Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Page 15
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992. 15 í snilldarverki, sem Samuel Beckett samdi fyrir um fjörutíu árum, sitja tveir menn hlið við hlið undir lauflausu tré og bíða bjarg- ráða. „Valdimar: Jæja? Hvað eigum við að gera? Estragon: Genun ekkert. Það er öruggara. Valdimar: Bíðum og sjáum hvað hann segir. Estragon: Hver? Valdimar: Godot. Estragon: Góð hugmynd. Valdimar: Bíðum þar til við vitum nákvæmlega hver staða okkar er.“ Þeir bíða og bíða milli þess sem þeir spjalla við góöborgarann Pozzo sem hefur þræl sinn og vinnudýr, Lucky, í bandi og lætur svipima dynja á honum. Godot sést hins vegar hvergi. Stefnt á boðann Forráðamenn þjóðarinnar virð- ast í sömu sporum og Valdimar og Estragon. Þeir bíða á meðan Róm íslensks efnahagslífs brennur. Kannski er það af pólitískri trú. Eða einfaldlega að þeim fallast hendur frammi fyrir þeim risa- vöxnu verkefnum sem bíða úr- lausnar. Þegar vel gengur í efnahagslífi þjóðar - atvinnulífið sækir fram, hagvöxtur eykst og viðskipti eflast - mælir margt með því að stjórn- völd haldi að sér höndum, dragi saman opinberu seglin og gefi ein- staklingunum sem mest svigrúm til athafna. Við slíkar aðstæður er eðlilegt meginverkefni ríkisvalds- ins að veita nauðsynlega samfé- lagslega þjónustu með sem minnst- um tilkostnaði. , :: ' ' ■ ■; ■■'■■■ : ■ ■: ::::: .■■::■::■ ■ ":■■ \ ■:;.■• ÍliNí Estragon (Árni Tryggvason) og Valdimar (Brynjólfur Jóhannesson) i uppfærslu Leikfélags Reykjavikur á Beðið eftir Godot árið 1960. Sé þetta réttlæti, hvernig er þá þeirra ranglæti? Þrengtað heimilunum Svo halda menn því blákalt fram að slík tilfærsla á fjármunum frá einstaklingunum, sem margir eiga í basli með aö láta enda ná saman á tímum samdráttarins til hinna ríku, muni auka atvinnu. Það er tómt bull. Þetta mun hins vegar þrengja enn að heimilunum í landinu. Þrengja að fjölskyldunum. Eins og gert hef- ur verið undanfarin ár. Það eru nefnilega ekki bara fyrir- tæki sem eiga minna og skulda meira. Fleiri og fleiri einstaklingar skulda nú meira en þeir eiga. Opinberar tölur sýna að í árslok 1988 voru skuldir ríflega ellefu þús- und framteljenda meiri en eignir þeirra. Þremur árum síðar, 1991, hafði þeim fjölgað í ríflega átján þúsund sem ekki áttu fyrir skuld- um samkvæmt skattframtölum. Á þessum fáu árum höfðu skuldir heimilanna í heild meira en tvö- faldast en eignirnar einungis auk- ist um 50%. Allir sjá að það gengur ekki til lengdar að tekjumar hrökkvi ekki fyrir útgjöldunum. Eða eignir fyrir skuldum. En það á ekki bara við um fyrirtækin í landinu. Það á líka og fyrst og fremst við um hom- steina þjóðfélagsins: heimilið og fjölskylduna. Oggetasig hvergi hrært Þjóðarskútan stefnir hratt á boð- Bubbar í stað Godot Öðru máli gegnir þegar efnahags- legt strand blasir við augum. Þá verður skipstjórinn að grípa um stýrið traustum höndum og stjórna þjóðarskútunni fram hjá boða efnahagslegs hmns. Þannig háttar nú hjá íslending- um. Hagvöxtur er enginn. Þvert á móti: þjóðartekjur minnka. Bull- andi tap er í flestum framleiðslu- greinum. Atvinnuleysið tekur stökk fram á við í hveijum mán- uði. Þjóðin er að kikna undan skuldaldafanum. Lánin sem hvíla á opinberum aðilum - það er að segja skattborgurunum - og at- vinnulífinu eru meiri en nokkra sinni fyrr. Á sama tíma tekur ríkið til sín meira og meira af takmörk- uðum fjármunum landsmanna. Og eyðir þar að auki langt umfram tekjur ár eftir ár. Rangar hugmyndir Fyrir Alþingi liggur nú fjárlaga- frumvarp sem ríkisstjómin sjálf viðurkennir að er marklaust plagg. Allt er því í óvissu um ríkisfjár- mál næsta árs. Bæði útgjöld og tekjur. Eitt virðist þó víst. Skattborgarinn, sá þrautpíndi Lucky stjómmálamannanna, mun fá enn eitt svipuhöggið. Heimilin era nefnilega það síð- asta sem ráðamenn og ýmsir þeir hagsmunaaðilar, sem hæst hafa um þessar mundir, virðast hafa áhyggjur af. Þeir demba yfir landsmenn tölum um tekjur og gjöld fyrirtækja í alls konar atvinnurekstri. Þær sýna yfirleitt að tekjurnar hrökkva ekki fyrir útgjöldunum. Engum ráðamanni virðist hins vegar detta í hug að reikna út íjár- hagslega stöðu heimilanna í land- inu. Skattborgaranna sem halda ríkisvélinni gangandi. Þeir eiga alltaf að geta á sig bætt eins og þræflinn Lucky. Nýjasta hugmyndin, sem virðist komin frá atvinnurekendum, hljóðar eitthvað á þessa leið: Létta þarf af atvinnufyrirtækjunum skatti sem heitir aðstöðugjald og gefur sveitarfélögunum líklega milli fimm og sex þúsund milljónir í tekjur á þessu ári. Þetta á að gera til að auka atvinnu í landinu. Bæta þarf sveitarfélögunum þetta upp með því að hækka útsvar einstakl- inganna um sambærilega upphæð. Þetta er afspymu vitlaus hug- mynd. Ekki það að létta opinberum álög- um af til dæmis fyrirtækjum í sjáv- arútvegi. Það á vafalaust rétt á sér að vissu marki. Einrúg má halda því fram að að- stöðugjaldiö sé óheppilegt form á skattheimtu. En það er rangt að fullyrða að niðurfelling aðstöðugjalds muni Laugardags- pistill Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri sjálfkrafa auka atvinnu í landinu. Og það er rangt að láta þrautpínd heimilin taka á sig að borga brús- ann. Að gefa hinum ríku Lítum á nokkur dæmi. Samkvæmt upplýsingum skatt- stjórans í Reykjavík voru aðstöðu- gjöld lögð á 4.310 lögaðila - þ.e. fyr- irtæki - í borginni á þessu ári. Upphæðin nam tæplega 2.500 millj- ónum króna. Aðstöðugjöld ein- staklinga námu tæplega 340 millj- ónum til viðbótar. Þessi gjöld vilja sumir leggja nið- ur og hækka útsvar einstakling- anna sem því nemur. í mörgum tilvikum væri hér ver- ið að taka peninga frá þeim sem lítið eiga til að gefa hinum ríku, án þess að það muni leiða til aukinnar atvinnu. Ef einstaklingar væra neyddir til að greiða með hærra útsvari að- stöðugjöld fyrirtækja í borginni liti dæmið þannig út á þessu ári: Heimflin væra að gefa Hagkaupi um 75 milljónir króna. Heklu 57 mifljónir. Sjóvá-Almennum tæp- lega 50 mifljónir. Flugleiðum annaö eins. Eimskipafélaginu, óskabarn- inu sjálfu sem var að enda við að hækka farmgjöldin, 45 milljónir. Heimilin væru líka að greiða milljónir til fyrirtækja eins og Miklagarðs, Ingvars Helgasonar, Globus, Samskipa, Jötuns, Trygg- ingamiöstöðvarinnar, Vátrygg- ingafélagsins, Brimborgar, Vífil- fells, íslenska útvarpsfélagsins, Árvakurs og Sölumiðstöðvarinnar, svo tæmdur sé listi skattstjóra yfir þá sem greiða eiga fjórtán milljónir eða meira í aðstöðugjald í borginni á þessu ári. ann ógurlega sem tortímir efna- hagslegu sjálfstæöi þjóða - eins og Færeyingar hafa nú síðast fengið að reyna. Það sjá allir. En yfirmennirnir á skútunni halda ekki um stýrið. Grípa ekki til bjargráða. Skipa ekki áhöfninni til verka aö bjarga því sem bjarga verður. Þeir bíða. Kannski taka þeir bara imdir með Bubba kóngi, sem sumir ráð- herrar eiga að kannast vel við, en í leikriti eftir Alfreð Jarry mælir hann svo: „Bubbi: Já, það sem ég var að segja, herrar mínir, var að efnahagsmál- in ganga bærilega. Hvarvetna gefur að líta brunarústir og fólk, sem bugast undan oki viðreisnarinnar í efnahagsmálum.“ Þótt Godot láti bíða eftir sér era Bubbamir því miður nánast á hverju götuhorni. Ef til vill era ráðamenn bara svo lamaðir af pólitískum kreddum og kjarkleysi að þeir geta ekki annað en beðið. Eins og andhetjur Becketts í loka- atriði leikritsins sem vitnað var til hér í upphafl: „Valdimar: Jæja? Eigum við að fara? Estragon: Já, forum. (Þeir hreyfa sig ekki.)“ Elías Snæland Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.