Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992.
Kvikmyndir
Ný kvikmynd Roberts Redford, A River Runs Through It, fær góðar viðtökur:
Þar sem stangaveiði og
guðstrú eru lagðar að jöfnu
Bræðurnir í A River Runs Through It eru leiknir af Craig Sheffer og Brad Pitt.
A River Runs Through It er þriðja
kvikmyndin sem Robert Redford
leikstýrir og hans besta að því er
margir gagnrýnendur í Bandaríkj-
unum telja en myndin var frumsýnd
þar fyrr í mánuðinum. Áður hefur
Redford leikstýrt Ordinary People
(1980) og The Milagro Beanfield War
(1988). Fyrir fyrmefndu myndina
hlaut Redford óskarsverðlaun sem
besti leikstjóri.
Robert Redford hefur í þeim þrem-
ur myndum sem hann hefur leik-
stýrt ávallt tekið vissa áhættu, aldrei
sótt í efnivið sem auðvelt er að mark-
aðssetja og sjálfsagt hefðu fáir aðrir
getað' flármagnað kvikmyndgagerð
minningarskáldsögu Norman Mcle-
an, sem A River Runs Through It er
gerð eftir, en í henni rekur maður á
gamalsaldri minningar frá fyrri tið
og gerist myndin á heimili prests og
flölskyldu hans þar sem guðstrú og
stangaveiði er lögð að jöfnu. Þegar
myndin er skoðuð er fátt sem sýnir
þá áhættu sem tekin hefur verið enda
þarf ekki að hafa áhuga á stanga-
veiði til að kunna að meta einkar
góða vinnslu Redfords á sögunni.
RobertRedford
sögumaður
Eins og í fyrri myndum, sem Ro-
bert Redford hefur leikstýrt, leikur
hann ekki í myndinni en er samt í
hlutverki óséðs sögumanns, gamla
mannsins em lítur til baka til ársins
1910 þegar hann og bróðir hans voru
ungir menn á heimili sem faðir
þeirra sflómar með harðri hendi.
Aðeins losnar um hömlumar þegar
faðirinn og synimir em við stanga-
veiðamar. Upphafslínur sögu-
mannsins í myndinni em: „Á okkar
heimili var aldrei neinn munur gerð-
ur á guðstrú og stangaveiöi."
Væntanlegir áhorfendur þurfa
ekki að kvíða fyrir löngum veiðiatr-
iðum, þau em öll stutt, en skapa
stemningu dulúöar sem fyrir er í
sögunni. Em þau atriði sérlega vel
gerð. Það er samt ekki stangaveiðin
ein sem gerir A River Runs Through
It að góðri kvikmynd heldur einnig
aöalpersónumar þrjár og þeir leikar-
ar sem leika þær.
Traustfjöl-
skyldubönd
Craig Sheffer leikur Norman sem
snýr heim eftir að hafa verið nokkur
ár í burtu. Þar hittir hann bróður
sinn Paul (Brad Pitt) sem er blaða-
maður. Hann hefur flarlægst flöl-
skyldu sína en þykir samt á sinn
hátt jafnt vænt um hana og áður en
flárhættuspil og drykkja hefur gert
hann friðlausan og það er aðeins við
stangaveiðina sem hann friömæhst
viö sjálfan sig og lífið.
Það kemur fljótt í ljós að það er
Paul sem er þungamiöja myndarinn-
ar og skapar þessi persóna þá dulúð
sem einkennir seinni hlutann. Hefur
Brad Pitt fengið mjög góða dóma fyr-
ir leik sinn og framtíð þessa imga
leikara er mjög björt um þessar
mundir. Faðir drengjanna er leikinn
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
af Tom Skerrit. Allir hafa þeir þrír
fengið góða dóma fyrir leik sinn en
stjarna myndarinnar er eins og fyrr
segir Brad Pitt.
Kvikmyndir Roberts Redfords eiga
það sameiginlegt að segja á sannfær-
andi hátt frá lífsbaráttu venjulegs
fólks í gleði og sorg. í Ordinary Pe-
ople var það missir ástvinar sem
sundrungu olli í flölskyldu og lýsti
myndin vel þeirri angist sem býr um
sig. Þaö var það ekki fyrr en í lokin
sem þau lærðu að lifa hvert með öðru
í skjóli sorgaratburðarins.
í The Milagro Beanfield var þaö
nálægðin við náttúruna sem er þema
í söguþræðinum um fátæka bóndann
sem berst fyrir eignarrétti sínum á
landi sem ríkur landeigandi ágimist
og í A River Runs Through It eru það
einnig sterk fiölskyldubönd og
vandamál innan flölskyldunnar sem
er þemað og það er nálægðin við
náttúruna sem verður til þess að
sögupersónumar sættast við sjálfar
sig og aðra og úrvinnsla Roberts
Redford á Ijóðrænni sögu Normans
Maclean er einkar trúverðug.
-HK
Kvikmyndahátíðin Harðfiskur:
Veglegt framtak Hreyfimyndafélagsins
Seymour Cassel leikur eltt aöalhlutverkið i bandarísku kvikmyndinni In the
Soup.
í gærkvöldi hófst kvikmyndahátíð-
in Harðfiskur sem er á vegum hins
nýstofnaöa Hreyfimyndafélags. Há-
tíöin stendur í eina viku og em sýn-
ingar í Háskólabíói. Hátíðin hófst á
nýjustu kvikmynd Jim Jarmush,
Night on Earth, sem undanfarið hef-
ur verið sýnd víða í Evrópu og feng-
iö lofsamlega umflöllun. Myndin ger-
ist í fimm borgum, Los Angeles, New
York, París, Róm og Helsinki og em
sagðar fimm sögur sem allar gerast
á sama tíma. Meðal leikara í mynd-
inni em Winona Ryder, Gena Row-
lands, Beatrice Dalle og Armin Mu-
eller-Stahl.
Af öðrum myndum sem sýndar
verða má nefna þijár myndir eftir
Gregg Araki, The Living End, The
Long Weekend og Three Bewildered
People in the Night og verður Araki
einn gesta á kvikmyndhátíðinni. All-
ar myndir Araki em gerðar fyrir lít-
inn pening og má nefna aö nýjasta
mynd hans, The Living End, kostaði
aðeins 2,5 milljónir íslenskra króna
í framleiöslu og er þaö samt dýrasta
myndin hans.
Nokkrar aðrar athyghsverðar
myndir verða sýndar á næstu dög-
um, má þar nefna In the Soup, nýja
mynd eftir Alexander Rockweli sem
flallar um kvikmyndaleiksflóra sem
auglýsir eftir flármagni í sína fyrstu
kvikmynd, þrjár myndir eftir
franska leiksflórann Claire Denis en
hún verður einnig gestur á hátíð-
inni, em þaö myndimar No Fear To
Die, Chocolat og stuttmyndin Keep
It to Youself. The Elementary Scool
er eftir Tékkann Jan Sverák en sú
mynd var tilnefnd til óskarsverð-
launa um leiö og Böm náttúrunnar
og pólska kvikmyndin 300 mílur til
himna sem byggð er á sannsöguleg-
um atburðum og fiallar um tvo
drengi sem flýja frá Póllandi til Dan-
merkur. Leiksflóri er Maciej Dejczer
en bæði hann og Sverák koma á há-
tíðina.
Kvikmyndahátíð þessi er kærkom-
in fyrir alla unnendur kvikmynda
þvi hér er á ferðinni tilvalið tækifæri
til að sjá forvitnilegar og áhugaverð-
ar kvikmyndir sem varla verða sett-
ar á almennar sýningar.
-HK
Nú er lokið útitökum á nýjustu
kvikmynd Stevens Spielberg, Ju-
rassic Park, og fóra þær fram á
Hawaii. Er almennt talið að þar
hafi verið byggt dýrasta sviö allra
tíma. Universal, sem framleiðir
myndina, heldur enn fast við
upprunalega tölu um að myndin
muni kosta 70 milfiónir dollara
en þeir sem til þekkja segja að
þegar upp verði staðið muni Ju-
rassic Park kosta að minnsta
kosti 100 milljónír dollara. Mynd-
in, sem gerö er eftir metsölu-
skáldsögu Michael Chricton, ger-
ist i skemmtigaröi þar sem tekist
hefur að búa til vélknúnar risa-
eðlur. Erfiölega gekk hjá Spiel-
berg að fá stórsflörnu í aðalhlut-
verkið og þegar Harrison Ford
og William Hurt höíðu báðir
hafhað hiutverkinu leitaði hann
til ástralska leikarans Sam Neill
sem þáði hlutverkið í hvelli. Aðr-
ir leikarar i Jurassic Park em
Laura Dem, Jeff Goldblum og Sir
Richard Attenborough sem tekur
sér stöðu fyrir ffarnan kvik-
myndavélina í fyrsta skipti í
fimmtán ár.
Peter Medak, sem leikstýrði
hinni vinsælu sakamálamynd
The Krays og síðan annarri ekki
síðri kvikmynd, Let Him Have It,
sem fékk lofsamlega dóma en litla
aösókn, er nú í New York þar sem
hann leikstýrir Romeo Is Bleed-
ing. Medak heldur sig enn við
sakamálin og leikur Gary Old-
man lögregluþjón sem verður það
á að kafa of djúpt í málefhi xnaf-
íunnar. Oldman þarf ekki að
kvarta yfir leikkonunum sem
leika á móti honum en Lena Olin,
Juliette Lewis og Annabella Sci-
orra leika allar stór hlutverk í
myndinni og leikur Olin kaldrifl-
aðan atvinnumorðingja sem er á
höttunum eftir Oldman.
Pemilla
August
hættirvið
Sænska leikkonan Pemilla
August, sem átti að leika á móti
stórsflömunum Meryl Streep og
Glenn Close í Húsi andanna, hef-
ur orðið að hætta við þátttöku
sína í myndinni þar sem hún er
ófrísk. Hún er sem kunnugt er
gift danska leiksflóranum Bille
August sem kemur til með að
leikstýra myndinni. í staðinn hef-
ur August tryggt sér hina ungu
og efnilegu leikkonu Winona
Ryder til að taka viö hlutverkinu
og þar með bætist enn eitt stimið
í leikhóp August en auk kvenn-
anna þriggja leikur Jeremy Irons
í myndinni. „Við Pemilia erum
hjón og þar með flölskylda og eft-
ir að viö höfðura sætt okkur við
þessa ákvöröum líður okkur bara
Ijómandi, sagði Bille August þeg-
ar hann tilkynnti breytinguna.“
Skinnog
bein
Leiksflórinn og handritshöf-
undurinn Steve Kloves vakti
verðskuldaða athygli þegar hann
leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd,
The Fabulous Baker Boys. Hann
hefur tekið það rólega síðan en
er nú aö hefla tökur á sinni ann-
arri mynd, Flesh and Bone, sem
hann skrifar einnig handrit aö. í
myndinni segir af manni sem
verður ástfanginn af stúlku en
faðir hans hafði myrt foreldra
stúlkunnar. Það eru hjónin
Dennis Quaid og Meg Ryan sem
leika aðalhlutverkin.