Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Side 26
30
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
Sviðsljós
Hér sést Bergleif ásamt Guðrúnu Einarsdóttur, eigin-
konu sinni, sonunum Þorsteini og Jóhanni og Hrefnu
Zoéga en hún heldur á syni sinum og Jóhanns, Hjálm-
ari litla.
Bergleif var lengi kokkur á aflaskipum Eskfirðinga og
þótti afskaplega góður. Þetta eru fyrrum skipsfélagar
hans af Hólmaborg SU-11, talið frá vinstri: Benedikt
Hilmarsson, Ómar Jónsson og Jóhann Kristjánsson
skipstjóri. DV-myndir Emil
Eskifjörður
Hótelstjórinn fimmtugur
Emil Thorarensen, DV, Esldfirði:
Bergleif Joensen, hótelstjóri á
Eskiiirði, hélt upp á 50 ára afmæli
sitt nú á dögunum. Að sjálfsögðu tók
hann á móti gestum á hótelinu sínu,
nefnilega Hótel Öskju á Eskifirði.
Margir komu og heilsuöu upp á
afmæhsbarnið á þessum merku
tímamótum í lífinu og þáðu í leiöinni
stórglæsilegar veitingar í mat og
drykk.
Bergleif er færeyskur. Þorsteinn
Kristjánsson, sem var skipstjóri á
Jóni Kjartanssyni SU-111, réð þenn-
an snjalla matreiöslumann á skip
sitt í Færeyjum fyrir 10 árum. Síðan
hefur Bergleif aiið sinn aldur hér-
lendis og lengst af starfað sem afar
vinsæll kokkur á aílaskipum Esk-
firðinga.
Talaðu viöokkur um
BÍLASPRAUTUN
BÍLARÉTTINGAR
Auðbrekku 14, sími 64-21 -41
Laugavegi55
a 21414
Hér má sjá sönghópinn Betra seint en aldrei og á bak við hann er big bandið.
DV-mynd Kristján Sigurðsson
Iðnaðarmannahá-
tíð í Stykkishólmi
Kristján Sigurðssan, DV, Stykkishólmi:
Árshátíð iðnaðarmanna fór fram
undir öruggri stjóm Daða Þórs Ein-
arssonar veislustjóra. Um 270 manns
sóttu veisluna og heiðursgestir voru
Jónas Ámason rithöfundur og kona
hans.
Meðal skemmtiatriða á hátíðinni
var big band Jóns Svans Pétursson-
ar, sem flutti mörg falleg lög, og söng-
ur sönghópsins Betra seint en aldrei
sem flutti ýmis lög við texta Jónasar.
Einnig fór fram tískusýning og vom
sýnd fót frá versluninni Par hér í
Stykkishólmi. Fimm ungar stúlkur
sáu um að sýna fötin og starfsfólk
Hárgreiðslustofu Maríu greiddi þeim
en Helena Bæringsdóttir snyrti.
Skemmtunin tókst í alla staði vel og
var aðstándendum til mikils sóma.
[ Sumardvalarheimilið Kjarnholtum Biskupstungum 1
-Ævintýraleg sumardvöl í sveit fyrir 6-12 ára börn-
7. starfsár: Reiðnámskeið, íþróttir, sveitastörf, siglingar , ferðalög, sund,
kvöldvökur ofl.
Tímabil: 31 maí-6júní 14júní-20júní 28júnf-4júlf 12júlf-1Sjúlf 26júlf-1 águst
7 júnf-13 júnf 21 júní-27 júní 5 júlí-11 júlf 19 júli-25 júlf 3 ágúst-9 ágúst
Sama verð og í fyrra kr. 15.800.- Systkinaafsláttur
Innritun og upplýsingar í s-98-68808 daginn, 98-68991 kvöld og helgar
V
MINI - STÆÐA
120 WOTT
i Active Servo
Technology
Sértilboð:
stgr.
64.950,-
YAMAHA
HLJÓMTÆKI
Munalán
SS Aíborgunarskilmálar
VONDUÐ VERSLUN
HUOMCO
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
DV
Hjónavígsla í skála
ungra elskenda
HaHa Höskuldsd., DV, Hreðavatns skála:
Laugardaginn 4. apríl sl. fór fram
borgaraleg hjónavígsla í Hreða-
vatnsskála í Borgarfirði en það er
í fyrsta sinn sem það gerist í sögu
skálans.
Hreðavatnsskáli var stofnaður
1933 af Vigfúsi Guðmundssyni. Vig-
fús kallaði staðinn Hreðavatns-
skála - stað ungra elskenda. Nú-
verandi eigendur nota þetta slag-
orð einnig.
Gefin vom saman Ásta Baldvins-
dóttir og Steini Þorvaldsson. Edda
Símonardóttir, fulltrúi sýslumanns
í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, gaf
þau saman. Hjónin hafa bæði
stundað nám við Samvinnuháskól-
ann á Bifröst undanfarin ár.
A þessari mynd sjást brúðguminn, Steini Þorvaldsson, brúðurin, Ásta
Baldvinsdóttir, og Edda Símonardóttir, fulltrúi sýslumanns. Þetta var
fyrsta hjónavígsla Eddu en hún var áður lektor við Samvinnuháskólann
á Bifröst og kenndi þar brúðgumanum, Steina. Dv-mynd Halla
Smáauglýsingar - Sírni 632700
Minnaprófs-vörubill til sölu, Volvo, árg.
’81, 611, með Hiab krana, ekinn 200
þús., verð 450 þús. sænskar fob.-verð
Göteborg, s. 91-71195.
Econoline ’83, C-6 skipting, NP-205
millik., DANA 44" fr„ DANA 60 aft„
drifhl. 1:5,38. S. 679610/985-29448.
Hjólanökkvinn trá Kraftmax. Erum að
selja þetta sýningartæki, selst á mjög
góðu verði. Einnig erum við með 2ja
og 4ra manna nýja bíla. Upplýsingar
í síma 91-39140 og 91-679311 á daginn
eða símum 91-79240 og 91-686901 á
kvöldin.
Nissan Patrol turbo disil, stuttur, árg.
’84, upphækkaður, á 38" dekkjum og
með sérskoðun, ekinn 117 þúsund km,
verð 1200 þúsund, skipti á ódýrari
fólksbíl. Uppl. í síma 98-65540.
Toyota Hilux extra cab V6 EFi, árg. '88,
til sölu, ekinn 49 þús. km, 35" dekk,
jeppaskoðaður, skipti koma til greina.
Uppl. í síma 91-73555 eftir kl. 19.
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltið!
Alfa Romeo Spider, árg. ’80, nýupptek-
in vél, bíll í toppstandi, skoðaður ’93,
til sölu, verð 850 þús. eða 750 þús. stað-
greitt. Uppl. í síma 91-653422 seinni
partinn.
Nissan Pathfinder SE V6, árg. ’88, sjálf-
skiptur, sportfjöðrun o.fl. Uppl. í síma
98-34408.
■ Þjónusta
Þarftu að komast i form fyrir sumarið? (
Við getum aðstoðað með Trim Form,
sogæðanuddi og megrun. Uppl. í
World Class, s. 35000, Hanna Kristín.
Smíðum dekkjarekka og dekkjahengi í
bílskúra og geymslur. Upplýsingar í
síma 91-26835.
■ Ymislegt
• Tal - nudd i fyrsta skipti á íslandi.
Þetta einstaka nudd losar um verki
og streitu. Verð 1900. Tímapantanir í
s. 27305 og 629470. Vesturgata 5,
Hreyfilistashúsið.