn-
teflum en við sigurinn hífði hann
sig upp af botninum. Þá vhdi svo
óheppilega til að Snorri varð neðst-
ur en hann átti ég að tefla við næst!
Eins og fyrri daginn lokaði Snorri
stöðunni gegn mér, harðlæsti og
gangsetti margfalt öryggiskerfi svo
að jafntefh varð ekki umflúið. Ég
fékk aðeins einn vinning gegn þeim
þremur sem aftastir urðu í röðinni
en miðað viö taflmennsku átti ég
raunar ekki meira skhið.
Róbert tehdi léttleikandi og kom
á óvart með góðri frammistöðu. Á
hinn bóginn er Þröstur varla
ánægður með 50% vinningshlutfall
eftir stórmeistaraáfanga í Gausdal
fyrir skemmstu. Hann hefði hæg-
lega getað fengið meira en var mis-
tækur.
Yngsti keppandinn, Helgi Áss,
sýndi mikinn baráttuhug og sótti
sig stöðugt eftir því sem leiö á mót-
ið. Hann á enn margt eftir ólært
enda ekki hægt að ætlast til þess
að 14 ára phtur kunni allt. En hann
er bersýnhega bráðefnilegur og
verður gaman að fylgjast meö hon-
um í framtíðinni.
Héðinn átti tith að verja en á
brattann var að sækja. Aðrir kepp-
endur ætluðu greinilega ekki að
gefa honum kost á að endurtaka
leikinn frá því á Hornafirði. Héðinn
náði ekki aö sýna sitt besta en þarf
þó ekki aö örvænta. Skákmenn
þurfa aö þola mótlæti sem meðbyr
og hafa gott af hvoru tveggja.
Sigurður, Hahdór og Snorri geta
allir gert miklu betur. Á góðum
degi eru þeir öllum hættulegir eins
23. Rxc7 + Hxc7 24. cxb3 en skipta-
munsfómin 21. - Hcxc3!? 22. bxc3
Rc5 gefur á hinn bóginn mjög góð
færi.
22. exd5 Hb6 23. Da2
Hvítur hefur lifað ahögu svarts
af og á nú gott tafl en tíminn var
farinn að styttast ískyggilega.
23. - Hb4!? 24. 0-0-0 Hxf4 25. dxe6?
Afleikur. Rétt er 25. Be2 Hxdl 26.
Bxdl Híl 27. He2 e5 28. Re4 með
mun betra tafli á hvítt.
Frá Skákþingi íslands í Garðaskóla.
og vart þarf að tíunda frekar. Góðu
dagamir voru bara allt of fáir.
Mótið var haldið með fulltingi
bæjarsjóðs Garðabæjar og var vel
að því staöið í hvívetna. Þetta var
sterkasta Skákþing íslands frá
upphafi og jafnframt í fyrsta sinn
sem mótið gaf möguleika á áfanga
að alþjóðlegum titlum. Skákstjóri
var Olafur Ásgrímsson og fórst
honum verkið vel úr hendi sem
endranær.
Hér er skák úr 7. umferð, sem
margir telja fjörugustu skák móts-
ins. En ekki er hún gallalaus. Helgi
haíði forystu er skákin var tefld og
mátti litlu muna að hann yki við
hana. Með laglegri peðsfórn náði
hann yfirburðastöðu. En vopnin
snerust í höndum hans og skyndi-
lega lenti hann í erfiðleikum. Eftir
mistök mótherjans átti hann aftur
vinningsstöðu en örstuttu síðar,
gjörtapað tafl! í æsispennandi
tímahraksdansi slapp hann við að
verða mát og enn voru ýmsar blik-
ur á lofti er sverö voru slíðruð.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Helgi Ólafsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. f3 b5 8. g4
h6 9. h4 Bb710. Hgl Rfd711. g5 Rc6
Aðferð Helga við aö mæta sókn-
aráætlun hvíts ætti ekki að koma
mér á óvart því aö ég tefldi þannig
sjálfur gegn Svíanum Wedberg á
Skák
Jón L. Arnason
Norðurlandamóti í Espoo í Finn-
landi fyrir tveimur árum. Wedberg
lék nú 12. De2 en eftir 12. - Hc813.
DÍ2 Rxd4 14. Bxd4 hxg5 15. hxg5
Da5 16. g6 Í6 17. Bd3 b4 18. Re2 Re5
átti svartur góða stöðu.
12. a3 Hc8 13. f4 hxg5 14. hxg5 g6!
Sterkur leikur og nú stendur
svartur vel að vigi og trúlega betur
eftir vafasaman næsta leik hvíts.
15. Rxc6?! Hxc6 16. a4?
Eftir þennan leik missir hvítur
öll tök á stöðunni. Ég vanmat peðs-
fóm Helga sem gefur honum ber-
sýnilega mikla möguleika.
16. - b4! 17. Dd4 Hh2 18. Dxb4 Dc7
19. Hg2 d5 20. Db3!?
Líklega skárri „praktískur"
möguleiki en 20. Dd4 er svartur
getur tryggt sér betra tafl, áhættu-
laust, með 20. - Bc5 21. Dd2 Hxg2
22. Bxg2 d4 23. Bxd4 Bxd4 24. Dxd4
Dxf4 o.s.frv. En staðan er erfið.
20. - Hh3?!
Einfaldara er 20. - Rc5 og ef 21.
Da2 d4 22. Bxd4 Dxf4, eða 21. Bxc5
Rxc5 22. e5 (ef 22. exd5 Hb6) Hb6
23. Da2 Be3 með yfirburöastöðu.
21. Bd2! Hhl?
Hvítur ætti að halda sínu í enda-
taflinu eftir 21. - Rc5 22. Rxd5! Rxb3
25. - H4xfl 26. exd7+ Dxd7?
Skammt er milli feigs og ófeigs.
Nú fær svartur tapað tafl en eftir
skákina kom í ljós að eftir 26. - Kd8
27. He2 á hann stórglæsilega vinn-
ingsleið: 27. - Dxc3!! 28. bxc3 Ba3 +!!
29. Dxa3 Hxdl+ 30. Kb2 Hbl+ 31.
Ka2 Bd5+ 32. c4 Bxc4+ 33. Db3
Hxb3 og hvítum eru allar bjargir
bannaðar.
27. He2+ Be7 28. Bel! Dc7
Eða 28. - Dg4 29. Db3! og vinnur.
29. Rd5 Bxd5 30. Dxd5 Kf8 31. Da8+
Ke7 32. Hxe7! Dxe7 33. Bc3+ fl6 34.
Bxf6??
í tímahrakinu vildi ég hafa h8-
reitinn valdaðan - mér sást einfald-
lega yfir að eftir 34. exfB Kh7 35.
Dxhl + ! er öllu lokið. Framhaldiö
eftir 34. - Kf7 yrði 35. Dd5+ De6
36. Db7+ Ke8 37. Db8+ Kf7 38.
Dc7 + Ke8 39. f7 + Dxf7 40. Dd8 mát.
34. - Kf7 35. Dd5 + De6 36. Db7 + Ke8
Og jafnteflisboö fylgdi í kjölfarið,
sem ég þáöi, enda er svartur slopp-
inn við að verða mát. Hins vegar
hefði ég að ósekju mátt tefla áfram
- enn var ég blindur á hornalín-
unni. Eftir 37. Dxhl Hxhl 38. Hxhl
getur hvítur alls ekki tapað taflinu
en á sjálfur mjög góða vinnings-
möguleika. -JLÁ
Skákþing íslands 1991 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 V.
1. Helgi Ólafsson /2 'A Vi Vi 1 1 1 /1 ■/2 1 1 8
2. Karl Þorsteins '/2 1 /1 /1 1 xh 1 /2 1 /2 1 8
3. Margeir Pétursson Vi 0 1 Vi Vi : Vi 1 1 1 1 1 8
4. Jóhann Kjartansson /2 '/2 0 /1 1 1 1 1 1 0 1 V/i
5. Jón L. Árnason '/2 ’á /2 1 1 1 1 0 ■*Á Vi 7
6. Róbert Harðarson 0 0 /1 0 0 1 '*Á 1 /2 1 1 5/2
7. Þröstur Þórhallsson 0 ‘/2 Vi 0 0 0 Vi 1 1 1 1 5'Á
8. Helgi Áss Grétarsson 0 0 0 0 0 /2 /2 1 1 1 1 5
9. Héðinn Steingrímsson /2 '/2 0 0 0 0 0 0 1 1 1 4
10. Sig. Daði Sigfússon /2 0 0 0 1 /2 0 0 0 'A /1 3
11. HalldórG. Einarsson 0 íi 0 1 /1 0 0 0 0 Vi 0 2'Á
12. Snorri G. Bergsson 0 0 0 0 /2 0 0 0 0 *a 1 2