Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1992, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1992, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1992. Fréttir Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri á að spara 56 milljónir: Engin lausn að ýta vandanum frá einum aðila til annars - segir Valtýr Sigurbjamarson, formaður stjómar sjúkrahússins Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri; „Auðvitað er þetta mjög erfitt mál allt saman. Stjóm sjúkrahússins hef- ur að sjálfsögðu fjallað um þennan vanda en okkur er gert að spara 56 milljónir króna sem lætur nærri að séu 5% af rekstrarkostnaöi sjúkra- hússins," segir Valtýr Sigurbjarnar- son, formaður stjómar Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri, um niöur- skuröarvandann í heilbrigðisþjón- ustunni sem snýr að sjúkrahúsinu í höfuðstaö Norðurlands. Valtýr segir að stjórn FSA hafi bent á hvaða skerðingu þessi niðurskurð- ur muni hafa á þjónustu sjúkrahúss- ins. „Síðan á það eftir að koma í ljós hver niðurstaðan verður því heil- brigðisráðuneytiö hefur fjármuni sem eftir er að úthluta. Máhð er núna í ráðuneytinu og það er ekki fyrr en það fær afgreiðslu þar sem línur skýrast og við endurskoðum okkar áætlanir í ljósi þeirrar niðurstöðu," segir Valtýr. - Hvaða spamaöarleiðir sjáið þið helstar, mun t.d. koma til uppsagna? „Ég vil ekki á þessu stigi ræða um einstaka þætti þess hvernig á þessu verður tekið því að málið skýrist ekki endanlega fyrr en ráðuneytið hefur afgreitt þaö aftur til okkar. Þá fyrst verður tímabært að ræða ein- staka atriði. Ég get þó sagt að við höfum ekki gert ráð fyrir að til upp- sagna starfsfólks muni koma.“ Þær raddir hafa heyrst að stærri sjúkrahúsin í hinum einstöku lands- fjórðungum muni fá til sín mjög auk- in verkefni í kjölfar niðurskuröarins því að minni sjúkrahúsin muni mæta sínum niðurskurði með því að skera alveg niður einstaka þætti sinnar þjónustu. Óttist þið á FSA aö þið munið fá til ykkar aukin verkefni vegna þessa? „Það er margt talað þessa dagana og menn verða að sjá lokaniðurstöðu málsins áður en farið er að fullyrða slíkt. Það em skiptar skoðanir um það hvort þessi mál hafi verið skoðuð nægjanlega sem heild. í mínum huga er það engin lausn eða spamaður að ýta hlutunum bara til, frá einum aðila til annars, t.d. þannig að við hér fyrir norðan verðum aö draga svo mikið saman seglin að við þurf- um að fara að senda sjúklinga til Reykjavíkur," sagði Valtýr. Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri; „Þær ráðstafanir, sem okkur þykir sárast að þurfa að grípa til, er að þurfa aö loka skurðstofu og fæðing- ardeild í 6 vikur,“ segir Ólafur Er- lendsson, framkvæmdastjóri sjúkra- hússins á Húsavík, en lokun þessara deilda í sumar er hluti af niður- skurði sjúkrahússins þar. Sjúkra- húsinu á Húsavík er gert að draga saman útgjöld um 12 milljónir króna á árinu. „Við erum búin að gera tillögur um spamað í mörgum hðum, s.s. varð- andi lækkun launakostnaðar í hin- um ýmsu þjónustudeilum þar sem við drögum úr bakvöKtum bæði hjá læknum og öðrum starfsmönnum. Svo er ætlunin að loka annarri hæð sjúkrahússins í 6 vikur og þar með skuröstofu og fæðingardeild. Við ætl- um að draga úr yfirvinnu og afleys- ingum og það á að gefa okkur veru- w FramkvæmdastjóriBorgarspítalans: Ottast straum sjúklinga frá landsbyggðinni - segir sjúkrahúsið ekki eiga auðvelt með að hafna sjúklingum „Það er alveg ljóst að við eigum ekki auðvelt með að neita aö taka á móti bráðveiku fólki utan af landi. Hingað á stóru sjúkrahúsin í Reykja- vík kemur íjöldi sjúkhnga af lands- byggðinni til aðgerða. En ég ætla ekki htlu sjúkrahúsunum það að leysa sinn vanda með því að ýta hon- um yfir á okkur. Það væri ekki í anda góðrar samvinnu. Við höfum hins vegar vissar áhyggjur af því hvað gerist að sumarlagi þegar sum- arlokanir dembast yfir af fuhum þunga,“ segir Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans. Jóhannes segir raunverulega hættu á því aö htlu sjúkrahúsin úti á landi mæti niðurskurði með því að senda aukinn íjölda sjúkhnga th að- gerða á sjúkrahúsunum í Reykjavík. Á það við umbæði bráðsjúklinga og þá sem þurfi sértækar aðgerðir. Hann segir að í báðum tilfelíum hefði það í for með sér að biðhstar lengd- ust, einkum þó á Landspítalanum, enda meira um sértækar aðgerðir þar. Jóhannes segir að komi það í ljós að álagið á stóru sjúkrahúsin í Reykjavík aukist sé ekki hægt að mæta því nema á tvennan hátt: auknum niðurskurði á sviðum sem. ekki tengjast bráðamóttöku eða auknum framlögiun úr sameiginleg- um sjóðum landsmanna. Aðspurður segist hann ekki trúa öðru en stjóm- völd taki tilht til breyttra aðstæðna. „Það verður að taka tilht til stóm sjúkrahúscmna sem em kannski endastöð fyrir marga,“ segir Jóhann- es. -kaa Forstjóri Ríkisspítalanna: Öll aukning mun þýða aukin útgjöld - segir skeröinguna á höfúðborgarsvæðinu líka bitna á landsbyggðinni Þessir tveir piitar eru greinilega áhugasamir um jeppabifreiðar en verða, aldursins vegna, að láta sér nægja bila af þessari stærðargráðu. DV-mynd GVA Sjúkrahúsið á Húsavík: Skurðstof u og fæðingar- deild lokað í 6 vikur „Stór hluti sjúklinga Landspítal- ans er af landsbyggðinni. Öh aukn- ing mun hins vegar þýöa aukin út- gjöld fyrir okkur. Á þessari stundu geri ég mér ekki grein fyrir hvemig þessi mál þróast, til dæmis hvað muni gerast á sjúkrahúsum víðs veg- ar á landinu. Ég sé hins vegar fyrir mér að það verður mikih samdráttur í þjónustu hér á höfuðborgarsvæðinu og hann mun bitna eitthvað á lands- byggöinni," segir Davíö Á. Gunnars- son, forstjóri Ríkisspítalanna. Davíð segir að Landspítahnn geti ekki neitað að taka við bráðveikum sjúklingum, hvaðan svo sem þeir komi. I raun sé hann því endastöð sem aðrir spítalar geti vísað sjúkling- um sínum til treysti þeir sér ekki th að annast þá. í því sambandi sé ekki um neitt annað aö ræða en að duga eða drepast. Hann segir þó með öhu óljóst hvort og þá hvemig sjúkhnga- streymið til spítalans muni aukast. -kaa legar fjárhæðir," segir Ólafur. - Hvert á að senda þaö fólk sem þarf þjónustu skurðstofu og fæðingar- deildar á þeim tíma? „Það fólk verður auðvitað að fara eitthvað annað, til Akureyrar eða Reykjavíkur, ef það kemst einhvers staðar inn.“ - Erþaðeinhverlausnaðsendafólk- ið annað þegar verið er að spara. Er ekki bara verið aö ýta vandanum frá einum aöha th annars? „Jú, það er verið aö færa eitthvað á milli, það er alveg rétt. En við spör- um okkur sumarafleysingar á þessu. Við munum samt sem áður sinna bráðaþjónustu en það verður ekkert tekið inn á þessum tíma af biðhstum. Þessar Ijhögur okkar em hjá ráðu- neytinu og við vitum ekki enn hvort við fáum einhveija peninga af því sem er til skiptanna þar og getum þannig dregið úr einhverju af þess- um aðgerðum,“ sagði Ólafiir. Slökkviliðsmenn á KeflavikurflugveUi: Vilja fá reykkaf araálag og starfsflokkahækkun - ætia í skæruverkfall 17. febrúar ef ekki semst „Það er veriö að ræða saman. Við ákváðum því aö fresta frekari að- gerðum," sagði Einar Einarsson, formaður starfsmannafélags slökkvihðsmanna á Keflavíkurflug- velh, í samtah við DV. Eins og fram hefur komið í DV ákváöu slökkvihðsmenn á Veliinum aö gripa tíl eins konar skæruhemað- ar í mótmælaskyni við að kjör þeirra hafa ekki verið leiðrétt í samræmi við Kíör slökkvihðsmanna í Reykja- vík. Vallarmenn hafa hótað að hætta viðhalds- og eftirhtsstörfum. Þeir hafa gefið viðsemjendum sínum frest til 17. febrúar th að leiðrétta kjör þeirra. Starfshópur vinnur nú aö þvi að meta störf slökkvihðsmanna við viðmiðunarhóp þeirra - slökkvihös- menn í Reykjavík. Að lokinni þeirri vinnu verður matið lagt tíl úrskurð- ar hjá svokahaðri kaupskrámefnd. „Vandamálið er að fólk sem vinnur hjá Varnarliðinu hefur hvorki samn- ingsrétt né verkfallsrétt. Þama er mönnum bará skammtað af kaup- skrámefnd sem í sitja Þórarinn V. Þórarinsson, Ásmundur Stefánsson og Hahgrímur Dalberg formaöur". Samkvæmt upplýsingum DV snýst máhð um að slökkvihðsmenn á Veh- inum hafa ekki fengið svokahað reykkafaraálag og starfsaldurs- hækkanir th jafns við starfsbræður sína í Reykjavík. Það sem þeir síðar- nefndu hafa fengið umfram Vahar- menn er 20 prósent reykkafaraálag fyrir 12 tíma vakt - það er þeir sem em skráðir reykkafarar. Auk þess hafa Reykvíkingar fengið tveggja launaflokka hækkun þegar fimm ára starfsaldri er náð. „Skæruhemaði" slökkvihösmanna er hótað frá og með 17. febrúar en tahð er að starfshópurinn veröi fM vikur að skila mati sínu til kaup- skrámefndar. Hópurinn hóf störf við umrætt mál þann 27. janúar. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.