Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1992. 5 Fréttir Sighvatur horf ir til fæð- ingarorlofsgreiðslna - alger vanþekking á kjörum kvenna, segir Kvennalistinn „Viö erum búnir að klípa af öryrkj- um, gamla fólkinu, mæöralalaunum og fleiru. Ef menn líta á lífeyris- greiöslumar þá er búið aö skeröa allt nema þær bótagreiðslur sem eru hæstar, fæðingaorlofið. Þær eru greiddar til fólksins sem er á besta aldrinum, hefur bestu heilsuna og er sumt hvert á háum launum. Þess- ar greiðslur eru hærri heldur en tekjulaus gamalmenni og öryrkjar fá. Ég hefði gjaman viljað draga í land varðandi aðrar skerðingar en skoða þessar fæðingarorlofsgreiðsl- ur nánar," segir Sighvatur Björg- vinsson, heilbrigðis- og trygginga- ráðherra. Sighvatur bendir á að fæðingaor- lofsgreiðslur séu um 1,3 milljarðar á ári. Um sé að ræða hæstu bóta- greiðslurnar á vegum ráðuneytis síns. Sú skoöun Sighvats að skerða beri fæðingaorlofsgreiðslur hefur vakið harða gagnrýni hjá þingflokki Kvennahstans. í ályktun sem kvennalistakonur hafa sent frá sér er hugmyndum ráðherrans mót- mælt. Fram kemur sú skoðun að ummæli hans beri vott um algera vanþekkingu á lífíræði og kjörum kvenna. „Fæðingaorlofsgreiðslur em hvorki bætur né ölmusa heldur rétt- indi sem tengjast atvinnuþátttöku rétt eins og greiðslur í sumarorlofi. Heilbrigðis- og tryggingaráðherra er á besta aldri, með háar tekjur og að því er best verður vitað við þokka- lega heilsu og ætti því að lita sér nær og sínum líkum þegar hann veltir upp fyrir sér auknum tekjum eðá spamaði fyrir ríkissjóð," segir í ályktun þingflokks Kvennalistans. -kaa Saga landsmóta UMFÍ1909-1990 „Bítlatimabilið var í al- gleymingi, eldri vandlœt- arar glottu við tönn og sögðu að það yrði að grípa undir þessi gerpi til að gá aó kynferði. “ (Saga landsmóta UMFI) Bókin er 544 síður í stóru broti með hátt í 700 ljósmyndum Fæst í bóka- verslunum Eriendverð- bréfafyrirtæki sýna lífeyris- sjóðunum áhuga „Það er nokkuð um að erlend fyrir- tæki hafi samband við lifeyrissjóð- ina, auk þeirra íslensku sem mörg em umboðsaðilar fyrir erlend verð- bréfafyrirtæki," segir Hrafn Magn- ússon, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra lífeyrissjóða. Hrafn sagði að búast mætti við að leitað yrði með hátt á þriðja prósent ráðstöfunarfjár sjóðanna til útlanda. Þó væm ýmsar ástæður fyrir því að rólega yrði farið af stað, meðal ann- ars sú að ávöxtunin væri mun betri héma heima eins og stæði. Kostimir við erlenda fjárfestingu væru samt nokkrir, meðal annars áhættudreif- ingin. Hrafn er þó ekki hræddur um að peningaflóð verði út úr landinu með EES. Hrafn sagði að erlend fyrirtæki, sem sýnt hefðu lífeyrissjóðunum áhuga, væru Barclays, Oppenheim- er, Enskilda international, Schröder investment, Stanley Morgan ogfleiri. -Ari Hrossið reif þak- iðaf bflnum Gyffi Kiistjánsson, DV, AkureyrL . Tvö hross urðu fyrir bifreiðum á Ólafsfjarðarvegi á þriðjudag og dráp- ust bæði samstundis. I báðum tilfell- um var um mikið tjón á bifreiðunum að ræða og er önnur þeirra a.m.k. talin ónýt. Fyrra tilvikið var með þeim hætti að tvö hrossjhlupu skyndilega upp á veginn og í veg fyrir bifreið sem ekið var á fremur hægri ferð. Annað hrossið skaU á bifreiðinni, kastaðist upp á vélarhlífina, fór með hausinn í gegnum framrúöuna farþegamegin og reif síðan þakið nánast af bifreið- inni. Hitt hrossið hljóp síðan eftir vegin- um og skömmu síðar varð það fyrir annarri bifreið. Ökumaður hennar gat ekki afstýrt árekstrinum við hrossið sem leitaði í ljós bifreiðarinn- ar og var áreksturinn geysiharður. Bifreiðin sem er af Bronco gerð skemmdist mjög mikið og hrossið drapst samstimdis. íslandsbanki keypli Strikið Gyffi Kiistjánssan, DV, Akuieyii; íslandsbanki hefur keypt þrotabú skóverksmiðjunnar Striksins á Ak- ureyri. Tvö tilboð höfðu borist í þrotabúið, frá Iðnþróunarfélagi Ak- ureyrar og fleiri, sem buðu um 8 mUljónir króna, og frá útgerðarfélag- inu Skagstrendingi á Skagaströnd sem bauð rúmlega 20 mUljónir. Góðar bækur ROSIRIMJOLL GETTU NU SPURNINGABOK Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Fróðleg og skemmtileg spurningabók fyriralla aldurshópa. Verð: Kr. 1.480,- Ljóðasafn Vilhálms frá Skáholti í þessari vönduðu bók er heildarsafn Ijóða skáldsins. Verð: Kr. 2.800, - DAGBOK BARNSINS Ný íslensk bók fyrir minningarfrá fæðingu til fyrsta skóladags. Verð: Kr. 1.380,- ARNI JOHNSEN OG SIGMUND GAMANMAL OG SKOPMYNDIR AF STJORNMALAMONNUM-í ENN HLÆR ÞINGHEIMUR LIFSGLEÐI Árni johnsen og Sigmund jóhannsson Ný gamanmál og skopmyndir af stjórnmálamönnum, skemmtiefni fyrirfólk á öllum aldri. Bók sem er engri annarri lík. Sannkallaö krydd í tilveruna. Verð: Kr. 2.980,- ALLSHERJARGOÐINN Viðtöl og frásagnir um líf og reynslu á efri árum. Þórir S. Guðbergsson skráði í þessari bók greina sjö eldri borgararfrá ánægjulegri reynslu á efri árum. Einnig eru í bókinni upplýsingar og leiöbeiningar fyrir fólk á eftirlaunaaldri. jákvæð bók um efni sem snertir marga. Verð:.Kr. 2.480,- Sveinbjörn Beinteinsson og Berglind Gunnarsdóttir Sveinbjörn Beinteinsson skáld, bóndi og kvæðamaður hefur verið umdeildur og misskilinn, en hver er hann? í þessari forvitnilegu bók rifjar hann upp mörg atvik ævi sinnar, hjónaband og kynni af samtíðarfólki. Verð: Kr. 2.980,- HORPUUTGAFAN Stekkjarholti 8 -10, 300 Akranesi Síöumúli 29, 108 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.