Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Page 23
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1992.
31
>
i
>
J
>
1
>
>
>
>
Fréttir
Minkur inn í íbúðarhús
- eigandi íbúðarinnar skaut hann á færi
ÞórhaDur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
„Ég var nýkominn heim seint um
kvöld, fannst hitinn óbærilegur í
húsinu og ákvað að hafa útidyra-
hurðina opna smástund. Skömmu
síðar þegar ég leit til dyranna
fannst mér eins og væri kominn
skór á þröskuldinn og fannst það
undarlegt, svo sá ég að þetta
hreyíðist og leist ekkert á blik-
una,“ sagði Gísli Sigurðsson, frjáls-
íþróttakappi og læknaritari, en í
síðustu viku skaut hann mink við
heimiii sitt á Króknum eftir nokk-
urn eltingaleik.
„Minkurinn kom síðan inn á
mottuna í forstofunni og ætlaði sér
greinilega inn. Ég hvæsti á móti
honum og minksi sá þá sitt óvænna
og hopaði út úr húsinu. í skyndingu
náði ég mér í byssu og skotfæri og
æúaði að sjá hvað verða vildi fyrir
utan. Minkurinn fór ekki lengra en
út á planið fyrir framan bílskúrinn,
sem er upphitað, og virtist forðast
að fara í snjóinn. Það var smáelt-
ingaleikur á planinu, hann faldi sig
undir bílnum í nokkur skipti og ég
rak hann jafnharðan þaðan. Þegar
hér var komið ver veiðieðlið komið
svo upp í mér að þegar ég náði að
hrekja hann að útjaðri plansins
hlammaði ég á hann einu skoti. Ég
áttaði mig eiginlega ekki fyrr en
hvellurinn kvað við, hvað ég hafði
eiginlega gert, og klukkan rétt um
tólf á miðnætti. Nágrannarnir urðu
samt einskis varir,“ sagði Gísh en
hann býr í raðhúsi í Raftahlíðinni.
Gísh heldur að hér hafi verið á
ferðinni búrminkur. Er greinilegt
að varasamt getur reynst að hafa
útidyr og bflskúrshurðir opnar.
GísU sagðist í fyrravetur hafa séð
greinilega slóð eftir mink hringinn
í kringum sjúkrahúsiö, þann hafi
greinilega langað til að komast inn
í yUnn.
Bilveltan á Melatorgi
DV-mynd Sveinn
Stútur við stýr-
ið á Melatorgi
Bfll valt á Melatorgi 1 fyrrakvöld.
Ökumaðurinn, kona á fimmtugs-
aldri, er grunuð um ölvun við akst-
ur. Ffarlægja þurfti bflinn með
kranabíl en konan slapp ómeidd.
Annar ölvaður ökumaður var á
ferð í Birkigrund í Kópavogi og lenti
þar utan í húsi og á öðrum bfl.
Þá missti ökumaður á Suðurgötu
vald á bfl sínum í hálku með þeim
afleiðingum að hann keyröi fyrst á
vegg og síðan á ljósastaur. Maðurinn
meiddist ekki en bíllinn skemmdist
töluvert. -ból
Slökkvibifreið
fór á hliðina
Ægir Már Karason, DV, Suöumesjum
Einn af þremur nýjum slökkvibif-
reiðum á Keflavíkurflugvelli, sem
komu á dögunum til landsins, fór á
hliðina í gær (miðvikudag). Bifreiðin
var á leið út á flugbraut í rólegheit-
unum og að sögn sjónvarvotta rann
bflhnn til í hálku í beygju og þaðan
á þurran blett og fór þá loft úr einu
dekkinu. Bíllinn var mjög lengi að
fara á hhðina eins og veltan hefði
verið sýnd hægt í kvikmynd.
Tveir menn voru í bílnum og fengu
þeir aðeins smáskrámur en sá sem
keyrði er með yfir 30 ára reynslu í
akstri slökkviliðsbfls. Bíhinn er um
40 tonn fuhhlaðinn og mun vera ætl-
unin að gera við hann og áætlað að
það kosti nokkrar mflljónir.
Slökkvihðið á Keflavíkurflugvelh
hefur ekki lent í svona atviki áður,
eða í yfir 30 ár.
Hlíðarfjall:
Allar brekkur að
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Starfsmenn skíðasvæðisins í Hhð-
arflahi við Akureyri eru nú að ljúka
við undirbúning þess að hægt verði
að opna allar lyftur í fjallinu en tvær
neðstu brekkumar, Hólabraut og
Hjahabraut, voru opnaðar fyrr í vik-
unni.
Að sögn starfsmanns í Hhðarflalh
er þónokkur snjór kominn í efri
brekkumar og hafa brekkur verið
troðnar gengiö frá lyftum. Því má
segja að það velti fremur á veðrinu
en öðrum aðstæðum í fjaliinu hvort
ahar lyftur verða opnaðar þar.
Bókmum Sykuimolatia
Skemmtílég lesning!
Bókinni fylgir hinn
vinsæli geisladiskur,
„Stick Around For Joy“
fyrir aðeins 200 kr.
aukalega, ef óskað er!
„Frásögn Árna af ferli hljóm-
sveitarinnar er nákvæm og
kórrétt og bókin er skemmtileg lesning...
...Sykurmolabókin er algjört möst fyrir Sykur-
molaáhugafólk, góð afþreying fyrir flesta aðra
og ein albesta bók íslenzk sem skrifuð hefur
verið um rokktónlist."
Sykurmolarnir árita bók sína í Hagkaupum
Kringlunni á morgun, laugardag, frá kl. 2
til 4. Bókinni fylgir hinn vinsæli geisla-
diskur, „Stick Around For Joy“ fyrir aðeins
200 krónur aukalega, ef óskað er.
★ ★★★
Gunnar Hjálmarsson, Pressunni
ÖRN OG
ÖRLYGUR
Síðumúla 11, sími (91) 68 48 66