Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992.
Fréttir
Lögreglan lét til skarar skríða í HMðunum og á Vatnsleysuströnd í gær:
770 lítrum hellt niður
í baðkar bruggarans
- bruggtækin ein hin fullkomnustu sem lögregla hefur lagt hald á
Lögreglan í Breiðholti lét til skarar
skríða í enn einu bruggmálinu í gær
þegar hald var lagt mjög fullkomin
eimingartæki í Hlíöunum og hellti
niður 770 lítrum af bruggi í húsi á
Vatnsleysuströnd.
19 ára piltur, sem ásamt bróður
sínum hefur þrisvar áður komið við
sögu bruggmála hjá lögreglunni, við-
urkenndi í gær að bera alla ábyrgð
á bruggstarfseminni. Hann gekkst
jafnframt við að hafa frá í ágúst stað-
ið að sölu á um 150 lítrum af tilbún-
um landa. Pilturinn hafði sölumann
á sínum snærum sem hann kallaði
ávallt í með því að hringja í símboða-
tækið hans til að auðvelda sölustarf-
semina.
Fyrir tveimur vikum viðurkenndi
sölumaðurinn hjá lögreglunni að
hafa selt 122 Utra af landa sem komu
úr umræddri bruggverksmiðju. Við
húsleit í kjallara einbýlishúss í Hlíð-
unum í gær lagði Breiðholtslögregl-
an svo hald á hin fullkomnu brugg-
tæki. Þar fannst einnig lítilræði af
fíkniefnum. Þama haíði bruggarinn
geymt tæki sín en sjálfur ffam-
leiðslustaðurinn var á Vatnsleysu-
strönd. Þar býr bruggarinn í húsi
sem er leigt. Bruggtækin voru hins
vegar greinilega það fullkomin að
þau voru flutt annaö á meðan fram-
leiðsla var ekki í gangi.
Þegar lögreglan gerði húsleit í
umræddu húsnæði á Vatnsleysu-
strönd síðdegis í gær kom brugg-
verksmiðjan svo í ljós. Sjö stórar
plasttunnur með samtals 770 lítrum
af gambra fundust í húsinu og mikið
magn af hráefnum til bruggfram-
leiðslu, meðal annars hátt í tvö
hundruð kíló af sykri. Brugginu var
heUt niöur í baðkar hússins.
Annar bræðranna viðurkenndi að
bera alla ábyrgð á bruggstarfseminni
og sölu vegna hennar. Báðir bræð-
umir hafa hins vegar áður komið við
sögu lögreglunnar, meðal annars
þegar ráðist var á lögreglumenn er
verið var að leggja hald á fíkniefni
við pósthúsið í Pósthússtræti á síð-
asta ári.
Bruggarinn hefur jafnframt fram-
leiöslu sinni viöurkennt að hafa stað-
ið fyrir ólöglegum samkomum eftir
dansleiki um helgar, svokölluðum
reifþartíum.
-ÓTT
Kona sem var gangandi vegfarandi slasaðist heldur illa þegar hún varð fyrir bifreið sem kastaðist á hana eftir
árekstur við annan bil á mótum Skálholtsstígs og Þingholtsstrætis siðdegis í gær. Slysið varö með þeim hætti
aö litlum pallbil var ekið niöur Skálholtsstíginn en þá kom fólksblll í veg fyrir hann. Arekstur varð og kastaðist
fólksbflllnn á konuna sem var fótgangandi. Hún hlaut hálsmeiðsl og var talin beinbrotin. Kona úr fólksbflnum slas-
aðist einnig er hún kastaðist fram í framrúðu bflsins. DV-mynd Sveinn
Héraösdómur Reykjaness í máli 15-16 ára pilta á höfuöborgarsvæðinu:
Fjórir dæmdir ffyrir
að nauðga stúlku
- fenguallirskilorðsbundnadómavegnaungsaldurs
Héraösdómur Reykjaness hefur
dæmt fjóra 17 til 18 ára pilta til fang-
elsisrefsingar fyrir að hafa staðið
saman að því aö nauðga ungri stúlku
í fjölbýlishúsi á höfuöborgarsvæðinu
í desember 1990. Þegar atburðurinn
átti sér stað voru piltamir 15 og 16
ára en stúlkan 14 ára. Piltamir fengu
fíögurra, fímm, sex og átta mánaða
skilorösbundna fangelsisrefsingu.
Guömundur L. Jóhannesson, hér-
aðsdómari á Reykjanesi, kvað upp
dóminn.
Atburðurinn átti sér stað síðdegis
mánudaginn 3. desember 1990. Fimm
piltar fóru þá að fjölbýlishúsi sem
stúlkan bjó í. Þeir komust inn um
útidyr og knúðu síðan dyra á heimili
stúlkunnar. Hún vildi ekki hleypa
þeim inn en piltamir létu sér ekki
segjast og mddu sér inngöngu. Þeir
geröu sig heimakomna í íbúðinni og
fékk einn þeirra sér meðai annars
aö borða.
Nokkra síðar fóra piltamir með
stúlkuna inn í svefnherbergi þar sem
þeir hófu að afklæða hana og sjálfa
sig. Stúlkan mótmælti og varð
hrædd. Hún barðist á móti en pilt-
amir héldu henni. Einn þeirra hafði
mök viö stúlkuna á meðan hinir
héldu fótum hennar og höndum og
höföu í frammi ýmsa kynferðislega
tilburöi.
Þegar þetta stóð yfir var bankað á
dyr herbergisins og sagt að nágranni
hefði kvartaö yfir hávaöa og ætlaöi
að hringja á lögreglu. Þá hættu pilt-
amir, klæddu sig, og fóra síðan einn
af ööram út. Málið var kært til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins daginn eftir.
Einn fimmmeninganna var ekki
ákærður í málinu þar sem hann var
ekki orðinn sakhæfur. Hinir fjórir
vora ákærðir - þeir vora allir komn-
ir yfir lögaldur sakamanna í desem-
ber 1990. Þegar héraðsdómur tók af-
stöðu til refsiákvörðunar yfír piltun-
um var tekið mið af hve ungir þeir
vora er atburðimir áttu sér staö og
vísaö til lagaákvæöa þess efnis.
Þannig var lágmarksrefsing fyrir
brot þeirra færð niður og refsingar
þeirra hafðar skilorðsbundnar.
Skilorðstíminn er tvö ár. Á þeim
tíma verður sérstök umsjón höfð
með sakbomingunum af hálfu yfir-
valda samkvæmt dóminum. Ákvörö-
un hefur ekki verið tekin um hvort
málinu verður áfrýjað af hálfu
ákæravaldsins.
-ÓTT
Borgarráð:
Tillögur um
nýja 34 millj-
óna gjaldtöku
- vegna mengunar- og heilbrigðiseftirlits
Tillögur um nýjar gjaldtökur voru
lagðar fram á borgarráðsfundi í gær.
TUlögumar era frá heilbrigðiseftir-
hti Reykjavíkur. Með þeim er ætlað
að ná inn 34 milljónum króna með
gjöldum sem áður hafa ekki verið
innheimt.
Annars vegar er gert ráð fyrir
gjöldum til heilbrigðiseftiriits
Reykjavíkur og hins vegar til meng-
unareftirhts Reykjavíkur. Tillögum-
ar era nánast eins en í þeim báðum
er gert ráð fyrir starfsleyfisgjöldum
og eftirhtsgjöldum sem skipast ann-
ars vegar í fímm undirflokka og hins
vegar í sex undirflokka, það er eftir
eðh þeirrar starfsemi sem gjaldið er
innheimt af. Borgarráð tók ekki af-
stöðu til thlagnanna á fundi sínum í
gær. Máhð verður á dagskrá næsta
borgarráðsfundar - eftir viku.
Hestahald, félagsheimih án veit-
inga, einkasalir, tækifærisveitingar,
torgsala, gisting á einkaheimilum,
íþróttavelhr, tjaldstæði og fleira
verður að greiða 10 þúsund á ári í
eftirhtsgjald og 5 þúsund í starfleyfis-
gjald - nái þessar tihögur fram að
ganga.
Meðal þess sem þarf að greiöa 20
þúsund í eftirhtsgjald og 10 þúsund
í starfsleyfisgjald má nefna æfinga-
svæði slökkvihðs, fangageymslur,
skyndibitastaði, smurbrauðsstofur,
tómstimdamiöstöðvar, vinnuheimih,
ísbúðir, fiskbúðir, minni sundlaugar
og íþróttahús.
Gjaldtökur sem þessar hafa ekki
veriö til þessa. Eins og áður sagði
hefur borgarráð ekki tekið afstöðu
til tihagnanna en málið verður á
dagskrá næsta fundar borgarráðs.
-sme