Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Síða 10
10
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992.
ick'A
DV-myndbandalistmii
Kvikmyndin um hljómsveitina The Commitments leysir af hólmi
Terminator 2 í fyrsta sætinu en sú mynd hefur verið þaulsaetin þar.
Annars er mjög rólegt yfir listanum. Gamanmyndin Soapdish stekk-
ur að vísu beint i fimmta sætið og gæti ógnað The Commitments á
toppnum i næstu viku.
Your Ufe
(2) The Commítments
(3) Regarding Henry
(I) Terminatoril
(5) Toy Soldier
w
(4)
(7)
(8)
(6)
(15) The Sheltering Sky
(9) Quigley down under
(II) The Hard Way
13 (10) Cyrano de Bergerac
14 (12) Lionheart
15 (■) To Catch a Killer
Ung í anda
Raunir Danaprinsins
HAMLET
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Franco Zefferelli.
Aóalhlutverk': Mel Gibson, Glenn Close,
Alan Bates, Paul Scofield og Helena
Bonham-Carter.
Bandarísk, 1990 -sýningartími 130 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Það kom mörgum á óvart á sínum
tíma þegar það fréttist að Mel Gib-
son ætlaði sér að leika Hamlet í
mynd Franco Zefferelli, en þá var
Gibson nýbúinn að öðlast miklar
vinsældir fyrir leik sinn í hasar-
myndum á borð við Lethal Weap-
on. Þótti Gibson tefla ferh sínum í
tvísýnu þar sem hlutverk Hamlets
þykir eitt það erfiðasta sem leikari
kemst í tæri við. Hamlet er aftur á
móti mjög eftirsótt hlutverk og því
skiljanlegt að hann skyldi taka
áhættuna. Og þeir sem gagnrýndu
ákvörðun Gibsons mest hafa
ábyggilega ekki séð leik hans í ástr-
ölsku kvikmyndinni Tim, þar sém
hann lék vangefinn mann, og fékk
mikið hrós fyrir. Það kemur reynd-
ar í ljós að Mel Gibson stendur al-
veg jafnfætis Glenn Close, Alan
Bates og Paul Scofield sem öll eru
þekktir túlkendur á klassísk leik-
verk. Er túlkun Mel Gibson á Ham-
let mikill leiksigur fyrir hann og
hefur örugglega ekki haft neikvæð
áhrif á leikferil hans.
Óþarft er aö fara í gegnum sögu-
þráðinn svo þekktur sem hann er.
Því meiri ástæða að nefna aðra
leikara þá sérstaklega Alan Bates
og Paul Scofield sem leika bræð-
urna, Scofield, kónginn fóður Ham-
lets sem bróðir hans lætur myrða
og giftist síðan móður Hamlets.
Þessir tveir leikarar eru sérlega
góðir og er unun að heyra þá fara
með textann. Glenn Close er góð í
hlutverki móður Hamlets, þó sam-
leikur þeirra sé kannski ekki alveg
eins og best verður á kosið. í þeim
átökum hefur Mel Gibson betur.
Það er svo Helena Bonham-Carter
sem leikur Ófelíu og gerir það vel,
en persónan er og verður alltaf
hálfóskiljanleg.
ítalski leikstjórinn Franco Zeffer-
elli hefur einbeitt sér að klassísk-
um verkum og leikstýrt með mikl-
um ágætum bæði óperum og klass-
ískum leikverkum. Tvær Shake-
spearemyndir, The Taming of the
íhringiðuglæpa
LEATHER JACKETS
Útgefandi: Biómyndir.
Leikstjóri: Lee Drysdale.
Aðalhlutverk: D.B. Sweeney, Bridget
Fonda og Cary Elwes.
Bandarísk, 1991 - sýningartími 90 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Leather Jackets íjallar um þrjú
ungmenni sem hafa lent á villigöt-
um. Claudi (Bridget Fonda) er laus-
lát stúlka sem þó innst inni er róm-
antísk og þráir að komast í farsælt
samband við mann og koma um
leið reglu á líf sitt. Einn elskhugi
hennar er Dobbs (Cary Elwes), of-
beldisfullur og samviskulaus þrjót-
ur sem níðist á þeim sem hann
umgengst. Einn vina hans er Mick-
ey (D.B. Sweeney) allt önnur mann-
gerö sem heldur sig aö mestu rétt-
um megin við lögin.
Mickey er hrifin af Claudi og seg-
ist tilbúinn að sjá fyrir henni og
giftast henni. Claudi sér í Mickey
þann mann sem hún gæti hugsað
sér að eyða ævinni með. Þau
ákveða að flytja til annarrar borg-
ar. Rétt í þann mun sem þau eru
að leggja af stað kemur Dobbs til
þeirra líkamlega sár eftir aö hafa
lent upp á kant við aðra glæpa-
menn. Þau sjá aumur á honum og
taka hann með, en það hefðu þau
betur látið ógert.
Söguþráðurinn í Leather Jackets
er mjög dramatískur en einhvem
veginn fær maður aldrei samúð
með persónunum eða áhuga á
þéim. Örlög þeirra skipta því litlu
máh. Myndin er ágætlega leikin,
sérstaklega er það Bridget Fonda
sem gerir hlutverki sínu góð skil.
-HK
Hefndarþorsti
HELL HATH NO FURY
Útgefandi: Bergvik hl.
Lelkstjóri: Thomas J. Wright.
Aðalhlutverk: Barbara Eden og Loretta
Swit.
Bandarísk, 1991 - sýningartfml 100 mfn.
Bönnuð börnum Innan 16 ára.
í Hell Hath no Fury takast leik-
konumar Barbara Eden og Loretta
Swit á í miklum andlegum sem og
líkamlegum átökum. Leikur Swit
geðbilaða konu sem drepur eigin-
mann Eden þegar hún getur ekki
notið hans sjálf. Hún reynir síðan
að koma morðinu á eiginkonuna.
Þegar það heppnast ekki drepur
hún vinkonu hennar og lætur líta
svo út sem eiginmaðurinn og vin-
konan hafi verið elskendur.
Leikkonumar tvær sýna báðar
ágætan leik en söguþráðurinn er
flatur og handritið illa skrifaö, auk
þess sem aðrir leikarar standa
þeim stöllum langt að baki. Eins
og svo oft með myndir sem lítið er
lagt í er aðdragandinn að lokaatrið-
inu allt of langur, sem og lokaatrið-
ið sjálft. Dettm- því sú spenna niður
sem myndast hafði um miðbik
myndarinnar.
THE ANTAGONISTS
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjórl: Rob Cohen.
Aðalhlutverk: David Andrews og Lauren
Holly.
Bandarisk, 1991 - sýningartími 89 min.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
The Ántagonists er fyrirrennari
sjónvarpsþáttaraðar sem ég veit
því miður engin nánari deili á.
Fjallar myndin um tvo lögfræðinga
sem starfa hvor sínum megin við
borðið. Jack Scarlett er verjandi
sem tekur að sér öll þau mál sem
vekja áhuga hans, hvort sem skjól-
stæðingurinn er saklaus eða sekur.
Þykir hann mjög fær og hafði sem
kennari eitt sinn komið illa fram
við einn nemanda sinn, Gretchen,
sem einmitt er nú orðin lögfræð-
ingur hjá saksóknaranum. Mynd-
ast strax spenna milli þeirra þar
sem hún er ákærandi konu sem
sökuð er um að hafa myrt elskhuga
sinn og Scarlett er verjandi hennar.
The Antagonist hefur klassíska
umgjörð og ef þáttaröðin heppnast
jafn vel og þessi byijunarmynd sem
er bæði spennandi og skemmtileg
með endi sem kemur á óvart þá
verður gaman að fylgjast með
framhaldinu.
Mel Gibson i hlutverki Hamlets Danaprins.
Shrew og Romeo and Juliet, liggja
eftir hann, báðar vel heppnaðar.
Ósjálfrátt fer maður að bera Ham-
let við aðra nýlega mynd gerða eft-
ir leikriti Shakespeare, Henry V., í
leikstjóm Kenneth Brannagh, og
verður mynd Brannaghs að teljast
betri þótt vissulega sé mikið varið
í Hamlet Zefferellis.
-HK
★★
CHANCE OF A LIFETIME
Útgefandl: Myndform.
Aðalhlutverk: Betty White, Leslie Niels-
en og Ed Begley jr.
Bandarfsk, 1991 - sýningartimi 92 mfn.
Leyfð öllum aldurshópum.
Allir þeir sem fylgjast með þátta-
röðinni Klassapíur á Stöð tvö ættu
að kannast við leikkonuna Betty
White sem leikur eina af flórum
konum sem búa saman. í Change
of a Lifetime leikur White ekkju
sem lifir fyrir fyrirtæki manns síns
sem hún stjómar af miklu öryggi
og festu svo öllum sem umgangast
hana þykir nóg um. Þegar ekkjan
kemur til læknis síns í hefðbundna
læknisskoðun kemur í ljós að hún
er haldin ólæknandi sjúkdómi og á
aðeins sex mánuði ólifaða. Hún lít-
ur í eigin barm og kemst að því að
þaö er margt annað hægt að gera
síðustu mánuðina sem hún á ólif-
Ste %
pSÍÉiigp
Ite
«n.
iit
áiiSsíds
IIií
ISWM
Þegar til Mexíkó er komið fer sú
' gamla að sletta úr klaufurium, hitt-
ir mann á sama aldri sem verður
hrifinn af þessari „djörfu" konu en
veit ekkert um ástæðuna fyrir
áræði hennar. Þegar ekkjan er loks
farin að njóta lífsins hringir lækn-
irinn og segir að ekkert sé að henni.
Lætur hún sig þá hverfa hiö fljót-
asta og heldur að allt sé gleymt, en
elskhugi hennar er ekki á því að
láta hana sleppa.
Chance of a Lifetime er létt og
hugljúf kvikmynd sem sýnir okkur
að rómantíkin getur blómstrað á
hvaða aldri sem mannskepnan er.
Betty White og Leslie Nielsen eru
alveg mátuleg huggulegt eldra fólk
til að gera persónumar trúverðug-
ar. Helsti galli myndarinar er mátt-
laust handrit sem er uppfullt af
ofnotuðum klisjum.
-HK
aða en þræla sér út. Hún tilkynnir
því undirmönnum sínum að hún
ætli sér í frí til Mexíkó.