Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992. 47 dv Smáauglýsingar - Sími 632700 Hitaveitur, vatnsveitur. Þýskir rennslis- mælar fyrir heitt og Icalt vatn. Boltís s/f, s. 91-671130,91-667418 og 985-36270. Dráttarbeisli, kerrur. Framleiðum allar gerðir af kerrum og vögnum, dráttar- beisli á allar teg. bíla. Áratuga reynSla. Allir hlutir í kerrur og vagna. Hásingar 500 kg - 20 tonn, með eða án bremsa. Ódýrar hestakerrur og sturtuvagnar á lager. Vinnuskúrar á hjólum. Veljum íslenskt. Víkurvagn- ar, Dalbrekku 24, s. 43911 og 45270. Vestur-þýskar kuldaúlpur, ullarjakkar og ullarkápur frá Bardtke í mjög miklu úrvali. Greiðslukort. Topphúsið, Laugavegi 21, s. 25580, og Austurstræti 8, s. 622577. Sendum í póstkröfu. Opið laugard. frá kl. 10-16. Mikið úrval hornsófa og sófasetta. Sér- smíðum hornsófa eftir máli. Verð frá 77.400 kr. stgr. GB-húsgögn, Faxafeni 5, s. 91-674080 og 91-686675. ■ Fasteignir 107, 122 og 133 m2 íbúðarhús. Húsin eru íslensk smíði, 'en byggð úr sér- þurrkuðum norskum smíðaviði með eða án háþrýsti-gagnvamar. Þau eru byggð eftir ströngustu kröfum Rann- sóknastofnunar byggingariðnaðarins. Húsin kosta uppsett og fullbúin frá kr. 4.990.000 með eldhúsinnréttingu, hreinlætistækjum (plata, undirst. og raflögn ekki innreiknuð). Húsin eru fáanleg á ýmsum byggingarstigum. Húsin standast kröfur húsnæðislána- kerfisins. Teikningar sendar að kostn- aðarlausu. RC & Co hf., sími 91-670470. ■ Bátar Til sölu Sómi 660, krókaleyfisbátur, mjög vel útbúinn. Verð 4,5 millj. Uppl. í símum 94-1497 og 985-34102. Helgi. ■ Vaiahlutir Brettakantar og rotþrær. Brettak. á Toyota, Ford Ranger, Explorer, MMC Pajero og flestar aðrar teg. jeppa og pickupbíla, framl. einnig rotþrær, 1500 og 3000 1, samþ. af Hollustuvemd. Opið frá kl. 9-16. Boddíplasthlutir, Grensásvegi 24, s. 91-812030. ■ BOar til sölu Til sölu. •Scania 140 ’74 stellari, m/grjótpalli, m/bilaðri vél, 10 ný dekk, selst í heilu lagi/pörtum. • Scania 140 ’74 húddari á grind. • Scania 85 '72, m/palli og sturtum. Allir skoðaðir til ’93. • M. Benz 2226 ’74, til niðurrifs í pörtum/heilu. • Góður flutninga- kassi, m/fiystitækjum. Islandsbíiar hf., Eldshöfða 21, Rvík, s. 91-682190. Mercedes Benz 190E, sportline, árg. 1991, ekinn 31.000 km, dökkblár, sjálfskiptur, rafdrifhar rúður, litað gler, ABS, 4 höfuðpúðar, armpúði, sóllúga, álfelgur, centrallæsingar, sportline innrétting o.fl. Til greina kemur að taka ódýrari bíl upp í greiðslu. Vs. 91-682222 og hs. 92-15721. Til sölu þessi gullfallegi GMC Safari, 4x4, árg. ’88, einn með öllu, ekinn 36 þús. mílur. Uppl. í símum 985-31901, Svanur, og 985-31902, Þorvaldur, eða 91-675079 á kvöldin. Dodge Caravan, 7 sæta, framdrifinn, sjálfskiptur, með vökvastýri, vel við haldið, eyðir litlu. Auðvelt að taka sætin úr og nota sem sendibíl. Egilsbórg, Þverholti 20, símar 91- 612600 og 41436. Ford Econoline, árg. ’78,4x4, upphækk- aður, mikið endumýjaður. Góður bíll. Uppl. í sima 91-672560. Ford Econoline 350 XLT, 4x4, disil, '88, ek. 230 þuS. km, sæti fyrir 15. Verð 2,3 milljónir staðgr. Tvílitur, blár. Uppl. í símum 96-12190 og 985-23188. Snjóbill, sjóbíll, landbill, alhliða torfæmtæki. Emm að kynna þessi frá- bæru torfærutæki. Fær í flest. Upplýs- ingar í síma 91-79240. M. Benz 1735 A.K., árg. 1990, ekinn 120 þús. km. Selst með eða án vagns. Á sama stað 40 feta fiystigámur. Nánari uppl. í síma 96-41510. Fréttir Fj árlagafrumvarp 1993 um Atvmnuleysistryggingasjóö: Bótagreiðslur skert- ar um 100 miiyónir - meöendurskoöunlagaumatvinnuleysistryggingar í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1993, sem kynnt var í gær, kemur fram að í kjölfar ákvörðunar ríkis- stjórnarinnar um að veita tvo millj- arða króna til atvinnuskapandi framkvæmda er áætlað að framlag til atvinnuleysisbóta lækki um 300 millljónir. Að auki er áformað að endurskoða lög um atvinnuleysis- tryggingar og lækka þannig bein út- gjöld sjóðsins um 100 milljónir. Nefnd, sem ætlað er að endurskoða lög um atvinnuleysistryggingar, hef- ur tvisvar sinnum komið saman en að sögn Margrétar Tómasdóttur, framkvæmdastjóra Atvinnuleysis- tryggingasjóðs, hefur ekkert verið rætt þar um skertar bótagreiðslur. Við gerð fj árlagafrumvarpsins fyr- ir 1993 var gert ráð fyrir að atvinnu- leysi ykist enn frekar á næsta ári eða í 3,5—4 prósent. Miðað við þessar at- vinnuleysistölur er íjárþörf At- vinnuleysistryggingasjóðs á næsta ári áætluö 2.314 milljónir króna þar af 1.939 miUjónir til greiðslu atvinnu- leysisbóta. Til að sjóðurinn standi undir greiðslum atvinnuleysistrygginga á næsta ári er gert ráð fyrir að hann selji verðbréf í eigu sinni fyrir um 250 milljónir en hann á eignir sem nema um tveimur milljörðum króna. í fjáraukalögum, sem lögð verða fram á næstu dögum, er gert ráð fyr- ir 700 milljóna króna aukaframlagi úr ríkissjóði í Atvinnuleysistrygg- ingasjóð til að bregðast við fjárþörf sjóðsins á þessu ári. í fjárlögum fyrir árið 1992 var gert ráð fyrir bóta- greiðslum miðað við rúmlega tveggja prósenta atvinnuleysi en ljóst er að atvinnuleysi í ár stefnir í 3 prósent. -ból Leiðrétting á marmréttmdabrotum Atviimuleysistryggingasjóðs: Eykur útgjöld sjóðsins en sparar ekki - Þórarinn V. segir áfonn ríkisstjómarinnar lýsa bjartsýni „Okkur hafa ekki verið kynnt nein áform eða hugmyndir sem miða að því að draga úr bótagreiðslum. Það er starfandi nefnd sem vinnur að endurskoðun laganna um sjóðinn og við eigum aðild að henni. Frá okkar bæjardyrum séð miðar sú endur- skoðun frekar að því að fjölga þeim sem rétt eiga á bótagreiðslum úr sjóðnum," segir Þórarinn V. Þórar- insson, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins, um þau áform sem fram koma í fjárlagafrumvarp- inu fyrir 1993 aö endurskoða lög um Atvinnuleysistryggingasjóð og lækka þannig útgjöld sjóðsins um 100 milijómr. „í dag eru mannréttindi brotin á svo mörgum að það er skelfilegt á að horfa. Fólk sem ekki hefur verið í stéttarfélögum og gengur um at- vinnulaust nýtur ekki réttar í þess- um sjóði. Mannréttindanefnd og fé- lagsmálanefnd Evrópuráðsins hafa gert alvarlegar athugasemdir við þessa skipan og ég vænti þess að þetta verði leiðrétt en auðvitað fylgja því einhver aukin útgjöld úr sjóðn- um,“ segir Þórarinn. Þórarinn segir aö endurskoða þurfi reglur sjóðsins um að fólk geti hafn- að vinnu. í því sambandi þiu-fi hugs- anlega að stækka atvinnusvæðin og það gæti leitt til spamaðar. „Það kemur hins vegar á óvart að þær breytingar myndu leiða til svona mikils spamaðar, sérstaklega þegar höfð er í huga sú leiðrétting sem nauðsynleg er og kemur til aukning- ar á útgjöldum sjóðsins. Mér finnst þetta því lýsa töluverðri bjartsýni," segirÞórarinn. -ból Það er ekki amalegt að geta verið utandyra á meðan gluggað er í skólabæk- urnar. Stúlkurnar í Kvennaskólanum I Reykjavík kunna sannarlega að meta haustbliðuna. DV-mynd GVA Byggðastofnun: Sjávarút- vegurinn skuldar um króna „Skuldir sjávarútvegsins við Byggðastofnun eru um fimm milljarðar króna og skuldir við atvinnutryggingadeild Byggða- stofnunar eru sex til sjö milljarö- ar króna,“ sagði Guðmundur Malmqmst, forstjóri Byggða- :; stofnunar, þegar hann rar spurð- ur hversu mikiö sjávarútvegur- inn skuldaði Byggðastofnun. „Nei, sjávarútvegurinn borgar sitt að mestu leyti. Það er fiskeldi og annað þvíumlíkt sem við lögð- um á afskriítareikninga fyrir,“ sagði Guðmundur þegar hann var spuröur hvort hann óttaöist að hluti lána til sjávarútvegsins væri tapaður í ljósi erfiðrar stöðu margra sjávarútvegsfyrirtækja. Af heildarlánum Byggðastofn- unar eru skuldir sjávarútvegsins um 65 til 66 prósent en af skuldum við atvinnutryggingadeild eru skuldir sjávarútvegsins hærra hlutfall eða 80 til 85 prósent. í heild skuldar sjávarútvegur- inn yfir 90 milljarða króna. Sem dæmi má nefna að skuldir hans við Fiskveiðasjóð eru um 15 milij- arðar króna, þá eru umtalsverðar skuldir við rfkissjóð og fleiri. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.