Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992.
3
Fréttir
Verðbréfamarkaðurinn:
Búist við eins
Hundur veittist
að 7 ára barni
prósentustigs
vaxtalækkun
- markaðurinn er „tilbúinn“
Starfsmenn verðbréfamarkað-
anna búast við vaxtalækkun um
sem næst eitt prósentustig bráðlega.
Þetta kemur fram í viðtölum DV við
þá. Verðbréfamenn segja aö mark-
aðurinn sé „tilbúinn" í slíka vaxta-
lækkun. Hún mundi falla vel að
aðstæðum á markaðnum um þessar
mundir.
Vextir hafa verið að lækka á verð-
bréfamarkaðinum að undantornu.
Þannig hefur ávöxtunarkrafa verð-
bréfamarkaðanna við kaup á hús-
bréfum verið um 7,6 prósent en þessi
kaupkrafa fór hæst í ríflega 9 pró-
sent síðastliðið sumar.
AfFóll frá nafnverði húsbréfa hafa
að undanfómu verið 14-15 prósent
og hafa lækkað úr 24-25 prósent frá
því semmestvar.
Ríkið hefur lækkað vexti á spari-
skírteinum sínum. En ekki hefur
enn orðið af þeirri miklu lækkun,
sem ríkisstjórnin er talin mundu
gangast fyrir ef kjarasamningar
tækjust á næstunni.
Menn hafa mest mænt til ríkisins
um lækkun vaxta á verðbréfamark-
aðinum. Ríkið hefur dregið lappimr
í þeim efnum. Það er ríkið sem held-
ur uppi raunvöxtunum í landinu.
Framboðið er lítið
um þessar mundir
Menn hafa búist við að ríkið lækk-
aði vexti á sínum pappírum, til
dæmis niður í 6,5 prósent, sem er
sú tala sem helst hefur verið nefnd
síðustu daga. Þetta yrði sem sé gert
„með handafli" ríkisins í tengslum
við kjarasamninga. Talið er víst að
bankamir kæmu á eftir ef af slíkri
lækkun vaxta yrði. Menn furða sig
á því að vextimir hafa ekki lækkað
meira nú þegar. En hvemig mundi
svona handaflsaðgerð hæfa stöð-
unni á markaðinum að þessu sinni?
Vissulega ber að forðast vaxtalækk-
Ávöxtunarkröfur, raunvextir, á Verðbréfaþingi íslands frá byrjun ársins
1991.
Sjónarhom
Haukur
Helgason
un eða vaxtahækkun með handafli
sem ekki hæfði aðstæðum á mark-
aðinum. En Sigurbjörn Gunnarsson
hjá Landsbréfum segir meðal ann-
arra, sem DV hefur rætt við, að
vaxtalækkun með handaíli mundi
nú passa markaðinum vel. Markað-
urinn er reiðubúinn í vaxtalækkun
um sem næst eitt prósentustig. Þetta
helgast af því að nú er fremur skort-
ur á bréfum á markaðinum heldur
en hitt. Þar sem framboðið er ekki
meira en þetta er vaxtalækkun eðli-
leg.
Vaxtalækkun
þó að kjara-
samningar frestist
Verðbréfamenn segja að grund-
völlur sé nú fyrir vaxtalækkun, þótt
svo færi að kjarasamningar frestuð-
ust eitthvað.
Þegar talað er um vexti í þessari
grein er átt við „ávöxtunarkröfur",
raunvexti, það er vexti umfram
verðbólgustigið.
Af aðstæðum á verðbréfamörkuð-
unum er ljóst að vaxtalækkun á
verðbréfum er tímabær. Hún ætti
að verða, hvort sem kjarasamningar
nást fyrr eða seinna. Vextir eiga í
raun ekki að vera skiptimynt í
kjarasamningum. Lækkun vaxta í
trássi við markaðsöflin yrði af hinu
illa. Málið er bara að nú er lag fyrir
verulega lækkun vaxta á verðbréf-
um.
Rannsóknarlögreglan í Hafnar-
firði hefur til meðferðar kæru vegna
hunds sem sagður er hafa veist að 7
ára stúlku og bitið hana í fótlegg í
fjörunni fyrir neðan Bala í Hafnar-
firði um síðastliðna helgi.
Samkvæmt upplýsingumDV hefur
kærandi farið fram á að hundurinn
verið aflífaður. Um það hefur hins
vegar engin ákvörðun verði tekin
ennþá. Stúlkan er ekki talin hafa
meiðst alvarlega en áverkaskýrsla
liggur ekki fyrir.
Hundurinn var í umsjá manns sem
var með hann í fjörunni ásamt öðr-
um hundum. Hann kveðst ekki vera
eigandi hundsins.
-ÓTT
í dag hefjast útvarpssendingar kl. 16 frá Selfossi á FM 91,7 og standa fram
yfir helgi til fjáröflunar fyrir sund- og frjálsíþróttadeild Ungmennafélags
Selfoss. Dagskráin verður fjölbreytt og hún hefur verið borin í öll hús á
Selfossi. Á myndinni er útvarpsráðið að störfum í Tryggvaskála en í þvi
eru frá vinstri Aðalsteinn Garðarsson, Lára Ólafsdóttir, Svanur Ingvarsson,
Þröstur Ingvarsson og Hilmar Hafsteinsson. DV-mynd Kristján Einarsson
NYR OG STÆRttl FJÖL SKYLDUBÍLL
STiUSAKUH
Þessi bill er 20 cm lengri en hin
hefðbundna SAMARA og rúmbetri.
Bíllinn hentarþví vel fjölskyldufólki. LADA
SAMARA stallbakur er fimm manna og
með lokaðri farangursgeymslu (skotti).
BIFREIDAR & LANDBÚNABARVÉLAR HF.
Ármúla 13, 108 Reykjavik, símar 68 12 00 & 3 12 36