Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Blaðsíða 48
60
LAUGARDAGUR 9. MAl 1992.
/
>
Sunnudagur 10. maí
SJÓNVARPIÐ
17.20 Setningarhátiö Rúrek '92. Upp-
taka frá setningarhátíð Rúrek-
djasshátlðarinnar í ráðhúsinu í
Reykjavík. Fram koma Andrea
Gylfadótt'r og tríó Carls Möllers
og bandaríska djasskempan Ric-
hard Boone ásamt hljómsveit sinni
x The Sophisticated Ladies. Umsjón:
Vernharður Linnet.
17.50 Sunnudagshugvekja.
18.00 Babar (3:10). Kanadískur mynda-
flokkur um fílakonunginn Babar.
Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir.
Sögumaður: Aðalsteinn Bergdal.
18.30 Sumarbáturinn (3:3) (Somm-
arbáten). Lokaþáttur. I þáttunum
segir frá litlum dreng sem á heima
úti í sveit. Hann vantar leikfélaga
en úr því rætist þegar ung stúlka
kemur ásamt foreldrum sínum til
sumardvalar í sveitinni. Þýðandi:
Ellert Sigurbjörnsson. Lesari:
Bryndís Hólm. (Nordvision -
Norska sjónvarpið.)
18.55 Táknmálsfrétth.
19.00 Bernskubrek Tomma og Jenna
(1:13) (Tom and Jerry Kids). Bandarískur
teiknimyndaflokkur um köttinn
Tomma og músina Jenna á unga
aldri. Þýðandi: Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Lesari: Magnús Ólafsson.
19.30 Vistaskipti (7:25) (Different
World). Bandarískur gaman-
myndaflokkur. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson.
20.00 Fréttir og veöur.
20.35 Gangur lifsins (3:22) (Life Goes
on). Bandarískur myndaflokkur
um hjón og þrjú börn þeirra sem
styðja hvert annað í blíðu og stríðu.
Aðalhlutverk: Bill Smitrovich, Patti
Lupone, Monique Lanier, Chris
Burke og Kellie Martin. Þýðandi:
Ýrr Bertelsdóttir.
21.25 Á ég aö gæta bróöur míns?
Annar þáttur: Út í óvissuna. Fjallaö
verður um þá hópa flóttamanna
sem hingað hafa komið að undan-
förnu og svipast um í flóttamanna-
búðum í Hong Kong en þangað
hefur mikiö af Víetnömum á flótta
frá ættlandi slnu leitað undanfarin
ár. Fylgst er með því þegar fulltrú-
ar Rauöa kross íslands völdu fólk
í síðasta hópinn sem hingað kom.
Umsjón: Helgi H. Jónsson. Stjórn
upptöku: Svava Kjartansdóttir.
22.05 27 bómullarhlöss (27 Wagons
Full of Cotton). Bandarísk sjón-
varpsmynd byggð á leikriti eftir
Tennessee Williams. Leikarinn
góðkunni, Anthony Quinn, flytur
aðfararorð. Aðalhlutverk: Lesley
Ann Warren, Ray Sharkey og Pet-
er Boyle. Þýðandi: Ólöf Péturs-
dóttir.
22.50 Emmyverölaunin (The 19th
Annual International Emmy
Awards). Upptaka frá afhendingu
Emmyverðlaunanna sem eru veitt
fyrir framúrskarandi sjónvarpsefni.
Athöfnin fór fram í New York í
nóvember síðastliðnum og kynnir
var breski leikarinn Roger Moore.
Þýöandi: Gunnar Þorsteinsson.
23.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
9.00 Nellý. Teiknimynd.
9.05 Maja býfluga. Teiknimynd.
9.30 Dýrasögur. Myndaflokkur fyrir
börn og unglinga.
9.45 Þrír litJir draugar. Þetta er nýr
teiknimyndaflokkur um þrjá litla
drauga sem eru óskaplega myrk-
fælnir. Þetta veldur t>eim auðvitað
dálitlum vandræðum því draugar
eru oftast á ferðinni á nóttunni.
Það verður án efa gaman að fylgj-
ast með því hvernig þeim gengur
að losa sig við myrkfælnina.
10.10 Sögur úr Andabæ. Fjörug teikni-
mynd með íslensku tali.
10.35 Soffía og Virginía (Sophie et Virg-
ine). Fallegur teiknimyndaflokkur
um ævintýri tveggja systra sem
lenda á munaðarleysingjahæli
t>egar foreldrar þeirra hverfa spor-
laust.
11.00 Lögregluhundurinn Kellý, leikinn
ástralskur myndaflokkur um hund-
inn Kelly og vini hans. Kelly er
þjálfaóur lögregluhundur sem sær-
ist mjög illa viö skyldustörf meó
félaga sínum, Mike Patterson.
Meðan Kelly er að ná sér dvelur
hann hjá syni Mikes og fjölskyldu
hans. Þar styttir hann sér stundir
meó Jo og vini hennar Danny en
Kelly er fyrst og fremst ferfættur
rannsóknarlögreglumaður sem
sinnir skyldum sínum hvar sem er
og hvenær sem er, auk þess sem
hann gætir vina sinna eins og sjá-
aldurs augna sinna. Þetta er fyrsti
þáttur en þættirnir eru 26 talsins.
11.25 Kalli kanina og félagar.
11.30 Ævintýrahöllin. Spennandi leikinn
•framhaldsmyndaflokkur fyrir börn
og unglinga sem byggður er á
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA: !
99-6272
samnefndri sögu Enid Blyton.
Fyrsti þáttur af átta.
12.00 Eöaltónar.
12.30 Art Pepper. Endurtekinn þáttur um
manninn og tónlist hans en þáttur-
inn var áður á dagskrá Stöðvar 2
í júní á síðastliðnu ári.
13.35 Mörk vikunnar. Endurtekinn þátt-
ur frá síðastliðnu mánudagskvöldi.
13.55 ttalski boltinn. Vátryggingafélag
íslands býður áskrifendum Stöðvar
2 til beinnar útsendingar frá leik í
1. deild ítölsku knattspyrnunnar.
15.50 NBA-körfuboltinn. Fylgst meó
leikjum í bandarísku úrvalsdeild-
inni í boði Myllunnar.
17.00 Van Gogh. Einstakur heimildar-
. myndaflokkur um ævi og list Vinc-
ents Van Gogh en tæplega 102
ár eru liðin síðan þessi stórbrotni
listamður tók eigið líf. í þáttunum,
sem eru fjórir talsins, er einblínt á
tímabil sem Vincent fæst við list-
sköpun að einhverju marki, allt frá
fyrstu alvarlegu tilraunum hans
sem teiknara þar til hann blómstrar
sem fullmótaður listamður. Þætt-
irnir voru áður á dagskrá í júlí og
ágúst 1990. Annar þáttur er á dag-
skrá að viku liðinni.
18.00 60 mínútur. Fréttaskýringaþáttur.
18.50 Kalli kanina og félagar. Hressileg
teiknimynd fyrir alla fjölskylduna.
19.00 Dúndur-Denni.
19.19 19:19
20.00 Klassapíur (Golden Girls). Hressar
konur á besta aldri leigja saman
hús á Flórída (24:26).
20.25 Heima er best (Homefront). Ellefti
hluti þessa vandaða myndaflokks.
Þættirnir eru þrettán talsins
(11:13).
21.15 Aspel og félagar. Sjónvarpsmað-
urinn vinsæli, Michael Aspel, fær
til sín góða gesti. Annar þáttur af
sjö (2:7).
21.55 I blindri trú (Blind Faith). Þessi
sannsögulega framhaldsmynd er
byggð á samnefndri metsölubók
rithöfundarins Joe McGinness.
Marshall-fjölskyldan var í einu og
öllu til fyrirmyndar, eiginlega lif-
andi sönnun þess hvernig ameríski
draumurinn verður að veruleika.
En hamingjan er fallvölt og lífið
er hverfult eins og Robert Mars-
hall og drengirnir hans fá að reyna
þegar eiginkona hans lætur lífið í
fólskulegri árás. Seinni hluti er á
dagskrá annað kvöld. Aðalhlut-
verk: Robert Urich, Joanna Ke-
arns, Joe Spano, Dennis Farina.
23.25 Óvænt örlög (Outrageous For-
tune). Maður nokkur hverfur í dul-
arfullri sprengingu. Eftir standa
tvær konur sem áttu í ástarsam-
bandi við hann. Hvorug vissi af
hinni og fer heldur betur að hitna
í kolunum. Þetta er bráðskemmti-
leg gamanmynd með úrvals leikur-
um. Aðalhlutverk: Bette Midler,
Shelley Long, Peter Coyote og
George Carlin. Leikstjóri: Arthur
Hiller. 1987. Bönnuð börnum.
1.00 Dagskrárlok. Við tekur næturdag-
skrá Bylgjunnar.
Rás I
FM 92,4/93,5
HELGARÚTVARP
8.00 Fréttlr.
8.07 Morgunandakt. Séra Örn Friðriks-
son, prófastur á Skútustöðum, flyt-
ur ritningarorö og bæn.
8.15 Veöurfregnlr.
8.20 Kirkjutónlist.
9.00 Fréttir.
9.03 Tónlist á sunnudagsmorgni.
Dúó í A-dúr ópus 162 fyrir fiðlu
og píanó eftir Franz Schubert. Ja-
ime Laredo leikur á fiðlu og Step-
hanie Brown á píanó. - Oktett í
Es-dúr ópus 20 eftir Felix Mend-
elssohn. Hausmusik kammersveit-
in leikur
10.00 Fréttlr.
10.10 Veöurfregnir.
10.25 Uglan hennar Mínervu. Umsjón:
Arthúr Björgvin Bollason. (Einnig
útvarpað miðvikudag kl.22.30.)
11.00 Messa í Háteigskirkju. Prestur
séra Tómas Sveinsson.
12.10 Dagskrá sunnudagsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir. Auglýsingar.Tón-
list.
13.00 Sitt hvorum megin vió RúRek.
Frá tónleikum á djasshátíö Ríkisút-
' varpsins, Reykjavíkurborgar og
Félags íslenskra hljómlistarmanna
sem nú stendur yfir.
14.00 Keisari rjómaíssins. Þáttur um
skáldiö Wallace Stevens. Umsjón:
Sverrir Hólmarsson. Lesari ásamt
umsjónarmanni: Þorleifur Hauks-
son.
14.40 Tónlist.
15.00 Kammermúsík á sunnudegi.
Harmóníkan sem kammerhljóð-
færi. Hrólfur Vagnsson og félagar
hans í Flavian Ensemble, þau Elsp-
eth Moser harmóníkuleikari, Chri-
stoph Marks sellóleikari og Alex-
ander Stein flautuleikari, leika í
beinni útsendingu verk eftir ýmsa
höfunda og spjalla lítillega um
hljóðfærið og verkin. Umsjón:
Tómas Tómasson.
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfregnir.
16.30 Lelkrit mánaöarins: Marflóin eft-
ir Erling E. Halldórsson. Leikstjóri:
Páll Baldvin Baldvinsson. (Einnig
útvarpað á laugardagskvöldið kl.
22.30.)
17.20 Síödegistónleikar. Frátónleikum
Guöbjörns Guðbjörnssonar og
Jónasar Ingimundarsonar í Gerðu-
bergi 14. janúar 1991.
18.30 Tónlist. Auglýsingar. Dánarfregn-
ir. ,*
18.45 Veöurfregnlr. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Funl. Sumarþáttur barna. Umsjón:
Elísabet Brekkan. (Endurtekinn frá
laugardagsmorgni.)
20.30 Hljómplöturabb Þorsteins Hann-
essonar.
21.10 Brot úr lífi og starfi Sigriöar
Björnsdóttur listmeöferöar-
fræðings. Umsjón: Þorgeir Ólafs-
son. (Endurtekinn þáttur úr þátta-
röðinni í fáum dráttum frá miðviku-
degi.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veöurfregnir. Orð Kvöldsins.
22.25 Á fjölunum - leikhústónlist. Þætt-
ir úr Fiðlaranum á þakinu eftir Jerry
Bock. Topol, Miriam Kaelin,
Whitsun-Jones og fleiri syngja og
leika; Gareth Davis stjórnar.
23.10 Á vorkvöldi.
24.00 Fréttir.
0.10 RúRek 1992. Richard Boone og
tríó á Púlsinum.
1.00 Veöurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báöum rásum til
morguns.
8.07 Vinsældalisti götunnar. Vegfar-
endur velja og kynna uppáhalds-
lögin sín. (Áður útvarpað sl. laug-
ardagskvöld.)
9.03 Sunnudagsmorgunn meö Svav-
ari Gests. Sígild dægurlög, fróð-
leiksmolar, spurningaleikur og leit-
aö fanga í segulbandasafni Út-
varpsins. (Einnig útvarpað í Næt-
urútvarpi kl. 01.00 aðfaranótt
þriðjudags.)
11.00 Helgarútgáfan. Umsjón: Lísa Páls
og Kristján Þorvaldsson. Úrval
dægurmálaútvarps liðinnar viku.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Helgarútgáfan heldur áfram.
13.00 Hringboröið. Gestir ræða
fréttir og þjóðmál vikunnar.
14.00 Hvernig var á frumsýn-
ingunni? Helgarútgáfan talar við
frumsýningargesti um nýjustu sýn-
ingarnar.
15.00 Mauraþúfan. Lísa Páls segir ís-
lenskar rokkfréttir. (Einnig útvarp-
að aðfaranótt miðvikudags kl.
01.00.)
16.05 Söngur villiandarinnar. Dægur-
lög ffá fyrri tíð.
17.00 Tengja. Kristján Sigurjónsson
leikur heimstónlist. (Frá Akureyri.)
(Úrvali útvarpaö í næturútvarpi
aðfaranótt fimmtudags kl. 1.01.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Djass. Umsjón: Vernharður Linn-
et.
20.30 Plötusýniö: Ný skífa.
21.00 Rokktíöindi. Skúli Helgason segir
nýjustu fréttir af erlendum rokkur-
r um. (Endurtekinn þáttur frá laugar-
degi.)
22.10 Með hatt á höföi. Þáttur um
bandaríska sveitatónlist. Umsjón:
Baldur Bragason.
23.00 Úr söngbók Pauls Simons.
Fjórði þáttur af fimm. Ferill Pauls
Simons rakinn í tónum og með
viðtölum við hann, vini hans og
samstarfsmenn. Umsjón: Snorri
Sturluson.
0.10 í háttinn. Gyða Dröfn Tryggva-
dóttir leikur Ijúfa kvöldtónlist
1.00 Næturútvarp á báöum rásum til
morguns.
NÆTURÚTVARP
1.00 Næturtónar.
2.00 Fréttir. Næturtónar hljóma áfram.
4.30 Veóurfregnir.
4.40 Næturtónar.
5.00 Fréttir af veöri, færö og flug-
samgöngum.
5.05 Næturtónar hljóma áfram.
6.00 Fréttir af veöri, færö og flug-
samgöngum.
6.01 Morguntónar. Ljúf lög í morguns-
árið.
8.00 í býtiö á sunnudegi. Allt í róleg-
heitunum á sunnudagsmorgni
með Birni Þóri Sigurðssyni.
11.00 Fréttavikan meö Steingrími Ól-
afssyni.
12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu
Bylgjunnar og Stöövar 2.
12.15 Kristófer Helgason. Bara svona
þægilegur sunnudagur með
huggulegri tónlist og léttu rabbi.
14.00 Perluvinir fjölskyldunnar.
Skemmtiþáttur fyrir alla fjölskyld-
una.
16.00 Ingibjörg Gréta Gísladóttir.
17.00 Fréttir.
17.05 Pálmi GuÖmundsson.
18.00 Páil óskar Hjálmtýsson.
19.19 Fréttir frá fréttastofu Stöövar 2
og Bylgjunnar
20.00 Páll Óskar Hjálmtýsson.
21.00 Pálmi Guömundsson.
24.00 Næturvaktin.
rM loa m.
9.00 Sunnudagur meö Togga.
9.30 Bænastund.
11.00 Samkoma. Vegurinn; kristið samfé-
lag.
13.00 Guórún Gísladóttir.
13.30 Bænastund.
14.o0 Samkoma; Orð lífsins, kristilegt
starf.
16.30 Samkoma. Krossinn.
17.30 Bænastund. -
18.00 LofgjöróartónlisL
23.00 Kristian Alfreösson.
23.50 Bænastund.
24.00 Dagskrárlok.
Bænalínan er opin á sunnudögum frá kl.
9.00-24.00, s. 675320.
FMf90-9
AÐALSTÖÐIN
9.00 Úr bókahillunni. Umsjón Guðríður
Haraldsdóttir. Endurtekinn þáttur
frá síðastliðnum sunnudegi.
10.00 Mæðradagsmorgun „minnir mig
á“. Umsjón Ingibjörg Gunnars-
dóttir og Ólafur Þórðarson.
12.00 Túkall. Böðvar Bergsson og Gylfi
Þór Þorsteinsson láta gamminn
geysa. Endurtekinn þáttur frá síð-
astliðnu fimmtudagskvöldi.
13.00 Sunnudagsrólegheit Blandaöur
þáttur fyrir alla í umsjón Ásgeirs
Bragasongr.
15.00 I dægurlandi. Umsjón Garðar
Guðmundsson.
17.00 Úr heimi kvikmyndanna. Umsjón
Kolbrún Bergþórsdóttir.
19.00 KvöldverðartónlisL
20.00 Á slaginu. Umsjón Jóhannes
Kristjánsson.
21.00 Undir yfirboröinu. Umsjón Ingi-
björg Gunnarsdóttir.
22.00 Tveir eins. Umsjón Ólafur Þórðar-
son og Ólafur Stephensen. Endur-
tekinn þáttur frá síðastliðnu
fimmtudagskvöldi.
24.00 yúf tónlisL
FM#957
9.00 í morgunsárið. Hafþór Freyr Sig-
mundsson fer rólega af stað í til-
efni dagsins, vekur hlustendur.
13.00 í helgarskapi. Jóhann Jóhanns-
son með alla bestu tónlistina í
bænum. Síminn er 670957.
16.0 Pepsí-listinn. Endurtekinn listi sem
ívar Guðmundsson kynnti glóð-
volgan sl. föstudag.
19.00 Ragnar Vilhjálmsson í helgarlok
með spjall og fallega kvöldmatar-
tónlist. Óskalagasíminn er opinn,
670957.
22.00 Sigvaldi Kaldalóns með þægi-
lega tónlist.
1.00 Inn í nóttina. Haraldur Jóhanns-
son fylgir hlustendum inn í nótt-
ina, tónlist og létt spjall undir
svefninn.
5.00 Náttfari.
irn»»f.
12.00 MS.
14.00 MH.
16.00 Straumar. Þorsteinn óháði.
18.00 MR.
20.00 FÁ.
22.00 lönskóiinn í Reykjavík.
S óíin
fri 100.6
10.00 Jóhannes Ágúst.
14.00 Karl Luóvíksson.
17.00 6x12.
19.00 Jóna DeGroot.
22.00 Guðjón Bergmann.
1.00 Nippon Gakki.
★ * ★
EUROSPORT
★ . ★
*★★
7.00 Trans World Sport.
8.00 Judó. Evrópumótið í París.
9.00 Hnefaleikar.
10.00 Sunday Alive. Tennis, motorrac-
ing,hjólreiðar, íshokkí og golf.
20.00 ATP Tennis.
22.00 Motor Cycling.
23.00 Judó.
23.30 Dagskráriok.
5.00 Hour of Power.
6.00 Fun Factory.
10.30 World Tomorrow.
11.00 Lost in Space.
12.00 Chopper Squad.
13.00 Fjölbragöaglíma.
14.00 Eight is Enough.
15.00 Hotel.
16.00 Hey Dad.
16.30 Hart to Hart.
17.30 The Simpsons. Gamanþáttur.
18.00 21 Jump Street. Spennuþáttur.
19.00 Napoleon og Jósefína.Fyrsti hluti
af þremur.
21.00 Falcon Crest.
22.00 Entertainment Tonight.
23.00 Against the Wínd.
24.00 Pages from Skytext.
SCfíEENSPORT '
7.00 Gillette-sportpakkinn.
7.30 International Speedway.
8.30 International Dancing.
9.30 US Men’s Clay Court.
11.30 Snóker. Bein útsending.
14.00 FIA World Sportscar.
15.30 US Football. Sakramento Surge -
Frankfurt Galaxy.
17.00 US Men’s Clay Court. Bein út-
sending.
19.00 Revs.
19.30 NBA körfubolti. Bein útsending.
22.30 Reebok Marathon.
24.00 Dagskrórlok.
Páll Baldvin Baldvinsson er leikstjóri Martlóarinnar, leik-
rits maimánaðar.
Rás 1 kl. 16.30:
Marflóin
- leikrit mánaðarins
Leikrit maímánaöar er
nýtt íslenskt leikrit, Maríló-
in, eftir Erling E. Halldórs-■
son.
Leikritið hefst á fundi op-
inberrar nefndar sem er að
kanna afdrif nokkurra ung-
menna sem hafa flosnað upp
úr grunnskólanámi. í þetta
sinn er verið að fjalla um
skjólstæðing nr. 3. Og áður
en varir er hlustandinn
staddur í umhverfi stúlk-
unnar Katrínar og fylgist
með lífi hennar um stund.
Leikendur eru Guðrún S.
Gísladóttir, Gísh Alfreðs-
son, Guðrún Ásmundsdótt-
ir, Helga E. Jónsdóttir,
Margrét Ákadóttir, Hanna
María Karlsdóttir, Rósa
Guðný Þórsdóttir, Þor-
steinn Gunnarsson, Þröstur
Leó Gunnarsson, Hjálmar
Hjálmarsson og Þröstur
Guðbjartsson.
Upptöku önnuðust Friðrik
Stefánsson og Sverrir Gísla-
son. Leikstjóri er Páll Bald-
vin Baldvinsson.
Marshall-fjölskyldan, í ljós kemur að Rob hafði
Rob, Maria og þrir ungir átt sér ástkonu í mörg ár.
synir þeirra, lifir venjulegu Hann var skuldum vafinn
bandarísku fjölskyldulífi. og hafði skömmu fyrir
Rob hefúr vegnað vel sem morðið keypt líftryggingu
tryggingasala og hann er fyrir Maríu. Þá birtist
áhrifamaður í bæjarfélag- óvænt einkaspæjari frá
inu. En kvöld eitt, þegar Louisiana, sem heldur því
hjónin eru á leið heim, fram að Rob hafi ráðiö sig
veröa óþekktir árásarmenn til að aðstoða við morðiö á
Maríu að bana. Við rann- Maríu.
sókn raál8Íns kemur í Ijós Framhaldsmyndin í
að ýmislegt hefði mátt fara blindri trú, eða Blind Faith,
betur i lifi fjölskyldufóöur- segir frá sannsögulegum at-
ins. Hann er sakaöur um að burðum og er byggð á sam-
hafa myrt eiginkonu sína en nefndri bók eftir Jœ McGin-
synir hans standa einarðir ness. Fyrri hluti þessarar
með honuní og trúa á sak- magnþrungnu spennu-
leysi hans. Eftir þvi sem myndar er á dagskrá Stöðv-
fleiri spjót beinast að hon- ar 2 kl. 21.55 á sunnudag og
um veröa efasemdir drengj- síðari hlutinn verður sýnd-
anna raeiri um heilindi ur á raánudagskvöld,
hans.
Lögregluhundurinn Kellý lendir í mörgum spennandi ævin-
týrum.
Stöð 2 kl. 11.00:
Lögregluhund -
urinn Kellý
Lögregluhundurinn Kellý
er leikinn spennumynda-
flokkur fyrir böm og ungl-
inga. Kellý er margverð-
launaöur lögregluhundur
sem særist alvarlega við
skyldustörf. Lífi hans er
bjargað með skurðaðgerð og
að henni lokinni er Jo Patt-
erson fahð að gæta hans. Jo,
bróðir hennar Chris og nýr
vinur þeirra, Danny, ákveða
aö leggja sitt af mörkum til
aö Kellý geti aftur tekið við
starfi sínu hjá lögreglunni.
Þetta er ástralskur
myndaflokkur í 26 þáttum
og lauk gerð hans á síðasta
ári. Þættirnir segja frá
spennandi ævintýrum sem
börnin þrjú og lögreglu-
hundurinn Kellý lenda í.
Fyrsti þáttur verður sýndur
' í dag, sunnudag, kl. 11.