Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Side 7
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1992.
7
VANDAÐAR VÖRUR Á GÓÐU VERÐI
Heimilistæki hf
hafa tekiö við CASIO umboöinu
á íslandi
Sandkom
Fréttir
CASIO vörurnar
fást hjá okkur
og umboösmönnum
um land allt.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 S(MI 69 15 15 ■ KRINGLUNNI SÍMI 69 15 20
Umboðsmenn um land allt
Hugmyndaauðgi
: ÞaöþekHia
flestirblaða-; :
mennaðofter
erfittaðsemja
stuttarog
snjallarfyrir-
sagnirágrein-
areðafrðttir.
Góðfyrirsögn
þarfaðvera
grípandiogum
leiðaðtcngiast
efmfrettarmn-
arþannigað
áhugi blaðalesenda fyrir fréttinni
vakni. í blaðamennsku er það þannig
að f rétfamenn bafanuralltaf lítinn
tima. Menn geta því ekki velt hlutun-
um lengi fyrir sér. Því er öfugt farið
með ævisöguritara. beir hafa heilt ár
að öllu jöfhu tiláð finna gott nafn á
bökina. Samt er það svo fyrir þessi
jól að einar átta ævisögur eru með
orðið -líf- annaðhvort í aðal- eða und-
irtifli bókarinnar. Lífssigiing. Ufs-
saga Ragga Bjarna, Lifsganga Lydíu,
Lifsinsdómino.Lífsmyndafskáldi,
Líf Ástu Sigurðardóttur, Rósa, líf og
störf og Undarlegt er lifmitt hað ■
verður ekki sagt að höfundarþessara
bóka séu hugmyndaríkir bókatitla-
smiðir.
Vantar laghenta
menn
PállPéturs-
sonfráHöllu-
stööumsatí
Kringlimni i
Alþingishúsinu
íLsami ficiruni
mestgekkáí
Indlandi vegna
niðurnfsáhoíl
hindúaþari ;
landi.Þarkom
talimannaað
þeirspurðu
hvort Páll vissi hvenær Steingrímur
Hermannsson, formaður Fi-amsókn-
arflokksins, kætniheim frá útiönd-
um. Páll sagðist ekki vita betur en
að hann kæmi heim frá Sri Lanka í
vikulokin. Þá sagði einhver að Steín-
grímur ætlaði að koma við í Indlandi
áheimleiðinni. Þá kemurhann ekki
heim í vikulokih: Þeir taka hann í að
smíða hof. Þá vantar svo lagitenta
smiði í Indlandi, sagði PáU.
Starfsmaðurinn
íritiLands-
sambands.sma-
bátaeigenda,
Orimfnxa, sem
komútfyrir
skömmu,er
sagtfráþvíað
fyrirekkiall-
iönguhafinýr
starfsmaður
hafiðstörfí
sjávarútvcgs-
ráöuneytinu.
Hannkynntist
fljótlega starfsfólkinu í kringum sig,
nema einum manni sem alltaf var á
ferðinni fram og til baka i ráðuncytis-
skrífstofunum. Nýliðinn taldi víst að
þetta væri einn af þeim stóru í ráðu-
neytinu. Svo eitt kvöldíð, þegar hann
sat og horfði á sjónvarpsfréttimar,
birtíst allt í einu þessí „vinnufélagí"
hansá skjánum og var kynntur sem
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna.
■ ... r.: • « .
Jatnrettiö
Fyrir
skömmulagði
dómsmáiaráö-
herrafram
frumvarpáAl-
þingi sem heitir
Frumvarptil
Meöfrmnvcap-
inuergertráð
fyríraðfestaí
lögalgertjafn-
ræðihionai
hjuskapsínum.
Þeim sé sky lt að gera h vort öðru fulla
grein fyrir flárhag sínum eins og seg-
ir x 3. grcin frumvarpsins. Þar segir
einmgaðhiónskuliskiptajafntmeð
sér öllum verkum á heimili. Þegar
blaðamönnum var afhent frumvarp- ;
ið varð þessi vísa tíl í blaðamanna-
herbergiAlþingis.
Aölögnm okkur leiða má
til lögreglunnar tíftís,
nema viö séum ofan á
clskan mín, til skiptis.
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Saksóknari í máli íslensku steramannanna í Flórída:
Slyngir af brotamenn
fremja ekki heimskupör
- íslendingamir færðir hlekkjaðir í rauðum fangabúningum fyrir dómara
Anna Bjamasan, DV, Flórida:
Þeir voru heldur raunalegir á svip-
inn íslensku fangamir tveir sem hafa
setið undanfarið í alríkisdeild ríkis-
fangelsisins í Sanford í Flórída þegar
þeir voru leiddir í handjámum í rétt-
arsalinn í Orlando í fyrradag. Fang-
amir vom í rauðum fangabúning-
um, berfættir, í sandölum, hlekkjaðir
á höndum og fótum. Handjárnin
voru leyst af þeim áður en þeir sett-
ust við hlið verjanda síns.
Formsatriði varðandi réttarhöld
yfir sakbomingxmum voru tekin fyr-
ir í fyrradag. Þeir era ákærðir fyrir
innflutning og sölu á steralyfjum,
einkum anabolin. Sakborningamir
eru íjórir, tveir Bandaríkjamenn og
íslendingamir. Annar Bandaríkja-
mannanna var afar myndarlegur á
velli, ljóshærður og þrekinn og leit
út fyrir að geta rekið heilsuræktar-
stöð. Landi hans var ekki athyglis-
verðúr.
Dómarinn, D.P. Dietrich, hóf mik-
iim lestur yfir sakborningunum sem
kinkuðu kolli til merkis um að þeir
skildu það sem fram fór. Að endingu
kváðust sakborningarnir saklausir.
Alríkisdeild, eða H-álman, er í húsi númer 211 við Norður Bush-götu. Þarna
sitja íslensku fangarnir.
DV-mynd Anna Bjarnason
Síðar munu þeir þó breyta framburði
sínum. Með þessum gangi málsins
fela þeir dómara meðferð á málinu í
stað þess að kviðdómur sé látinn
dæma.
í samtali við tálbeituna, Michael
R. Godfrey, og saksóknarann Randy
Gold kom fram að yfirvöld vita nú
hvaða „grín" íslendingamir höfðu í
frammi er þeir gáfu upp heimilisfang
fyrirtækis síns á íslandi: „Enganveg
númer 18“. Þetta telja mennirnir
heimskulegt og geti komið íslending-
unum í koll. Saksóknarinn bætti við:
„slyngir afbrotamen beita ekki slík-
um heimskubrögðum."
Á meðan beðið var eftir dómaran-
um gerðu menn að gamni sínu -
fangar og lögmenn hentu ýmis gam-
anyrði á lofti. Ekkert hefur verið
ákveðiö með næsta þinghald í málinu
en saksóknarinn telur að það verði
eftir 10-14 daga. Hann telur endan-
legan dóm ekki kveðinn upp fyrr en
í febrúar. Á meðan munu íslending-
amir dúsa í betrunarhúsinu. Kunn-
ugir hafa tjáð blaðamanni DV að
þeir séu heppnir að hafa lent í fang-
elsinu í Sanford sem er alveg nýtt.
Hentu sér út úr bílniim:
Hársbreidd frá
stórslysi
Mikil mildi þykir að ekki fór verr
þegar pallbíll endasentist 20-30
metra niður af vegi, rétt sunnan viö
Djúpavog á þriöjudag. Tveir menn
voru í bílnum og náðu þeir að henda
sér út, sekúndubrotum áður en bfil-
inn fór fram af veginum.
„Við vorum á leið upp bratta
brekku í glerhálku. Bíllinn stoppaði
ofarlega í brekkunni, komst ekki
lengra og byrjaði þá að renna aftur
á bak. Það var ekkert hægt að gera.
Bfilinn rann út á vegbrúnina en þar
var enginn kantur og því enginn
mótstaða. Hann stöðvaðist þó í
nokkrar sekúndur á smámöl sem
náði upp úr klakanum á brúninni og
þá náðum við að henda okkur út,“
segir Víðir Björnsson frá Hamri við
Djúpavog.
Hann segir að bíllinn hafi runnið
þvers og snúist og að lokum steypst
beint fram af vegbrúninm. Víðir seg-
ir að þeir hefðu fyrst orðið verulega
hræddir eftir á þegar þeir horfðu á
bfiinn ofan í urðinni fyrir neðan veg-
inn.
„Það var ekkert á pallinum á bfin-
um og hann var því mjög léttur. Ég
fann að hann skreið alltaf framar og
framar á vegarbrúninni og það var
ekkert sem hélt í hann,“ segir Víðir.
Þó furðulegt megi virðast þá
skemmdist bíllinn ekki mikið í fall-
inu. Víðir segist hafa rykkt.honum í
handbremsu áður en hann henti sér
út og svo rann bíllinn niður urðina
og stöðvaðist 20-30 metram neðar.
„Það er næsta víst að ef við hefðum
setið í bílnum hefði hann oltið vegna
þunga okkar. Þaö er einnig mesta
mfidi að bíllinn skyldi hafa fariö
fram af einmitt þarna því aðeins
steinsnar tfi hliðar er mikið stór-
grýti," segir Víðir. -ból
Leiðrétting
í frétt DV í gær um hækkun með-
lagsgreiðslna umsnerist nafn fram-
kvæmdastjóra Innheimtustofnunar
sveitarfélaga. Sagt var að hann héti
Guðjón Árnason en rétt er nafnið
Ami Guöjónsson. Beðist er velvirð-
ingaráþessu. -kaa