Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1992, Qupperneq 8
mmmqpm vmm, m.
Útlönd
Gífurlegur jarðskjálfd í Indónesíu varð þúsundum manna að fjörtjóni:
Flóðbylgja drekkti
öllum á einni eyju
1200 manns fórust þar og ótölulegur flöldi víðar í strandbyggðum
„Flóðbylgjan var á hæð viö átta
hæða byggingu,“ sagði sjónvarvottur
sem lifði af hörmungamar sem
gengu fyrir strandhéruö Indónesíu
um helgina. Á laugardaginn varð
jarðskjálfti, sem mældist 6,8 á Richt-
er, og í kjölfarið fylgdi flóðbylgja sem
náði allt að tuttugu og fimm metra
hæð. Hún varð flestum að fjörtjóni.
Á smáeyjunni Babi úti fyrir strönd
Flores bjuggu 1200 manns. Björgun-
armenn segja að þar sé enginn á lífi
eftir að flóðbylgjan færði eyjuna í
kaf. Alls er búið að finna 1226 lík en
það er þó hvergi nærri lokatala því
þúsunda er saknað í strandbyggðum
Flores og á eyjum þar fyrir utan.
Þá er óttast aö enn fleiri eigi eftir
að látast á næstu dögum því hjálpar-
gögn eru af skornum skammti. Regn-
tíminn, kaldasta ársfíðin, stendur nú
yfir og þykir sýnt að margir muni
látast úr kulda og vosbúð. Mikill
skortur er á lyfjum til að hindra út-
breiðslu farsótta. Því mim líða lang-
ur tími áður en hægt verður að segja
£H!If
hve mörg mannslíf þessar náttúru- Stjómvöld í Indónesíu hafa sent
hamfarir hafa kostað. hjálparbeiðni til þjóða heims og ósk-
að sérstaklega eftir lyfjum og tjöld-
um. Þá er óskað eftir hjálparsveitum
því víöa hefur ekkert spurst til fólks
á eyjum við ströndina.
í bænum Maumere á eyjunni Flor-
es er óttast að þúsund manns hafi
farist og 200 í nærliggjandi þorpi. í
bænum hrundu flestar byggingar.
Þar bjuggu um 70 þúsund manns og
em flestir flúnir. Sjúkrahúsiö á
staðnum eyðilagðist í skjálftanum
sem og flestar opinberar byggingar.
Herskip er nú komið á staðinn með
hjálargögn.
Skjálftinn varð neðansjávar um 30
kílómetra frá Maumere. Hann er
einn hinn öflugasti sem orðið hefur
á þessum slóöum í manna minnum.
Jarðskjálftar þar em þó tíðir. Flóð-
bylgjan er einnig einhver sú mesta
sem sögur fara af. Eyjan Flores er
flölsótt af ferðamönnum en ekki er
vitað hvort einhver þeirra hefur far-
ist.
Reuter
VANDAÐIR
SKRIFBORÐS-
STÓLAR
KR.
8.327,- STAÐGR,
1+2+3 SÆTA
VERÐ KR. 252.000
CD DISKASTANDAR
VERÐ FRÁ
KR. 3.870,-
FATA-
STANDUR
KR.
15.848,-STAÐGR.
DÆMI: 25% ÚT, KR. 7.832,- Á MÁN,
Amsterdam
SKRIFBORÐSSTÓLAR
FRÁ KR. 3.990,- STGR.
Verð kr. 65.950,- staðgr
OÆMI: 25% ÚT, KR. 3.056,- Á MÁN.
VERÐ FRA KR. 11.544,
ÝMSAR SMÁVÖRUR Á GÓÐU VERÐI!
• MATAR- OG KAFFISTELL F. 4 KR. 2.849,-
• MATAR- OG KAFFISTELL F 6 KR. 3.990,-
• RUSLAFÖTURFRÁKR.600,-
• LAMPAR, MARGAR GERÐIR, FRÁ KR. 990,-
• BRAUÐBAKKAR FRÁ KR. 200,- • HITABRÚSAR
FRÁKR. 1.580,- • HNÍFAPÖR F.6 FRÁ KR. 1.190,-
• FÖT FYRIR ÖRBYLGJUOFNA ------------------
FRÁ KR. 550,- • HVÍTVÍNSGLÖS
F. 12 MANNSKfí. 2.250,- • PÚÐAR
FRÁ KR. 390,- • BLÖMAPOTTAR ( f '
FRÁ KR. 200,-• EGGJAKLUKKA j , t f . ,,
KR. 990,- i
ÚRVAL AF VÖNDUÐUM: !•-—Mjr™^
• KOMMÓÐUM • SKÚFFUSKÁPUM | 3 | \
• VÍDEÓSKÁPUM • SKÖSKÁPUM
Á GÓÐU VERÐI. ___________j
GAMMA
KR. 5.640,- STGR.
BARIS-BORÐ
3 MISMUNANDI HÆÐIR
lEINUBORÐI
ELDHÚSBORÐ
OG STÓLAR
BURMA
KR. 9.310,-STGR.
BAHAMAS
KR. 35.150,-
STGR.
RAÐGREIÐSLUR
U LS HUSGOGN
SMIÐJUVEGI 6, KÓPAVOGI S 91-44544
KAUPVANGI, AKUREYRI S 96-12025
Bleiki fíllinn kominn í jólaskap
— CORONA
Sex ísraelar
sáu Saddam
líkamnast
Geðlæknar í ísrael hafa sex landa
sína í meðferð vegna svokallaðrar
Saddamveiki sem fyrst varð vart í
Persaflóastríðinu. Einkenni veikinn-
ar er að fólk sér Saddam Hussein
íraksforseta fyrir sér holdi klæddan.
Veikin er talin stafa af ótta sem greip
um sig þegar írakar sendu Scud-
flugskeyti á ísrael í stríðinu.
Myrtu 89 manns
fyrir kýr, geitur,
úlfalda og asna
Ókunnir ránsmenn frá Súdan
myrtu 89 menn í Keníu og rændu
öllum búsmala á stóm svæði í norð-
urhluta landins. Ræningjamir vom
vel vopnaöir nýtísku byssum og
hurfu á braut með kýr, geitur, úlf-
alda og asna. Alls er talið að þeir
hafi haft 7000 gripi upp úr krafsinu.
í hópi hinna látnu em 42 böm og
32 konur. Þetta er versta búrán á
þessum slóðum frá árinu 1988 þegar
191 maður var myrtur í ránsferð
Súdana.
Lífstíðarfangeisi
fyrír að skjóta
örígegnumhöf-
uðelskhugans
Dómari í San Diego í Kalifomíu
hefur dæmt rúmlega tvítugan mann
í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta ör
af lásboga í gegnum höfuð elskhuga
síns.
Mennimir bjuggu saman en sam-
búðm var stirö og sagðist hinn
dæmdi hafa þjáðst af sálarkvilla, sem
hann kallaöi „barinnarkonuein-
kenni“, eftir nauðganir og barsmíöar
elskhugans. Dómarinn tók ekki tillit
til sjúkdómsins.
Reuter
Norðmennhafa
tapaðstríðinuvið
Finnaumjóia-
sveininn
Norskir landkynnar segja að
stríðið við Pinna um eignarhald
á jólasveininum sé tapað. Finnar
hafl Tágt allt undir til að tefla
heimsbyggðinni trú um að jóla-
sveinninn ætti heima í Lappahér-
uðum Finnlands og haldi til í
Rovaniemi, höfuðstað flnnska
Lapplands, milli jóla.
Um tíma bárust nær öll bréf til
jólasveinsins til ritara hans i
Ósló. Norðmenn uggðu ekki að
sér og héidu að allir vissu aö þar
væri hans að leita. Nú fær norski
jólasveinninn vart bréf lengur en
í Rovaniemi er allt að drukkna í
bréfum. Þar era menn hins vegar
ekki vissir um að hagnaður sé af
sveinka.
ÁttaaftíuSvíum
bíðajólannameð
óþreyju
Ný skoðanakönnun í Svíþjóð
sýnii' aö átta af hverjum tíu
Svíum eldri en 16 ára hlakka til
jólanna. Þetta kemur mönnum á
óvart því jólin hafa verið á und-
anhaldi í Svíþjóð siðustu ár og
ekki verið sama hátíðin og var
áður.
Könnunin gaf einnig vísbend-
ingar um að trúrækni fari vax-
andi þegar líður að jólum. Til
skamms tíma hafa jólin verið
hátíð kaupahéðna í Svíþjóð eins
og víöast annars staðar á Vestur-
löndum.
Loftsteinn
skelfdi menn á
Jótlandi
Mikið uppístand varðá Jótlandi
í laugardaginn þegar fólk þar sá
torkennileg ljós á lofti og taldi að
geimverur væru að gera innrás.
Fólk hringdi í herinn og spurði
hvað væri að gerast.
Fljótlega var upplýst aö ljósin
voru vissulega utan úr geimnum
en þau komu frá loftsteini sem
sprakk í tiu til fimmtán bluta
þegar hann kom ínn í lofthjúp
jaröar. Brotin brunnu upp á leið
til jarðar og sáust greinilega á
Jótlandi og raunar víðar um
Norðurlönd.
LizTaylorsagði
fyrstaorðiðfyrir
MaggieSimpson
Þá er Maggie Simpson, systir
óbermisins Barts Simpson, búin
að segja sitt fyrsta orö. Þar sem
um teiknimyndapersónu er að
ræöa verður hún aö fá rödd sína
að láni.
í þeim efnum var leitað til Elísa-
betar Taylor, leikkonu og stór-
stjörnu. Hún geröi sig barnalega
í rómnum og sagði pabbL Eldri
systkini Maggie kaila foður sinn
alltaf Hómer enda sambandið ást-
lítið.
Aðstoðarmaður
Sómalíu
Aðstoðarmaður Normans
Schwartzkopf, hershöfðingja og
stríðshetju úr Persaflóastríðinu,
á aö stýra liöi Bandaríkjamanna
í Sómalíu. Sá heitir Robert Jo-
hnston og er hershöföingi að tign.
Hann á aö hafa aflað sér þcirrar
reynslu í baráttunni viö íraka
sem nægir til að leiða liöiö gegn
stríösherrum Sómalíu.