Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Síða 46
58 LAUGARDAGúk 19. OKTÖbÉr 1991. LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA! Ilxre HELGASDVOL A SELFOSSl er ódýrari en víða annars staðar. Á Selfossi er góð sundlaug, veitingahús og krá. Dansleikir eru haldnir flestar helgar. Meðal þess sem er á dagskrá á næstunni: 26. október Hljómsveit Jóns Sigurðssonar, Hjördís Geirsdóttir og Þorvaldur Halldórsson. 9. nóvember Ný hljómsveit Ólafs Þórarinssonar (Labba). 30. nóvember Hljómsveit Ingimars Eydal. Upplýsingar um helgardvöl á Selfossi hjá hótel SEIFOSS ■B 98-22500 IE3THUS H1 B 98-22999 ÁRS AFMÆLIS- TILBOÐ Teg.: 1864 Litur: Brúnt Efni: Leður Kr. 5120,- Teg.: 1968 Litur: Svart Efni: Rúskinn Kr. 4995,- Teg.: 16 Litur: Svart Efni: Leður Kr. 2995,- L Teg.: 605 Litur: Svart Efni: Leður Kr. 3150,- 10% afsláttur af öðrum vörum vikuna 21.-26. okt. Skóversl i Helga / Síml: 75440 Göngugötunni Mjódd \ J Afmæli Jón Eiríksson Jón Eiríksson bóndi, Vorsabæ II, Skeiðahreppi, veröur sjötugur á morgun. Starfsferill Jón fæddist í Vorsabæ í Skeiöa- hreppi og ólst þar upp. Hann var viö nám í Héraðsskólanum á Laug- arvatni 1939-41. Jón stofnaði ný- býliö Vorsabæ II og hefur veriö bóndi þar síðan 1949, síðustu árin aöallega meö kartöílu- og kanínu- rækt. Jón var oddviti Skeiöahrepps 1950-90 og form. oddvitanefndar Laugaráslæknishéraös 1959-90 og er nú framkvæmdastjóri þess. Hann hefur veriö stjórnarformað- ur og rekstrarstjóri læknamið- stöövar í Laugarási frá því hún var stofnuö 1971 og síöar heilsugæslu- stööva þar. Jón hefur veriö gjaldkeri Afrétt- armálafélags Flóa- og Skeiöa síöan 1963 og átti sæti í stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga frá stofnun 1969-80. Jón er umboðsmaður skattstjóra, á sæti í stjórn Landssambands kan- ínubænda og fulltrúaráöi Lands- sambands kartöflubænda. Hann er ennfremur í stjórnum Fínullar hf„ Yleininga hf. og Jarðefnaiönaðar hf. Fjölskylda Jón kvæntist 24.6.1949 Emelíu Kristbjörnsdóttur, f. 13.1.1926. For- eldrar hennar: Kristbjörn Hafliða- son og Valgerður Jónsdóttir en þau bjuggu aö Birnustöðum í Skeiða- hreppi. Jón og Emelía eiga fjögur börn. Þau eru Valgerður, f. 8.5.1950, handavinnukennari á ísafiröi, maki Einar Valur Kristjánsson, Valgeröur á eitt barn; Eiríkur Jóns- son, f. 8.10.1953, bókasafnsfræðing- ur og safnstjóri DV, maki Hulda Jón Eiriksson. Nóadóttir, þau eiga tvö börn; Björn, f. 21.9.1955, b. í Vorsabæ II, maki Stefanía Siguröardóttir, þau eiga tvö börn; Ingveldur, f. 30.10.1962, hárskeri á Selfossi, maki Guö- mundur Ásmundsson, þau eiga tvö börn. Jón á sjö systkini og eru fimm á lífl. Systkinin eru Ragna, f. 13.8. 1917, maki Hermann Bæringsson vélstjóri, látinn, þau eignuöust þrjú börn; Sigursteinn, f. 14.5.1919, d. 18.12.1934; Axel, f. 11.2.1923, rafvél- virki, maki Guðbjörg Eyjólfsdóttir, látin, þau eignuðust tvö börn; óskírður drengur, f. andvana 12.6. 1925; Helga.f. 17.10.1928, b. Vorsabæ; Friðsemd, f. 23.4.1932, maki Þórkell Björgvinsson, þau eiga sex börn; Sigríður Þóra, f. 29.8. 1936, maki Ágúst Sigurðsson, þau eiga fimm börn. Foreldrar Jóns voru Eiríkur Jónsson, f. 13.4.1891, d. 28.3.1963, og Kristrún Þorsteinsdóttir, f. 19.2. 1894, d. 25.6.1966, en þau bjuggu í Vorsabæ. Ætt Eiríkur var sonur Jóns, b. í Vorsabæ, Einarssonar, b. á Syðri- Brúnavöllum, Eggertssonar. Móöir Eiríks var Helga Ragnhildur, systir Vigdísar í Miðdal, ömmu Guö- mundar frá Miðdal, fööur Errós, en Vigdís var einnig langamma Vigdísarforseta. Helga Ragnhildur var dóttir Eiríks, b. í Vorsabæ, bróður Margrétar, langömmu Sig- ríðar, móöur Vigdísar forseta. Ei- ríkur var sonur Hafliöa, hins auðga á Birnustööum, Þorkelssonar. Móöir Helgu Ragnhildar var Ing- veldur, systir Ófeigs á Fjalli, afa Tryggva útgerðarmanns, afa Trygga Pálssonar bankastjóra. Ing- veldur var dóttir Ófeigs rika á Fjalli og ættfööur Fjallsættarinnar Vigfússonar. Móöir Ingveldar var Ingunn Eiríksdóttir, dbrm. ogætt- fööur Reykjaættarinnar, Vigfús- sonar. Kristrún var dóttir Þorsteins, smiðs á Sæbóli, Teitssonar, á Ein- arsstöðum á Eyrarbakka, Helga- sonar. Móðir Þorsteins var Guörún Siguröardóttir, b. á Hrauni í Ölf- usi, Þorgrímssonar, b. í Rpnakoti, Bergssonar, í Brattsholti og ættföð- ur Bergsættarinnar, Sturlaugsson- ar. Móðir Kristrúnar var Sigríður Eyjólfsdóttir, b. í Grímslæk, Ey- jólfssonar. Nokkur félög, samtök og fyrir- tæki, sem hafa átt samstarf viö Jón, hafa ákveöið aö gefa út ljós- myndabók með u.þ.b. hundrað ljós- myndum Jóns, teknum á tímabil- inu frá árinu 1942 og til dagsins í dag, en myndunum er ætlaö að sýna breytingar sem oröið hafa á búskaparháttum á Skeiðum á tíma- bilinu. Jón tekur á móti gestum á afmæl- isdaginn í Inghóli á Selfossi kl. 17.00-19.00. Til hamingju með afmælið 20. október 90 ára Ragnhildur Jónsdóttir, Hagaflöt 2, Garöabæ. 85 ára Þóra Þorkelsdóttir, Grenímel 8, Reykjavík. 80ára Kjartan Guðraundsson, Álfaskeiði 35, Hafnarfirði. Þóra Jónsdóttir, Hverfisgötu 17, Siglufirði. Friraann Sigurðsson, íragerði 12, Stokkseyrarhreppi. Sverrir Torfason, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi. Jón Þorbergur Jóhannesson, Gnoðarvogi 30, Reykjavík. Guðmundur F. Guðraundsson, Fellsmúla 18, Reykjavík. Indriði Einarsson, Melum, Kjalarneshreppi. 70ára Guðbjörn Frímannsson, Heiðarvegi 8, Selfossi. Friðrik Óttarsson, Unnarbraut 4, Seltjarnarnesi. Hann verður að heiman. Sigbjörn Sigurðsson, Tjamarbraut3, Egilsstaöahreppi. Stefán Benediktsson, Skaftafelli 3, Hæðum, Hofshreppi. Dýrleif Kristjánsdóttir, Fjarðarvegi 17, Þórshafnarhreppi. Sigrún Magnúsdóttir, Þambárvöllum2, Óspakseyrar- hreppi. Jón Halldórsson, J Lyngholti 10, ísaflrði. Anna Garðarsdóttir, Blikahólum 4, Reykjavík. Helga S. Þorkelsdóttir, Dalalandi 6, Reykjavík. 40 ára_______________________ Ólafur D. Torfason, Tjaldanesi 17, Garðabæ. Guðrún Ámadóttir, Stapaseli 3, Reykjavík. Sigurður Steingrírasson, Hávegi26, Siglufirði. Einar Guðmundsson, Borgarvegi 20, Njarðvík. Steinunn Skúladóttir, Fossheiði 56, Selfossi. Áshjörn Jónsson, Aðalgötu 42, Ólafsflrði. Ingvar Sigurður Jónsson, Kvíholti 4, Hafnarflrði. Skarphéðinn Pétur Óskarsson, Víöihlíð 1, Reykjavík. 60ára 50 ára

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.