Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Qupperneq 22
22
LAUGAKDAGUR 9. MAÍ 1992.
Sérstæð sakamál
Kampavín og morð
Neil og Amanda á brúökaupsdaginn.
Irene og Pete.
Pete Tompkins leit svo á að
kvöldinu væri ekki betur varið en
með vinum á krá við öldrykkju og
píiukast. Og venjuiega urðu glösin
íimm eða sex áður en hann hélt
heim á leið. Draumur Amöndu
Maskels í lífinu var aftm- á móti
hjónaband og böm.
Pete og Amanda höfðu búið sam-
an á Englandi í tvö ár en þrátt fyr-
ir það hafði Pete ekki beðið hennar
enn. Amanda var orðin tuttugu og
sjö ára og Pete þrítugur svo hún
var þeirrar skoðunar að ekki væri
lengur eftir neinu að bíða fyrir þau.
Haustkvöld eitt árið 1986, er þau
sátu heima, kom hún því beint að
efninu. En svar Petes var neikvætt.
„Þið konur eruð allar eins,“ sagði
hann. „Þið krækið í mann og um
leið og þið haldið aö þið hafið náð
föstu taki byrjið þið að tala um
brúðkaup og böm. Hvaö er að því
að lifa eins og við gerum? Ef þér
feliur það ekki þá veistu hvar dyrn-
ar eru.“
Út að skemmta sér
Þegar Pete hafði sagt þetta stóð
hann upp, tók frakkann sinn og fór
út. Amanda sat hugsi um hríð en
ákvað síðan að fara á diskótek. Þar
hafði hún ekki verið lengi þegar
hún hitti Nefi Costner. Þegar
kvöldið var á enda bauö hann
henni út. Hann sagði að hún gæti
sjálf vahð það kvöld sem henni
hentaði best. Hún valdi því næsta
fóstudagskvöld því hún vissi að þá
yrði Pete á fastakránni sinni að
kasta pílum með vinum sínum.
Hún hlakkaði til að sjá svipbrigð-
in á Pete þegar hún segði honum
að henni hefði verið boðið út. En
hann virtist ekki taka fréttina um
það nærri sér:
„Skemmtu þér þá vel. Ég kem
líka seint heim svo þú skalt ekki
vaka eftir mér.“
Neil hafði keypt blóm handa
henni og hann fór með hana á dýrt
veitingahús og hældi henni fyrir
hve vel hún liti út. Var öll fram-
koma hans eins ólík því sem hún
átti að venjast hjá Pete og hugsast
gat. En í hennar augum var Neil
þó bara meðal til að gera Pete af-
brýðisaman.
Fast samband
Amanda kom heim um miðnætti
en þá var Pete ekki kominn heim.
Og hann kom ekki fyrr en klukkan
fjögur um nóttina. Þegar Amanda
ætlaði að setja skyrtuna hans í
óhreina tauið daginn eftir sá hún
að það var varalitur á henni.
Þá tók hún saman fóggur sínar
og yfirgaf íbúðina.
Neil varð nú sá sem hún var með
í nær öllum frístundum sínum. Og
ekki leið á löngu þar til Amöndu
kom til hugar að léti hún Pete halda
að henni væri alvara með Neil
bæði hann hana um að koma aftur
til sín. En það var ekki að sjá að
Pete hefði miklar áhyggjur af sam-
bandi þeirra Amöndu og Neils.
Amanda tók því bónorði Neils og
tæpu ári eftir að þau kynntust
gengu þau í hjónaband. Sýndi Pete
engin sérstök viðbrögð við fréttinni
um að brúðkaup væri fyrir dyrum.
Amanda fór að sjá eftir því að
hafa gifst Neil í sjáífri brúðkaups-
ferðinni. Hann var að vísu ákaflega
hugsulsamur en henni fannst hann
ekki vera þaö sem eiginniaður ætti
að vera. Hún var því mjög glöð
þegar Pete hringdi til hennar
Skömmu efdr að hún var komin
heim.
„Eina stúlkan
sem..."
Þegar þau Pete og Amanda höfðu
ræðst viö í símanum um hríð sagði
hann: „Þú verður að fyrirgefa að
ég skuh ekki hafa hringt fyrr til að
óska þér til hamingju, en þú veist
hvemig ég er. Hvemig er að vera
gift?“
Amanda gætti þess að láta ekki
bera á neinni óánægju og svaraði:
„Þú ættir að prófa það sjálfur!"
Pete svaraði á þann hátt að það
var sem blásið hefði verið í gamlar
glæður.
„Ég hafði svo sem hugsað um það
en eina stúlkan sem ég hefði haft
áhuga á að kvænast giftist öðrum
manni.“
Þetta samtal varð til þess þau
fóru að hittast. Amanda lét skrá sig
í leikfimitíma svo að hún hefði af-
sökun fyrir því að vera að heiman
á hveiju fimmtudagskvöldi og af
og til hitti hún Pete einnig á öðmm
dögum, einkum þegar Neil var í
viðskiptaferðum.
Mánudag einn, rnn ári eftir að
þau Neil giftu sig, þurfti hann
skyndilega að fara að heiman á
vegum fyrirtækisins sem hann
vann þjá og greip Amanda þá tæki-
færið til að fara heim til Petes. Glöð
og ánægð kom hún við í vínbúð og
keypti flösku af kampavíni. En það
kom ekki til þess aö þau drykkju
hana saman þetta kvöld.
Þegar Pete hafði boðið Amöndu
inn fyrir gekk skyndilega stúlka
fram úr baðherberginu, klædd bað-
slopp einiun fata.
Óvænttíðindi
Pete lét sér hvergi bregða og
kynnti stúlkumar hvora fyrir ann-
arri.
„Irene, þetta er Amanda.
Amanda, þetta er Irene."
Irene tók vinsamlega í hönd
gestsins. „Já, Pete hefur sagt mér
svo mikið um þig,“ sagði hún.
Amanda fékk ekki séð að þetta
yrði skemmtilegt kvöld en hún lét
þó ekki á neinu bera. Hún sat um
stund og ræddi daginn og veginn
en hélt svo sína leið.
Daginn eftir hringdi hún til Petes
og bað hann afsökunar á því að hún
skyldi hafa komið óboðin og spurði
hvort hún hefði komið honum í
nokkurn vanda. Jafnframt spurði
hún hve lengi hann hefði þekkt Ir-
ene.
Svarið féll henni ekki:
„Ég hef þekkt hana í um það bil
ár og hef í huga að kvænast henni
áöur en langt um líður. Það eina
slæma við það, Amanda, er að það
verður erfitt fyrir okkur að halda
áfram þessu sambandi okkar.“
Síðasta heimsóknin
Orðin „þessu sambandi okkar“
komu ákaflega illa við Amöndu.
Sem fyrr reyndi hún að dylja til-
finningar sínar og sagöi: „Það er
ágætt aö heyra að þú skulir ætla
að kvænast. Geymdu kampavínið.
Ég kem á fimmtudagskvöldið."
Það fyrsta sem Amanda tók eftir
þetta fimmtudagskvöld var að
kampavínsflaskan var ekki sú sem
hún hafði keypt. Sú sem Pete kom
fram með var ódýrari. Pete og Irene
hlutu því að hafa drukkfð hina.
Amanda lét þó sem ekkert væri,
skálaði rólega við Pete og fór síðan
með honum inn í svefnherbergi til
síöasta ástarleiksins.
Að honum loknum gekk Pete
fram í baðherbergið til að fara í
sturtu. Þá fór Amanda og sótti
beittan steikarhníf sem hún hafði
tekið með sér að heiman. Hún lagð-
ist aftur á rúmið og þegar Pete kom
og lagðist við hlið hennar á ný reis
hún skyndilega upp og stakk hann
í bijóstið. Árásin kom honum svo
á óvart að hann náði ekki að verja
sig.
Amanda gekk síðan sjálf fram í
baðherbergið, fór í sturtu og þvoði
af sér blóðið. Á eftir fór hún fram
í svefnherbergið, klæddi sig, fór og
ók heim.
Heimsóknin
Hún varð ekki undrandi þegar
rannsóknarlögreglumenn heim-
sóttu hana kvöldið eftir. Hún hafði
jú búið með Pete í tvö ár og það
var eðlilegt að þeir kæmu til að
spyrja hana um vini þeirra og ann-
að sem gæti orðið til að upplýsa það
sem gerst hafði.
Henni brá hins vegar þegar hún
var beðin að gera grein fyrir því
hvar hún hefði verið kvöldið áöur.
Hún kvaðst hafa verið í leikfimi-
tíma og þegar hún hún var spurð
að því hvenær hún hefði síöast hitt
Pete Tompkins svaraði hún því til
að hún hefði ekki séð hann frá því
að hún gifti sig, ári áður.
„Það er athyglisvert, frú Costner,
því að konan, sem kom að Pete
Tompkins látnum, Irene Peckham,
hefur sagt okkur að hún hafi rætt
við þig heima hjá honum á mánu-
dagskvöldið var.“
Amanda fór nú að ræða um allar
þær konur sem Pete hefði þekkt
og umgengist. Irene hlyti að hafa
ruglað henni saman við einhveija
aðra konu. Amanda var nú beðin
um að koma með á lögreglustöðina.
Þar eð hún taldi að hún heföi geng-
ið þannig frá í íbúö Petes að engin
fingrafor fyndust þar af henni hafði
hún ekkert á móti því að fingarfór
hennar væru tekin.
Mistökin
Amanda beið róleg um hríð í bið-
stofu sem henni var vísað í en svo
kom lögregluþjónn sem hafði farið
í heilsuræktarstöðina þar sem hún
hafði sagst vera í leikfimi. Þar hafði
honum verið sagt að hún hefði að
vísu skráð sig í tíma fyrir all-
nokkru en aldrei mætt. Skömmu
síðar gátu svo tæknimenn rann-
sóknarlögreglunnar skýrt frá því
að þeir hefðu fundið fingrafór
Amöndu á kampavínsglasi í íbúð
Petes Tompkins.
Er henni varð ljóst að sönnun lá
fyrir um að hún hafði verið í íbúð-
inni, þar sem morðið var framið,
gerði hún játningu sína. Hún
skýrði frá því að Pete hefði ekki
viljað kvænast henni og hefði hún
því ákveðið að giftast Neil Costner
til að gera Pete afbrýðisaman. Þau
hefðu síðan farið að vera saman á
ný og þá hefði hún haldið aö þau
myndu gifta sig þegar hún hefði
fengið skilnað frá Neil. En svo hefði
komið í ljós að Pete hefði ekki ver-
ið nein alvara í þetta sinn heldur.
Sagan var sögð í réttinum og þar
sem ijóst var að um morð að yfir-
lögðu ráði var að ræða voru kvið-
dómendur ekki í neinum vafa um
að Amanda væri sek. Þá varð það
henni heldur ekki til framdráttar
að hún skyldi hafa gengið í hjóna-
band með Neil og nær strax farið
að halda fram hjá honum til þess
eins að reyna að ná í Pete.
Amanda fékk þyngsta dóm sem
lög leyfðu.,
Neil Costner sótti strax um skiln-
að og fékk hann athugasemdalaust.