Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Blaðsíða 34
42 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1992.
Fólk í fréttum dv
J M [arí íaJ Ri ú in] £ \ aJ Q li iðad lói tti ir
María Rún Hafliðadóttir, fegurðar-
drottningíslands, Fjarðarási 19,
Reykjavík, tekur þátt í keppninni
um titilinn ungfrú heimur annað
kvöld en keppnin fer fram í Sun
City í Suður-Afríku.
Starfsferill
María Rún fæddist í Lúxemborg
19.10.1972 og ólst þar upp til tólf ára
aldurs er hún flutti með íjölskyldu
sinni til Reykjavíkur þar sem hún
hefur átt heima síðan. Hún var í
Hvassaleitis- og síðan Árbæjar-
skóla, stundaði nám við MH og lauk
þaðan stúdentsprófi sl. vor. María
Rún hyggur á tungumálanám en
hún hefur áhuga á því að gerast
túlkur.
Fjölskylda
María Rún á tvo eldri bræður.
Þeir eru Bjöm Ingi, f. 14.6.1968, flug-
þjónn hjá Air Sweden, búsettur í
Sviþjóð, og Bjami Pétur, f. 12.7.1969,
nemi í flugrekstrarfræði í Flórída,
kvæntur Guðlaugu Gísladóttur og
eigaþaueinn son, Hafiiða, f. 11.11.
1991.
Foreldrar Maríu Rúnar eru Haf-
liði Örn Björnsson, f. 2.6.1941, flug-
stjóri og síðan fulltrúi hjá Flugmála-
stjóm, og kona hans, Maja Þuríður
Guðmundsdóttir, f. 1.5.1941.
Ætt
Hafliði Öm er sonur Björns, fyrrv.
yfirflugumferðarstjóra, Jónssonar,
forseta Fiskifélags Islands og fyrsta
erindreka SVFÍ, Bergsveinssonar,
bátasmiðs á Hvallátrum, Jónssonar.
Móðir Jóns Eyjólfs var Ingibjörg,
systir Bjöms Jónssonar, ritstjóra og
ráðherra, fóður Sveins forseta og
Ólafs ritstjóra, afa Ólafs Mixa lækn-
is. Ingibjörg var dóttir Jóns, b. í
Djúpadal, Jónssonar, b. í Djúpadal,
Arasonar, bróður Finns, b. á Hjöll-
um, afa Ara Arnalds alþingismanns,
foður Einars Arnalds borgardómara
og Sigurðar bókaútgefanda, fóður
Ragnars Arnalds alþingismanns.
Móðir Björns hjá Flugmálastjórn
var Ástríður María Eggertsdóttir,
b. í Fremri-Langey, Gíslasonar.
Móðir Eggerts var Guðrún, systir
Sveinbjörns í Skáleyjum, foður Jó-
hanns Lúthers, prófasts í Hólmum,
afa Einars Odds Kristjánssonar.
Móðir Ástríðar Maríu var Þuríður
Jónsdóttir, hafnsögumanns í Bílds-
ey, Bjarnasonar frá Viðvík viö
Stykkishólm.
Móðir Hafliða Arnar er Jóhanna
María Hafliðadóttir, sjómanns í
Svefneyjum, bróður Ólínu, móður
Skapta Ólafssonar, fyrrv. dægur-
lagasöngvara. Hafliði var sonur Pét-
urs, b. í Svefneyjum, bróður Guð-
rúnar, ömmu Snæbjarnar Jónas-
sonar, fyrrv. vegamálastjóra. Pétur
var sonur Hafliða, dbrm. í Svefneyj-
um, Eyjólfssonar, eyjajarls og al-
þingismanns í Svefneyjum, Einars-
sonar, ættfoður Svefneyjaættarinn-
ar. Móðir Hafliöa sjómanns var
Sveinsína Sveinsdóttir, smiðs í Vest-
urbúðum í Flatey, Einarssonar, b. í
Hvallátrum, Guðmundssonar, b. á
Hamarlandi í Reykhólasveit,
Sveinssonar, b. í Skáleyjum, í Flat-
ey, á Grund og síðast í Þembu hjá
Stað á Reykjanesi, Jónssonar. Móðir
Sveinsínu var Kristhjörg, ættuð frá
Kvígindisfirði, Jónsdóttir. Móöir
Jóhönnu Maríu var Steinunn Þórð-
ardóttir, b. í Botni, Þórðarsonar og
Ingibjargar Gísladóttur, húsfreyju
aðHvallátrum.
Maja Þuríður er dóttir Guðmund-
ar Ingvars, kaupmanns í Reykjavík
Ágústssonar, skósmiðs í Reykjavík,
hróður Maríu, móður Guðmundar,
ljósmyndara í Stúdíói Guðmundar.
Ágúst var sonur Guðmundar, bak-
ara á Sauðárkróki, Jónssonar, feiju-
manns við Héraösvötn, á Tiörn við
Tjarnartjörn, Sigurðssonar. Móðir
Guðmundar var María Þorkelsdótt-
ir. Móöir Ágústs var Rósa Jóhann-
esdóttir, b. á Skagaströnd, Guð-
mundssonar, og Margrétar Jóns-
dóttur. Móðir Guðmundar kaup-
manns var Maientína Kristjánsdótt-
irúrArnarfirði. <■
Móðir Maju Þuríðar er Guðfinna
Ólafsdóttir, útvegsb. á Stóra-
Knarranesi, bróður Ingvars, afa
María Rún Hafliðadóttir.
læknanna Kjartans heitins Birgis,
Ingvars Emis og Kristjönu Sigrúnar
Kjartansbarna. Ólafur var sonur
Péturs, útvegsb. í Tumakoti, Andr-
éssonar og Guðrúnar Eyjólfsdóttur.
Móðir Guðfinnu var Þuríður Guð-
mundsdóttir, útvegsb. á Bræðra-
parti, Bjarnasonar og Elínar Þor-
láksdóttur.
Afmæli
Engilbert Hannesson
Engilbert Hannesson, bóndi
Bakka í Ölfusi, er 75 ára í dag.
Starfsferill
Engilbert fæddist á Bakka í Ölfusi
og ólst þar upp hjá foreldrum sínum
til nítján ára aldurs. Þá fór hann til
náms í Héraðsskólann á Laugar-
vatni og þaðan í búfræðinám á
Hvanneyri. Hann útskrifaöist sem
búfræðingur 1941.
Engilbert starfaði hjá Búnaðar-
sambandi Dala- og Snæfellsness á
Hvanneyri að námi loknu, vor og
sumar 1941, en gerðist verkstjóri hjá
Framræslu- og áveitufélagi Ölfus-
inga vörið 1942 og var þar til hausts.
Þá fór hann til starfa hjá Efnagerð
Reykjavíkur hf. og starfaði þar viö
heildverslunina til vors 1944. Engil-
bert keypti síðan jörðina Bakka af
foður sínum 1944 og hefur veriö
bóndiþarsíðan.
Engfibert var hreppstjóri Ölfus-
hrepps á árunum 1973-88 er hann
hætti fyrir aldurs sakir. Hann hefur
einnig gegnt ýmsum trúnaðarstörf-
um fyrir stétt sína og starfað að
ýmsum félagsmálum um ævina.
Má þar nefna að hann var á sínum
tíma einn af stofnendum Ung-
mennafélags Ölfusinga og í stjórn
þess um tíma. Þá hefur hann um
áratuga skeið verið í ýmsum nefnd-
um og stjómum fyrir sveit sína og
sýslu, m.a. í hreppsnefnd Ölfus-
hrepps, í skölanefnd Hveragerðis-
skóla, í sýslunefnd Árnessýslu, í
gróðurvemdarnefnd Ámessýslu, í
stjórn Búnaðarfélags Ölfushrepps
og verið umboðsmaður Bmnabóta-
félags íslands í Ölfushreppi.
Fjölskylda
Engilbert kvæntist 24.10.1942,
Ragnheiði Jóhannsdóttur, f. 7.5.1916
á Breiðabólstað á Síðu, húsmóður.
Hún er dóttir Jóhanns, b. á Núpum
í Ölfusi, Sigurðssonar og fyrri konu
hans, Ragnheiðar Helgadóttur, d.
1916, systur Helga Bergs eldri.
Seinni kona Jóhanns var Jóhanna
Magnúsdóttir.
Börn Engfiberts og Ragnheiðar
em: Jóhanna Ragnheiður, f. 22.2.
1945, skrifstofustjóri og húsmóöir í
Hafnarfirði, í sambúð með Páli Jó-
hannssyni og á hún þrjú börn frá
fyrra hjónabandi; Valgerður Hanna,
f. 19.10.1947, fóstra og húsmóðir í
Reykjavík, í sambúð með Garðari
Guðmundssyni og á hún tvö börn;
og Guðmunda Svava, f. 12.7.1952,
næringarráðgjafi á Borgarspítalan-
um í Reykjavík, gift Gunnlaugi
Karlssyni.
Engfibert átti fimm systkini, tvö
þeirra em látin. Systkinin em: Guð-
rún Lovísa, nú látin, húsmóðir í
Hveragerði, var gift Þorvaldi Sæ-
mundssyni, verkstjóra í Hveragerði,
sem einnig er látinn og átti hún fjög-
ur börn; Magnús, múrari í Hvera-
gerði, var kvæntur Sveinu Egils-
dóttur sem nú er látin; Þóröur Val-
geir, nú látinn, sjómaður í Sand-
gerði, var kvæntur Guðrúnu Sig-
urðardóttur frá Seyðisfirði og eign-
uðust þau tvö böm; Guðmundur,
smiður í Reykjavík, og á hann eina
dóttur; og Jóna María, húsmóðir í
Hveragerði, gift Helga Jóhannssyni
ogeigaþaufjögurböm. *
Foreldrar Engilberts voru Hannes
Guðmundsson, f. 23.11.1885 d. 10.12.
1958, b. Bakka og Valgerður Magn-
úsdóttir, f. 2.9.1887 d. 4.11.1954,
húsmóðir.
Ætt
Hannes var sonur Guðmundar, b.
á Þorgrímsstöðum í Ölfusi, Jónsson-
ar og k.h., Herdísar frá Hjalla,
Hannesdóttur. Valgerður var dóttir
Magnúsar, b. Ytri-Þurá í Ölfusi,
Jónssonar og k.h., Katrínar Frey-
steinsdóttur. Magnús á Ytri-Þurá
var sonur Jóns, b. í Saurbæ, Guðna-
sonar, b. í Saurbæ, Gíslasonar, b. í
Saurbæ, Guðnasonar.
Móðir Jóns var Sigríður, vinnu-
kona í Saurbæ, dóttir Snorra Magn-
ússonar, tómthússmanns í Þorláks-
höfn, og konu hans, Þuríðar Jóns-
dóttur. Móðir Magnúsar var Þor-
laug, dóttir Snjólfs Þórðarsonar, b.
í Nobba í Flóa, og konu hans, Helgu
Pálsdóttur.
Móðir Valgerðar var Katrín, systir
Valgerðar, móður Vals Gíslasonar
leikara, föður Vals bankastjóra. Val-
gerður var einnig amma Guðmund-
ar H. Garðarssonar alþingismanns.
Katrín var dóttir Freysteins, b. á
Hjalla í Ölfussi, Einarssonar, b. á
Þurá, bróður Jóns, langafa Halldórs
Laxness.
Engilbert verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Jón Friðrik Jóhannsson
Jón Friðrik Jóhannsson skipstjóri,
Urðargötu 20, Patreksfirði, er fer-
tugurídag.
Starfsferill
Jón Friðrik fæddist á ísafirði en
ólst upp hjá fósturforeldrum sínum
á Sútarabúðum á Gmnnavík í Jök-
ulfiörðum. Þaðan fluttu þau tfi ísa-
fiarðar 1962 er byggð lagðist af í
Grunnavík.
Jón Friðrik gekk í skóla á ísafirði
tfi fiórtán ára aldurs, stundaði nám
við Lögregluskóla ríkisins 1972 og
við Stýrimannaskólann á ísafirði
veturinn 1987-88.
HannvannumtímahjáNorður- .
tanganum og var háseti á Pólsfiöm-
unni frá Hnífsdal í þrjú sumur,
1966-68. Þá var hann lögreglumaður
á ísafirði 1971-76, vömbflsfióri þar
1975-80 og hefur síðan stundað sjó-
mennsku á bátum frá ísafirði, eink-
um á rækju- og hörpudiskveiðum.
Jón Friðrik var skipsfióri á rækju-
bátnum Óskari frá Isafirði tvær
vetrarvertíðir en var á sumrin með
rækjubáta fyrir Flóka hf. á Brjáns-
læk. Hann flutti frá ísafirði að Þverá
á Barðaströnd 1990 og var skipsfióri
á Bjargey frá Brjánslæk 1990-92 en
flutti tfi Patreksfiarðar sl. haust og
er nú skipstjóri á Sigurósk auk þess
sem hann gerir út ásamt Viggó,
bróðursínum.
Fjölskylda
Jón Friðrik kvæntist 2.6.1984 Sig-
urrósu Sigurðardóttur, f. 3.11.1955,
verkakonu. Hún er dóttir Sigurðar
Hannessonar, f. 27.9.1909, d. 1.1.
1976, b. í Ármúla, og konu hans,
Rósu Jóhannsdóttur, f. 23.3.1915, d.
9.9.1989, húsfreyju.
Dóttir Jóns Friðriks og Sigurrósar
er Sigríður Brynja, f. 11.9.1983. Böm
Jóns Friðriks frá því áður em Reyn-
ir, f. 26.2.1974, nemi í Englandi; Jón
Sverrir, f. 3.9.1975, sjómaður á Pat-
reksfirði; Berglind, f. 18.8.1977, nemi
á Siglufirði; Ingi Þórarinn, f. 29.7.
1982, búsettur á ísafirði.
Stjúpsonur Friðriks er Ásgeir
Hólm Agnarsson, f. 29.5.1976, sjó-
maður á Patreksfirði.
Systkini Jóns Friðriks em Sigríð-
ur Jakobína, f. 15.7.1954, starfsmað-
ur á Hlíf á ísafirði, búsett á ísafirði,
gift Hannesi Kristjánssyni, vörubfl-
stjóra frá Ármúla við ísafiarðar-
djúp, og eiga þau fiögur böm; Daní-
el Stefán, f. 12.8.1955, fórst með
rækjubátnum Hauki Böðvarssyni á
ísafiarðardjúpi 25.2.1980, var
kvæntur Láru Margréti Lárasdótt-
ur en þau bjuggu á Isafirði og eign-
uðust tvo syni; Viggó Guðbjöm, f.
12.8.1955, bifreiðastjóri í Kópavogi,
kvæntur Eydísi Ósk Hjartardóttur
og eiga þau tvær dætur; Guðmund-
ur Jóhann, f. 30.11.1958, öryrki á
ísafirði; Halldór, f. 20.12.1960, bú-
settur í Danmörku og á hann einn
son; Kristinn Ragnar, f. 28.8.1962, •
verksfióri í Reykjavík.
Foreldrar Jóns Friðriks: Jóhann
Sigurður Hinrik Guðmundsson, f.
1.10.1905, d. 15.3.1984, sjúkrahúss-
Jón Friðrik Jóhannsson.
ráðsmaöur pg verkamaður á
ísafirði, og Ásdís Ásgeirsdóttir, f.
6.10.1930, verkakona á ísafirði.
Fósturforeldrar Jóns Friðriks:
Jakob Guðmundur Hagalínsson, f.
10.8.1919, d. 3.6.1988, b. á Sútara-
stöðum í Grunnavík í Jökulfiörðum
og síðar verksfióri hjá Norðurtang-
anum hf. á ísafirði, og kona hans,
Sigríður Tómasdóttir, f. 18.7.1922,
húsfreyja.
Engilbert Hannesson.
Til hamingju
með afmælið
11. desember
75 ára
Eyjólfur Jónsson, *
Aðalstræti 8, Reykjavík.
70 ára
Hulda Thorarensen,
Öldugötu 61, Reykjavtk.
Sólveig Guðmundsdóttir,
Fögrubrekku 25, Kópavogi-
ólöf Hulda Sigfúsdóttir,
Vesturbergi 114, Reykjavik.
Halldóra HaJlbergsdóttir,
Dverghamrí 13, Vestmanuaeyjuxn.
Jón Þór ólafsson,
Keilufelli 45, Reykjavik.
50 ára
Viihjálmur Skarphéðinsson,
Vallartúni 6, Keflavík.
Einar F. Sigurðsson,
framkvstj. Auðbjargar hf. og oddvítí
Ölftishrepps, Skálholtsbraut 5, Þor-
lákshöfti.
Eiginkona Eln-
ars cr Helga
Jónsdóttir. Þau
taka á móti
gestmn í Fé
lagshehnilinu í
Þorlákshöfnfrá
kl. 20 á áfmæl-
isdaginn.
Sigurður Brynjó...^„..,
Stórahjalla 29, Kópavogi.
Atli Stefánsson,
Háaleitisbraut 43, Reykjavík.
Kristján Örn Kristjánsson,
Hólagötu 37, Njarövík.
Trausti Hauksson,
Jörfabakka 16, Reykjavík.