Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Page 9
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992.
9
Utlönd
Majorbarðist
við brjálaða
iávarðinn
John Major, forsætísráðherra
og sigurvegari í bresku þingkosn-
ingunum, átti í heimakjördæmi
sínu í haráttu við Sutch lávarð
sem bauð sig fram fyrir hönd
BijálaðaflokMns. Lávarðurinn
mælti eindregið með þvi að kjós-
endur veldu brjálsemina því hun
væri heilbrigðust af öllu.
Major haíði sigur á lávaröinum
sem og öðrum sem buðu sig fram
í Huntington. Mörgum þótti það
líklegt til að vekja athygli að
bjóða sig fram gegn forsætisráð-
herranum. Því var einna álitleg-
ast saöi af furðufuglum í fram-
boði í kjördæmi hans.
Meöal baráttumála bijálaöa lá-
varðarins var að breyta þinginu
í vitlausrahæli og flytja krókódíla
í Thamesána. Þátaldi hann vanta
snáka og eðlur í runnana við
þinghúsiö.
Edward Heath
náðiafturkjöri
Edward Heath, fyrrum forsæt-
isráðherra Breta og leiðtogi
íhaldsflokkins á undan Margréti
Thatcher, náði enn kjöri og verð-
ur nú sá þingmaður sem setið
hefur lengi í neöri deild breska
þingsins. Heath er 75 ára gamail
og segist vera „faðirinn i deild-
inni“.
Haft var á orði í Bretlandi að
Heath vildi fyrir alia rauni halda
sæti sínu til aö geta verið síðasta
kjörtímabilið á þingi án þess að
Thatcher væri þar hka. Járnfrúin
Thatcher velti Heath úr sessi leið-
toga íhaldsflokksins árið 1975.
Hann hefur aldrei getað fyrirgef-
ið henni óleikinn.
Sfjóramálaskýrendur í Bret-
Iandi segja að enginn þingmaður
þar í landi hafi veriö lengur í fýlu
enHeath. Reuter
Úrslit kosninganna
í Bretlandi
Fylgi þingflokkanna fyrir
kosningar
□ íhaldsmenn □ Frjálslyndir
□ VerkamannafL □ Aðrir
Fylgi þingflokkanna eftir
kosningar
N-lrland
Flokkar
1983
1987
1992 (Spá)
Ihaldsfflokkur
Verkamannaflokkur
Frjálslyndir demókratar
Sambandsmenn í Ulster
Skoskir þjóðernissinnar
Velskir þjóðernissinnar
Aðrir
42,4%
27,6%
25,4%
4,6%
42,3%
30,8%
22,6%
2,5%
1,3%
0,3%
0,2%
40,0%
36,0%
21,0%
1,0%
0,3%
2,0%
Jl -V »J
LögreglusQóri
græddiáfölsk-
umbeinutn
Lögreglustjóri í þorpi einu í
Víetnam piataöi tfirvöld heldur
betur upp úr skónum með því aö
segja dýrabein, trjárætur og leðju
vera leifar af víetnömskum her-
mönnum sem létu lífið í striðinu.
Og það sem meira er, hann
græddi á svikunum.
Stjórinn afhenti það sem áttu
að vera líkamsleifar 427 manna
en 237 þeirra voru plat. Aö sögn
opinbers dagblaös í Hanoi verður
tekið mjög strangt á máli þessu.
Viðkomandi yfirvöld höfðu
boðið að greiða sem svarar um
tvö hundruö krónur fyrir hveijar
líkamsleifar.
Raunsæismenn
ogróttækirbít-
astáiíran
franir ganga að kjörborðinu í
dag og í fyrsta skipti verða þeir
að velja afdráttariaust á milli
raunsæismanna og róttækra eft-
irmanna æjatolla Khomeinis.
Harðlinudagblað í Teheran
hvatti menn í gær tO aö leggja
ágreining sinn til hliðar og beina
árásum sínum gegn heföbundn-
um óvinum byltingarinnar,
Bandaríkjamönnum og „blóð-
sjúgandi skósveinum þeirra“.
Lítil von er þó til að slíkt gerist.
Rafsanjani forseti fer fyrir
raunsæismönnum sem vilja
meira frjálsræöi í efhahagsmál-
um og auka tengslin við Vestur-
lönd. Harölínumenn vilja hverfa
aftur til fyrri byltingarmóðs og
herðamiðstjórnina á efhahagslíf-
inu.
Kosningabaráttan fór mjög
kurteislega fram miðað við það
sem gerist á Vesturlöndum og
féllu aldrei styggðaryrði milli
keppinautanna. Rcuter
Kynningarfundur með fararstjóranum, Unni Guðjónsdótlur, verður i húsakynnum ferða-
skrifstofunnar Land og Saga. Bankastræti 2, laugardaginn 11. april kl. 16.00. Sýndar
verða litskyggnur og eftir kynninguna mun Unnur svarar fyrirspurnum. Kaffiveitingar.
12. mai
Kl. 07.30 verður flogið með Flugleiöum til
Stokkhólms og kl. 16.45 verður lagt af stað frá
Stokkhólmi til Pekíng með Boeing 767 breíð-
þotu frá Air China.
13. mat Pefcing
Kl. 08.10 er lent i Peking og þar með byrjar
eevintýraferðin mikla. Hvíldartími fram að há-
degismat en eftir hann verður farið i skoðunar-
ferð um borgina. Það sem m.a. verður heim-
sótt er Torg hins himneska friðar, Grafhýsi
Maós, Musteri himinsins og jaðeverksmiðja.
Um kvöldið býðst þeim sem vilja að sjá sýníngu
á Pekingóperu.
14. maf Pefcing - Xian
Eftir morgunmat verður flogið til Xian. Þar verð-
ur Stóra gæsapagóöan og borgarmúrar Xían
skoðuð. Búíð á Tang Cheng Hotel,
15. mai Xian
Grafhvelfing Shi Huan Di skoðuð en eftir há-
degi verður keyrt að hverasvæði þar sem hægt
er að baða síg í hinum aldagömlu Hua Hing
laugum. Þá er keyrt til Banpo sem er 6500 ára
gamalr þorp sem fornleifafræöingar fundu á 5
áratugnum. Eftir kvöldverð er slðan boðið upp
á söngva- og dansskemmtun eins og þær tíðk-
uðust á Tang-keisaratímabilinu eða á árunum
frá 618-907.
16. maí Xisn - Guilin
Fyrir hádegi verður farið i skoðunarferð um
Xian og að hádegismat loknum verður flogið
frá Xian til Guilin. Fariö verður I skoðunarferð
upp á Glitvefnaðarhæðír. Gist á Gui Shan Hotel.
17. maí Guilin
Bátsferð á U-fljótinu, hádegisverður um borð.
Til baka verður farið með rútu og stoppað við
Reyrflautuhellinn og keyrt um Filahæðir.
18. maí Gullin - Shanghai
Eftir morgunmat verður flogið til Shanghai. Þar
verður hið fræga Jaðe-Búddahof og Yu-garð-
urinn, sem er frá Ming-tlmabilinu, skoðuð.
Búið á Cypress Hotei.
19. mai Shanghai - Suzhou
Dagurinn byrjar á búðarrápi í Nanjing-straeti
en siðan verður farið með lest frá Shanghai tii
Suzhou. Eftír hádegismat verða Tlgrisdýrahæð-
ir. skrautsaumastofur og Fiskimannagarðurinn
skoðuð. Gist á New World Aster Hotel.
20. maí Suzhou - Wuxi
Keyrt af Jinihu-vatninu og leitað að perlum,
þá veröur Garður hinna auðmjúku stjórnenda
skoðaður. Eftir hádegismat yerður hið fraaga
Panman-hlið kannað og síðan farið með bát
tíl Wuxi þar sem silkiverksmiðja verður skoðuð.
Búíð á Hote! Hubin.
21. maí Wuxi
Fyrir hádegi verður farið til þorpsins Huaxi sem
tatið er vera eítt fegursta þorp Klna. Hádegis-
matur verðgr á bóndabæ í grenndínni og eftir-
miðdagurinn notaður til að skoða þorpið.
22. maí Wuxi - Nanjlng
Keyrt að Taihu-vatninu og frá Skjaldbökuhöfða
verður hið fjölbreytta mannlif á vatninu upplif-
að. Þá býðst taekifæri til að skoða barnaheimili
á staðnum. Eftir hádegismat verður farið með
lest til Nanjing. A leiðinni til hótelsins er keyrt
að YanUe-brúnni. Búið á Mandarin Chamber
Hotel. 23. maí Nanjing - Peking
Eftir morgunmat verða Sun Yat-Sen grafhýsið
og Ming-gröfin skoðuð en Sun Yat-Sen var
fyrsti forseti lýðveldisins Kina. Að hádegismat
loknum verður farið að Xuanwu-vatninu. Kl.
16.45 verður flogið frá Nanjing til Peking. Gist
á Grace Hotel.
23. mai Peklng
Fyrir hádegi verður stóri múrinn heimsóttur en
seínni part dags verður Ming-grafarsvæðið í
neðanjarðarhöllinni skoöaö. A leiðinni tíl baka
er komið við í smeitverksmiðju.
25. mai Peking
Strax eftir morgunmat verður Forboðna borgín
heimsótt og dvalíð þar fram að hádegi en þá
verður sumarhöllin skoðuð. Um kvöldið verður
hátlðarkvöldverður með pekingönd og tilheyr-
andi.
26. mai Peklng - Stokkhólmur
11.45 verður flogið frá Peking og lent í Stokk-
hólmi kl 14.40.
27. maí Kl. 13.00 flogíð frá Stokkhólmi til
Keflavfkur.
ÆVINTÝRAFERÐ
Verð kr. 178.000
TIL KlNA
12.-27. maí
með
Unni Guðjónsdóttur
ballettmeistara
í tveggja manna herbergi
inniialið í verð er: Allt flug, gisting á 1. flokks hótelum, fullt læði,' þ.e. þrjár máltiðir á dag,
allar skoðunarferðir og islensk fararstjórn.
FERÐASKRIFSTOFAM
LADD <Sí SAQA
HVERFISGÖTU 6 -121 REYKJAVÍK
SÍMI 91-610061