Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Qupperneq 18
26
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992.
íþróttir unglinga
Þróttur frá Neskaupstað sigraði í 4. flokki kvenna. A myndinni eru, frá vinstri: Þóra Matthildur Þórðardóttir fyrir-
liði, Sigríður M. Guðjónsdóttir, Anna Guðlaug Guðnadóttir. Fyrir framan er íris Dögg Jónsdóttir. Því miður náðist
ekki í allar stelpurnar. DV-myndir Hson
DV
Blakúrslit á íslandsmótinu
Hér á eftir fara úrslit einstakra
loikja í úrslitakeppni islandsmóts-
ins. Frammistaöa Þróttara frá Nes-
kaupstað kemur ekki beint á óvart
þar sem blakiö nýtur þar mikilla
vinsælda.
4. flokkur karla:
Stjaman - HK.....................2-1
Þróttur, N. - HK.................2-0
Stjarnan - Þróttur, N............1-2
Stjarnan - Þróttur, R............2-0
Þróttir, R. - HK.................0-2
Þróttur, R. ~ Þróttur, N.........0-2
KA - Stjaman.....................0-2
HK-KA .2-0
Þróttur, N. - KA.................2-0
KA-Þróttur,R ............................2 0
1. Þróttur, N. íslandsmeistari : :
2. Stjarnan
3. HK
4. KA
5. Þróttur, Rvk
4. flokkur kvenna:
HK-Þróttur,N..............0-2
Þróttur, N. - HK................2-1
1. Þróttur, N. íslandsmeistari
2. HK
5. flokkur, blandaður:
A-riðill:
Þróttur, N.(2) - Þróttur, N.(3 ) 2H)
Þróttur, R. - Þróttur, N.(3)... .......2—0
Þróttur, N(2) - Þróttur, R 0-2
B-riðilI:
±-'1 ULLLtl , IN .^1) “ Þróttur, N.(4) - Stjarnan 2-0
Stjarnan - HK 2-0
Þróttur, N.(l) - Stjarnan 2-0
Þróttur,N.(4)-HK 0-2
Þróttur, N.(l)-Þróttur, I L(4)2-0
1. Þróttur, N.(l) islandsmeistari
2. Þróttur, Rvk
3. Þróttur, N.(2)
4. HK
5. Stjaman
6. Þróttur, N.(4)
7. Þróttur, N.(3)
-Hson
Islandsmót unglinga i blaki:
Þróttur, Neskaupstað
sigraði í öllum f lokkum
- við framleiðum, í raun, leikmenn fyrir félögin fyrir sunnan, sagði Ólafur Sigurðsson, þjálfari
Þróttar frá Neskaupstað fóra í
sannkallaða sigurferð í úrslita-
keppni íslandsmótsins í blaki fyrir
yngstu flokkana sem fór fram helg-
ina 28. og 29. mars í íþróttahúsinu í
Garðabæ. Keppt var í 4..flokki karla
og kvenna og 5. flokki blandaðra liða.
Yfirburðir Þróttar, Neskaupstað,
voru talsverðir og ekkert lið gat ógn-
að þeim nema kannski Stjarnan í 4.
flokki karla en leik þeirra gegn Aust-
fjarðaliðinu varð að útkljá með odda-
lotu.
Það gekk vel núna
Ólafur Sigurðsson er „prímus mót-
or“ blaksins í Neskaupstað og er
hann einnig þjálfari flokkanna
þriggja sem urði íslandsmeistarar að
þessu sinni.
„Ég tel þessa krakka, sem við tefl-
um hér fram, mjög efnilega. Þau eru
alhliða mjög sterk því þau keppa í
fjölmörgum öðrum íþróttagreinum,
fótbolta, skíðum, sundi, svo aö eitt-
hvaö sé nefnt. Aðalvandi okkar er
hvað íþróttahusið er lítið en við eygj-
um í nýtt og stærra á næstunni. Þessi
velgengni okkar núna stafar að sjálf-
sögðu af því að við emm með alla
flokka í gangi, alltaf. Það myndast
aldrei nein glufa. Þetta hefur gengið
þannig fyrir sig hjá okkur undanfar-
in sex ár. Algengt er að við missum
þau frá okkur í 2. og meistaraflokki
og fara flest suður til Reykjavíkur í
nám. Auðvitað er eftirsjá af þessum
krökkum en það er erfitt viö að eiga.
Það er ljóst að viö erum í raun að
framleiða leikmenn fyrir félögin fyr-
ir sunnan,“ sagöi Ólafur.
Gott að búa í Neskaupstað
Egill Örn Sverrisson, 14 ára, fyrirhði
4. flokks Þróttar, Neskaupstaö, kvað
Umsjón:
Halldór Halldórsson
sigur þeirra ekki hafa komið sér
mjög á óvart.
„Við erum með besta liðið. Við lent-
um í smávandræðum gegn Stjöm-
unni og þeir unnu eina hrinu en við
sigruðum þá, sanngjarnt, 2-1. Við
vorum hálfþreyttir eftir 12 tíma ferð
í rútu og kom það að sjálfsögðu fram
í leik okkar. Það er aukinn áhugi
fyrir blaki í Neskaupstað og var hann
þó nógur fyrir. Ég byrjaði að æfa
blak í 5. flokki, þá 10 ára. Við höfum
allir orðið íslandsmeistarar frá því
við byrjuðum og er þetta í þriðja
skiptið núna. Það er mjög gott að búa
í Neskaupstað og það þarf mikið til
þess að ég flytji þaðan,“ sagði Egill
Örn.
Fjölbreytt íþrótt
Þóra Matthildur Þórðardóttir er fyr-
irhði 4. flokks stúlkna frá Neskaup-
stað.
„Ég byijaði að æfa blak fyrir þrem-
ur árum og fmnst mér það alltaf jafn
skemmtilegt því blak er mjög fjöl-
breytt íþrótt og svo þarf snerpu og
tækni. Þjálfarinn er góður og það
hefur mikið að segja,“ sagði Þóra
Matthildur.
Kom skemmtilega á óvart
Matthías Haraldsson, 11 ára, er fyrir-
hði 5. flokks Þróttar, Neskaupstað.
„Sigurinn kom mér skemmtilega á
óvart. Þróttur frá Reykjavík var erf-
iðasti andstæðingurinn. í leiknum
við þá gekk þó allt upp í seinni lot-
unni en við áttum í smávandræðum
í byrjun þeirrar fyrri. Ég byrjaði að
æfa blak í fyrra eins og flestir hinna
og .við erum ákveðnir í að halda
áfram af fullum krafti,“ sagði Matthí-
Efnilegir strákar
Hulda Stefánsdóttir þjálfar strákana
í 4. flokki KA:
„Þetta eru mjög efnilegir strákar.
Þetta er ungt lið því það eru aðeins
3 frá því í fyrra. Við verðum því með
mjög sterkan flokk á næsta ári.
Áhuginn er almennt aö aukast á
Akureyri og tel ég framtíðina bjarta
fyrir þessa skemmtilegu íþrótta-
grein. Elstu flokkarnir eru mjög
sterkir hjá okkur og þetta er Uður í
uppbyggingunni. Ég er í heild mjög
ánægö með frammistöðu strák-
anna,“ sagði Hulda.
Fjölgun móta
Jón G. Sveinsson, stjórnarmaður í
Stjörnunni, sagði að uppi væru hug-
myndir um að fjölga til muna blak-
mótum á næsta vetri og yrðu þau
liður í keppni um íslandsmeistaratit-
ilinn.
Stjörnustrákarnir urðu í 2. sæti í 4. flokki stráka. Liðið er þannig skipað:
Óðinn Freyr Kristinsson, Hallgrímur Þór Sigurðsson, fyrirliði, Haraldur L.
Pétursson og Gissur Þorvaldsson, Sölvi Birgisson, Róbert Hlöðversson,
Soffia Rún Kristjánsdóttir, litla heilladisin, Jens Kristjánsson, Jóhann Már
Arnþórsson og Ómar Guðjónsson. Þjálfari þeirra er Jón Gunnar.
Utanhússknattspyma:
Coca-Cola mótið
íEyjum
- drengjalandsliðið með
Um páskana fer fram í Vest-
mannaeyjum Coca-Cola mótið í.
knattspyrnu 3. flokks karla og
verður spilað utanhúss á malar-
vellinum í Löngulág.
Þátttökuliö verða frá KR, Fram,
Stjömunni, Breiöabliki, ÍBV og
‘ auk þess mætir drengjalandsliðið
til leiks. Spilttð veröur eínfóld
umferð þannig að hvert liö spilar
5 leiki Mótið byijar á skírdag og
leikið alla páskana og endað á 2.
í páskum.
Verðlaun verða veitt fyrir 3
fyrstu sætin ogþað Uð sem sigrar
fær aö auki- veglegan bikar til
. eignar.
Sigurvegari á síðasta vori var
Stjaman.
-----------i--- -H«on
Krakkarnir í 5. flokki Þróttar frá Neskaupstað, stúlkna/drengja, urðu íslands-
meistarar. í fremri röö er B-liðið, frá vinstri: Orri Smárason, Einar Torfi
Einarsson, Rósa Dögg Þórsdóttir og Ragna Dögg Ólafsdóttir. Aftari röð frá
vinstri: Valþór Hilmar Valþórsson, Sigurður Jónsson, Matthías Haraldsson,
Sævar Jökull Sólheim. Þjálfari þeirra er Ólafur Sigurðsson.
íslandsmeistarar Þróttar, Neskaupstað, í 4. flokki karla 1992. Liðið er þann-
ig skipað: Valþór Hilmar Halldórsson, Sævar Jökull Sólheim, Matthias Har-
aldsson og Sigurjón Gísli Jónsson, Friðrik Lindbergsson, Benedikt Ólafs-
son, Ríkharð Svavar Axelsson, Stefán Hugi Jónsson og Egill Örn Sverris-
son, fyrirliði. Þjálfari strákanna er Ólafur Sigurðsson.