Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1691. 41 pv_________________Sérstæð sakamál Óupplýst faðemi Eftir að eiginkona Reeses Apple- ton lést af krabbameini árið 1979 leitaði hann huggunar í kirkju- sókn. Líf hans og dótturinnar, Penny, í Clayton í Missouri í Bandaríkjunum, var viðburðalítið og margir hefðu vafalaust talið það í daufara lagi, en í maí 1986 varð skyndileg breyting á því. Presturinn kemur á ný í heimsókn Þann 25. maí kom Peter Venn, sóknarpresturinn sem var þrjátíu og átta ára, enn einu sinni í heim- sókn til Appletonfeðginanna. Hann bjó í grannbænum Carsonville sem er í aðeins fárra kílómetra fjarlægð frá heimili þeirra. Venn hafði um árabil þekkt feðginin og segja mátti að um þetta leyti hafi hann í raun verið orðinn heimilisvinur enda hafði hann verið Penny sem eldri bróðir fyrst eftir að móðir hennar dó. Hafði Penny aðeins verið fjórt- án ára þegar hún lést. Penny hafði tekið til kvöldmat fyrir komu hans og borið hann á borö. En þegar hún var hálfnuð með matinn stóð hún skyndilega upp og bað mennina um að hafa sig afsakaða. Hún sagðist vera lasin og ætla að leggja sig. Þá vantaði klukkuna stundarfjórðung í átta. Faðir hennar og séra Venn héldu áfram að borða en að loknum máls- verði settust þeir við spil. Þegar klukkan var orðin ellefu leit Venn á úrið og hafði á orði að hann þýrfti að halda heim því hann ætlaði í sjúkrahúsvitjun næsta morgun. Reese Appleton fylgdi honum til dyra. Hann veifaði til hans er hann ók burt en læsti síðan hurðinni og hugaði að því allir gluggar væru lokaðir. Vaknaði við hátt óp Reese ætlaði að bjóða dóttur sinni góða nótt en er hann kom upp á efri hæðina sá hann að hún var búin að slökkva ljósið í herbergi sínu. Hann hélt því inn í eigið svefnherbergi og fór að lesa. Ekki hafði hann þó lesið lengi er svefn- höfgi kom yfir hann. Hann slökkti því ljósið og fór að sofa. Ekki vissi Reese hve lengi hann hafði sofið þegar hann hrökk upp við hátt óp. Hann leit á úrið og sá að klukkan var um eitt. í fyrstu áttaði hann sig ekki á því hvað um var að vera en svo heyrði hann að það var Penny sem var að æpa. Reese leit svo á að óboðinn gestur væri kominn í húsið. Hann stökk út úr rúminu, opnaði skúffu í nátt- borðinu og tók fram skammbyssu. Með hana í hendinni hljóp hann inn í svefnherbergi dóttur sinnar. Myrkur var í herberginu en við gluggann stóð einhver dökkklædd vera. Án þess að hika lyfti Reese skammbyssunni og skaut þremur skotum. Veran féll á gólfið. Reese kveikti síðan ljós og sér til skelfmg- ar sá hann að maðurinn sem lá á gólfmu í blóöi sínu var enginn ann- ar en sóknarpresturinn, Peter Venn. Hann var látinn. „Martröð" Er Reese hafði horft á hkið um stund fór hann í símann og hringdi á sjúkrabíl. „Það hefur gerst dálítið hræðilegt," sagði hann. „Það varð slys. Hræðilegt slys.“ Rannsóknarlögreglumenn komu á vettvang skömmu síðar og þá sagði Reese þeim að það fyrsta sem hann hefði sagt þegar hann sá hvem hann haíði skotið hefði ver- ið: „Það vildi ég að þetta væri mar- tröð.“ Hann sagði síðan þá sögu sem gerst hefði sem sögð er hér að fram- Reese Appleton. an. En var hún sönn? Þegar rann- sóknarlögreglumennirnir fóru að kynna sér alla málavexti kom ýmislegt fram sem benti til þess að svo væri ekki. Ásæknasta spurn- ingin var þessi: „Hvað var Peter Venn að gera í herbergi Penny um miðja nótt?“ „Eg hafði ekki hugmynd um að hann væri þar,“ sagði Penny. „Ég vaknaði bara við eitthvert þrusk." Hún sagðist svo hafa séð mann standa við gluggann og hafa æpt. En þar eð ekki var ljós í herberginu þegar faðir hennar kom hlaupandi hefði hún, ekki frekar en hann, getað séö hver óboðni gesturinn var. Laug Penny? Þótt rannsóknarlögreglumenn- irnir yrðu að láta sem þeir tryðu skýringu Penny var þeim ljóst að ekki væri hægt taka hana með öllu trúanlega. Svar yrði að fást við þvi hvers vegna Peter Venn hefði kom- ið aftur til hússins og hvernig hann hefði komist inn. Allar dyr áttu að vera lokaðar sem og gluggar. Hafði hann haft lykil? Reese neitaði því að Venn hefði haft lykil. Þess vegna fannst lög- reglumönnunum að Penny hlyti að hafa sagt ósatt. Hún hlaut að hafa opnað fyrir Venn. En hvers vegna hafði hún gert það? Gat verið að þau hefðu verið elskendur án þess aö faðir hennar hefði vitað það? Það gat skýrt að hún hefði hleypt honum inn en ekki að hún skyldi hafa æpt. Því var ákveðið að kanna betur lifnaðarhætti Penny. Þaö vakti verulega athygh þegar í ljós kom að Penny hafði verið trú- lofuð ungum manni, en hálfum mánuði áður en Venn var skotinn til bana í svefnherbergi hennar hafði trúlofuninni verið slitið. Hafði brúðkaupsdagurinn þó verið ákveðinn. Ungi maðurinn hét Lee Dunnell. Lee Dunnell. Hélthún fram hjá Dunnell? Rannsóknarlögreglumenn héldu nú heim til Lees Dunnell og báðu hann um að gefa á því skýringu að Penny hefði hætt við að giftast hon- um. „Hvers vegna Penny hætti við að giftast mér?“ sagði hann. „Það var ég sem hætti við að kvænast henni. Ég er ekki sá bjáni að ganga að eiga konu sem er með barni annars manns." Þessar fréttir urðu að sjálfsögðu til að auka mjög á grunsemdir lög- reglumannanna. En hvernig gat Lee Dunnell vitað að hann var ekki faðir barnsins sem hann sagði að hún gengi með. „Það er einfalt mál,“ svaraði hann þegar hann var spurður að því. „Slæm hettusótt gerði mig ófjróan." Hann sagðist þó aldrei hafa sagt Penny frá því þar eð hann vissi að hana langaði til að eignast börn. Nú sagðist hann aftur á móti vera glaður yfir því að hann hefði ekki gert það. Það hefði orðið til þess að í ljós hefði komið að hún var honum ótrú. Þegar Lee var aö því spurður hvort hann hefði þekkt Peter Venn sagöi hann svo hafa verið. Reyndar hefði hann leitað til hans þegar hann hefði fengið að vita að Penny var ólétt. Hann hefði þá spurt prestinn hvað hann ætti að gera. ■ Hefði Venn sagt sér að kvænast Penny því í rauninni væri það „gjöf frá Guði“ þar eð hann væri ófjór og gæti aldrei eignast barn. Þrátt fyrir þetta svar, sem Lee sagði að hefði komið sér mjög á óvart, ákvað hann að aflýsa brúð- kaupinu. Margbað Penny hann þó að giftast sér. Hann lýsti því aftur yfir við hana að hún gæti látið eyða fóstrinu. Ný yfirheyrsla Eftir að rætt hafði verið við Lee héldu lögreglumennirnir enn á fund Appletonfeðginanna. Var Reese spurður að því hvort hann vissi að dóttir hans væri með barni? Það sagðist hann vita. Lýsti hann því síðan yfir að Lee væri óþokki að hafa ekki viljað kvænast dóttur sinni sem hann hefði gert ólétta. Reese var nú skýrt frá því að Lee gæti ekki átt börn. Þessi yfirlýsing vakti svo mika reiði Reeses að hann sagðist ætla í mál við rannsóknar- lögregluna fyrir rógburð um dóttur sína. Lögreglumennirnir voru hins vegar vissir um að Penny og Reese hefðu ekki sagt sannleikann. Var hann ekki sá að Penny hafði sjálf opnað fyrir elskhuga sínum, Peter Venn, ef til vill til að ræða viö hann um ástand sitt sem presturinn bar einnig ábyrgð á? Engar sannanir En hver er þá þáttur Reeses App- leton i málinu? Er hann morðingi eða þóttist hann þess fullviss, eftir að hafa heyrt óp úr herbergi Penny, að þar væri óboðinn gestur sem ógnaði öryggi hennar? Þá væri ósvarað þeirri spurningu hvers vegna Penny æpti og kallaði á hjálp. Hún gat vart átt von á því að Venn gerði henni neitt illt. Og hvað heföi gerst hefði faðirirm ekki heyrt ópin í dótturinni og komið inn í myrkvað herbergið með skammbyssu í hendinni? Eða er sannleikurinn sá að Reese heyrði Peter Venn koma aftur inn í húsið eftir að hann hafði kvatt um ellefuleytið? Og að hann framdi morð af ásettu ráði vegna þess hvernig komið var fyrir dóttur hans? Rannsóknarlögreglumennirnir eru vissir um að þannig hafi séra Peter Venn týnt lífinu. En svo lengi sem feðginin halda fast við sögu sína er ekkert hægt að gera. Það hefur þó orðið til að gera frásögn þeirra enn grunsamlegri að þrátt fyrir að þau væru beðin að segja frá því mörgum sinum sem gerst hefði var frásögn þeirra alltaf eins. Var sem hún hefði verið æfð fyrir- fram. Venjulega, segir lögreglan, kemur fram eitthvert misræmi hjá þeim sem orðið hafa vitni aö ein- hverju þegar þeir eru beðnir um að endurtaka frásögnina hvað eftir annað. Það er ekki skemmtilegt fyrir unga konu að standa ein uppi með barn. Peter Venn er horftnn úr þessum heimi og Lee Dunnell sneri við henni bakinu. Sá eini sem hún getur leitað trausts hjá er faðir hennar, Reese, sem kann að deila með henni þungbæru leyndarmáli um atburði næturinnar í maí 1986.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.