Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992.
Fréttir
Jónas Haraldsson kjörinn formaður Fiskifélagsins:
Var hreint út sagt
að ýta mönnum burt
- leiðindaaðferð sem skapar ekki frið, segir Ami Benediktsson
„Ég vona að það verði ekki en það
getur gerst. Þama er hreint út sagt
verið aö ýta mönnum úr stjóm sem
hafa talið sig hafa unnið vel fyrir
félagið. Þeim er hafnað, það má taka
það þannig. Þegar ég gaf kost á mér
var það með því skilyrði að ég veldi
mína samstarfsmenn," sagði Jónas
Haraldsson, nýkjörinn formaður
Fiskifélags íslands og lögfræðingur
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, þegar hann var spurður
hvort hann teldi að kosning hans sem
formanns gæti skapað tortryggni
innan Fiskifélagsins.
Auk Jónasar var Guðjón A. Kristj-
ánsson í kjöri til formanns. Jónas
setti það skilyrði fyrir formennsku
að allir stjómarmenn og varamenn
yrðu kosnir af lista sem hann lagði
fram. Þetta sldlyrði Jónasar féll
mörgum fundarmönnum illa í geð,
en Jónasi varð að vilja sínum.
„Ég hef aldrei vitað svona. Ég geri
samt ekki ráð fyrir að þetta hafi mik-
il áhrif. Þetta em eflaust allt ágætir
menn. Þetta er leiðindaaðferð og ekki
til þess gerð að halda frið. Við viijum
að félagið haldi áfram að starfa. Þetta
skapar tortryggni, það er ekki spurn-
ing,“ sagði Ámi Benediktsson, einn
þingfulltrúa.
„Þetta er óvenjulegt, að stilla þessu
upp með þessum hætti, annaðhvort
fæ ég að ráða stjómarmönnum eða
ég verð ekki formaður. Ég hef aldrei
staðið frammi fyrir svona áður. Þeir
sem kusu Jónas sem formann festu
sig í stjórnarkosningunum. Aðferðin
er einstök," sagði Kristján Ágústsson
þingfulltrúi og formaður kjörbréfa-
nefndar fiskiþings.
„Ég vil ekkert segja, þetta var lýö-
ræðiskosning," sagði Guðjón A.
Kristjánsson, sem fékk 16 atkvæöi í
formannskjörinu, en Jónas Haralds-
son fékk 18 atkvæði af þeim 36 sem
vom greidd, það er minnsta meiri-
hluta því hann varð að fá helming
greiddra atkvæða. Einn helsti stuðn-
ingsmaður Guðjóns varð að fara af
þinginu skömmu fyrir kosninguna
þar sem hann fór á sjó. Hefði hann
verið viðstaddur hefði Jónas ekki
náð hreinum meirihluta.
„Þetta verður vinna og aftur vinna.
Hér þarf að taka til hendinni, skera
niður kostnað, endurskipuleggja og
annað. Ég hef gagnrýnt fiskimála-
stjóra opinberlega. Það má líta þann-
ig á að ég sé að gagnrýna fyrrverandi
stjórn fyrir að hafa ekki staðið betur
á vaktinni og gripiö fyrr í taumana
svo ekki færi smátt og smátt neðar
fyrir Fiskifélaginu," sagði Jónas
Haraldsson, nýkjörinn formaður
Fiskifélags íslands.
-sme
Nýja pípuorgelið f Hallgrímskirkju er nú komið á sinn endanlega stall í kirkj-
unni og verið er að vinna við aö stilla þaö. Þegar er búið að stilla um
þriðjung orgelsins en gert er ráö fyrir að orgeiið verði formlega tekið i
notkun meö vígslu þann 13. desember næstkomandi. DV-mynd BG
BHMR:
Hafnar gengisfellingu
og launalækkun
Miðstjórn Bandalags háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna sam-
þykkti á fundi sínum í gær ályktun
um atvinnumál þar sem kröfu fyrir-
tækja í útflutningsgreinum um
launalækkun og gengisfellingu er
alfarið hafnað. Því er harðlega mót-
mælt að vandi efnahagslífsins verði
leystur með því að seilast í vasa
launamanna en hvatt er til sameigin-
legra aðgerða ríkisvalds, fyrirtækja
og almennings í landinu.
í ályktuninni leggur BHMR til að
aðsteðjandi vandi verði meðal ann-
ars leystur með því að lækka eða
afnema veltuskatta fyrirtækja en
taka þess í staö upp útsvar á fyrir-
tæki. Tekjuskattur verði lagður á
flármagnstekjur, persónuafsláttur
hækkaður og stóreignaskattm- og
hátekjuskattur teknir upp. Auk þess
hvetur bandalagið til hagræðingar 1
bönkum, sjóðum og ríkisstofnunum.
Þá er lagt til að allir atvinnulausir
fái greiddar bætur án tillits til félags-
aðildar en jafnframt verði bóta-
greiðslur takmarkaöar til þeirra sem
hafamiklartekjur. -ból
Samþykktir á fiskiþingi:
Kvótinn verði
áfram og trill-
urákrókum
- tvöföldunlinuaflaveröióbreytt
Fiskiþing samþykkti tillögu þess
efnis að aflamark, það er núverandi
kvótakerfi, væri heppilegra en annað
sem fram hefur komið við stjóm fisk-
veiða. TUlagan var samþykkt með 24
atkvæðum gegn 11. Þrír seðlar voru
auðir.
Fyrir fiskiþingi var önnur tfilaga
þar sem gert var ráð fyrir sóknar-
stýringu. Sjávarútvegsnefnd fiski-
þings klofnaði í fiskveiðistjómunar-
málinu þar sem fimm nefndarmenn
vUdu kvótakerfi, fimm vUdu sóknar-
stýringu og tveir sátu hjá. Þingið
sjálft valdi hins vegar kvótakerfið
eins og áður sagði.
Þá samþykkti fiskiþing að smábát-
ar, það er svokaUaðir krókaleyfisbát-
ar, vérði áfram utan kvóta, en sam-
kvæmt gUdandi lögum falla þeir inn
í kvótakerfið eftir tæp tvö ár. Miklar
umræður urðu um stjórn fiskveiða á
þinginu. Talsvert var um deUur miUi
manna og greinUegt er að átökin em
hvað mest miUi smábátaeigenda og
annarra.
Fiskiþing samþykkti ályktun þess
efnis að línuafli í nóvember, desemb-
er, janúar og febrúar yrði áfram að
hálfúutankvóta. -sme
Hækkun skipafélaganna:
Óttumst að
kaupmenn not-
færi sér hækkun
fragtgjalda
- segirformaðurNeytendasamtakanna
„Við höfum verulegar áhyggjur af
því að kaupmenn og ýmsir aðrir aðU-
ar nýti sér þessa hækkun skipafélag-
anna og tíækki vömverð hjá sér jafn-
vel meira en hækkun Eimskips og
Samskipa gefur tilefni til og skýh sér
þannig bak við hana. Við óttumst
keðjuverkandi áhrif,“ segir Jóhann-
es Gunnarsson, formaöur Neytenda-
samtakanna, um 6% hækkun skipa-
félaganna á flutningsgjöldum.
„Eg hef heyrt talað um að þessi
hækkun eigi eftir að hækka vöru-
verðið um 3%. Það er auðvitað frá-
leit tala. Hún fær mann hins vegar
tU að hugsa hvort einhverjir æfli að
notfæra sér þessa hækkun. Hækkun-
in ein og sér kemur ekki tU með aö
koUvarpa þjóðfélaginu. Það er ekki
sjálfgefið að hún þurfi að koma út í
verðlagið."
„Eimskip segir að fragtverð hafi
lækkaö um 9% á þessu ári. Ef það
er rétt hefur það þá skUað sér í lækk-
uðu vöruverði? Ef kaupmenn hafa
haldið verðinu óbreyttu þrátt fyrir
þessa lækkun, þá skulum við ætla
aö þeir geti borið hækkun skipafélag-
anna án þess að hækka vömverðið,“
segir Jóhannes. -Ari
- 4** -->sk ?
Það veiddust 41.400 laxar á
stöng þetta sumarið og Friðrik
Þ. Stetánsson veiddi einn af þeim
fyrstu i Norðurá. Áin gaf 1966
laxa. DV-mynd G.Bender
195 þúsund
laxarveiddust
Eftir lægð í veiðí undanfarin
þijú ár varð nú aftur aukning í
laxveiði á síðasta sumri. HeUdar-
veiðin var um 195 þúsund laxar
eða tæp 600 tonn.
Samkvæmt bráöabirgðatölum
veiddust 41.400 laxar á stöng og
um 7700 í net í ám og 5000 í net í
sjó viö Vesturland. Stangaveiðin
á nýliðnu sumri var um 10.000
löxum meiri en hún varð 1991
sem er um 32% aukning. Stanga-
veiðin 1992 var um 14% meiri en
meðalveiði áranna 1974-1991 sem
er um 35.760 Iaxar og telst þvi 6.
mesta veiði á umræddu tímabill
-G.Bender
Slösuðustþeg-
argluggií
svefnherbergi
varbrotinn
Par í kjallaraíbúð við Þingvalla-
stræti á Akureyri varð fyrir
meiðslum þegar glerbrotum í
glugga þar sem þau sváfu rigndi
yfir þau skömmu eftir miönætti
í fyrrinótt. Maðurinn fékk gler-
brot í auga en konan var með
blæöandi sár á fæti og annarri
hendinni.
Pariö tiUíynnti lögreglu um að
skotið heföi verið á gluggann -
það heföi heyrt tvo hvelU, Þegar
lögreglan kom á staðinn var fólk-
ið flutt á sjúkrahús, Stuttu áður
en atvitóð varð haföi fólk af miö-
hæð i sama húsi kvartaö yfir háv-
aða í kjallaraíbúðinni og kom lög-
reglan á staðinn. Skömmu eftir
að lögreglan fór á brott kom svo
rúðubrotiö. -ÓTT
Tilboö Bílddælinga:
Ákvörðunfrestað
Taka átti áfstöðu tíl tilboös
heimamanna á BUdudal í eignir
þrotabús Fiskvinnslunar í gær en
vegna eindreginna tilmæla
bankastjórnar Landsbankans var
fundi frestað tU næstkomandi
þriðjudags.
AUar fasteignir oglausafé Fisk-
vinnslunnar eru mitóö veösettar.
Helstu veðkröfuhafar eru Fisk-
veiðasjóður, Byggðastofnun og
Landsbantó íslands. Landsbank-
inn óskaði eftir frestun til að geta
skoðað málið betur í heild og því
er enn aUs óvíst hvað út úr því
kemur. Ektó hefur fengist upp-
gefið hvert tUboð heimamanna
er. Utgerðarfélag BUddælinga er
með þrotabú Fiskvinnslunnar á
leigutUl.nóvembor. -ból