Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Side 18
18
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991.
Veiðivon
Gengið meó bökkum
Bjamadalsár 1 Borgarfírði
Kíkt eftir fiski við Bjarnadalsá sem er víða falleg.
Hún Eva Jónsdóttir reynir við laxa í Neðri-Johnsson í Kjarrá í Borgar-
firði á stærri myndinni en á þeirri minni heidur hún á þremur löxum
úr ánni. Góður árangur það hjá Evu. DV-mynd GSS
Þær eru margar fallegar veiðiárnar
sem veiðimenn renna í þessa dagana,
en þó veiðist ekki alltaf mikið af fiski
í sumum þeirra þó í þeim sé að finna
marga góða veiðistaði.
Ein af þeim veiðiám sem fellur vel
undir þetta tal er Bjamadalsá sem
rennur um Bjamadal fyrir vestan
Baulu í Borgarfirði. Upptök hennar
eru í austurátt frá Bröttubrekku þar
sem heitir Fossskarö.
Bjarnadalsá rennur um djúpt ár-
gljúfur fyrir vestan og ofan bæinn í
Dalsmynni. Eru í þessu gljúfri all-
margir fallegir veiðistaðir en frekar
er erfitt að komast að þeim. í Bjama-
dalsá gengur eitthvaö af laxi.
Fyrir skömmu fengum við okkur
labbitúr með Bjarnadalsá til að kíkja
eftir laxi en ekki sást fiskur. Áin er
feiknalega falleg á mörgum stöðum
en líklega verður að laga ána þar sem
hún fellur í Norðurá.
Á haustin gengur örugglega eitt-
hvaö af laxi í ána en þá er bara veiði-
tíminn úti og það gagnar ekki fyrir
veiðimenn.
Vigalegur klettur við ána.
DV-myndir G.Bender
En sjón er sögu ríkari og labbitúr
með ánni er stórskemmtilegur.
Heimild: Norðurá fegurst áa
eftir Björn J. Blöndal.
-G.Bender
Þjóðar-
spaug DV
Slysið
Maður nokkur, alblóðugur í
framan, staulaðist eitt sinn inn á
Læknavaktina í Reykjavík.
Hjúkrunarkonan í móttökunni
kÉdlaði strax á lækni en spurði
manninn síðan að nafni.
„Indriöi Jónsson heiti ég,“ svar-
aði tnaðurinn sársaukafullum
rómi.
„Eruð þér giftur?“ spuröi
hjúkrunarkonan.
„Já,“ umlaði manngreyiö, „en í
þetta skiptið var það vörubíll sem
keyrði á mig.“
Uglan
Úr ritgerð ungs nemanda um
ugluna:
„Uglan er fugl sem sér ekki
dagsins ljós nema á næturnar."
Ekld alltaf
beóið
Prestur einn á Austflörðum
spurðí eitt sinn unga stúlku að
því hvort hún bæði ekki til guðs
á hverju kvöldi.
„Nei, stundum langar mig bara
alls ekki í neitt,“ svaraði sú stutta
um hæl.
Fleygur fugl
Frúin var að leika á pianó og
söng hástöfum:
„Væri ég fleygur fugl...“
Og eiginmaðurinn muldraði:
„Þá myndi ég hleypa kettinum
inn.“
Vegurinn
Á landafræðipróft í 5. bekk í
Hafnarfirði fyrir „okkrum árum
var ein spurningin'svohljóðandi:
„Hver er aðaiatvinnuvegur
Hafiifírðinga?"
Nemandi nokkur misskildi
spuminguna allhrapallega og
svaraðL
„Reykjavikurvegurinn."
Finnur þú fimm breytingai? 120
Hvað heldur þú aö fjármálaráöherrann segi? Fækkun útlána eöa var-
færni í fjárfestingum og svo framvegis, og svo framvegis...
Heimilisfang:
©PIB
COPINHACf N
©PIB
COPINHACIN
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriöi
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
2. Fimm Úrvalsbækur aö
verðmæti kr. 3.743.
Bækurnar sem er í verðlaun
heita: Á elleftu stundu, Flugan
á veggnum, í helgreipum hat-
urs, Lygi þagnarinnar og
Leikreglur. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiðl-
un.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 120
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundruð-
ustu og átjándu getraun reynd-
ust vera:
1. Matthildur Óskarsdóttir
Faxabraut 380
230 Keflavík
2. Valgerður A. Jónsdóttir
Safamýri 11
108 Reykjavík
Vinningamir verða sendir
heim.