Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Page 20
20
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992.
íþróttir_____________________
Sport-
■ wr
stúfar
0Aðalfundur frjáls-
íþróttadeildar Breiða-
bliks verður haldinn
sunnudaginn 11. okb
óber kl. 20.15 i félagsheimili
Kópavogs.
Aðalfundur hjá HK
færður til laugardags
Aðaifundi knatt-
spymudeildar HK,
sem vera ; átti: á
fimmtudagskvðldið,
hefur verið frestað til laugardags-
ins 10. október. Hann fer fram í
félagsheimilinu í Digranesi og
hefst klukkan 14.
Dómaranámskelð
í körfubolta
Körfuknattleikssam-
band íslands gengst
tyrir þremur dómara-
námskeiöum nú á
næstunni ef næg þátttaka fæst.
!>að fyrsta verður í Stykkishóimi
um næstu helgi. Námskeiðiö
stendur yfir á laugardag frá kl.
9-12 og 13-18 og á sunnudag frá
ki. 9-16. Frestur til að tiikyyna
þátttöku er til 8. október. Annað
námskeiðið veröur á Akureyri
heigina 24.-25. október. Keimt
verður á sömu tímum og í Stykk-
ishóimi. Frestur til að tilkynna
þátttöku er til 20. október. Þriðja
námskeiðið veröur í Reykjavík
helgina 7.-8. nóvember. Kennt
verður á sömU tímum og á fyrri
námskeiðunum báða dagana.
Frestur til að tiikynna þátttöku
er tii 3. nóvember. Þátttökugjald
er 5000 krónur og eru kennslu-
gögn innifaiin í veröinu. Ailar
nánari uppiýsingar fást á skrif-
stofu KKI.
Vatur þjálfar
lið Tindastóls
i kynningu á úrvaisdeildariiöun-
um í körfuknattleik í DV í gær
var ranglega sagt aö Páli Kol-
beinsson væri þjálfari Tindastóls.
Þaö er ekki rétt, Valur Ingimund-
ai-son þjálfar iiðið áfram og leikur
með því en Páll er óbreyttur leik-
maður. Beðist er velviröingar ó
rughngnum.
Valur í banni
gegn Njarðvík
Valur Ingimundarson leikur ekki
með Tindastóli gegn Njarövík í
úrvalsdeildinni á fóstudags-
kvöidið. Hann tekur þá út síðari
ieikinn í tveggja lcikja banni sem
hann var dæmdur í eftir að hafa
veriö rekinn af leikvellií lokaleik
Sauðkrækinga I deildinni í fyrra,
gegn Skallagrími í Borgarnesi.
Vaiur lék ekki með Tindastóii
gegn Haukum: i fyrstu umferð
deildaiinnar um síðustu helgi og
þar var skarð fyrir skíldí.
Hush jafnaði met
RogersHunt
Ian Rush jafnaði í gærkvöldi -
markamet Rogers Hunt fyrir U-
verpool í ensku knattspymunni
þegar hann skoraöi eitt marka
liðsins í 4-1 sigri á Chesterfield f
2. umferð deildabikai-sins. Þaö
var 286. mark Rush ■ fyrir Liver-
pool, sem vann 3. deildar liöið
samanlagt, 8-5, en Chesterfield
náði 0-3 forystu i fyrri leik lið-
anna á Anfieid sem endaöi 4-4.
Don Hutchison, Jamie Redknapp
og Mark Walters gerðu hin mörk
Uverpool en Chesterfield komst
yfir í leiknum. Úrslit í gærkvöldi
uröu þessi, samaniögð úrslit í
svigum:
Blackbum - Huddersfield4~3 (5-4)
Chesterfield - Liverpoo)...l-4 (5-8)
Grimsby QPR..........2 1 (8-3)
(QPR sigraði í vítakeppni)
Hartlepool - Sheff.Wed ....2-2 (2-5)
Ipswich - Wigan...,...4-0 (6-2)
Lincoin - Cr.Palace..1-1 (2-4)
Peterboro-Leicester..2-3 (2-3)
Plymouth - Luton.....3-2 (5-4)
Portsmouth - BIackpool...2-0 (6-0)
Swlndon -TorQuay...3-2 (9-2)
Wimbledon - Bolton...0 1 (3-2)
1. deild kvenna-handbolti:
Stjarnan
tapaði óvænt
á Selfossi
Selfoss sigraði Stjömuna í fyrsta
skipti í 1. deild kvenna í handknatt-
leik í gærkvöldi, 18-16,. á Selfossi.
Staðan í hálfleik var 7-7. Markverð-
imir léku stór hlutverk, Hjördís Sím-
onardóttir hjá Selfossi og Nína
Getsko hjá Stjömunni vörðu 15 skot
hvor.
„Ég er mjög ánægður með að stelp-
umar skyldu rífa sig upp eftir síð-
asta leik. Vömin var góö og einnig
Hjördís í markinu," sagði Hermund-
ur Sigmundsson, þjálfari Stjömunn-
ar, við DV.
Mörk Selfoss: Hulda Bjamadóttir
7, Auður Hermannsdóttir 5, Heiða
Erlingsdóttir 3, Guðrún Hergeirs-
dóttir 1, Inga Tryggvadóttir 1, Kristj-
ana Aradóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Margrét Vil-
hjálmsdóttir 4, Sigrún Másdóttir 4,
Guðný Gunnsteinsdóttir 3, Ragn-
heiður Stephensen 3, Una Steinsdótt-
ir 2.
KR-stúlkur efstar
KR sigraði FH í Kaplakrika, 12-19,
en staðan í hálfleik var 6-7, KR í vil,
og Vesturbæjarliðið er því efst í 1.
deild.
Fyrri hálfleikur frekar jafn en
KR-stúlkur vom oftast 1-2 mörkum
yfir. Mikið bar á Sigríði Pálsdóttur í
sókninni þar sem langskot hennar
rötuðu beint í mark FH.
KR-stúlkur tvíefldust
í síðari hálfleik
í seinni hálfleik tvíefldust KR-ingar
og gekk þeim vel bæði í vöm og sókn
en ekki var það sama uppi á tening-
unum þjá mótherjum þeirra sem áttu
í stökustu vandræðum með að koma
knettinum í markið. KR nýtti sér vel
mörg sóknarmistök FH-stúlkna.
Amdís Aradóttir sýndi þó skemmti-
lega takta í hominu hjá FH en það
var ekki nóg. Þegar 15 mínútur vom
eftir tóku FH-ingar Sigríði og Sigur-
laugu Birgisdóttur úr umferð en það
breytti litlu þvi Laufey Kristjánsdótt-
ir átti ekki í erfiðleikum með aö
brjóta sér leið framhjá vöm FH.
I lok leiksins 'var Sigríður valin
maður leiksins hjá KR og Amdís hjá
FH.
Mörk FH: Thelma 5, Amdís 3, Mar-
ía 2, Eva 1, Hildur 1.
Mörk KR: Sigríður 8, Laufey 7, Sig-
urlaug 2, Sara 1, Nellý 1.
Fram marði Ármann
Fram vann Ármann, 22-19, í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi. Staðan í
hálíleik var 12-12. Leikunnn var jafn
og spennandi og Vesna Tomajek lék
mjög vel með Armanni en Kolbrún
Jóhannsdóttir hélt Fram á floti með
góðri markvörslu.
Mörk Fram: Díana 7, Margrét B.
4, Inga Huld 3, Ólafía 3, Margrét E.
2, Þórunn 2, Ósk 1.
Mörk Armanns: Vesna 9, Margrét
4, Ásta 3, María 2, Ellen 1.
Staðan
Staöan að loknum leikjunum í gær-
kvöldi er þessi:
KR........... 3 3 0 0 59-45 6
Fram......... 3 3 0 0 57M5 6
Víkingur..... 2 2 0 0 51-26 4
Stjaman...... 3 2 0 1 74-^19 4
Selfoss...... 3 2 0 1 5(M9 4
Valur........ 2 1 0 1 39-40 2
ÍBV.......... 2 1 0 1 37-39 2
FH........... 3 1 0 2 44-59 2
Ármann...... 3 0 0 3 56-63 0
Grótta...... 2 0 0 2 32-42 0
Haukar...... 2 0 0 2 27-38 0
Fylkir...... 2 0 0 2 30-61 0
-SH/HS/VS
Nýtt sætafyrirkomulag
Nýtt sætafyrirkomulag verður á
leiknum í kvöld að kröfu FIFA. Fyr-
irkomulagið er þannig í stórum
dráttum að stæðunum er skipt niður
í níu svæði, merkt með bókstöfum
A-I. í hveiju svæði era um 250 sæti.
Miðar ehi í ýmsum litum og táknar
hver litur hvert svæði fyrir sig, t.d.
táknar gult svæði A og grænt svæði
B o.s. frv.
Til þess að fólk glöggvi sig á þessu
fyrirkomulagi verða uppdrættir
skammt frá miðasölu við inngang-
inn. Fólki er ráðlagt að skoða þessa.
uppdrætti áður en miðar em keyptir.
Sessur verða afhentar við inngang-
inn gegn afrifu af sætamiðum.
-JKS
Evrópukeppni 21 árs í knattspymu:
Herslumun
vantaði
- Grikkir sigruðu Islendinga, 1-3
íslendingar em enn án sigurs í
Evrópukeppni landsliða lyá leik-
mönnum yngri en 21 árs. í gær tap-
aði íslenska liðið fyrir því gríska,
3-1, á Varmárvelli eftir að staðan
hafði verið 0-1 í leikhléi.
Grikkir fengu óskabyijun í leikn-
um, Nikolaos Mahlas skoraði strax á
4. mínútu og markið var mikið áfail
fyrir íslenska iiðið. Á 74. mínútu
skomðu Grikkir öðra sinni, Christos
Kostis var þar á ferð en Þórður Guð-
jónsson minnkaöi muninn í 1-2 á 80.
mínútu úr vítaspymu eftir að Amar
Gunnlaugsson hafði verið felldur
innan vítateigs. íslenska iiðið var
ekki fjarri því að jafna á lokamínút-
unum en skömmu fyrir leikslok
skoraði Kostis aftur og þar með var
draumurinn um fyrsta stig íslenska
liðsins í riðlinum úr sögunni.
íslenska liðið er ungt og efnilegt. í
liðinu em frábærir leikmenn á borð
við tvíburana Amar og Bjarka og
Óskar Hrafn Þorvaldsson og margir
fleiri. Þeir Amar og Bjarki em
reyndar mestu efni sem komið bafa
fram í íslenskri knattspymu frá upp-
hafi, að mati undirritaðs, með fullri
virðingu fyrir öllum öðrum knatt-
spymumönnum.
Herslumuninn vantaði til að skora
fleiri mörk í gær, reyndar ekki í
fyrsta skipti sem herslumun vantar
á leik hjá íslensku landsliði í knatt-
spymu. Amar Gunnlaugsson fékk
tvö sérlega góð færi en brást bogaiist-
in. Ekki oft sem slíkt gerist á þeim
bæ.
íslenska liðið var þannig skipaö:
Ólafur Pétursson, Gunnar Péturs-
son, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Láms
Orri Sigurðsson, Ásgeir Ásgeirsson
(Helgi Sigurðsson), Steinar Guð-
geirsson, Bjarki Gunnlaugsson, Ág-
úst Ólafsson, Finnur Kolbeinsson,
Amar Gunnlaugsson, Þórður Guð-
jónsson. -SK
Bjarki Gunnlaugsson leikur einn Grikkjann grátt í leiknum í Mosfellsbæ í gær. I
átti góðan leik ásamt bróður sínum, Arnari. DV-mynd Brynjar