Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Side 10
10
FÖSTUDAGUR 10. APRlL 1992.
DV
Norðmenn
herma eftir
danska Matador
Norðmenn ætla sér ekki að vera
neinir eftírbátar frænda sinna
Ðana i sjónvarpsþáttagerö. Þeir
hafa því ákveöið að framieiða eig-
in átján þátta röð sem á að vera
svar við hinum danska „Mata-
dor“ sem naut gífurlega vinsælda
á öllum Norðurlöndunum.
Framhaldsílokkurinn á að
heita „Vestanvindar“ og þar
verður rakin saga Noregs frá lok-
um heimsstytjaldarinnar síðari
til ársins 1972 þegar umræðan um
Evrópubandalagið sundraðí fjöl-
skyldum, vinum og aliri þjóðinni.
Allir helstu leikarar Noregs
verða með í myndaflokknum og
frumsýning er áætluð 1994.
Sænskirfáað
veðjaáEvrópu-
söngvakeppnina
Sænskir spámenn geta nú
hugsaö gott til glóðarinnar því aö
rikisstjómin veitti sænsku get-
raununum heimild í gær til að
reka veðbanka fyrir Evrópu-
söngvakeppnina sem haldin
verður þar í sumar.
Rök rikisstjómarinnar fyrir því
aö leyfa veðmálin era einfaldlega
þau að alltaf sé þörf á tekjum af
spilafíkn borgaranna. Svíar
hefðu hvort eð er veðjaö á keppn-
ina og þá fyrir miliigöngu breskra
veðmálafyrirtækja.
Jórdaníukon-
ungurfærhest-
innsinn aftur
ísraelsmenn skiluðu Hussein
Jórdaníukonungi aftur stroku-
hesti hans í gær og létu iriðará-
kall frá bömum fylgja með.
Hesturinn slapp út á þriðjudag
og synti yfir Akabaflóa til ísraels
þar sem honum var gefið að éta
og gert var að sárum hans.
Jórdanir buðust til að borga
fyrir allt umstangið en ísraels-
menn afþökkuðu boöið.
Hesturinn var afhentur réttum
eigendum í suöur-ísraelsku eyði-
mörkinni, ásamt bréfi þar sem
börn báðu konung um að semja
um frið.
Alitíiagimeð
golff erðir vara-
forsetans
George Bush Bandaríkjaforseti
tók upp hanskann fyrir Dan Qua-
yle, varaforseta sinn, þegar notk-
un hans á flugvélum hersins til
golfferða barst í tal. Forsetinn
sagði að eín af kvöðum varafor-
setaembættisins væri að nota
flugvélar i eigu hins opinbera.
Mikið stríð stendur nú yfir í
Bandaríkjunum vegna aUs kyns
hlunninda framkvæmdavaidsins
og í skýrslu frá ríkisendurskoðun
segir að Quayle hafi ferðast með
herflugvélum milli golfvalla.
Njósnararallra
landa koma
saman í Sofíu
Njósnarar frá þrjátíu löndum
köstuðu af sér dulargervinu í gær
þegar þeir komu saman til
tveggja daga fundar í Soííu í Búlg-
aríu. Tilgangurinn er að ræða
endurskipulagningu njósna-
stofhana í löndum sem áöur lutu
kommúnistum og nánari sam-
vinnu i baráttunni viö hryðju-
verkamenn og eiturlyfjasala.
Einn skipuleggjendanna sagði
að þetta væri fy rsti fundur sinnar
tegundar.
NTB, TT og Reuter
Útlönd_____________________
Ætlaði aðskjóta
íklofiðákeppi-
nautsínum
íástarmálum
Viti sínu fjær af afbrýðisemi
gekk 35 ára gamall Kaupmanna-
hafnarbúi að keppinaut sínum i
ástarmálum á götu þar í borginni
og míðaði með stórrí skamm-
byssu á klofið á honum.
Eljarinn náði að snúa sér í hálf-
hring áður en skotið reiö af. Fær-
iö var aðeins faeinir metrar og fór
kúlan í gegnum lærið og straukst
við punghm á honum þegar hún
fór í gegn.
Maðurfnn er alvarlega sár en
heldur þó getu sinni til kvenna,
aö sögn lækna á ríkissjúkrahús-
inu í Kaupmannahöfn.
BjörnBorgreyn-
iröðrusinniað
byrja aftur
Sænski tennissnillingurinn
Björn Borg ætlar að reyna ööm
sinní að byrja aftur í íþrótt sinni.
í fyrra hugðist hann auka tekjur
sinar með því að taka þátt í
keppni eftir nokkurt hlé en fór
miklar hrakfarir fyrir keppinaut-
um sínum.
Nú er Bjöm búinn aö æfa stíft
síöustu mánuði og segist betur
undir keppni búinn en i fyrra.
Hann heftir leikið æfmgaleiki viö
þekkta tenniskappa og haft betur.
Öðru máli kann þó að gegna þeg-
ar í raunverulega keppni er kom-
ið.
Bjöm hefur hin síðari ár átt við
veruleg fiárhagsvandræði að
stríða eftir að hafa saftiast mikið
fé meðan hann var frægasti
tenniskappi heims.
Noregskonung-
urviðurkennir
yfirburði Svía
Sænskir blaðamenn hafá það
eftir Haraldi Noregskonungi að
Norðmenn líti enn á Svía sem
stóra bróöur.
Svíum þykir þetta góð játning
og nokkur sárabót eftir að Norð-
menn náðu algerum yfirburöum
á sviði skíðaíþróttarinnar með
frækilegri framgöngu á ólympíu-
leikunum í Albertville. Þar sóp-
uðu Norðmenn að sér verðlaun-
unum en Svíar fengu aðeins ein.
Orð kommgs valda því nú að
Svíar tala vel um Norðmenn og
segja aö konungur þeirra sé góð-
ur maöur, réttsýnn, fyndinn og
jafnvel líkur Ólafi foður sínum.
Svo vinsamleg ummæli hafa
ekki gengið milli þjóðanna lengí,
enda haía Sviar og Norðmenn
löngum eldað grátt silfur þótt í
góðu hafi verið hin síðari ár.
Skandia hafði
beturísam-
keppninnivið
Hafnia
Úrslit liggja nú fyrir í sam-
keppni tryggingarisanna Skandia
og Hafnia um hituna á norrænum
tryggingamarkaði.
Sænski risinn Skandia haföi
betur og hefur eignast meirihluta
í danska keppninautnum Hafnia.
Hafhia iagði of mikið undir í
tilraunum sinum til að ná meiri-
hluta í Skandia á síöasta ári.
Verulegt tap varð á rekstrinum
og Skandia gekk á lagið og keypti
meirihlutann i eignarhaldsfélagi
Haftiia.
Greitt var með hlutabréfum i
þriöja keppinautnum, UNI Store-
brand fVá Noregi, sem stóö meö
Hafhia að tílraununum til að ná
tökum á Skandia.
Ritzau og TT
Á fyrstu sambúðarárum hertogahjónanna af Jórvík var til þess tekið hve samrýmd þau voru. Nú er komið á daginn
að milli þeirra er enginn fjandskapur þrátt fyrir skilnað og Andrew ætlar sér að verja heiður konu sinnar.
Símamynd Reuter
Andrew prins og hertogi af Jórvík kemur á óvart:
Styður Fergie en
ekki móður sína
- vill ekki aö talsmenn drottningar tali illa um konu sína
Andrew prins og hertogi af Jórvík
hefur komið á óvart með því að snú-
ast gegn Elísabetu Bretadrottningu,
móður sinni, í skilnaðarmáli sínu og
Söm Ferguson.
Andrew hefur snupraö talsmenn
konungsfiölskyldunnar fyrir að
reyna að sverta Fergie konu sína með
ósæmilegum athugasemdum. Vitað
er að drottningu er mjög í nöp við
þessa tengdadóttur sína og efamál
að starfsmenn í Buckinhamhöll láti
frá sér fara orð um fiölskyldu hennar
án þess að hún samþykki.
Því túlka bresk blöð óánægju
Andrews með hvernig hallarmenn
tala um Fergie á þann veg að hann
hafi risiö upp gegn móður sinni og
vilji aö skilnaðurinn við Fergie verði
sem sársaukaminnstur og að bæði
geti verið sátt á eftir.
Til þessa hefur verið tahð að
Andrew væri mjög háður móður
sinni og fylgdi henni að málum. Nú
þykir hertoginn hafa sýnt að hann
hefur bein í nefinu og lætur gömlu
konuna ekki ráöa öllu.
Andrew og Fergie hafa bæði leitað
til Davids McDonough, ráðgjafa í al-
mannatengslum, eftir aðstoð við að
láta skilnaðinn líta vel út. Hann
starfar á eigin vegum en venja er að
fólk úr konungsfiölskyldunni leiti til
starfsmanna drottningar eftir ráð-
gjöf.
Vinir hertogahjónanna segja að
Andrew mislíki hvernig reynt er að
gera lítið úr Fergie opinberlega með
yfirlýsingum um að hún hafi ekki
verið konungsfiölskyldunni samboð-
in. Þetta fólk segir að Andrew sé
mjög stoltur maður og vilji ekki að
kona hans sé niðurlægð þótt hjóna-
band þeirra hafi farið út um þúfur.
Afríkuleiðtogar lofa bragarbót:
Milljónir hungraðra fá mat
Leiötogar landanna í homi Afríku
þar sem miklir þurrkar hafa geisað
hétu því í gær að leyfa dreifingu á
matvælaaðstoð til milljóna fórnar-
lamba stríðsátaka á svæðinu.
„Gmndvallarréttur fólksins á
svæðinu til aö fá matvæli og aðra
neyöaraðstoð verður að fuOu virt-
ur,“ sagði í lokayfirlýsingu leiðtoga-
fundarins, hins fyrsta sinnar tegund-
ar, sem haldinn var í Addis Ababa í
Eþíópíu.
Sameinuðu þjóðirnar telja að
hungursneyð vofi yfir rétt tæpum
fióröungi þeirra eitt hundrað miOj-
óna manna sem búa í löndunum í
homi Afríku, Súdan, Keníu, Eþíópíu,
Djibouti og Sómalíu.
Meira en tvö þúsund flóttamenn frá
átakasvæðum í Súdan, Sómalíu og
suöurhluta Eþíópíu streyma til Ken-
íu á degi hveijum. Starfsmenn hjálp-
arstofnana segja að styijaldarátök
eigi jafn mOda sök á því og hungur-
sneyð að ástandið nú er jafnvel enn
skelfilegra en í hungursneyðinni í
Eþíópíu 1984 þegar umheimurinn
brást skjótt við.
Reuter
Leiðtogar ríkjanna í horni Afriku hafa heitið þvi að leyfa matvælaaðstoö
aö ná til manns eins og þessa i Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, sem liður
hungur vegna striðsátaka i landinu. Símamynd Reuter