Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1992. Fréttir Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráöherra: Sagður haf a látið almenning borga 200 milljónir króna - til bjargar vinum sínum - eftir því sem fullyrt er í bókinni Laxaveislunni miklu „I ljósi þessa óska ég eindregið eft- ir að ekki verði um frekari tafir að ræða á kaupum Framkvæmdasjóðs íslands á kynbótastöðinni að Kal- manstjöm." Þetta er niðurlag á bréfi sem Steingrímur Hermannsson, þá- verandi forsætisráöherra, skrifaði til Framkvæmdasjóðs 18. janúar 1991. í bók Halldórs Halldórssonar, Laxa- veislunni miklu, sem kemur qt í dag, er fullyrt aö Steingrímur hafa nánast látið Framkvæmdasjóð kaupa stöð- ina langt yfir raunvirði hennar, til að bjarga góðum vinum Steingríms frá verulegu íjárhagslegu tjóni. Ajlt vinir Steingríms í bókinni segir einnig að Steingrím- ur Hermannsson hafi notið aðstoðar þáverandi landbúnaðarráðherra, Steingríms J. Sigfússonar, til að koma kaupunum í gegn og að þeir nafnar hafi gengið gegn samþykkt ríkisstjómarinnar og gætt þess sér- staklega að Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi fjármálaráðherra, kæmist ekki að kaupunum fyrr enn eftir á. Aöaleigandi' fiskeldisstöðvarinnar er Jón Magnússon, forstjóri Johan Rönning. í bók Halldórs segir aö Jón og Steingrímur séu vinir til margra ára. Meðeigendur Jóns era tveir Svíar, Peter Wallenberg, forstjóri Volvo, og Curt Nicohn, fyrram stjórnarformaður ASEA og fyrram formaður sænskra atvinnurekenda, en talsverður kunningsskapur er milh Steingríms Hermannssonar og Svíanna tveggja sem Halldór segir vera stórríka. Framkvæmdasjóður greiddi 167 milljónir fyrir stöðina, og um 40 mihjónir fyrir fiskinn sem var í stöð- inni, eða samtals um 200 mihjónir króna - sem er nánast sama upphæð og eigendumir skulduðu sjóðnum. Snorri Tómasson, starfsmaður Framkvæmdasjóðs, komst að þeirri niðurstöðu, samkvæmt því sem segir í bókinni, að verðmæði stöðvarinnar hafi verið um 67 mhljónir króna og hugsanlega enn lægra hefði th komið Bréfið sem Steingrimur Hermannsson sendi Framkvæmdasjóði. Hann ósk- th nauðungaruppboðs. Ahar tölur á aði þess eindregiö að kaupin yrðu gerð sem fyrst. þávirði. í bókinni er fuhyrt að með 18. janúar 1991 Framkvæmdasjóður Islands Rauftarárstlg 25 í05 Reykjavlk. A6 gefnu tilefni vil ég taka fram afi ég er þvl sammála, afi ekki er efilllegt að Framkvsmdasjófiur Islands eigi til langframa eldisstöfiina afi Kalmanstjörn, þótt hann yfirtakí hana nú með sérstökum samningum. Réttara er aft eldisstöfiin verði yfirtekin og sameinuð Tílraunastöð rlkisins I Kollafirði, svo fljótt sem unnt er. ÞvI mun étj beita mér fyrir þvl að hifi opinbera kaupi eldisstöfiina mefi þvi að yfirtaka þau lán Framkvsmdasjöðs sem á stöðinni hvíla, þannig að rekstur og eignarhald hennar verði á eínni hendi. I ljósi þessa 6ska ég eindregifi eftir að ekki verfii um frekari tafir að refia á kaupum Framkvémdasjófts Islands / á kynbótastöfiinni afi Kalmanstjörn. ! Afrit: Landbúnafiarráfiuneyti afskiptum sínum hafi Steingrímur Hermannsson bjargaði fyrirtæki þeirra félaga, Silfurlaxi, frá gjald- þroti. Utan verksviðs Framkvæmdasjóðs Ríkisendurskoðun fjallaði um kaupin, samkvæmt því sem segir í bókinni, og kemst að þeirri niður- stöðu að þau hafi verið utan verk- sviðs Framkvæmdasjóðs. Rikislög- maður taldi sjóðinn einungs hafa gætt hagsmuna sinna, en hann tekur ekki afstöðu th málsins í heild sinni, það er hvort forsætisráðherra hafi með sínum afskiptum farið út fyrir verksviö sitt. í bréfi Steingríms Hermannssonar, sem vitnað var í upphafi fréttarinn- ar, segir einnig: „Að gefnu tilefm vh ég taka fram að ég er því sammála að ekki er eðlhegt að Framkvæmda- sjóður íslands eigi th langframa eld- isstöðina að Kalmanstjörn, þðtt hann yflrtaki hana nú með sérstökum samningum." -sme I vonskuveðrinu, sem geisaði aöfaranótt þriðjudags, tókst þessi myndarlegi gámur á loft og fauk töluverða vega- lengd. Hann stóö við bilaverkstæði Jóhanns Garðarssonar í Austurmörk í Hveragerði en endaði ferð sina á girð- ingu fyrir framan Blikksmiðjuna. Gámurinn var í eigu Hjálparsveitarinnar í Hveragerði sem ætlaði að nota hann til aö selja ýmiss konar varning, jólatré og flugelda. DV-mynd Sigrún Lovísa t Kona á sjötugsaldri liggur þungt haldin á Borgarspítala: Höf uðkúpubrotin eftir að hafa verið vísað út af veitingastað - tilefiiislaus árás, segir dóttir konunnar sem hefur kært dyravörðinn Dyravörður á veitingahúsinu Borgarvirkinu hefur verið kæröur th Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir að hafa hent 63 ára gamahi konu út af staðnum síöasthðiö föstudags- kvöld með þeim afleiðingum aö hún höfuðkúpubrotnaði. Konan hggur nú þungt haldin á Borgarspítalanum. „Móðir mín hafði fengið sér eitt bjórglas á staðnum með frænku sinni og var ekki búin aö staldra lengi viö. Hún er kona sem fer nær aldrei út aö skemmta sér og dottaði eitthvað fram á borðið. Þá kom dyravörður- inn og vhdi vísa henni út. Vinkona hennar mótmælti en þá þreif hann í mömmu og fleygði henni út. Hún lenti á götunni og fékk þungt högg á höfuðið. Það blæddi úr vitum hennar og hún missti meðvitund," segir dótt- ir konunnar. Hún segir að hringt hafl verið á lögreglubfl og hann hafi ekið móöur sinni upp á slysadefld Borgarspítal- ans. Hún komst th meðvitundar 2-3 klukkustundum síöar og fór heim. Daginn eftir var hún hins vegar orð- in mjög veik og þá köhuðu böm hennar á sjúkrabíl sem fór með hana aftur á Borgarspítalann. „Þegar við komum á Borgarspítal- ann þá neituðu þeir á slysadeildinni að taka röngtenmyndir af henni og sögðu aö hún hefði bara fengið hefla- hristing. Við fórum með hana fár- veika upp á Landspítala þar sem teknar vora myndir af henni og þá kom í ljós aö hún var höfuðkúpubrot- in, með mar á heha og miklar blæð- ingar inn á hehann. Að auki er hún með mikla áverka á baki. Þá var kahaður th sérfræðingur af Borgar- spítalanum og á endanum var hún aftur flutt þangað og nú inn á gjör- gæsludehd," segir dóttirin. „Þetta er aht saman alveg hræði- lega sorglegt. Hún lá í einn og hálfan sólarhring á gjörgæslu. Nú hggur hún þungt haldin og þaö er viðbúið að þaö þurfi aö skera hana upp th að losa blóð sem hefur safnast fyrir inni í höfuökúpunni,“ segir dóttirin. Böm konunnar hafa nú kært dyra- vöröinn th RLR fyrir thefnislausa árás á móður sína. „Ég harma það mjög að þetta hafi komið fyrir komma. Hún lá sofandi fram á boröið og ég taldi hana vera víndauöa. Ég ákvað þvi að láta hana út th að fá sér frískt loft. Vinkona hennar reif hins vegar í mig svo að ég missti konuna og hún féh í göt- una. Þetta var slys en ekki líkamsá- rás. Ég var einn dyravörður þegar þetta kom fyrir svo að ég hafði engan th að aðstoða mig,“ segir dyravörö- urinn. -ból Steingrímur J. Sigfusson: Þetta er ekki rétt Steingrímur J. Sigfússon, alþingis- maður og fyrrverandi landbúnaðar- ráðherra, sagði ahs ekki rétt að óeðh- lega hefði verið að kaupum á flsk- eldisstöðinni að Kalmanstjörn stað- iö. Hann neitar alfarið að hafa staðið í pólitískri fyrirgreiðslu vegna þess máls og segir það hafa verið marg- rætt í síðustu ríkisstjóm. Þá segist hann ekki kannast við að nafni sinn, Steingrímur Hermannsson, hafi mis- notað aöstöðu sína. Steingrímur J. Sigfússon segir aö hann sem landbúnaðarráðherra hafi séð með þessum kaupum góða mögu- leika á að koma upp kynbótastöð enda hafi það verið löngu tímabært. . -sme Varnarliðsmeitn læra íslensku Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Það var gerð lesendakönnun á dögunum og það komu fram margar ábendingar um efni. Þar kom meðal annars fram áhugi vamarhðsmanna á að læra orð og setningar á ís- lensku. Vegna þess hafa verið sett íslensk orð á haus blaðsins Hvíti fálkinn sem gefið er út fyrir hermenn á vamarhðssvæðinu og munum við halda því áfram enn um sinn,“ sagöi Friðþór Eydal, blaðafuhtrúi vamar- hðsins, í samtali við DV. Vikublaðið Hvíti fálkinn setti ís- lensku orðin á forsíðuna efst í hægra horniö. Orðin í síðasta tölublaði voru þrjú talsins, Good Evening (gott kvöld) sem stafsett var Got quelt, Heho (hahó) sem stafað var Hal low og Goodbye (bless) sem var skrifað bless eins og gert er af íslendingum. Hvíti falkinn hefur veriö gefinn út í áraraðir og útgáfan hefur veriö stöðug frá öndverðum sjötta ára- tugnum. Það er upplýsingaskrifstofa vamarhðsins sem gefur blaðið út. Konunni var ekki vísað út - segiryfirlæknirslysadeildarBorgarspítalans „Viðkomandi kona kom hingað í tvígang og var skoðuð mjög vel og vandlega í bæði skiptin. I seinna skiptið var talin ástæða til að það yrði fylgst áfram með henni á vakt- hafandi sjúkrahúsi sem var Land- spítalinn. Það er mesti misskilningur að konunni hafi verið vísað héöan í burtu,“ segir Brynjólfur Mogesen, yfirlæknir slysadefldar Borgarspít- ala. „Hins vegar má segja að þaö hefði veriö betra að tölvusneiðmyndin sem leiddi áverkann í ljós hefði verið gerð hjá okkur vegna þess að ef það þarf að gera aðgerðir vegna sjúkhnga sem fá höfuðblæðingar þá er það gert á Borgarspítalanum. Það hefði minnk- aö óþægindin sem hún varð fyrir viö að ferðast fram og til baka en niður- staðan er hins vegar sú sama,“ segir Brynjólfur. -ból

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.