Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Síða 7
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992.
7
Fréttir
Gjaldþrot Prentverks Odds Bjömssonar á Akureyri:
Mátum ekki
stöðuna rétt
segir Bjami Sigurðsson, einn af eigendum fyrirtækisins
Stórhýsi POB við Tryggvabraut. Bygging þessa húss reyndist fyrirtækinu
erfittfjárhagslega. DV-myndgk
Mótmæla nýj-
um tollum á
kex og kökur
Félag íslenskra stórkaup-
maima, FÍS, hefur sent fjármála-
ráðuneytinu mótmælabréf vegna
nýrrar reglugerðar um jöfnunar-
tolla á innflutt brauð, kex, kökur
og súkkulaðl
„Jöfnunartollamir byggjast á
millirikjasamningum sem ganga
út á þaö að innlend framleiðsla
eigi að sitja við sama borö og inn-
flutt," segir Friörik Sophusson
fjármálaráöherra.
„Við myndum heldur vilja aö
innlendir framléiðendur fengju
að kaupa mjólkurduft á heims-
markaðsverði. Nú þurfa þeír aö
kaupa það á framleiðsluverði frá
mjólkursamlögunum,“ segir Stef-
án S. Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri FÍS. „Reglugerðin mun
skapa ringulreið þar sem gjaldið
er breytilegt eför toliflokkum.
Slik ringulreið var algeng fyrir
1987. Við erum líka hræddir um
að verið sé að fara aftur til þeirra
tíma þegar íslendingar töldu sér
hag í því að kaupa sælgæti er-
lendis," -IBS
Sluppuviðinnslgli
Gyffi Eristjánsson, DV, Akureyxi:
Eigendur þrettán fyrirtækja á
Akureyri sluppu viö að fá inn-
sigli bæjarfógeta á fyrirtæki sín
í vikunni Aðgerðimar vom fyr-
irhugaðar vegna ógreidds virðis-
aukaskatts, en heildarupphæð
krafna á hendm þessum aðilum
nam 8 milJjónum. Þeir gengu frá
sínum málum áður en til aðgerða
kom.
Gyffi Kristjánsscm, DV, Akureyri:
„Þetta hefur veriö erfiður rekstur
í mörg ár og ekki hægt að tala um
neinn einn þátt öörum fremur sem
leiddi til þessarar niöurstöðu. Þama
koma til margir samvinnandi þætt-
ir,“ segir Bjarni Sigurðsson, einn af
eigendum Prentverks Odds Bjöms-
sonar á Akureyri, sem að öllum lík-
indum verður tekið til gjaldþrota-
meðferðar í dag.
Bókaforlag Odds Björnssonar var
stofnað árið 1897 í Kaupmannahöfn.
Skömmu síðar, eða árið 1901, var svo
Prentverk Odds Björnssonar stofnað
og þau sameinuð og er þetta fyrir-
tæki því með þeim elstu í þessari
starfsgrein hér á landi.
Bjami Sigurðsson segir að fyrir-
tækið hafi um miðjan áttunda ára-
tuginn ráðist í byggingu stórhýsis við
Tryggvabraut, hús sem er um tvö
þúsund fermetrar. í kjölfarið hafi
komið mikill kostnaöur við tækni-
væðingu vegna tilkomu ofsettækn-
innar sem þá var að halda innreiö
sína, aukin samkeppni á markaðn-
um, vaxtaþátturinn spili þarna stór-
an hlut, svo að eitthvað sé nefnt.
„Það væri hins vegar heimska að
neita því að við höfum gert mistök
og ekki metið stöðuna rétt, við verð-
um bara að horfast í augu við það,“
segir Bjarni.
Fyrir nokkrum ámm voru viðræð-
ur í gangi mjlli POB og Dagsprents
um sameiningu fyrirtækjanna. Það
mál stöðvaðist þegar ekki tókst að
selja eignir. Bjarni segir að stórhýsi
POB ætti undir eðlilegum kringum-
stæðum að vera á annað hundrað
milljóna króna virði en það væri
ekki hægt að selja hana.
Hjá fyrirtækinu hafa að undan-
fórnu starfað um 25 manns. Það mun
vera vilji Landsbankans, sem fer
fram á gjaldþrot fyrirtækisins, að
halda rekstrinum áfram um sinn
a.m.k. en það kemur síðan í hlut
væntanlegs bústjóra að taka ákvörð-
un um framhaldið.
Páskarnir:
Straumurtil
Akureyrar?
Gyffi Krialjánssori, DV, Akuxeyxi:
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugleiðum er mikið um bókanir
til Akureyrar nú fyrir páskana.
Má segja að „traffíkin" byxji strax
nú um helgina því fullbókað er í
allar ferðir í dag og á morgun.
Flugjeiðir bæta við feröum og
fljúta með þotum norður á mið-
vikudag og á skírdag.
Hins vegar var ekki mjög mikið
um bókanir á þeim hótelum á
Akureyri sem DV hafði samband
við. Gunnar Karlsson, hótelstjórí
á Hótel KEA, sagði að hótelið
væri hálfbókað yfir hátíðina en
þar eru í gangi sértilboð og af-
sláttur frá venjulegu verði um
50% og meiri fyrir unglinga.
Olga Örvarsdóttir hjá Hótel
Norðurlandi sagði að ekki væri
enn mikið um bókanir þrátt fyrir
fiölmargar fyrirspumir enda
væri það reynslan aö fólk bókaði
ekki mikið gistingu með löngum
fyrirvara um páska. Á Hótel
Norðurlandi verður líka í gangi
sérstakt tílboð á gistingu.
Þeir sem DV ræddi við voru
sammála um það að „páskagest-
ir“ á Akureyri gisti mikiö í orlofs-
íbúðum í bænum en þær munu
vera um 120 talsins.
Skíðasvæöið í Hhðarfialli verö-
ur opiö um páskana en þar er nú
ágætur snjór þótt ekki sé hægt
að hafa allar lyftur opnar. Leikfé-
lag Akureyrar er með fiórar sýn-
ingar á íslandsklukkunni um
páskana og veitinga- og skemrati-
staðir bæjarins opnir eins og lög
leyfa.
afsláttur af
innrömmun, plaggötum og
tilbúnum álrömmum til 15. apríl.
Mynd í lit, 56x71 cm Verð 3.840 m/ramma
Islensk
grafík
Málverk
eftir
Atla Má
Gallerí
plaggöt
Verð 3.840 m/ramma
Mynd í lit, 56x71 cm
Opið laugard. kl. 1C 1-18 .
RAMMA ^ ð □—
MIÐSTOÐIN
SIGTÚN 10, 105 REYKJAVÍK SÍMAR 25054 - 621554.