Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992. Viðskipti Síðasta ár var ótrúlega erfitt 1 áliðnaðinum: Tap álversins í fyrra nam um 1,4 milljörðum króna - þetta er þrisvar sinnum meira tap en hjá Jámblendifélaginu Álverið í Straumsvík, ÍSAL, tapaði hvorki meira né minna en um 1,4 milljörðum króna af rekstri á síðasta ári. Þetta er um þrisvar sinnum meira tap í krónum talið en tap Jám- blendifélagsins sem tapaði tæplega hálfum miiljarði króna á síðasta ári og flestum finnst nóg um. Þetta mikla tap álversins er vegna lágs verðs á áh á síðasta ári. Verðið fór niður fyrir 1.100 doflara tonnið síðastliðið haust. Það er lægsta verð á áfl í áraraðir. Botninn. Undanfama mánuði hefur verð á Velta álversins - í milljörðum króna - 10,5 9,8 8,4 7,0 5,2 '87 ‘88 '89 '90 '91 —...—...... 853= Velta álversins datt niður vegna lækkandi verðs á áli. Engu að síður greiddi álveriö um 100 milljónir króna i framleiðslugjald til ríkisins í fyrra. áli sveiflast upp og niður fyrir 1.300 dollara tonnið. Virðist sem verðið sé fast þar í bili en spáð er hækkandi álverði þegar líður á árið vegna auk- innar eftirspumar í Bandaríkjunum. Talið er að um 1.900 dollara þurfi fyrir tonnið til að hægt sé að reka álver án taps. Tekjur álversins endurspegla hið lága verð þar sem framleiðslumagnið hefur á síöastflðnum fimm árum ver- ið á bilinu 85 til 89 þúsund tonn á ári. Tekjurnar voru 5,2 milljarðar ís- lenskra króna árið 1987 en risu hæst árið 1989 þegar þær urðu 10,5 millj- arðar króna. Á síðasta ári vom þær komnar niður í 8,4 milljarða. Þetta eru tekjur á verðlagi hvers árs. Af síðustu fimm ámm var álverið rekið með hagnaði í fjögur ár eða á timabiflnu frá 1987 til ársins 1990. Áriö 1989 var dúndurgott, þá nam hagnaðurinn um 1.420 milljónum eft- ir skatta. Afkoma álversins - á tímabilinu 1987 - 1991 í milljónum króna - 1.420 22 210 18 ■87 '88 ‘89 '90 I fyrsta skipti i fimm ár var tap á rekstri álversins i fyrra. Og þegar það varð munaði heldur ekki um það, tap upp á 1,4 milljarða króna. Uppboðið í Kaupmannahöfn: Minkaskinn hækkuðu aðeins - þyrfti helmingi hærra verð til að ná framleiðslukostnaði Verð íslenskra minkaskinna hækkaði aðeins á uppboðinu í Kaup- mannahöfn um síðustu helgi miðað við uppboðið í febrúar síðastliönum. Verð refaskinna lækkaði hins vegar aöeins. Þrátt fyrir hækkandi verð á minkaskinnum þarf helmingi hærra verð til að hafa upp í framleiðslu- kostnað hverju skinni. Að sögn Arvids Kro hjá Búnaðarfé- lagi íslands var meðalverð íslenskra minkaskinna á uppboðinu í Kaup- mannahöfn um síðustu helgi um 113 krónur danskar á skinn. Meðalverð- ið í febrúar var um 109 krónur dansk- ar. Gæði íslenskra minkaskinna eru að aukast. Aldrei fyrr hafa jafnmörg skinn farið í fyrsta flokk, eða um 30 prósent af þeim sem boðin voru upp. Aukin gæði gefa vonir um hækkandi verð. Að sögn Arvids þyrftu að fást um 218 krónur danskar í meðalverð til að hafa upp í allan framleiðslukostn- að við hvert minkaskinn, liði eins og laun bónda, fóður, afskriftir og verk- unarkostnað. Með núverandi verði næst aðeins upp í fóðurkostnað og verkun skinn- anna. Bændur fá ekkert upp í laun eða fjármagnskostnað. Refaskinn lækkuðu aðeins á upp- boðinu í Kaupmannahöfn. Að visu voru tiltölulega fá refaskinn boðin upp, þetta var fyrst og fremst uppboð á minkaskinnum. Verð á skinnum blárefs um síðustu helgi var 347 krónur danskar borið saman við 366 krónur danskar í febrúar. Verð á skinnum skuggarefs var 392 krónur danskar á skinn, 247 af silfurref og 282 af Blu Frost. -JGH Uppboðið í Kaupmannahöfn um sið- ustu helgi. Minkaskinn hækkuðu í veröi en refaskinn lækkuðu. Samtök öskjuf ramleiðenda - Kassagerð Reykjavíkur fuUtrúi íslands Tíu af helstu öskjuframleiðend- um á Norðurlöndunum stofnuðu nýlega með sér samtök norrænna öskjuframleiðenda, Nordic Carton Association. Af hálfu islands er Kassagerð Reykjavíkur hf. stofn- aðili að samtökunum. Tilgangur samtakanna er meðal annars að taka þátt í þeirri um- ræðu sem fram fer á Norðurlönd- unum um umbúðir og umhverfis- mál, ásamt því að nýta hina víð- tæku reynslu meðlima samtak- anna á því sviði. Formaður hefur verið kjörinn Mats Holm, framkvæmdastjóri hjá Schurpack Horsens í Danmörku. Varaformaður eru Timo Antila, framkvæmdastjóri hjá Tako Cart- on Plant í Finnlandi. Hin nýju samtök hafa skrifstofu sína í Kaupmannahöfn. Fram- kvæmdastjóri þeirra er Bent Peter- son. -JGH Álverið í Straumsvík borgar skatta til ríkisins eingöngu í formi fram- leiðslugjalds til ríkisins. Upphæðin er bundin við framleiðslumagn en tengist hagnaði ef hann fer upp fyrir ákveðin mörk. Framleiðslugjaldið kemur í staðinn fyrir tekjuskatt, aðstöðugjald og önn- ur gjöld. Ríkið og Hafnaríjarðarbær skipta því framleiðslugjaldinu á milli sín. Hæst nam framleiðslugjaldið um 335 mifljónum króna á árinu 1989 en á síðasta ári greiðir álverið um 100 mifljónir í framleiðslugjald þótt fyr- irtækið hafi verið rekið með jafnm- iklu tapi og raun ber vitni. -JGH Peningainarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst innlAn Overðtryggð Sparisjóðsbækur óbundnar 1-1,25 Landsb., Sparisj. Sparireikningar 3ja mánaða uppsögn 1,25-3 Sparisjóðirnir 6 mánaöa uppsögn 2,25-4 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 0,5 Allir Sértékkareikningar 1-2 Landsbanki VlSITÖLUBUNONIR REIKNINGAR 6 mánaða uppsögn 2,75-3 Landsbanki 1 5-24 mánaða 6,75-7,25 Sparisjóöirnir Orlofsreikningar 5-5,5 Allir nema Islb. Gengisbundnir reikningar í SDR 6-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsbjslb. ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyföir. 3-3,25 Landsb., Búnb. Óverötryggð kjör, hreyfðir 4,5-4,75 Landsb.,Búnb. SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innantimabils) Vísitölubundnir reikningar 1,75-3 Landsb. Gengisbundir reikningar 1,75-3 Landsb. BUNDNIR SKIPTIKJ AR AREIKNING AR Vísitölubundin kjör 6-6,5 Ðúnaðarbanki Óverðtryggð kjör 6-6.5 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 2,75-3,0 Allir nema Búnb. Sterlingspund 8,25-8,7 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7,5-8,2 Sparisjóðirnir Danskar krónur 8,0-8,4 Sparisjóöirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst OtlAn óverðtryggð Almennir víxlar (forvextir) 12,25-1 3,75 Búnaðarbanki Viðskiptavlxlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf B-flokkur 13-14,25 Búnaðarbanki Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 1 5-1 5,75 Islb. útlAn verðtryggð Almenn skuldabréf B-flokkur 9,75-9,9 Búnb.,Sparisj. afurðalAn Islenskar krónur 12,5-14,25 Islb. SDR 8,25-8,75 Landsbanki Bandaríkjadalir 6,0-6,75 Sparisjóðir Sterlingspund 11,9-12,75 Sparisjóðir Þýsk mörk 11,25-11,5 Búnðarbanki Húsnæöislán 4.9 Lífeyrissjóðslón 5-9 Dráttarvextir 21.0 MEÐALVEXTIR Almenn skuldabréf aprll 13,8 Verðtryggð lán mars 9,8 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala apríl 3200 stig Lánskjaravísitala mars 31 98 stig Byggingavísitala mars 598 stig Byggingavfsitala mars 187,1 stig Framfærsluvisitala mars 160,6 stig Húsaleiguvlsitala apríl = janúar VERÐBRÉFASJÓOIR HLUTABRÉF Sölugengl bréfa veröbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 6,177 Sjóvá-Almennar hf. 4,?5 4,75 Einingabréf 2 3,282 Ármannsfell hf. 1,90 2,15 Einingabréf 3 4,057 Eimskip 4,77 5,14 Skammtímabréf 2,054 Flugleiðir 1,66 1,86 Kjarabréf 5,805 Hampiðjan 1,30 1,63 Markbréf 3,123 Haraldur Böðvarsson 2,85 3,10 Tekjubréf 2,116 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 1,10 Skyndibréf 1,794 Hlutabréfasjóðurinn 1,60 1,68 Sjóðsbréf 1 2,959 Islandsbanki hf. 1,61 1,74 Sjóösbréf 2 1,940 Eignfél. Alþýðub. 1,58 1,71 Sjóösbréf 3 2,045 Eignfél. Iðnaðarb. 2,12 2,29 Sjóðsbréf 4 1,743 Eignfél. Verslb. 1,41 1,53 Sjóðsbréf 5 1,232 Grandi hf. 2,60 2,80 Vaxtarbréf 2,0814 Olíufélagið hf. 3,86 4,32 Valbréf 1,9508 Olís 1,78 2,00 Islandsbréf 1,299 Skeljungur hf. 4,23 4,82 Fjórðungsbréf 1,137 Skagstrendingur hf. 4,60 5,00 Þingbréf 1,295 Sæplast 3,35 3,55 öndvegisbréf 1,277 Tollvörugeymslan hf. 1,20 1,25 Sýslubréf 1,320 Útgerðarfélag Ak. 4,25 4.60 Reiöubréf 1,252 Fjárfestingarfélagiö 1,18 1,35 Launabréf 1,013 Almenni hlutabréfasj. 1,10 1,15 Heimsbréf 1,115 Auðlindarbréf 1,04 1,09 Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20 Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 3,50 1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi. K= Kaupþing, V = VlB, L= Landsbréf, F = Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam- vinnubanka Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.