Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992.
5
Fréttir
Guðmimdur Ámi Stefánsson um formennsku Alþýðuflokksins:
Aukin umræða
um mótframboð
„Þaö er mikil umræða í flokknum
um fólk og stefnumið. Ég held að sú
umræða fari vaxandi fremur en
hitt,“ sagði Guðmundur Árni Stef-
ánsson um hugsanlegt mótframhoð
gegn Jóni Baldvini Hannibalssyni á
flokksþinginu í haust.
Jóhanna Sigurðardóttir, varaform-
aður flokksins, sagði í viðtali við
Nýtt Líf, eins og komið hefur fram í
DV, að hún útilokaði ekki framboð
sitt til formanns á flokksþinginu.
„Það lýsist ekkert fyrr en með
haustinu en eins og Jóhanna sagði'
þá er mótframboð alls ekki útilok-
að,“ segir Guðmúndur Ámi.
Guðmundur sagði óánægjuna stafa
af stefnumörkun og starfl flokksins
í stjórninni, ásamt öðrum þáttum í
innra starfi flokksins, samband
flokksfólks og forystu.
„Það eru allir sammála um að það
samband þurfl að auka en virðist
ekki takast þrátt fyrir fógur fyrir-
heit,“ sagði Guðmundur Ami.
-pj
Þorvaldur Gylfason prófessor:
Arnór Jónatansson og börn Halidóru í tröppum Flugleiðavélarinnar við
brottförina. Talið frá vinstri Ingólfur, Erna Björk, Guðbjörg, Inga Helga og
Elísabet. Á myndina vantar Björgúlf sem fór landleiðina suður.
DV-mynd Gísli
Bömum Halldóru
boðið til Lundúna
Gisli Hjarlaison, DV, Isafirði:
Flugleiðir hafa boðið börnum Hall-
dóru Ingólfsdóttur til Lundúna þar
sem þau munu dvelja hjá móður
sinni um páskana. Halldóra er ísfirö-
ingur og hefur beðið í Lundúnum
eftir læknisaðgerð. Skipt verður um
hjarta og lungu í henni.
Á miðvikudag fóm 5 bama hennar
héðan til Reykjavíkur með Flugleiða-
vél en eitt ók suður deginum áður.
Amór Jónatansson, umdæmisstjóri
Flugleiða, afhenti börnunum flug-
miðana til Lundúna rétt fyrir brott-
fór vélarinnar. Þau sögðust í viðtali
við DV vera Flugleiðum afar þakklát
fyrir hið rausnarlega boð og hlakka
mjög til þess að hitta móður sína.
Slysavamafélagið:
Skráning á slys-
umíleikskólum
Slysavarnafélag íslands hefur
komið á skráningu á slysum sem
börn verða fyrir í sex leikskólum
á höfuðborgarsvæðinu. Fimm
leikskólar í Reykjavík og einn í
Kópavogi taka þátt í skráning-
unni. Henni lýkur í febrúar á
næsta ári og verður þá unnið úr
niðurstöðunum með hliðsjón af
úrbætum.
Hér er um að ræða hluta af
vinnu vegna átaks ýmissa aðila
gegn slysum á börnum. SVFÍ og
Rauði kross íslands hafa meðal
annars tekið upp samvinnu um
verkefni sem nefnist Vörn fyrir
börn.
Fimm stuttar kvikmyndir um
slysahættur í umhverfi bama
hafa veriö nýlega verið unnar
vegna átaksins. Þær eru nú til-
búnar til sýninga, til að mynda í
skólum eða þar sem slysavarnir
em á dagskrá.
Frá því að umrætt átak hófst
hefur borið á vaxandi áhuga ein-
stakhnga og samtaka um ráðgjöf
vegna slysavarna fyrir börn.
Hjúkrunarfræðingurinn Herdís
Storgaard hefur í því sambandi
haldið 45 kynningarfundi á síð-
ustu misserum.
Tvö bæjarfélög, Keflavík og
Njarðvík, hafa í samstarfi við
Slysavamafélagið tekið að sér
verkefni sem miðar að skráningu
og könnun á slysagildrum í bæj-
unum í þeim tilgangi að lagfær-
ingar og endurbætur verði gerðar
á slíkum stöðum. Stefnt er að því
að nota reynsluna sem vinnst
með starfmu í Suðurnesjabæjun-
um við hliðstæð verkefni í öðrum
sveitarfélögum á landinu.
-ÓTT
Bók um markaðshagf ræði
fyrir Austur-Evrópuþjóðir
„Bókin er skrifuð fyrst og fremst
handa almenningi í Austur-Evrópu í
því skyni að hann eigi kost á að
kynna sér þá hagfræði sem velferð
okkar á Vesturlöndum hefur hvUt á
síðustu 50 tU 100 árin,“ segir Þorvald-
ur Gylfason prófessor. Hann hefur
ásamt Ame Jon Isachsen, prófessor
í Noregi, og Carl B. Hamilton, pró-
fessor i Svíþjóð, nýlega gefið út bók
um markaöshagfræði með nafninu:
Umskipti - Frá miðstjóm tfl markað-
ar.
„Þegar við vorum byrjaðir að
skrifa sáum við að þessi hagfræði,
sem vomm að reyna að útskýra fyrir
austur-evrópskum lesendum, ætti
kannski erindi við suma sem standa
okkur nær. Þess vegna verður bókin
gefin út á ensku, af Oxford Univers-
ity Press, og nokkrum öðmm Vest-
ur-Evrópumálum Uka.“
Að sögn Þorvalds er taUð næstum
öruggt að bókin komi út á íslensku
og sænsku en hún er þegar komin
út á norsku og Utháisku. Formálann
að litháisku útgáfunni skrifar Lands-
bergis, forseti Litháens.
Búið er að semja um útgáfu á eist-
nesku og lettnesku og verið er að
semja um útgáfu á rússnesku og
pólsku. í Póllandi er það Samstaða
sem hefur áhuga á að gefa bókinaút
í samvinnu við Oxford University
Press. í Austur-Evrópu era bækur
gefnar út í stómm upplögum og má
því búast við að eintakafjöldinn verði
nokkur hundmð þúsund.
Aðspurður segir Þorvaldur að það
hafi verið að eigin frumkvæði sem
höfundarnir ákváðu að skrifa bókina
en það hafi ekki verið í þeim tilgangi
að græða á henni. „Svona bækur
skila engum verulegum. hagnaöi. í
Austur-Evrópu em bækur til dæmis
mjög ódýrar en nú þegar er búið að
ákveða að tekjurnar af útgáfunni í
Lettlandi renni til barnaheimilis."
Höfundarnir eiga von á því að bók-
in geti hentað til kennslu, bæði í
framhaldsskólumogháskólum. „Það
kemur á daginn að það er hægt að
kynna hagfræöi fyrir nemendum og
fyrir almenningi með svolítið nýstár-
legum hætti, það er með því að sækja
dæmin í þennan misheppnaða mið-
stjórnarbúskap sem hefur verið við
lýði í Austur-Evrópu. Þannig fá
menn annað sjónarhorn á hagfræði-
legu viðfangsefnin en ella. “ -IBS
Við bjóðum þér að taka
þátt í BMW hátíðarhelgi
laugardaginn 11. og sunnudaginn 12. apríl 1992
FRUMSÝNING:
Nýr tveggja dyra BMW 318is
Um helgina frumsýnum við nýjan tveggja dyra BMW þrist
sem um margt minnir á hinn glæsilega sportbíl BMW 850i.
Nýi þristurinn er búinn 4 eða 6 strokka fjölventlavél með
nýju jafnflæðikerfi (ICIS) og tölvustýrðu eldsneytiskerfi (DMEIII).
FjölliðafjöðrunarbúnaðurinnsemþróaðurvaríBMW Z1 sportbílnum
gefur mikla rásfestu óháð hleðslu og fjöðrun. Jöfn þyngdardreifing
(50% á hvorn öxul) gefur síðan besta fáanlega stýriseiginleika,
spyrnu og stöðugleika. Einnig verður boðið upp á tveggja dyra
þristinn sem 320is og 325is.
SÝNUM EINNIG:
BMW 3 línuna
BMW 316i og BMW318Í
BMW 5 línuna
BMW 518i, BMW 520i og BMW 520i Touring
SÖLUSÝNING:
28 glæsilegir notaðir ÐMW bílar
til sölu og sýnis um helgina
Öruggir Bílaumboðið hf. er einkaumboðsaðili
notaðir fyrir BMW bíla á íslandi. Hjá fyrir-
bílar tækinu er ásamt söludeild nýrra bíla
rekin öflug söludeild á notuðum bílum.
Notaður BMW er í mörgum tilfellum hagkvæmari kostur en kaup á
nýjum bíl af öðrum gerðum. Allir notaðir BMW bílar í eigu
Bílaumboðsins eru yfirfarnir af sérþjálfuðum starfsmönnum á verk-
stæði. Þetta tryggir að bíllinn mun reynast betur og endast lengur.
Um hátíðarhelgina munum við sýna bíla eins og BMW 730iA 1987
með öllu, BMW635i Coupe 1982, BMW323i 1986, BMW325i 1988
og BMW 318i blæjubíl. Auk þessa sýnum við mikið úrval af öðrum
notuðum BMW bílum í öllum verðflokkum. Við bjóðum hagstæð
greiðslukjör til allt að 24 mánaða og lága útborgun.
KOMIÐ OG KYNNIÐ YKKUR NYJA OG NOTAÐA BMW BILA SEM
LESENDUR STÆRSTA BILATÍMARITS EVRÓPU "AUTO MOTOR
UND SPORT,, HAFA ÁR EFTIR ÁR KOSIÐ BESTU BÍLA HEIMS.
HATIÐARHELGIN ER OPIN:
Laugardag og sunnudag kl. 13-17.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1-110 Reykjavík-Sími 686633
Engum
líkur
EINN BÍLL Á MÁNUDI í >
Y.
ASKRIFTARGETRAU^á.
OG SIMINN ER 63 27
Nauðungaruppboð
annað og síðara, verður á fasteigninni Ægisgötu 22, Ólafsfirði, þingl. eign
Margrétar Hjaltadóttur og þb. Skúla Friðfinnssonar, í skrifstofu embættis-
ins, Ölafsvegi 3, Ólafsfirði, miðvikudaginn 15. apríl 1992 kl. 10.00. Uppboðs-
beiðendur eru Skiptaráðandinn á Akureyri, Ólafsfjarðarkaupstaður, Hús-
næðisstofnun rikisins, Tryggingarstofnun ríkisins og Sparisjóður Ólafsfjarðar.
Bæjarfógetinn í Ólafsfiröi